Tíminn - 08.09.1989, Side 10
10 Tíminn1
Föstudagur 8. september 1989
llllllllllllllll DAGBÓK lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
„Naked Faith“ nefnist þessi mynd sem er
á syningunni „Alþjóðleg nútímalist“ á
Kjarvalsstöðum.
Kjarvalsstaðir
- Síðasta sýningarvika:
Alþjóðleg nútímalist,
Ljósmyndir Karsh og
Sumarsýning Kjarvals
Ljósmyndasýning Yosuf Karsh er til-
komin vegna áttræðisafmælis hans. Þar
eru „portrett“-myndir af frægum einstakl-
ingum; listamönnum, vísindamönnum,
stjórnmálamönnum og þjóðhöfðingjum.
Myndir Karsh er víða að finna í merkustu
listasöfnum heims. Það er Ljósmyndara-
félag fslandssem gengst fyrirsýningunni.
Alþjóðleg nútímalist er í vestursal
Kjarvalsstaða. Þar eru sýnd verk eftir
nokkra fremstu nýlistamenn heimsins
undanfarna tvo áratugi.
Sumarsýning Kjarvals. Hin árlega
sumarsýning á verkum Kjarvals er að
þessu sinni helguð uppstillingum og
kyrralífsmyndum meistarans.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl.
11:00-18:00 og Veitingabúðin á sama
tíma.
Feðginin Jón Benediktsson og Margrét
Jónsdóttir.
„TVEIR Á FERГ
„Tveir á ferð“ nefnist sýning þeirra
feðgina Margrétar Jónsdóttur og Jóns
Benediktssonar. Sýningin verður opnuð
laugardaginn 9. sept. í FÍM-salnum,
Garðastræti 6 kl. 16:00. Sýningin stendur
til þriðjudagsins 26. september.
Margrét Jónsdóttir sýnir olíumálverk,
en Jón Benediktsson sýnir höggmyndir
unnar í eir.
Margrét hefur verið starfandi myndlist-
armaður í 15 ár og á þessu ári tók hún þátt
í eftirfarandi sýningum: Jólasýning-FÍM,
Tvíæringur-FÍM á Kjarvalsstöðum, Á
Tólfæringi í Menningar- og listamiðstöð
Hafnarfjarðar og Sumarsýning- FÍM.
Jón Benediktsson hefur verið starfandi
myndlistarmaður í yfir 40 ár og er einn af
þekktari myndhöggvurum þjóðarinnar.
Sýningar sem Jón tók þátt í á þessu ári
eru: Jólasýning-FÍM og Sumarsýning-
FÍM.
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Vilberg Viggósson píanóleikari.
Píanótónleikar Vilbergs
að Kjarvalsstöðum
Sunnudaginn 10. sept. heldur Vilberg
Viggósson píanóleikari tónleika að Kjar-
valsstöðum kl. 17:00.
Vilberg Viggósson er fæddur á ísafirði
1960. Hann hóf barn að aldri nám í
Tónlistarskóla ísafjarðar undir hand-
leiðslu Ragnars H. Ragnar. Að loknu
stúdentsprófi hóf hann nám í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík, þar sem Halldór
Haraldsson varð kennari hans.
Vilberg lauk burtfararprófi úr Tónlist-
arskólanum í Reykjavík 1982. Veturinn
1983-’84 var hann gestanemandi við Tón-
listarskólann í Köln og í einkatímum hjá
rússneska píanóleikaranum Pavel Gilil-
ov. Haustið 1984 hóf hann nám við
Sweelinck Conservatorium í Amsterdam
og tók þaðan lokapróf í vor. Kennari
hans þar var Willem Brons píanóleikari.
Á efnisskrá tónleikanna að Kjarvals-
stöðum verða verk eftir Chopin, Beet-
hoven, Debussy, Kabalevski, Bartók og
Hjálmar H. Ragnarsson.
Helgarferð F.í. 8-10.sept.:
Landmannalaugar -Eldgjá.
Á föstudagskvöld kl 20.00 er ekið í
Landmannalaugar. Laugardaginn erfarið
í Eldgjá og gengið að fossinum. Sunnu-
daginn er farið um nágrenni Landmanna-
lauganna, gist (upphituðu sæluhúsi. Nán-
ari upplýsingar og farmiðasala á skrifstof-
unni.
Ferðafélag fslands.
Dagsferðir sunnudaginn 10.sepL
Kl. 10.30 Harðarsaga-Hólmverja.
Ekið um Hvalfjörð og Borgarfjörð um
söguslóðir þessara kunnu fsl. sögustaða
undir leiðsögn kunnugs fararstjóra. Verð
kr. 1.500 gr v/bílinn.
Kl 13.00 Meðalfel í Kjós.
Meðalfellið ligur miðsvæðis í kjósinni.
Tiltölulega lét ganga. Verð kr 1000. gr
v/bílinn.
í dagsferðir er frít fyrir börn og unglinga
15 ára og yngri.
Farið frá Umferðarmiðstöðini að vest-
an verðu.
Ferðafélag fslands.
VERSLUNARSKÓLIISLANDS
KVÖLDSKÓLI
Endurmenntun
Símenntun
Viljirðu læra eitthvað nýtt eða bæta við þig hefur Verslunarskóli íslands upp á
margt að bjóða í kvöldnámi, bæði innan öldungadeildarinnar og á stuttum
námskeiðum.
Á haustönn verða kenndar eftirfarandi námsgreinar:
Bókfærsla
Danska
Efna- og eðlisfræði
Enska
Farseðlaútgáfa
Ferðaþjónusta
Franska
íslenska
Rekstrarhagfræði
Ritvinnsla
Saga
Stærðfræði
Tölvubókhald
Tölvunotkun
Tölvufræði
Vélritun
Verslunarréttur
Þýska
Öldungadeild skólans býður nám í áföngum sem hægt er að safna saman og mynda
eftirtaldin prófstig:
Próf af bókhaldsbraut (25 einingar)
Próf af ferðamálabraut (35 einingar)
Próf af skrifstofubraut (23 einingar)
Verslunarpróf (71 eining)
‘Stúdentspróf (140 einingar).
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans að Ofanleiti 1.
Frá saumanámskciði í klúbbnum „Nýtl af
nálinni".
NÝTT AF NÁLINNI:
- Námskeið í fatasaumi og prjóni
Námskeiðin eru einkum ætluð félögum
í Nýju af nálinni, en áhugafólk getur
notað tækifærið og látið skrá sig í klúbb-
inn og með því komist á vönduð námskeið
og orðið meðlimir í klúbbnum. Félagarfá
í hverjum mánuði pakka sem inniheldur
„Nýtt af nálinni", en þar eru spjöld með
uppskriftum að fatnaði á alla fjölskylduna
ásamt aðgcngilegri sníðaörk, auk margs
konar annars efnis.
Það er útgáfufyrirtækið Vaka-Helgafell
sem annast klúbbstarfsemi Nýs af nálinni.
Fatasaumsnámskeið verða haldin á
eftirtöldum stöðum: Siglufirði: Kennari
er Sigrún Jóhannsdóttir, sími:96-71148,
Egiisstöðum: Kennari erSigurlaugJónas-
dóttir, st'mi: 97-11326, Eiðum: Kennari er
Guðný Marinósdóttir, sími: 97-13823,
Akureyri:Kennari er Kristín Jónasdóttir,
sími 96-22294, Sauðárkróki: Kennari er
Friðbjörg Vilhjálmsdóttir, sími: 95-
35352, ísafirði: kennari er Valgerður
Jónsdóttir, sími:94-3569, Akranesi:
Kennari er Eygló Gunnarsdóttir, sími
93-13055, Selfossi: Kennari er Guðný
Ingvarsdóttir, sími: 98-12179, Borgar-
nesi: Kennari er Ásdís Helgadóttir, sími:
9371757, Hafnarfirði: Kennari er Snjó-
laug Sveinsdóttir, sími: 91-5370, Reykja-
vík: Kennari er Edda Guðmundsdóttir,
skráning fer fram hjá Vöku-Helgafelli í
síma 91-688300.
Prjónanámskeið verða haldin á eftir-
töldum stöðum: Eiðum: Kennari er
Guðný Marinósdóttir, sími: 97-13823,
Akureyri: Kennari er Þórunn Oddsteins-
dóttir, sími 96-22294, Borgamesi: Kenn-
ari er Ásdís Helgadóttir, sími 93-71757,
Akranesi: Kennari er Eygló Gunnars-
dóttir, st'mi 93- 13055, Reykjavík: Kenn-
ari er Ásta Siggadóttir, skráning fer fram
hjá Vöku-Helgafelli í síma 91-688300.
Vestmannaeyjum: Kennari er Bergþóra
Þórhallsdóttir, sími: 98-12179.
Upplýsingar um námskeiðin veita við-
komandi kennarar á hverjum stað og
annast þeir einnig innritun.
FREYR15. tbl. 85. árg.
Búnaðarblað
Ritstjórnargrein blaðsins er að þessu
sinni um Bændaskólann á Hvanneyri í
tilefni af aldarafmæli skólans. Sömuleiðis
er grein um sögu skólans og myndir af
skólastjórum hans í 100 ár. Forsíðumynd-
in er sömuleiðis af Hvanneyrarstað, og er
myndin tekin úr lofti af Jóni Karli Snorra-
syni.
Viðtal er í blaðinu við núverandi skóla-
stjóra bændaskólans, Svein Hallgríms-
son, og er rætt um starfið á Hvanneyri.
Þá er frásögn af afmælishátíðinni.
Grein er eftir Hauk Halldórsson um
aðild Stéttarsambands bænda að stjórn
búvöruframleiðslunnar.
Þá er viðtal, sem Árni Daníel Júlíusson
sagnfræðingur átti við theódór Shanin
prófessor við Manchesterháskóla sem
nefnist: Umbótasinnar í Rússlandi hyggj-
ast finna þriðju leiðina.
„Jæja, bændur", nefnist grein eftir írisi
Randversdóttur á Sellandi í Jökulsárhlíð.
Margar fleiri greinar um landbúnað og
hagsmunamál bænda eru í blaðinu.
tímarítið ÞR0SKAHJÁLP
Tímaritið Þroskahjálp 4. tölublað 1989
er komið út. Útgefandi er Landssamtökin
Þroskahjálp. í þessu tölublaði segja for-
eldrar fjölfatlaðs drengs, sem þarf mikið
að dvelja á sjúkrahúsum, frá lífi sínu.
Viðtalið ber yfirskriftina „Lífið og dauð-
inn togast á“.
Meginefni blaðsins að þessu sinni er
helgað málþingi þroskaheftra, sem haldið
var í Reykholti í Biskupstungum sl. vor.
Sagt er frá umræðum málþingsins og
birtar ræður sem þátttakendur fluttu.
Fjallað er um vinnufund um frahalds-
menntun, sem haldinn var hér á landi á
vegum NFPU, norrænna samtaka um
málefni vangefinna. Einnig er grein í
blaðinu eftir Rannveigu Traustadóttur í
Bandaríkjunum, sem ber heitið: Kyn-
bundin umönnun fatlaðra innan fjölskyld-
unnar, en þar er m.a. hvatt til þess, að
samtök fatlaðra.og kvennahreyfingin gæti
þess að réttindi annars hópsins aukist
ekki á kostnað hins.
Tímaritið Þroskahjálp kemur út sex
sinnum á ári. Það er sent áskrifendum og
fæst í lausasölu í bókabúðum, á blaðsölu-
stöðum og á skrifstofu samtakanna að
Nóatúni 17.
Áskriftarsíminn er: 91-29901.
Pennavinur í Svíþjóð
Borist hefur bréf frá Svíþjóð, þar sem
Kicki, 22 ára, með áhuga á tónlist,
bókum, íslenska hestinum o. fl. o.fl.
biður íslensk ungmenni 22-24 ára að
skrifa sér, annaðhvort á ensku eða
sænsku. Tekið er fram, að bréfritari þurfi
ekki endilega að hafa óstjórnlegan áhuga
á hestum, en það er þó betra. Gaman væri
að fá mynd með bréfinu, segir Kicki.
Utanáskriftin er:
Kicki Mikaelsson,
Lundarvágen 8A,
90249 Umeá,
Sweden
Handrítasýning í Ámagarði
Handritasýning Stofnunar Árna Magn-
ússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á
þriðjudögum, fímmtudögum og laugar-
dögum kl. 14:00-16:00 til 1. september.
Frá Félagi eldri borgara
Göngu-Hrólfur fer á Þingvöll á
morgun, laugardaginn 9. sept., kl. 10:00
frá Nóatúni 17. Fólk hafi með sér nesti.
Allir velkomnir.
Kvikmyndasýningar MÍR
hefjast að nýju
Kvikmyndasýningar MlR hefjast að
nýju að loknu sumarleyfi í bíósal félags-
ins, Vatnsstíg 10, sunnud. 10. september
kl. 16:00.
Sýningar verða síðan hvern sunnudag á
sama tíma og sýndar gamlar og nýjar
sovéskar kvikmyndir. Myndin, sem sýnd
verður á sunnudag er eftir Nikita Mik-
halkov og nefnist „Einn meðal ókunn-
ugra, ókunnugur okkar á rneðal", en
þetta er fyrsta kvikmynd hins fræga
leikstjóra og leikara og gerist á dögum
borgarastyrjaldarinnar í Rússlandi.
Skýringar með myndinni eru á ensku.
Aðgangur að kvikmyndasýningum MfR
er ókeypis og öllum heimill meðan hús-
rúm Ieyfir.
Sýning Gunnars
Þorleifssonar í EDEN
Gunriar Þorleifsson bókaútgefandi
opnaði málverkasýningu í Eden í Hvera-
gerði miðvikudaginn 5. september. Á
sýningunni eru um 25 myndir málaðar í
olíu. Þetta er 10. einkasýning Gunnars.
Sýningunni lýkur sunnudagskvöldið 17.
september.
Heymar- og talmeinastöð á Hðfn
Móftaka verður á vegum Heymar- og
talmeinastöðvar fslands í Heilsugæslu-
stöðinni á Höfn dagana 8.-10. sept. 1989.
Þar fer fram greining heymar- og tal-
meina og úthlutun heyrnartækja.
Sömu daga að lokinni móttöku Heyrn-
ar- og talmeinastöðvarinnar verður al-
menn lækningamóttaka sérfræðings í
háls-, nef- og eyrnalækningum.
Tekið er á móti viðtalsbeiðnum í
Heilsugæslustöðinni á Höfn.
Félag eldri
borgara í Kópavogi
Munið að spiluð verður félagsvist í
Félagsheimili Kópavogs föstudaginn 8.
september og hefst kl. 20:00. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.