Tíminn - 09.08.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 09.08.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn Miðvikudagur 9. ágúst 1989 FRÉTTAYFIRLIT . P JERÚSALEM — ísraelskir hermenn skutu vopnaðan Jórdana til bana og handtóku tvo aðra við landamæri ísraels og Jórdaníu eftir að skærulið- arnir höfðu tekið bandaríska konu í gíslingu og að auki sært aðra konu. Arabinn var skotinn af löngu færi af ísraelskri meistaraskyttu eftir fjögurra tíma þref á Kibbutz Lotan sam- yrkjubúinu þar sem Arabarnir héldu hinni 25 ára bandarísku konu í gíslingu í kornhlöðu. Hinir Arabarnirtveir voru síðan yfirbugaðir. WELLINGTON — David Lange lét af embætti forsæti- sráðherra Nýja Sjálands yfir til flokksfélaga síns Geoffrey Palmer. Fyrsta verk Palmers var að neita bón Bandaríkja- manna um að hann endur- skoðaði afstöðu Langes sem lýst hefur Nýja Sjáland kjarn- orkuvopnalaust. Því hafa bandarísk herskip ekki getað sótt Nýsjálendinga heim. KARNEVALHÖFÐI - Bandaríkjamenn sendu geim- skutluna Kólumbíu á loft og mun hún koma njósnatækjum fyrir úti í geimnum. Er talið líklegt að njósnatækin eigi að njósna um Sovétmenn í Sov- étríkjunum, en það veit þó enginn utan leyniþjónustunnar þvi förin er mjög leynileg. TOKYO — Toshiki Kaifu var kjörinn formaður hins ráðandi Frjálslynda lýðræðisflokks í Japan og mun hann því taka við forsætisráðherraembætt- inu næstu daga. Kaifu hefur litla reynslu af utanríkismálum, en hefur þann kost að hafa ekki þegið mútur af Recruit fyrirtækinu og er ekki flæktur í kynlífshneyksli. Það er ekki hægt að segja um aðra hátt- setta menn innan flokksins. ANKARA — Tuttugu og þrír fangar eru í lífshættu í tyrkn- eskum fangelsum vegna hung- urverkfalls þeirra. Þeir krefjast betri aðbúnaðar í fangelsun- um. Tveir fangar hafa þegar látist. WELLINGTON - Tíu ferðamenn frá Bandaríkjunum og Kanada létust þegar flugvél þeirra fórst á Nýja Sjálandi í gær. Ferðamennirnir voru í útsýnisflugi þegar vélin skall utan í skógi klædda fjallshlíð i suðurhluta landsins. Þessi hluti Nýja Sjálands er frægur fyrir hrikaleg fjöll og fallega firði sem skerast inn í landið. UTLÖND - llllllllllllllllllllllllllllllllllllll lllllllllll Forsetar Miö-Ameríku gera með sér samkomulag: SKÆRUUDAR KONTRA VERÐIAFVOPNADIR Enn herðist róðurinn hjá skæruliðum Kontra í Níkaragva, en um helgina samþykktu forsetar Mið-Ameríku áætlun sem miðar að því að leysa upp skæruliðasveitir Kontra í Hondúras. Þar eru nú um tíu þúsund Kontraliðar undir vopnum og að auki fjölskyldur þeirra og aðrir flóttamenn sem telja um fjörutíu þúsund manns. Samkomulag forsetanna gæti orð- ið til þess að endanlega verði bund- inn endi á átta ára borgarastyrjöld í Níkaragva, en Kontraliöar sem not- ið hafa dyggs stuðnings Bandaríkja- manna hafa barist blóðugri baráttu gegn ríkisstjórn Sandínista allan þennan tíma. Samkomulag þetta náðist þrátt fyrir að sendimenn Bandaríkja- stjórnar hafi gert allt sitt til að fresta þessum aðgerðum fram yfir kosning- arnar sem fram fara í Níkaragva í febrúarmánuði. Bandaríkjamenn, sem hafa dregið mjög úr framlögum til Kontraliða, vildu tryggja að kosn- ingarnar í Níkaragva færu heiðar- lega fram áður en Kontraliðar yrðu afvopnaðir. Samkomulag þetta er gert eftir að tuttugu stjórnmálaflokkar í Níkar- agva sem berjast gegn Sandínistum í komandi kosningum fóru fram á að Kontraliðar yrðu afvopnaðir. Töldu þeir vopnaðar sveitir Kontra geta stofnað kosningunum í hættu. Leiðtogar Kontraliða ætla hins vegar að rembast við að halda úti vopnuðum sveitum, þrátt fyrir sam- komulagið. - Við munum ekki leggja niður vopn fyrr en ástæðan fyrir borgara- styrjöldinni er fyrir bí, sagði Pepe Matus talsmaður Kontra eftir að samkomulagið var undirritað. Bandaríkjamenn hafa ákveðið að senda Kontraliðum hjálpargögn að verðmæti 50 milljónir dollara og sagðist Daniel Ortega forseti Níkar- agva í gær vonast til að peningarnir yrðu notaðir til að undirbúa Kontr- ana undir daglegt líf í Níkaragva að kosningum loknum. Skæruliðar Kontra muna fífll sinn fegri er þeir ruddust inn í Níkaragva frá Hondúras og í slóð þeirra lá dauði og eyðilegging. Nú á að afvopna síðustu sveitir Kontra í Hondúras. Kókaínsmygl til Kaupmannahafnar Lögreglan í Danmörku er nú ugg- andi um að eiturlyfjasmyglarar hafi sett stefnuna á Danmörku í enn meira mæli en áður var. Ástæða þessa er sú að á undanförnum vikum hefur lögreglan gert upptæka tvo stóra kókaínfarma að verðmæti 330 milljónir íslenskra króna. Á fimmtudag var 44 ára bandarísk kona handtekin í Búdapest og hún íranar munu gera sitt til að vest- rænum gíslum í Líbanon verði sleppt úr haldi ef Bandaríkjamenn tryggi að íranar geti leyst út fjármuni sína í bandarískum bönkum, en íranar eiga þar milljarða dollara. Jimmy Carter fyrrum Bandaríkjaforseti frysti fjármuni íranska ríkisins í Bandaríkjunum eftir að íranskir öfgamenn tóku bandaríska sendi- ráðið í Teheran herskyldi í bylting- unni ári 1979. Bandaríkjamenn hafa hingað til ekki viljað ljá máls á því að skila írönum fjármunum sínum, en íranar fóru fyrst fram á það árið 1986 og send í handjárnum til Kaupmanna- hafnar þar sem danska lögreglan tók hana í sína vörslu. Það var ekki að ósekju því konan hafði skilið eftir tvær ferðatöskur fullar af kókaíni á Kastrupflugvelli í júnímánuði. Þá hafði konan verið á ferðalagi frá Paraguay, en ekki náðist í skottið á henni fyrr en í síðustu viku. Á laugardaginn var síðan líbansk- lofuðu þá að gíslunum í Líbanon yrði sleppt þess í stað. Bandaríkja- stjórn hafa ætíð neitað að aflétta frystingunni og segja að það sé í raun ekkert annað en að greiða lausnargjald, en það er eitur í bein- um Bandaríkjamanna. Forystumenn í íran eru þó ekki á eitt sáttir í afstöðu sinni til Banda- ríkjastjórnar í þessu máli. Á sama tíma og Ali Akbar Hashemi Rafs- anjani forseti íran er reiðubúinn til samninga við Bandaríkjastjórn, þá bregst innanríkisráðherrann hinn öfgafulli Ali Akbar Mohtasemi hinn versti við og heimtar harðar aðgerðir ur maður handtekinn á Kastrup þegar 8 kíló af kókaíni fannst við leit í farangri hans. Maðurinn var á leið til Damascus frá Rio de Janeiró og millilenti á Kastrup. Er talið að kókaínið hafi átt að seljast á dönsk- um eiturlyfjamarkaði. Verð á kókaíni hefur hefur lækkað um tvo þriðju á strætum Kaup- mannahafnar síðastliðin tvö ár. gegn Bandaríkjamönnum. Mohtasemi er mjög dáður hjá mörgum innan Hizbollah samfakr anna í Líbanon sem hafa flesta hina sautján vestrænu gísla í sínum höndum. Þykir hörð ræða Mohtas- emis gegn Bandaríkjamönnum sem útvarpað var á sunnudagskvöld minnka líkurnar á því að vestrænum gíslum verði sleppt, jafnvel þó ísra- elar sleppi sjeik Abdel-Karim Obeid andlegum leiðtoga Shíta í Líbanon og hundruðum annarra shíta í fanga- skiptum. Pólland: Walesahvetur til stjórnar ánkommúnista Lech Walesa hvatti í gær leiðtoga Bændaflokksins og Lýðræðisflokks- ins til að ganga til samstarfs við Samstöðu og mynda ríkisstjórn í stað þess að viðhalda veldi Kom- múnista eins og þessir tveir smá- flokkar hafa gert undanfarin fjörtíu ár. - Eina raunhæfa pólitíska lausnin er myndun ríkisstjórnar sem byggir á samstarfi Samstöðu, Sameinaða bændaflokksins og Lýðræðisflokks- ins, sagði Lech Walesa í yfirlýsingu sem hann gaf út í gær. - f ljósi þessa, þá lýsi ég enn einu sinni andstöðu Samstöðu við mynd- un nýrrar ríkisstjórnar undir forsæti Czeslaws Kiszczak hershöfðingja, sagði í yfirlýsingunni. Sameinaði bændaflokkurinn og Lýðræðisflokkurinn hafa verið lepp- ar í höndum Kommúnistaflokksins frá því kommúnistar urðu endanlega einráðir í Póllandi með tilstyrk sov- éska hersins á árunum eftir síðari heimstyrjöldina. Hafa kommúnistar notað flokkana tvo til að sýna fram á sýndarlýðræði í landinu. Aðstoðarmaður Walesa hefur skýrt frá því að í gangi hafi verið viðræður á milli Samstöðu og Sam- einaða bændaflokksins um hugsan- lega myndun meirihlutastjórnar. Viðræðurnar urðu í kjölfar þess að nokkrir meðlimir Sameinaða bænda- flokksins lýstu sig andvíga Czeslaw Kiszczak sem valinn hefur verið forsætisráðherra Póllands, vegna að- ildar hans að herlögunum 1981. Á meðal andstæðinga Kiszczak er Aleksaner Bentkowski þingflokk- sformaður Sameinaða bændaflokks- ins. Ríkisstjórn írana vill semja við Bandaríkjamenn: Gíslum skiptfyrir frystar innistæður

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.