Tíminn - 04.07.1989, Qupperneq 5
Þriðjudagur 4. júlí 1989
Tíminn 5'
Sauöfjárveikivarnir gera lokaátak í riðuhreinsun á þessu ári:
ALLT SAUÐFE
AKRIUNDIR
Sauðfjárveikivarnir ríkisins munu í haust gera lokaátak í
niðurskurði á fé á bæjum þar sem riða hefur greinst síðan
1983, þar á meðal verður farið á bæi þar sem ekki hefur tekist
samkomulag á milli bænda og Sauðfjárveikivarna og öllu fé
fargað hvort sem riða er fínnanleg þar núna, eða ekki. Takist
ekki samkomulag við bændur verður fé þeirra tekið og drepið
með valdi
Meðal annars hefur verið ákveðið
að allt fé Pálma Jónssonar bónda og
alþingismanns á Akri í Húnavatns-
sýslu verði skorið niður í haust,
vegna riðuveiki. Um 370 kindur eru
á fóðrum á Akri og hafa greinst þar
tvö tilfelli riðuveiki á s.l. árum, hið
fyrra 1973 og síðara 1984. Ekki
hefur verið skrifað undir samninga
en stefnt er að því að gera það hið
fyrsta. Fé á Akri hefur ekki verið
haldið sér og það hefur verið rekið
á afrétt með öðru fé úr sveitinni.
Fjárstofn Pálma er talinn mjög góð-
ur og nokkuð hefur verið um að
bændur í Húnaþingi hafi fengið
lömb tii undaneldis frá Akri, í því
skyni að bæta stofn sinn.
Fyrir rúmu ári var sú ákvörðun
tekin af Sauðfjárveikivamanefnd að
skorið skyldi niður hjá þeim bænd-
um þar sem riðuveiki hefur greinst'
árið 1983 og síðar. Þetta var gert
stuttu eftir blaðaskrif um „þing-
mannsriðuna" á Akri. Nefndin
ákvað að miðað skyldi eftirleiðis við
sex ár aftur í tímann, en áður hafði
verið miðað við þrjú til fimm ár.
Riðutilfellið á Akri er þó ekki elsta
tilfellið sem farið verður eftir við
riðuveikiförgun í haust, a.m.k. eitt
dæmi er um eldri greiningu en það
er á bænum Sauðanesi skammt frá
Siglufirði. Þar greindist riðuveiki
árið 1983. Að sögn Kjartans Blöndal
framkvæmdastjóra Sauðfjárveiki-
vama ríkisins verður á þessu ári
lokið við að skera niður á öllum
riðubæjum á landinu. Síðan verður
skorið niður jafnóðum og veikinnar
verður vart.
Pálmi Jónsson staðfesti í samtali
við Tímann í gær að til stæði að
skera niður hans fjárstofn í haust.
Ekki hefur verið gengið frá samning-
um, en þeim bændum sem ætlað er
að skera niður hefur verið sendur
samningur til undirritunar. Pálmi
átti nýlega, ásamt þremur öðmm
bændum f V-Húnavatnssýslu, fund
með forráðamönnum Sauðfjárveiki-
vama, þar sem þeir gerðu athuga-
semdir við samninginn, þar sem
PALMAA
HNÍFINN
ár eftir fjártöku, þó svo að ekki
tækist að framleiða upp í það magn
sem hver viðkomandi bóndi hefur.
En fullvirðisréttur er það magn sem
hverjum bónda er heimilt að fram-
leiða af kjöti, samkvæmt samningi á
milli Stéttarsambands bænda og
ríkisins. Þá vom einnig gerðar at-
hugasemdir við að miðað yrði við
tölu sauðfjár, er bætur væru metnar,
og talið eðlilegra að miðað yrði við
fullvirðisrétt, en síðan núverandi
samningsdrög vom smíðuð hefur
verðmat á kjöti breyst þannig að
mun minna verð er greitt fyrir kjöt
af fullorðnu fé, miðað við dilkakjöt,
en áður var.
Pálmi sagði ekki auðvelt að sjá á
eftir þeim fjárstofni sem hann hefur
ræktað upp, en þetta væri ákvörðun
yfirvalda og hann mundi hlíta henni
m.a. var farið fram á að fullvirðis- SVo framarlega að viðunandi samn-
réttur yrði ekki skertur næstu fimm ingar tækjust. -ÁG
Pálmi Jónsson alþingismaður.
Arnarflug Innanlands h.f.:
Dornier D-228
tekin á leigu
Hinn fyrsta þessa mánaðar bættist
ný flugvél í flugflota Amarflugs
Innanlands h.f. Vélin er af gerðinni
Dornier D-228 og hefur verið tekin
á leigu tímabundið til að mæta
auknum flutningum.
Flugeiginleikar þessarar flugvéla-
gerðar við erfið skilyrði em víðfræg-
ir. Þess má geta að flugvél sömu
gerðar vakti mikla athygli á flugsýn-
ingu í Reykjavík fyrir þremur ámm.
Flughraði Domier flugvélarinnar er
yfir 420 km/klst. og flugþolið allt að
2600 km.
Flugvélin tekur 19 farþega í mjög
rúmgóðu og glæsilegu farþegarými.
Farangursgeymslur em rúmgóðar,
og salernisaðstaða er um borð. Hægt
er að breyta vélinni í vömflutninga-
vél á örskammri stundu.
Áður samanstóð flugvélakostur
Amarflugs Innanlands h.f. af einni
Twin Otter flugvél með 19 farþega-
sæti, þremur níu farþega vélum af
MARFLir,
Flugvélin sem Arnarflug Innanlands h.f. hefur tekið á leigu
gerðunum Cessna 402-C og Piper
Chieftain, og einni fimm farþega vél
af gerðinni Cessna 310 R.
Amarflug Innanlands heldur uppi
reglubundnu áætlunarflugi til átta
staða á Vestur- og Norðurlandi.
Þessir staðir em: Rif og Stykkis-
hólmur á Snæfellsnesi, Bfldudalur,
Flateyri, Gjögur, Hólmavík,
Blönduós og Siglufjörður. Auk áætl-
unarflugsins byggir félagið afkomu
'SÍna á umfangsmiklu leiguflugi og
sjúkraflugþjónustu. SSH
Lambakjötsútsalan byrjaði í gær:
„Lambakjöt á
lágmarksverði“
Söluátakið „Lambakjöt á
lágmarksverði“ hófst í gær
og þar með býðst neytendum
sérstaklega vabð afbragðs-
lambakjöt úr stjörnuflokki
og 1. flokki á stórlækkuðu
verði. Kjötið er selt í sér-
merktum pokum og í hverj-
um poka er hryggur, læri, rif
og frampartur. Raunveruleg
verðlækkun til neytenda er
um 25%.
Um er að ræða besta fáanlega
lambakjötið á markaðinum í dag,
Dl-úrval og DI-A. Boðið er upp á
tvenns konar niðurhlutanir á hálfum
skrokkum og geta neytendur valið
um hvort allt kjötið er niðursneitt
eða hvort lærið er heilt og aðrir
hlutar niðursneiddir. Lambakjötið
er snyrt og sneitt af kostgæfni og öll
aukafita og einstakir bitar, sem ekki
nýtast eru fjarlægðir. Verðið á
lambakjötinu er samræmt þannig að
sama verð gildir í öllum verslunum.
Kílóverð á lambakjöti í 1. flokki er
365 krónur eða 2190 krónur pokinn.
Kjöt úr úrvalsflokki kostar 383 krón-
ur kílóið, eða 2298 krónur pokinn.
Söluátakið er til komið í kjölfar
ákvörðunar ríkisstjómarinnar um
verðlækkun á lambakjöti til neyt-
enda og hefur sérstakur samstarfs-
hópur um sölu á lambakjöti unnið
að undirbúningi átaksins. Stefnt er
að sölu á um að bil 500-600 tonnum
af kjöti á þessum kjörum á tímabil-
inu 3. júlí-31. ágúst.
Á fimdi sem haldinn var með
blaðamönnum í tilefni af söluátak-
inu sagði Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra að söluátakið
væri fyrsta skrefið í að leita nýrra
leiða til að aðlaga vinnslu og pakkn-
ingu lambakjötsins að þörfum neyt-
enda og ef viðtökur yrðu góðar
mætti búast við að framhald verði á
slíkum aðgerðum.
Á þessu ári nema niðurgreiðslur á
lambakjöti 4,2 milljörðum króna.
Par af eru 600 milljónir til komnar
vegna loforða ríkisstjórnarinnar við
gerð síðustu kjarasamninga. Sér-
stakar niðurgreiðslur í sambandi við
söluátakið „Lambakjöt á lágmarks-
verði“ eru um 45 milljónir króna en
með því hækkuðu niðurgreiðslur á
hvert kíló á lambakjöti um 90
krónur. Áður námu niðurgreiðslur á
hvert kíló af lambakjöti á bilinu
205-255 krónur. SSH
Um 1000 dýr drepist
Um eitt þúsund dýr hafa drepist
í minkabúinu að Miðengi II,
skammt frá Höfn, en eldur kom
upp í búinu sl. fimmtudagskvöld.
Fá dýr drápust í sjálfum eldsvoðan-
um, en nokkrum tímum síðar fóru
þau að hrynja niður vegna reykeitr-
unar. Um tvö þúsund dýr voru í
húsinu og er ekki útséð hversu
mörg dýr koma til með að deyja.
Enginn var í búinu þegar eldur-
inn kom upp, en hans varð vart
þegar mikinn reyk lagði frá húsinu,
sem er skammt frá bænum. Þegar
slökkviliðið á Höfn kom á staðinn
gekk greiðlega að slökkva eldinn.
- ABÓ
Lést af völdum áverka:
Maður úrskurðaður
í gæsluvarðhald
Sakadómur Reykjavíkur úr-
skurðaði í gærkvöldi mann á fer-
tugsaldri í gæsluvarðhald, en hann
lenti í átökum við um fertugan
mann í húsi við Grettisgötu aðfara-
nótt föstudagsins 30. júní sl. sem
síðan lést á hádegi á laugardag.
Dánarmein mannsins var við
réttarkrufningu rakið til innvortis
meiðsla.
Maðurinn sem lést, kom heim til
sín að morgni föstudags og er ekki
vitað til þess að hann hafi farið út
á ný. Eftir heimkomuna kvartaði
hann undan vekjum í kviðarholi,
sem ágerðust og lést hann á hádegi
á laugardag, eins og áður sagði.
- ABÓ
W
I gæsluvarðhald
vegna nauðgunar
29 ára gamall maður hefur verið
úrskurðaður í viku gæsluvarðhald,
eftir að stúlka um tvítugt kærði hann
fyrir að hafa nauðgað henni í húsi í
austurbæ Reykjavíkur að kvöldi
laugardags. Málið er til rannsóknar
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Önnur kona um tvítugt kærði
mann á svipuðum aldri fyrir að hafa
nauðgað sér í íbúð í Breiðholti
aðfaranótt laugardags. Konan hefur
dregið kæruna til baka. - ABÓ
Hella:
Brotist inn í
Griliskálann
Brotist var inn í Grillskálann á
Hellu aðfaranótt föstudags og
þaðan stolið hátt í 200 þúsundum
króna í peningum. Málið er í
rannsókn hjá lögreglunni á
Hvolsvelli og Rannsóknarlög-
reglu rfkisins. - ABÓ