Tíminn - 09.08.1989, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 9. ágúst 1989
Tíminn 5
Að lokinni mestu ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgi:
Einn látinn, 26 slasaðir
Umferðarslys og óhöpp urðu þó nokkuð mörg um verslun-
armannahelgina. Samkvæmt tölum frá Umferðarráði urðu
umferðarslys 42 talsins og er þar banaslysið í Langadal á
föstudag meðtalið, þar sem einn maður lést. Alls urðu 26 fyrir
meiðslum yfir helgina og þar af hlutu níu alvarlega áverka.
Ölvun kom við sögu í nokkrum óhöppum en alls voru 98
teknir grunaðir um ölvun við stýrið. Lítið var um hraðakstur,
enda var umferð mikil og þétt.
En þrátt fyrir þessar tölur Um-
ferðarráðs ber lögregluvarðstjórum
á flestöllum stöðum á landinu saman
um að umferðin í heild sinni hafi
gengið vel, og nefna þá aðallega litla
tíðni smærri umferðaróhappa og
umferðarbrota. „Það er kannski til-
fellið þegar umferðin er orðin svona
mikil, að menn komast ekkert. Pað
væri nánast óðs manns æði að fara
að reyna eitthvað í umferð eins og
t.d. var hér á Hellisheiðinni á sunnu-
daginn," segir Arnþór Ingólfsson,
varðstjóri hjá Lögreglunni í Reykja-
vík.
Samkvæmt tölum frá Vegagerð
ríkisins var nokkuð minni umferð nú
en um verslunarmannahelgina 1988.
í ár fóru 108.494 bílar um þá staði
þar sem talið var en þeir voru
118.541 í fyrra. Mestu munar hversu
miklu minni umferðin var um Suður-
landsveg, en talið var vestan Bisk-
upstungnavegamóta. Þess ber að
geta að talið var frá þriðjudegi fyrir
helgi til þriðjudags eftir helgi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út í nokkur skipti til sjúkra-
flugs yfir helgina, en alls var 12
sinnum flogið með sjúkling á sjúkra-
hús. Á sunnudagskvöld var flogið til
Hellu til móts við sjúkrabifreið með
franskan ferðamann sem hafði ekið
út af vegi í grennd við Dyrhólaey.
Hann var hryggbrotinn og með
slæman mænuskaða.
Þá sótti þyrlan slasaðan mann í
Norðurárdal á aðfaranótt þriðjudags
eftir bílveltu sem átti sér stað í
grennd við Sveinatungu. í Borgar-
firði varð einnig annað umferðarslys
á sunnudag þegar ökumaður missti
stjórn á bíl sínum í vindhviðu við
Hafnarfjall. Þrír voru í bifreiðinni
og voru allir fluttir á sjúkrahúsið á
Akranesi lítið slasaðir. Bílarnir eru
í báðum tilvikum ónýtir.
í Langadal, hjá Húnaveri, átti
útafakstur sér stað á mánudag og
meiddist einn farþegi töluvert. Þá
var keyrt á brúarhandrið í Víðidal
og varð ökumaður fyrir talsverðum
meiðslum.
Á laugardag var bifreið ekið út af
vegi í Jökuldal. Þrennt var í bílnum
og hlaut 10 ára drengur innvortis
meiðsl og var fluttur með flugvél til
Reykjavíkur.
En það urðu fleiri slys en umferð-
arslys. Talið er að um 45 þúsund
manns hafi legið úti um helgina og
var þá mest um fólk á útihátíðum og
á stærri útivistarsvæðum. Þó nokkuð
var um slys á þessum svæðum og
margir leituðu til læknis.
Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli
voru um 3000 manns í Þórsmörk og
í kringum 5000 í Galtalæk. Allt gekk
óhappalaust fyrir sig í Galtalæk en í
Þórsmörk var nokkuð um slys. Tveir
voru fluttir með sjúkrabíl til Reykja-
víkur á sunnudag eftir að gaskútur
sprakk á báli. Annar mannanna var
mjög illa brenndur en hinn minna.
Þá var kona flutt til Reykjavíkur
með þyrlu á föstudag með opið
lærbrot og á sunnudag var ungur
maður fluttur til Reykjavíkur úr
Húsadal með sjúkrabifreið eftir að
hafa drukkið grillolíu. Læknir og
hjálparsveit var á svæðinu og að
sögn lögreglu bjargaði það mjög
miklu.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi
voru um 7000 manns í Húnaveri um
helgina. Alls var flogið fimm sinnum
þangað og menn sem orðið höfðu
fyrir óhappi fluttir á sjúkrahús.
Af öðrum útivistar- og samkomu-
stöðum var minna um slys. Á Þjóð-
hátíð í Vestmannaeyjum voru sam-
an komnir um 4000 manns. Að sögn
lögreglu var hátíðin mjög róleg og er
nefnt sem ástæða lítill fjöldi að-
komufólks. Á aðfaranótt sunnudags
gerði aftakaveður í Eyjum og fuku
heilu söluskálarnir langar leiðir. „Ég
hefði ekki boðið í það ef þetta veður
hefði komið þegar fólkið var í Herj-
ólfsdal," sagði lögreglumaður í sam-
tali við Tímann.
Á öðrum stöðum var færra af
fólki. Á Laugarvatni voru rúmlega
2000 manns og álíka mikið á Þing-
völlum. Á báðum stöðum var mest
um fjölskyldufólk að ræða. Á Suður-
landsskjálfta í Árnesi var mjög lítið
af fólki, um 200 manns. Þá voru um
2000 manns í Vaglaskógi og álíka
margir í Ásbyrgi og var lítið um
óhöpp og slys á þessum stöðum.
Að sögn lögreglu á Egilsstöðum
var mannfjöldinn á tjaldstæðum í
Atlavík og á Egilsstöðum ekki meiri
en um góða sumarhelgi. Þó sótti
töluverður fjöldi dansleiki í tengsl-
um við Valaskjálfta ’89. Lítið var
um óspektir og enginn gisti fanga-
geymslur lögreglunnar á Egilsstöð-
um, en óvenju fáir sváfu úr sér
ölvímuna í tukthúsi um verlsunar-
mannahelgina í ár að sögn lögreglu
á flestum stöðum landsins. En þó
bar þeim saman um að landinn væri
hreint ekki hættur að drekka. GS
Opinberri heimsókn forseta fslands til Kanada lauk í gær:
Tilkomumikil há-
tíðahöld í Gimli
Tíu daga heimsókn Vigdísar lauk í gær.
Guðjón Einarsson, Tíminn, Winnipeg:
Tíu daga heimsókn Vigdís-
ar Finnbogadóttur, forseta
íslands, til Kanada lauk í
gær. í ferðinni var forsetinn
m.a. gerður að heiðursdokt-
or við Manitobaháskóla og
að heiðursborgara í Winni-
peg og Gimli.
Vigdís kom til Winnipeg síðdegis
miðvikudaginn 4.ágúst og sat þá um
kvöldið veislu í boði fulltrúa bresku
krúnunnar í Manitoba, John
Johnson. Að morgni föstudags
heimsótti Vigdís íslensku deildina í
bókasafni Manitobaháskóla og til-
kynnti Svavar Gestsson, mennta-
málaráðherra, við það tækifæri að
ríkisstjórn Islands hefði ákveðið að
veita deildinni 250 þúsund króna
styrk.
Nokkru síðar var forsetinn gerður
að heiðursdoktor við skólann og í
ræðu sinni við þá athöfn lagði hún
m.a. út frá Hávamálum og Eddu-
kvæðum og gerði þekkingar- og
viskuleit íslendinga í gegnum aldirn-
ar að umtalsefni. Þennan sama dag
var hún gerð heiðursborgari í Winni-
peg og opnaði einnig sýningu á
íslenskum handritum í Winnipeg.
Áður flutti Dr. Jónas Kristjánsson
erindi um íslensku handritin og sýndi
litskyggnur. Klukkan fjögur lagði
forsetinn blómsveig við styttu Jóns
Sigurðssonar við þinghúsið og karla-
kórinn Fóstbræður söng.
Á laugardeginum fór Vigdís m.a.
til Silkirk, Arborg og fleiri íslands-
byggða og heimsótti hjónin Helga
og Helgu Tomasson í Heklueyjum.
Að kvöldi laugardags var hún við-
stödd tónleika í Gimli, þar sem m.a.
karlakórinn Fóstbræður söng við
góðar undirtektir. Kórinn söng á
þremur dögum fimm tónleika og
heldur nú áfram tónleikaferð sinni
um Kanada.
Á sunnudaginn kom forsetinn til
Gimli, þar sem bæjarstjórinn, Ted
Arnarson, gerði hana að heiðurs-
borgara og afhenti henni lykilinn að
bænum. Síðan heimsótti hún ýmsar
stofnanir og um hádegið sat hún
veislu með 24 fyrrverandi fjallkon-
um. Þar á eftir heimsótti Vigdís
elliheimili bæjarins þar sem hún tók
sér langan tíma og var lengur en
áætlað var, enda var sagt að hún hafi
tekið í höndina á öllu gamla fólkinu
og rætt við það.
Á íslendingadaginn, mánudaginn
7.ágúst, klukkan tíu, hófst tilkomu-
mikil skrúðganga í Gimli þar sem
tólf riddaralögreglumenn af íslensk-
um ættum gengu í fararbroddi. Á
eftir þeim kom fánaborg, síðan
lúðrasveit og þá kom Vigdís Finn-
bogadóttir ásamt forseta fslendinga-
dagsins, Donald Herbertsen, sitj-
andi í skrúðvagni dregnum af hest-
um og veifaði til mannfjöldans. Talið
er að um 10.000 manns hafi fylgst
með göngunni en íbúar Gimli-bæjar
eru aðeins um 1700. Margir skraut-
vagnar prýddu skrúðgönguna og tólf
íslenskir hestar, sem komu flestir til
Kanada í vor, settu mikinn svip á
hana. Einn þeirra er 29 ára gamall
og kemur frá Arborg. Þúsund frí-
múrarar frá Winnipeg og tíu lúðra-
sveitir gerðu gönguna einnig til-
komumikla. Gangan endaði svo við
skemmtigarðinn í Gimli og þaðan
fór forsetinn til íslenska safnsins og
skoðaði það undir leiðsögn Stefáns
J. Stefánssonar, safnstjóra.
Aðalhátíðarhöldin, sem um 3000
manns voru viðstaddir, hófust um
tvö leytið í skemmtigarði Gimli og
flutti þar fjallkonan ávarp á íslensku
og forseti Islands flutti kveðju frá
íslensku þjóðinni. Þá fluttu þeir
Davíð Oddsson, borgarstjóri, og
Svavar Gestsson, menntamálaráð-
herra, ávörp ásamt fjölmörgum
öðrum. Fjölmargt var gert til
gamans, Fóstbræður sungu og ís-
lenskir glímukappar sýndu þjóðar-
íþróttina.
Eigendur Mánalax á Norðfirði segja
framkomu nágranna sinna vera forkastanlega:
Hálfur bærinn
stóð og veiddi
Gat kom á sjókví hjá laxeldis-
stöðinni Mánalaxi á Norðfirði á
mánudag og slapp út töluvert magn
af laxi. Ekki er að fullu Ijóst ennþá
um hversu mikið magn þarna er að
ræða, en í gærkveldi átti að freista
þess að fanga aftur þá laxa sem
sloppið höfðu með því að gefa
þeim fóður og reyna að lokka þá
al'tur inn í eldiskví.
Það voru silungsveiðimenn sem
voru að veiðum fyrir botni Norð-
fjarðar sem urðu fyrst varir við
hvað hafði gerst, þegar lax fór að
bíta á í hverju kasti hjá þeim. Þeir
létu þó ekki vita af slysinu, hvorki
Gylfa Gunnarsson stöðvarstjóra
Mánalax hf, né heldur lögregluna
á Neskaupstað, heldur veiddu sem
mest þeir máttu. Er fréttin barst út
bættust fleiri veiðimenn í hópinn
og jafnvel laxveiðimenn úr næstu
fjörðum. Alls voru veiddir þarna
um 200 laxar á tæpum sólarhring,
sem er álíka mikið og sumarveiði í
þokkalegri laxveiðiá.
„Við höfum ekki hugmynd um
hvað er búið að veiða þarna. Þetta
er náttúrlega alveg forkastanlegt
að menn skuli hafa staðið þarna
með stangir í allan gærdag án þess
að láta okkur vita," sagði Ásdís
Hannibalsdóttir eiginkona Gylfa
og meðeigandi í Mánalaxi í samtali
við Tímann í gær. Hún sagðist hafa
verið heima allan mánudaginn og
þess vegna hefði átt að vera auðvelt
að láta sig vita af því að gat væri
komið á eldiskvína. Gylfi sjálfur
var að vinna lengst upp í sveit og
kom ekki hingað fyrr en um klukk-
an átta og sá þá náttúrlega hvað um
var að vera. Þá fórum við strax að
leita okkur að kafara. En það var
enginn svo almennilegur að láta
okkur vita af þessu, það var hálfur
bærinn komin þarna og fólk frá
næstu fjörðum líka,“ sagði Ásdís.
- ÁG
Reykvíkingar
Guðmundur G. Þórarinsson, alþm. verður til
viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóa-
túni 21, miðvikudaginn 9. águst n.k., milli kl. 17
og 19.
Verið velkomin.
Fulltruaraðið
Lögtök
Aö kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara
fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en
ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum liðnum frá
birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, fyrir
4.-6. greiðslutímabil 1989 með eindögum 15.
hvers mánaðar frá maí 1989 til ágúst 1989.
Reykjavík 4. ágúst 1989
Borgarfógetaembættið í Reykjavík