Tíminn - 24.06.1989, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.06.1989, Blaðsíða 5
Laugardagur 24. júní 1989 HELGIN 15 „Jæja, hvað skal gera?“ spurði hann. Masokhin áleit best að fara með fangann á sjúkrahús og segja að hann hefði komið á stöðina þannig útleikinn. „Þú ert ekki með réttu ráði,“ sagði Barinov. „Hér mundi allt fyll- ast af KGB mönnum með morgnin- um og þú værir enn drukkinn. Þeir mundu strax sjá hvemig í öllu lægi.“ „Við skulum fara með hann á afvikinn stað og láta líta út eins og ráðist hefði verið á hann og hann rændur,“ sagði Panov. „Ég veit um góðan stað nærri veginum til Bykovo," lagði Maso- khin til og leist vel á þessa hugmynd. „Þar er sumarhús, sem hann gæti hafa verið að heimsækja.“ Astafyev myrtur Nú voru hendur látnar standa fram úr ermum. Er komið var á umræddan stað fleygðu þeir Astaf- yev í snjóinn, tættu af honum fötin og dreifðu þeim umhverfis hann. Þá varð þeim ljóst að hann var enn lifandi. „Jæja, við skulum kála honurn," skipaði Barinov og bætti við: „Allir eiga að taka þátt f þessu.“ Masokhin segist svo frá um það sem gerðist: „Við sóttum felgulykilinn í farang- ursgeymsluna á bílnum og ég barði manninn í andlitið með honum. Ég ætlaði að slá hann á ennið, en höggið geigaði og ég hæfði hann á nefið. Þá varð ég hræddur, því mér varð ljóst að ég var að drepa ókunnan mann, sem ekkert hafði gert mér. Þá tók Panov við og barði manninn tvívegis með lyklinum. Lobov spymti í höfuðið á honum.“ Barinov var fluttur til yfirheyrslu í Lefortovo fangelsinu þann 5. febrú- ar 1981. En hann var vel undirbúinn. Hann virtist hafa pottþétta fjarvist- arsönnun. Hann kvaðst hafa verið hjá vinstúlku sinni, sem var aðstoð- arverslunarstjóri. Hann hélt því fram að hann hefði verið hjá henni í búðinni frá því klukkan níu um kvöldið og fram til miðnættis. Þótt stúlkan staðfesti framburð Barinovs í fyrstu, þá breytti hún framburði sínum brátt og sagði að Barinov hefði beðið hana að halda þessu fram. Annað starfsfólk verslunar- innar kvaðst ekki hafa séð hann þar á þessum tíma. Kalinichenko rannsóknarlög- reglumaður komst brátt að því að KGB mennimir vissu hvað þeir vom að gera, þegar þeir fengu honum áðumefndan bíl og létu gæta húss hans og fjölskyldu svo vendilega. Mikið var reynt að hindra handtöku Barinovs af hálfu innanríkisráðu- neytisins og Kalinichenko og bifreið- arstjóri hans urðu fyrir alls konar aðkasti á ferðum sínum. Allra handa brögðum var beitt til þess að vef- engja sannanir gegn lögregluforingj- anum. Hátt settir menn birtust sem vildu „laga“ málið og hagræða stað- reyndum á ýmsan hátt. Varð Júrí Andropov að skerast í leikinn og ræða við innanríkisráðherrann sjálfan, áður en Barinov fékkst handtekinn og dæmdur. Var eins gott að sannanimar vom með öllu óhrekjandi. Frekari vitnisburður fékkst frá konu Lobov, sem viður- kenndi að maður hennar hefði fram- ið annað morð. Þá var hann á 4. varðstöðinni og hafði drepið ungan mann að nafni Armavir. Hafði hann hlutað lík hans í sundur og dreift pörtunum um Moskvu. Rannsókn á vettvangi þessa hræðilega glæps staðfesti framburð konunnar og hjá Lobov fundust hanskar fómarlambs- ins, skór og annar fatnaður, sem ættingjar þess bám strax kennsl á. Dæmt var f málinu í borgarrétti Moskvu sumarið 1982. ÞeirBarinov, Lobov, Panov og Masokhin vom dæmdir til dauða. Aðrir fengu langa fangelsisdóma. Skömmu seinna felldi annar dómstóll í borginni meira en 80 lögreglumenn fyrir margvísleg afbrot. SUMAR '89 VICON hjólmúgavélar 3 stærðir. Lyftutengdar og dragtengdar. V.br. allt að 300 cm. Verð: HKX-620 kr. 62.300.-, H-820 kr. 73.400.-, H-1020 kr. 138.500.- FELUK Sláttuþyrlur V.br. 167 og 187 cm. Með eða án knosara. Stillanleg sláttuhæð. Tvær tromlur. 6 hnífar. Verð: KM-167 kr. 110.400.- KM-187 KC kr. 240.000.- m/knosara. Knosari kr. 66.000.- FELUK Heyþyrlur 2 stærðir. V.br. 520 og 700 cm. Dragtengdar. Kasta frá skurðbökkum og girðingum. Flot hjólbarðar. Verð: TH-520 kr. 164.100.- TH-700 kr. 224.300.- HEYÞYRLUR WELGER rúllubindivélar Binda rúllur í 120x120 cm. Mjög fullkominn fylgibúnaður t.d. rakstrar- hjól við sópvindu. Sjálfvirkt hreinsi og smurkerfi á drifkeðjum. Flot hjólbarðar. 4 mm þykkir valsar. Verð: RP-12 kr. 639.400.- AUTOWRAP 1200 Pökkunarvélar. Tengjast á ámoksturstæki eða þrítengi- beisli. Al sjálfvirk. Staflar í stæður. Áralöng reynsla í Evrópu. Mjög afkastamikil. Verð: kr. 500.000.- Hafið samband við sölumenn okkar eða umboðsmenn Globus? Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555 Lyftutengdar. V.br. 510 cm. - Öryggiskúpling á drifskafti. 10 mm tindar. Brotöryggi á tindum. 4ra stjörnu og 5 arma. Flotmikil skíði með hæðarstillingu. Tveggja punkta liðbeisli. Skíði í stað landhjóla þýðir að vélin hefur meira flot og hristist minna á ósléttu túni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.