Tíminn - 24.06.1989, Page 14
26 Tíminn
Laugardagur 24. júní 1989
llllllllllllllllllllll DAQBÓK
STÍGÐU
Á ÍSLANDl ÆYt
f ÞAGÖ F
FRIDARHLAUP ’89
Á morgun, sunnud. 25. júní, koma
hlauparar í Friðarhlaupinu til Reykjavík-
ur eftir að hafa lagt um 3500 km leið að
baki. Hlaupinu lýkur formlega með
athöfn, sem hefst kl. 15:00 á Lækjartorgi,
en hlauparar eru væntanlegir kl. 15:30.
Frá Mosfellsbæ er tímaáætlunin þessi:
Kl. 11:30 Mosfellsbær, kl. 12:30 Ársel,
Árbæ, Kl. 13:00 Höfðabakkabrú, kl.
13:30 Sundlaugin í Breiðholti, kl. 14:00
Breiðholtskirkja, Mjódd, kl. 14:30 Vest-
an Elliðaárbrúar, kl. 15:00 Miklatún, kl.
15:30 Lækjartorg.
Hljómsveitin Gildran byrjar að leika
kl. 15:00 á Lækjartorgi. Fulltrúar þing-
flokkanna, lSÍ og Ungmennafélags ls-
lands hlaupa með frá Miklatúni og láta
friðarkyndilinn ganga á milli sín. Magnús
Frá upphafl Friðarhlaups ’89 á Lækjar-
torgi 4. júní sl. F.v.: Valgeir Guðjónsson,
Steingrímur Hermannsson og Sri Chin-
moy, upphafsmaður hlaupsins
Þór Sigmundsson flytur nokkur lög og
fleira verður á dagskrá á Lækjartorgi.
Kynnir verður Jakob Þór Einarsson. (
lokin flytur Gildran nokkur lög.
Tæplega fjögur þúsund manns hafa
tekið þátt í hlaupinu til þessa. Allir eru
hvattir til þess að hlaupa, lengri eða
skemmri vegalengdir í Reykjavík.
„Stígið skref í þágu friðar. Sri Chinmoy
hópurinn á íslandi vill þakka þeim fjöl-
mörgu um allt land sem tekið hafa þátt í
hlaupinu og veitt því stuðning," segir að
lokum í fréttatilkynningu.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Orgelleikari
Kristín Jónsdóttir.
Cecil Haraldsson
Hafnarfjarðarkirkja
Guðsþjónusta fellur niður vegna inn-
setningar biskups í embætti.
Sr. Gunnþór Ingason
Hallgrímskirkja - Starf aldraðra
Hin árlega fjögurra daga ferð verður
farin 10.-13. júlí nk. Gist verður í sumar-
húsum í Vík og Skaftafelli. Komið við í
Þórsmörk, Eldgjá, Kirkjubæjarklaustri,
Jökullóninu og fleiri stöðum eftir því sem
veður og tími leyfa.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur á
kvöldin í síma 39965.
Sumarferð Digranessafnaðar
Hin árlega sumarferð Digranessafnað-
ar verður farin sunnudaginn 2. júlí. Farið
verður um Suðurnes, lágsveitir Árnes-
sýslu og Þingvelli. Helgistund verður í
Kálfatjarnarkirkju í umsjá sr. Braga
Friðrikssonar prófasts.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrir miðviku-
dagskvöld í síma 40863 (Guðlaug) eða
41845 (Elín).
Brúðubíllinn í Skerjafirði
f sumar mun Brúðubíllinn verða með
sýningar á gæsluvöllum borgarinnar eins
og undanfarin ár.
1 upplýsingabæklingi um sumarstarf í
Reykjavík 1989 og á gæsluvöllum eru
nánari upplýsingar um hvar og hvenær
sýningar verða.
Sýningum hefur síðan verið bætt við í
Skerjafirði og verða þær á leikvellinum
við Einarsnes 26 26. júní kl. 14:00 og
miðvikudaginn 12. júlí kl. 10:00.
íþrótta- og tómstundaráð
Preben Boye
Laugard. 24. júní kl. 14:00 verður
opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á högg-
myndum Prebens Boye úr granít.
Sýningin er opin kl. 14:00-18:00 og lýkur
þann 9. júlí.
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús ■ Goðheimum, Sigtúni 3, á
morgun sunnudag. Kl. 14:00 frjálst spil
og tafl. Kl. 20:00 dansað.
Athugið:
Farin verður dagsferð laugardaginn 1.
júlí um Hvolsvöll, Fljótshlíð, Þórsmörk,
Hellu og Selfoss.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins í
síma 28812.
Forsýning á
Regnbogastráknum
Sunnudaginn 25. júní verður forsýning
fyrir almenning á barnaleikritinu „Regn-
bogastrákurinn"
eftir Ólaf Gunnarsson kl. 17:00 í Gerðu-
bergi. Leikstjóri er Eyvindur Erlendsson.
Leikarar eru: Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Emil Gunnar Guðmundsson og Alda
Arnardóttir.
Sýningin tekur rúma klukkustund í
sýningu.
Kjarvalsstaðir:
Haukur Dór
Laugardaginn 24. júní verða opnaðar
sýningar á Kjarvalsstöðum. Þar verða
sýnd málverk Hauks Dórs frá síðastliðn-
um tveimur árum. Við opnun sýningar-
innar verða boðin til sölu steinþrykk,
unnin hjá U.M. Grafik í Kaupmannahöfn
á sérstöku kynningarverði. Sýningin er
opinkl. 14:00-18:00oghennilýicur9. júlí.
Háskólafyrirlestur
um Sænsku akademíuna
Sture AUén prófessor, ritari Sænsku
akademíunnar, flytur opinberan fyrirlest-
ur í boði Heimspekideildar Háskóla (s-
lands og Norræna hússins mánudaginn
26. júní kl. 20:30 í Norræna húsinu.
Fyrirlesturinn nefnist “Svenska Ak-
ademien och dess arbete" og fjallar um
störf akademíunnar sænsku. Hann verður
fluttur á sænsku og er öllum heimill
aðgangur.
Sture Allén er prófessor í máltölvun
(málvísindalegri gagnavinnslu) við há-
skólann í Gautaborg. Hann hefur oft
áður flutt fyrirlestra á íslandi um mál-
fræðileg efni, helst tengd tölvuvinnslu, en
hann er brautryðjandi í máltölvun á
Norðurlöndum. Hann var kjörinn í
Sænsku akademíuna 1980 og hefur verið
fastaritari hennar síðan 1986.
Þess má geta, að Sænska akademían er
væntanleg í heimsókn til íslands í siðari
hluta ágústmánaðar til að fræðast um
íslenska menningu, og má það teljast
sögulegur viðburður. Hún hefur aðeins
einu sinni áður - í rúmlega 200 ára sögu
sinni - farið út fyrir Iandsteina, en það var
þegar hún fór til Finnlands fyrir fáeinum
árum af sérstöku tilefni, segir í fréttatil-
kynningu frá Háskóla (slands og Norræna
húsinu.
Handritasýning í Árnagarði
Handritasýning Stofnunar Áma Magn-
ússonar er í Árnagarði við Suðurgötu á
þriðjudögum, fimmtudögum og Iaugar-
dögum kl. 14:00-16:00 til 1. september.
Sumarsýningar
í Norræna húsinu
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní voru
opnaðar tvær sýningar í Norræna húsinu.
Sýning á málverkum eftir Jóhann Briem
var opnuð í sýningarsölunum og eru sýnd
um 30 málverk, öll í eigu einstaklinga eða
stofnana. Verkin eru máluð á árunum
1958 til 1982.
Jóhann Briem er fæddur 1907. Hann
lauk námi frá Ríkislistaskólanum í Dres-
den 1934 og hélt sína fyrstu einkasýningu
í Góðtemplarahúsinu um haustið það ár.
Eftir það hélt hann margar sýningar í
Reykjavík fram til 1963. Stór yfirlitssýn-
ing á verkum hans var haldin í Listasafni
íslands 1977 og aftur í Listasafni ASÍ
1983.
Sýningin stendur fram til 24. ágúst og
er opin daglega kl. 14:00-19:00.
I anddyri hússins var opnuð sýning sem
nefnist JÖRÐ ÚR ÆGl. Viðfangsefnið
er jarðfræði, gróður og fuglalíf í Vest-
mannaeyjum.
Sýningin er liður í þeirri starfsemi
Norræna hússins að kynna fsland fyrir
erlendum gestum sem heimsækja húsið.
Náttúrufræðistofnun íslands á 100 ára
afmæli á þessu ári og því þótti tilvalið að
leita til sérfræðinga stofnunarinnar með
þessa sýningu.
Eyþór Einarsson, forstöðumaður Nátt-
úrufræðistofnunar, Sveinn Jakobsson
jarðfræðingur og Ævar Petersen fugla-
fræðingur hafa ritað skýringartexta, en á
sýningunni eru sýnishom af plöntum,
steinum og sjófuglum á Vestmannaeyja-
svæðinu.
Sigurjón Jóhannsson sér um uppsetn-
ingu og hönnun sýningarinnar.
Sýningin verður opin fram til 24. ágúst
og opin kl. 09:00-19:00 nema sunnudaga
kl. 12:00-19:00.
Sumarleyfisferðir
Ferðafélags íslands
6.-14. júlí (9 dagar): Homvík. Ferðin
hefst 6. júlí frá Reykjavík og 7. júlí frá
ísafirði. Siglt með Fagranesinu til Hom-
víkur. Gist í tjöldum. Daglegar göngu-
ferðir um nágrennið, m.a. á Hombjarg,
Hælavíkurbjarg og víðar.
6.-14. júlí (9 dagar) Hesteyri-Homvík
Gönguferð með viðleguútbúnað frá Hest-
eyri í Hornvík. Á föstudegi er siglt með
Fagranesinu frá ísafirði til Hesteyrar og
gengið á þremur til fjómm dögum til
Hornvíkur. Fararstjóri er Gísli Hjartar-
son.
11-16. júlí (6 dagar) Hvítámes-Þver-
brekknamúli-Þjófadalir-Hveravellir.
Gengið með svefnpoka og mat á fjórum
dögum frá Hvítárnesi til Hveravalla. Gist
í sæluhúsum F.í. Skoðunarferðir frá án-
ingarstöðum.
12.-16. júlí (5 dagar): Snæfellsnes-Dal-
ir-Húnavatnssýsla-Kjalvegur. Gist verður
í svefnpokaplássi.
14.-21. júlí (8 dagar): Lónsöræfl. Val
er um áætlunarbíl frá Reykjavík á
fimmtudegi eða flug á föstudegi til Horna-
fjarðar. Þaðan ferðast með jeppum inn á
Illakamb í Lónsöræfum. Gist á tjaldstæði.
Akureyjar
Rúfeyjar
E HEIDAFJÖRDUR
Mlöfjall2^
Bjarncyjar
Klofninour
1 Asgaröuf
Hvamrtujrf
Tunoumúli
'tykkishólmur,
Búöardalur.
Vatnspjall Geldinoafell
j tsio,i Vtinaha^TTjÆ.'
Klambrafeí
elliísandur
Jjr*n Kvlabryggja % ll:
ffl&fosa*4*3 % v
hóföt • y
rápuhliÖQrfjall
Bílduhólsfell
Rauöamtlsheiöl l
Bakkamúi
Hrnuns■
I <2. ÓLAFSVÍKTHS
N^shrnunA Hreoonasi ©
I Sandkúlur
1 ‘ Snæfellsjökull
Svinafell
Snjófjðll
Wuöamelsfjall
yltjöll
llatindar
a?rWsfa(1.iMí3rn
'.uhúorgarV H _
hra.m
Sandur
[®ðars>J®'V g
Staðaánaður
Buðavik
TróilakkKja
Baula
Hvamrnu
t ómnQahraun
! F'Shjyatn
Órnólfsdalssandi
’J 'yAuöimat/
ropcS^ögatakd Burfell
J4 St eindörsstaöaðx I
■
adalur Þóreyjartungur
VEGAFRAMKVÆMDIR
VESTURLAND II
d Hvoisfjaii
^ Bessatunga
574 Útnesvegur (3 m.kr.) 57 Snæfellsnesvegur 60 Vestfjarðavegur
Um Djúpudali. Lagfærðir (viðhald) á Skógarströnd. (viðhald) á Bröttubrekku.
Snjóstaðir, 1,5 km. Styrking og lagfæring, Styrking og lagfæring,
5 km. 6 km.
1 Vesturlandsvegur 60 Vestfjarðavegur (13 m.kr.) Víðir - Bessatunga. Lokið undirbyggingu, 3,9
(6 m.kr.) Sveinatungumúli. Klæðing, 4.2 km.
km.
Daglegar gönguferðir. Farmiðasala og
upplýsingar á skrifstofu Ferðafélagsins,
Öldugötu 3.
Fráteknir miðar í ferð um Breiðafjarð-
areyjar verða að sækjast fyrir kl. 17:00
mánud. 26. júní. Biðlisti er í ferðina.
Næstu helgarferðir F.Í.
30. júní - 2. júlí: Þórsmörk. Gist í
Skagfjörðsskála. Afsláttur ef verið er
lengur en þrjár nætur. Upplýsingar á
skrifstsofu F.L Öldugötu 3.
30. júní-2. júlí - Dalir. Gengin gömul
þjóðleið: Hvammur-Fagridalur. Gist í
svefnpokaplássi að Laugum í Sælingsdal.
30. júní-2. júlí - Öræfajökull. Gengið
á Öræfajökul. (um 14 klst. ferð). Gist í
tjöldum í Skaftafelli. Brottför kl. 08:00 á
föstudag.
14.-16. júlí: Snæfellsnes - Elliðahamar
- Berserkjahraun. Gengið frá Syðra-
Lágafelli, sem leið liggur hjá Baulárvalla-
vatni, um hlíðar Vatnafells, gengið verð-
ur á Horn (406 m) og áfram meðfram
Selvallavatni að Berserkjahrauni. Upp-
lýsingar og farmiðasala á skrifstofu F.í.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir F.í.
sunnud. 25. júní
Kl. 08:00 Þórsmörk, dvalið í 3-4 klst.
(verð 2000 kr.)
10:00 Móskarðshnúkar-Trana-Eyja-
dalur. Móskarðshnúkar eru líparíthnúkar
austur af Esju. Trana (743 m) er tindur
norður af Móskarðshnúkum. (1000 kr.)
Kl. 13:00 Eyjadalur-Meðalfellsvatn.
Ekið að Sandi (austan Meðalfellsvatns)
og gengin hringferð um Eyjadal.(1000
kr.)
„Laugavegurinn“
Landmannalaugar • Þórsmörk
Gengið er á fjórum dögum milli
gönguhúsa Ferðafélagsins í Hrafntinnu-
skeri, við Álftavatn og á Emstrum. Ferð-
imar hefjast í Landmannalaugum eða
Þórsmörk.
5.-9. júlí kl. 08:00 Landmannalaugar -
Þórsmörk.
7.-12. júlí kl. 20:00: sama ferð. Síðan
eru skipulagðar ferðir út júlímánuð á
sömu slóðir, frá Landmannalaugum til
Þórsmerkur. Takmarkaður fjöldi í hverja
ferð. Upplýsingar á skrifstofu F.í.
Ferðafélag (slands
Sunnudagsferðir Útivistar
Sunnud. 25. júní kl. 13:00: Ný gönguleið
- Seljadalur - Helgadalur - stuðlaberg.
Ekið inn fyrir Þormóðsdal og gengið inn
Seljadai að Hrafnagili. Skoðað verður
fallegt stuðlaberg í malarnámu sem ný-
lega hefur komið í ljós. Gengið verður að
Nesseli, framhjá Bjamavatni að Katlagili.
AUir sunnudagar eru göngudagar hjá
•Útivist.
Ath. Frestað er HengUs- og Innstadals-
ferð vegna aðstæðna.
Miðvikud. 28. júní kl. 20:00: Viðey-
Vesturey. Hekluferð verður 1. júlí.
Útivist, ferðafélag
Siglingar fyrir almenning
á Rauðavatni
1 sumar mun siglingaaðstaða íþrótta-
og tómstundaráðs á Rauðavatni verða
opin almenningi á eftirfarandi tímum:
þriðjudögum kl. 16:00-16:30, fimmtu-
dögum kl. 16:00-18:30 og á laugardögum
kl. 13:00-17:00.
Afnot af bátum og björgunarvestum er
ókeypis. Á staðnum verða starfsmenn til
leiðbeiningar.
íþrótta- og tómstundaráð
Sundlaugarnar f Laugardal eru opnar mán-
udaga - föstudaga kl. 7.00-20.00. Laugardaga
kl. 7.30-17.30 og sunnudaga kl. 8.00-15.30.
Sundlaug Vesturbæjar er opin mánud.-föstud.
kl. 07.00-20.00, laugardaga 07:30-17.30 og
sunnudaga 08.00-15.30
Sundhöll Reykjavfkur er opi mánud.-föstud. kl.
07.00-19.30, laugardaga 07.30-17.30 og sunnu-
daga 08.00-13.30.
Sundlaugar Fb. Brelðholtl: Opin mánudaga -
fösfudaga kl. 7.20-09.30 og 16.30-20.30. laugar-
daga kl. 7.30-17.30. Sunnudaga kl. 8.00-15.30.
Lokunartlmi er miöaöur viö þegar sölu er hætt.
Þá hafa gestir 30 mln. til umráöa.
Varmárlaug f Mosfellssveit: Opin mánudaga-
föstudaga kl. 7.00-8.00 og kl. 17.00-19.30.
Laugardaga kl. 10.00-17.30. Sunnudaga kl.
10.00-15.30.
Sundhöll Keflavfkur er opin mánudaga -
fimmtudaga: 7.00-9.00, 12.00-21.00. Föstu-
daga kl. 7.00-9.00 og 12.00-19.00. Laugardaga
8.00-10.00 og 13.00-18.00. Sunnudaga 9.00-
12.00. Kvennatfmar þriöjudaga og fimmtudaga
19.30-21.00.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga - föstu-
daga kl. 7.00-9.00 og kl. 14.30-19.30. Laugar-
daga kl. 8.00-17.00. Sunnudaga kl. 8.00-12.00.
Kvennatimar eru þriðjudaga og miövikudaga kl.
20.00-21.00. Síminn er 41299.
Sundlaug Hafnarfjarðar er opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.00-21.00. Laugardaga frá kl.
8.00-16.00 og sunnudaga frá kl. 9.00-11.30.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.00-8.00, 12.00-13.00 og 17.00-
21.00. A laugardögum kl. 8.00- 16.00. Sunnu-
dögum 8.00-11.00.
Sími 23260.
Sundlaug Seltjarnarness: Opin mánudaga -
föstudaga kl. 7.10-20.30. Laugardaga kl. 7.10-
17.30. Sunnudaga kl. 8-17.30.