Tíminn - 08.09.1989, Side 16
GLYSINGASIMAR: 680001 —686300
RÍKIS9CIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvagölu,
S 28822
k “0^0-
SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.
ÁTTHAGAFÉLÖG,
FYRIRTÆKI OG
EINSTAKLINGAR
GlajBilogur ««Jur tll Iaigu fyrir aamkvnmi
ofl fundarhöld á daginn som á kvöldin.
20. SlMl 2333S
MiOst jorn li'umsoknai'llokksins kom suniun til liiiulur ú Ilótel I.iiul í Ueyk juM'k í gærkvekli til uó
rierta myndiin nýrrur rikisstjórnur meó |>u111<>k11 Borgaruflokks. Nýr stjórnarsúttmúli sem
forsætisrúóherru lieliir iimiió aó úsamt (ióriini meóliimmi ríkisstjórnurimiur o$> liilltriium Borj>uru-
llokks var ú fimdiimm sumþykktiir meó \ liignæLimli meirihliitu. Imikomu Imrgura í ríkisstjórn <>}>
verkel'nutilfærsliir iniiun stjóriiurrúósins í kjiilfur jtess vur einu múl fundarins. Stcingrímur
Hermunnsson formuóiir liumsoknuiiTokksius setti iimdiim. i iiikiiiimkI: \rni llj;irn;i - \(*
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra á bekk með
Hermanni Jónassyni, Ólafi Thors og Jóni Magnússyni:
Myndar stjórn
í þriðja sinn
Næstkomandi sunnudag mun
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráöherra mynda sína þriðju ríkis-
stjórn. Þar með hefur hann skipað
sér á bekk með þremur mönnum
sem myndað hafa þrjár ríkisstjórnir
eða fleiri á íslandi. Miðstjórn Fram- .
sóknarflokksins var kölluð saman til
fundar í gærkveldi, til að ræða
myndun nýrrar ríkisstjórnar með
þátttöku Borgaraflokks. Fundir
verða í æðstu valdastofnunum Al-
þýðubandalagsins og Alþýðuflokks
í dag og á morgun, en ekki er búist
við að myndun nýrrar ríkisstjórnar
mæti teljandi andstöðu innan núver-
andi stjórnaraflokka.
Boðaður hefur verið ríkisráðs-
fundur klukkan ellefu á sunnudag og
þar mun Steingrímur Hermannsson
biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt. Landið verður án stjórnar í tvo
klukkutíma, en klukkan eitt mun
forsætisráðherra mynda sína þriðju
ríkisstjórn, sem samanstendur af
Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki,
Borgaraflokki og Framsóknarflokki.
Það hefur ekki gerst í þrjátíu ár, eða
síðan 1959, að sami maðurinn hafi
leitt þrjár ríkisstjórnir eða fleiri.
Ólafur Thors er sá maður sent sem
hefur verið í forsvari fyrir flest
ráðuneyti í sögu íslenskra stjórn-
mála. Hann var fimm sinnum for-
sætisráðherra á tímabilinu 1942 til
1959. Hermann Jónasson, faðir
Steingríms Hermannssonar núver-
andi forsætisráðherra, stofnaði sitt
fyrsta ráðuneyti árið 1934 og veitti
því forstöðu til ársins 1941. Hann
var forsætisráðherra í annað sinn frá
1941 til 1942 og þriðja ráðuneyti
Hermanns var skipað 1956 og fékk
lausn í árslok 1958. Jón Magnússon
var þrisvar forsætisráðherra á tíma-
bilinu 1917 til 1926, en hann sat á
þingi fyrir íhaldsflokkinn.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra mun því verða fjórði
íslendingurinn sem veitir fleiri en
tveimur ráðuneytum forstöðu og er
þar með kominn í hóp með þeim
Hermanni Jónassyni föður sínum,
Ólafi Thors og Jóni Magnússyni. ,
OlB 1 L A s r(
%
ÞRttSTUR
685060
VANIR IVIENN
>
Tímiiin
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989
Yfirvinnukvóti lögreglu, til umræðu hjá
Lögreglufélagi Reykjavíkur. Skrifstofu-
stjóri dómsmálaráðuneytisins segir:
„Þeirra mál
eins og er“
Almennur félagsfundur njá Log-
reglufélagi Reykjavíkur fór fram í
gærkvöldi. Eina umræðuefnið á
fundinum var samdráttur í auka-
vinnu lögreglumanna í Reykjavík,
þar sem gengið hefur mjög á yfir-
vinnukvóta embættisins. Þá mun
stjórnarfundur verða á mánudag í
sama félagi.
Að sögn Jóns Péturssonar for-
manns Lögreglufélags Reykjavíkur,
fyrir fundinn sem halda átti, hefur
gengið á yfirvinnukvóta þeirra eins
og annarstaðar á landinu, sem drægi
úr aukavinnu og leiddi sjálfsagt til
minnkandi löggæslu í Reykjavík.
„Peir fullyrða við okkur að fullri
löggæslu verði haldið á kvöldin og
um helgar," sagði Jón. Hann sagði
að lögreglumenn væru alltaf uggandi
þegar dregið væri úr löggæslu. Að-
spurður sagði hann að Lögreglufé-
lagið hafi ekki beitt sér enn sem
komið er í þessu máli. Hann sagði
að það væri víðar um land sent
embættin væru búin með kvótann og
tiltók þar Patreksfjörð.
Lögreglan í Borgarnesi er einnig
svo til búin með sinn yfirvinnukvóta.
Starfsmannafélag lögreglunnar á
staðnum ræddi þessi mál síðdegis í
gær, enda mjög alvarlegt þegar borg-
ararnir gætu ekki treyst á löggæslu,
eins og einn lögregluntannanna
komst að orði.
Hjá lögreglunni á Akureyri feng-
ust hins vegar þær upplýsingar að
þar væri hægt að halda uppi fullri
löggæslu fram til áramóta, enda
hefði embættið haldið sig innan
ramma fjárlaga.
Hjalti Zóphóníasson skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu sagði
í samtali við Tímann að ráðuneytið
ætti erfitt með að aðhafast mikið í
þessu máli. Hann sagði að þær
upplýsingar lægju fyrir að þetta væru
fjárlögin, þau yrðu haldin og engin
frávik frá því. „Það var búið að segja
lögreglustjóranum frá þessu fyrr á
árinu, þannig að það er þeirra mál,
eins og er,“ sagði Hjalti. -ABÓ
Athugað með
rækjuveiðar
í Eyjafirði
Það veltur að vísu á því að æðstu
valdastofnanir stjórnarflokkanna
þriggja fallist á samvinnu við borg-
araflokksmenn í væntanlegri ríkis-
stjórn. Samkvæmt heimildum frá
áhrifamönnum innan Framsóknar-
flokks, Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags virðist mega ganga að því
sem vísu að mikill meirihluti sé fjjrir
því innan flokkanna. - AG
Athugun á því hvort mögulegt
væri að veiða innfjarðarrækju í
Eyjafirði fór fram um síðustu helgi
á Særúnu frá Árskógsströnd.
Tvisvar áður, árin 1983 og 1984
hefur verið athugað með veiðar á
rækju í Eyjafirði, en lítið fengist.
í þeim túr sem farinn var 3. og
4. þessa mánaðar fengust 35 kíló á
togtíma yst í firðinum. Um er að
ræða smárækju, 463 stykki í kíló-
inu, en á algengum rækjuslóðum
þykir gott að fjöldi rækja í kílói séu
ámilli 160og250. StefánBrynjólfs-
son fiskifræðingur hjá Hafrann-
sóknarstofnun var með í förinni á
Særúnu.
Unnur Skúladóttir fiskifræðing-
ur hjá Hafrannsóknarstofnun sagði
í samtali við Tímann að ekki yrði
lagt út í neinar veiðar á rækju á
þessum slóðum, enda lítið að hafa.
„Oftast er enginn afli eða nokkur
kíló á togtíma og þessi 35 kíló það
mesta sem fékkst," sagði Unnur.
Ástæða þess að verið var að
kanna þennan stað var sú að menn
töldu sig hafa orðið vara við meiri
rækju nær landi en undanfarið.
Fyrirhugað er að rannsóknaskip-
ið Dröfn fari í Öxarfjörð í þessum
mánuði til að athuga með innfjarð-
arrækju. í fyrrahaust fannst þar
talsvert af smárækju.
Hefðbundnar innfjarðarkannan-
ir hefjast 25. september í Arnar-
firði, Isafjarðardjúpi, Húnaflóa og
Skagafirði. Þær eru farnar til að
athuga hvort opna megi svæðið til
rækjúveiða. -ABÓ
Gullberg með tilboð
Forsvarsmenn Gullbergs hf. á
Seyðisfirði gengu á fund bústióra
þrotabús Fiskvinnslunnar hf. Árna
Halldórssonar í gærmorgun og af-
hentu honum leigutilboð í hús og
tæki þrotabúsins. Bústjóri kynnti
helstu kröfuhöfum tilboðið í gær, en
ekki er búið að taka afstöðu til
tilboðsins.
Leigutilboðið felur í sér að 3% af
greiðsluverði afurða sem unnar
verða fram að áramótum, en til þess
tíma nær leigutilboðið, renni sem
leigugjald til þrotabúsins.
Gullberg hf. vill leigja bæði frysti-
hús Fiskvinnslunnar og Norðursíld-
ar, síldarplan, skrifstofuhúsnæði,
geymslur og tæki, þ.e. það sem þarf
til að salta og frysta síld svo og aðrar
sjávarafurðir.