Tíminn - 06.09.1989, Page 15
Miðvikudagur 6. september 1989
Tíminn 15
ÍÞRÓTTIR
Frjálsar íþróttir:
Trina Solberg
á stera lyfjum
Norska spjótkasts - drottn-
ingin Trina Solberg hefur orðið
uppvís að notkun stera lyfja. í
þvagsýnum sem tekin voru að
lokinni B- Evrópukeppninni í
Strasbourg í síðasta mánuði,
grcindust merki þess að Sol-
berg hafi neytt stera lyfja.
Solberg, sem er 23 ára setti
7 norsk met á árunum 1981-
1985. Hún hefur nú verið
dæmd í 2 ára bann frá allri
keppni.
Tapio Korjus
hættur keppni
Finnski spjótkastarinn Tapio
Korjus, sem sigraöi í spjótkasti
á Ólympíuleikunum í Seoul,
hefur ákveðið að hætta alfarið
keppni.
Korjus hefur átt við hand-
armeiðsl að stríða allt frá því
hann hreppti gullið í Seoul. Á
sunnudaginn keppti hann í síð-
asta sinn og náði ágætum ár-
angri, sigraði á móti í heima-
landi sínu með því að kasta
spjótinu 82,40 m.
Korjus, sem er íþróttakenn-
ari að mennt, ætlar að taka
lífinu með ró fyrst um sinn og
snúa sér síðan að þjálfun.
Knattspyrna:
Fyrrum stjarna
Juventus fórst
í umferðarslysi
Gaestano Scirea 36 fyrrum
varnarmaður Juventus og ít-
alska landsliðsins, fórst í um-
ferðarslysi á sunnudaginn.
Scirea, sem lék með ítalska
landsliðinu í þremur heims-
meistarakeppnum og var í
sigurliði Ítalíu 1982, var á
ferðalagi í Póllandi á vegum
Juventus-liðsins þegar slysið
varð. Scirea starfaði sem að-
stoðarframkvæmdastjóri liðs-
ins og var staddur í Póliandi til
að njósna um lið Gornik, mót-
herja Juventus í fyrstu umferð
UEFA-keppninnar. Bíllinn
sem Scirea var í ók á sendibíl
og varð þegar alelda.
Tveimur dögum fyrir slysið
fórst fyrrum fyrirliði pólska
landsliðsins, Kazimierz Deyna
í umferðarslysi í Bandaríkjun-
um. Deyna var 41 árs gamall.
Chile-búargengu
af leikvelli
Um helgina áttust Brasil-
íumenn og Chile-búar við í
undankeppni HM í knatt-
spyrnu. Leikurinn var nokkurs
konar úrslitaleikur um hvor
þjóðin öðlaðist keppnisrétt í
lokakeppninni á Ítalíu á næsta
ári.
Leikurinn fór fram í Rio de
Janeiro og heimamönnum
nægði jafntefli. Gamli íslenski
málshátturinn „Hætta skal leik
þá hæst hann ber“ var í háveg-
um hafður þar syðra, því þegar,
rúmar20mín. voru til leiksloka
gengu Chile-búar af leikvelli
allir sem einn. Brotthvarf
Chile-búanna kom f kjölfar
þess að markvörður þeirra fékk
fiugeld í höfuðið, að því er
virtist.
Brasilíumenn höfðu þá skor-
að eitt mark, en það dugar
væntanlega skammt, því dóm-
ari leiksins flautaði leikinn af.
Pað kemur því í hlut FIFA af
skera úr um hvort leikið skal
að nýju og þá á hlutlausum
velli.
Brasilíumenn sýndu Chile-
búum allt annað en gestrisni á
sunnudaginn, því þjóðsöngur
Chile var baulaður niður af
áhorfendum fyrir leikinn. Sam-
kvæmt fréttaskeytum voru
141.072 áhorfendur á leiknum.
BL
EM í knattspyrnu U-21 árs:
Eyjólfur með fernu
Frá Jóhannesi Bjarnasyni íþróttafréttarítara
Tímans á Akureyrí:
Eyjólfur Sverrisson lcikmaður
með Tindastól á Sauðárkróki átti
algjöran stórleik í gærkvöldi, þegar
■slenska landsliðið í knattspyrnu
skipaö leikmönnum 21 árs og yngri
vann 4-0 sigur á Finnum í undan-
keppni Evrópumótsins, en leikurinn
fór fram á Akureyrarvelli.
Eyjólfur fetaði í fótspor Ríkharð
Jónssonar, með því að skora öll
mörk íslands í leiknum. Ríkharður
er eini íslendingurinn hingað til,
sem skorað hefur 4 mörk í sama
landsleiknum, en það gerði hann 29.
júní 1951 þegar ísland vann 4-3 sigur
í Svíum í vígsluleik Laugardalsvall-
ar.
Fyrsta markið gerði Eyjólfur með
skalla á 41. mín. eftir fyrirgjöf frá
-Þegar ísland vann Finnland 4-0
Ólafi Pórðarsyni og þar við sat í
leikhléinu.
Á 64. mín. leit annað skallamark
dagsins ljós er Eyjólfur rak enda-
hnútinn á fyrirgjöf Haraldar Ingólfs-
sonar. Þriðja markið kom 2 mín.
síðar, Eyjólfur vann knöttinn af
tveimur varnarmönnum Finna og
vippaði knettinum síðan yfir mark-
vörðinn. Fjórða markið skoraði
Sauðkrækingurinn síðan á 87. mín.
Dæmd voru skref á finnska mark-
vörðinn og Eyjólfur fékk knöttinn
úr óbeinu aukaspyrnunni og hamr-
aði honum í fjærhornið.
Litlu munaði að Eyjólfur gerði
fleiri mörk í leiknum og dómarinn
sleppti augljósri vítaspyrnu á Finna,
þegar Eyjólfi var brugðið í vítateign-
Undankeppni HM í knattspyrnu:
Kveður 1 H el Id
með sigri
- Nýr skipstjóri í brúnni hjá A-Þjóöverjum
Næst síðasti leikur Islendinga í
undankeppni Heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu fer fram á Laug-
ardalsvclli í dag kl. 18.00, er A-Þjóð-
verjar mæta til leiks undir stjórn síns
nýja framkvæmdastjóra Eduard Ge-
yer. Hjá íslenska liðinu verður mál-
um hins vegar öfugt farið, liðið
leikur í síðasta sinn undir stjórn
V-Þjóðverjans Sigfried Held.
Ljóst er að Guðni Kjartansson
verður við stjórnvölinn í leiknum
gegn Tyrkjum á Laugardalsvelli 20.
september í lokaleik íslendinga í
undankeppninni.
Gunnar Oddsson úr KR var kall-
aður í landsliðshópinn, eftir að ljóst
var að Sigurður Jónsson kæmi ekki
í leikinn.
Líkleg uppstilling íslenska liðsins
á morgun er þessi: Bjarni Sigurðs-
son, Agúst Már Jónsson, Guðni
Bergsson, Sævar Jónsson, Gunnar
Gíslason, Pétur Arnþórsson, Ragn-
ar Margeirsson, Ásgeir Sigurvins-
son, Arnór Guðjónsen, Guðmundur
Torfason og Sigurður Grétarsson.
Leikurinn er mjög mikilvægur fyr-
ir okkur íslendinga, því hugsanlega
gætum við unnið okkur upp um
styrkleikaflokk og þá fengið hag-
stæðari mótherja, næst þegar dregið
verður í HM riðla. Allir á völlinn,
áfram ísland. BL
Körfuknattleikur:
Bandaríkjamaðurinn Tommy
Lee, sem leika mun með og þjálfa
lið IR í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik í vetur, er væntanlegur til lands-
ins í dag eða á morgun. Með komu
Tommy eru allir erlendu leik-
mennirnir sem leika munu í úrvals-
deildinni komnir til landsins, ef frá
er talinn arftaki Brians Hagwoods
hjá Þór, en Akureyrarliðið ákvað að
losa sig við hann og leita eftir öðrum
leikmanni.
Njarðvíkingar hafa farið þess á
leit við ÍR-inga að fá Tommy Lee
lánaðan í Evrópuleiki félagsins.
Njarðvíkurliðið tekur sem kunnugt
er þátt í Evrópukeppni bikarhafa.
Fastlega má búast við því að ÍR-ing-
ar verði við þessari beiðni Njarðvík-
inga, en leyfilegt er að nota tvo
erlenda leikmenn í Evrópukeppn-
inni.
Jonathan Bow, Bandaríkjamað-
urinn sem leika mun með liði Hauka
í úrvalsdeildinni í vetur, mun leika
með KR í Evrópukeppninni. Bow
mun því leika við hlið sovéska
landsliðsmannsins Anatoli Kovtoum
í austur-vestur liði KR.
Keflvíkingar ætla ekki að fá annan
Bandaríkjamann til liðs við sig fyrir
Evrópuleiki sína. Að sögn eins for-
ráðamanns ÍBK liðsins, kom til
greina að fá Bandaríkjamann þeirra
Grindvíkinga lánaðan í leikina, en
horfið var frá því þar sem menn
vildu nýta leikina sem best sem
æfingu fyrir íslandsmótið, frekar en
að dreyma um að komast áfram í
keppninni. BL
Körfuknattleikur:
Hagwood rekinn
- Þórsarar leita sér aö
öörum Bandaríkjamanni
Frá Jóhanncsi Bjarnasyni íþróttafrétta-
rítara Tímans á Akurcyrí:
Stjórn körfuknattleiksdeild-
ar Þórs hefur rekið Banda-
ríkjamanninn Brian Hagwood,
þar sem hann var ekki talinn
standa undir þeim kröfum sem
til hans voru gerðar, hvorki
sem leikmanns né þjálfara.
Hagwood er þegar farinn frá
Akureyri.
Þórsurum þótti Hagwood of
þungur og fannst hann ekki
leggja nægjanlega hart að sér á
æfingum. í æfingaleik gegn
Tindastól um síðustu helgi
þótti Þórsurum sýnt að Hag-
wood væri ekki sá leikmaður
sem þeir reiknuðu með og því
létu þeir hann fara. Sem þjálf-
ari þótti hann heldur ekki
standa sig í stykkinu.
Þegar er hafin eftirgrennslan
eftir öðrum leikmanni til að
þjálfa og leika með Akureyrar-
liðinu í Úrvalsdeildarkeppn-
inni sem hefst í byrjun október.
JB/BL
um á 10. mín. Tveir Finnar fengu að
lr'ta gula spjaldið í leiknum fyrir að
sparka Eyjólf niður, en þeir finnsku
áttu í miklu basli með drenginn í
leiknum.
Ólafur Þórðarson brenndi af úr
dauðafæri í tvígang í leiknum og í
annað skiptið á óskiljanlegan hátt.
íslenska liðið átti all góðan leik í
gær og erfitt er að taka einn leikm-
ann út úr annan en Eyjólf. ísland
hefur nú 4 stig í 2. sæti riðilsins, en
V-Þjóðverjar komast líklega einir
upp úr riðlinum í úrslit, þeir hafa 7
stig.
Tommy Lee með Njarðvík-
ingum í Evrópukeppninni
Evrópukeppnin í körfuknattleik:
UMFN gegn
Leverkusen
- Keflvíkingar og KR-ingar drógust gegn enskum liðum
í gær var dregið í 1. umferð
Evrópukeppninnar í körfuknatt-
leik. Islensk lið hafa ekki tekið þátt
í keppninni undanfarin ár, en þrjú
lið héðan taka þátt í keppninni að
þessu sinni.
íslandsmeistararnir frá Keflavík
drógust gegn enska liðinu
Bracknell. Fyrri leikur liðanna fer
fram í Keflavík 26. september, en
síðari leikurinn fer fram ytra þann
5. október.
Lið Bracknell er geysisterkt.
Með liðinu leika einir 4 Banda-
ríkjamenn með ensk vegabréf og
Argentínumaður að auki. íslenska
landsliðið lék æfingaleik gegn
Bracknell í vor og tapaði með 40
stiga mun.
„Mér líst mjög vel á að fara til
Englands, það er betra en að lenda
í Belgíu eða Hollandi. Hins vegar
er lið Bracknell mjög sterkt og
möguleikar okkar á að komast
áfram í keppninni eru harla litlir,“
sagði Stefán Arnarson unglinga-
þjálfari úr Keflavík í samtali við
Tímann.
Bikarmeistarar Njarðvíkinga
drógust gegn v-þýska liðinu Bayer
Leverkusen. Liðin leika fyrri leik-
inn ■' Njarðvík 26. september, en
síðari leikurinn fer fram í V-Þýska-
landi 3. október.
„Það er Ijóst að þetta þýska lið
er mjög sterkt og við gerum okkur
ekki miklar vonir um að komast
áfram. Hins vegar mununi við
leggja allt ■' sölurnar til þess að
vinna þá á heiniavelli," sagði
Gunnar Gunnarsson formaður
körfuknattleiksdeildar UMFN eft-
ir dráttinn í gær.
KR-ingar taka þátt í Evrópu-
keppni félagsliða og leika gegn
Hemel Hemstead frá Englandi í 1.
umferð. KR-ingar eiga heimaleik
sinn á undan, 27. september, en
síðari leikurinn fer fram ■' Englandi
4. október.
„Við höfum stefnt að því frá
upphafi að komast í 2. umferð
kcppninnar. Þetta lið er sterkt, en
var sterkara hér á árum áður og við
vitum að það er ekki cins sterkt og
lið Bracknell. Ætli við lendum
ekki í Sovétríkjunum ■' 2. umferð,
ef dæmið gengur upp,“ sagði Sig-
urður Hjörleifsson framkvæmda-
stjóri körfuknattleiksdeildar KR
er Tíminn bar dráttinn undir hann
■ gær.
Ljóst er að mótherjar íslensku
liðanna eru ekki af lakari endan-
um, en þátttaka liðanna ætti að
verða körfuknattleiksíþróttinni hér
á landi til framdráttar og mikið
fagnaðarefni að á ný skuli íslensk
lið vera með í keppninni. BL
„ekkl /"^
bara (<* -
hepP0’V^1
Laugardagur kl.13: :55
36. LEIKV IKA- 9. S6 pt. 1989 III m 2
Leikur 1 Arsenal - Sheff. Wed.
Leikur 2 Aston Villa - Tottenham
Leikur 3 Chelsea - Nott. For.
Leikur 4 C. Palace - Wimbledon
Leikur 5 Derby - Liverpool
Leikur 6 Everton - Man. Utd.
Leikur 7 Luton - Charlton
Leikur 8 Man. City - Q.P.R.
Leikur 9 Millwali - Coventry
Leikur 10 Norwich - Southampton
Leikur 11 Leeds - Ipswich
Leikur 12 Sunderland - Watford
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULINAN s. 991002
NYR HÓPLEIKUR !!