Tíminn - 16.09.1989, Blaðsíða 19
C’ððr -isdmeíqee ðf \-sík'a*-s.'s. J
Laugardagur 16. september 1989
llllllllllllllllllllllll IÞRÓTTIR :l;IIIH!l!i|'! :ilHI;ll' ;íiHII!|j !jiHIIIII|:|: ..!ilillll!lil .liiillllllT' nlillllll'l:! ,l,iillllllll'r: ;|i|lllll!r!
Konráð Olavson skoraði 4 mörk gegn Spánverjum í gærkvöld. Myndin er úr landsleik gegn V-Þjóðverjum.
Handknattleikur:
T ap gegn Spánverjum
Á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða
f slenska landsliðið í handknattleik
skipað leikmönnum 21 árs og yngri'
tapaði í gærkvöldi fyrir Spánverjum
á heimsmeistaramótinu sem fram
fer þessa dagana á Spáni, 18-22.
íslendingar höfðu frumkvæðið
framan af, komust í 3-0 og voru yfir
4-2 og 5-3. Þá fóru Spánverjar í gang
og skoruðu 6 mörk gegn engu áður
en flautað var til leikhlés.
f síðari hálfleik minnkuðu fslend-
ingar muninn í 16-17, en Spánverjar
voru sterkari á endasprettinum og
sigruðu 18-22.
Að sögn Jóns Hjaltalín Magnús-
sonar formanns HSÍ, sem er í fylgd-
arliði strákanna á Spáni, þá var
leikurinn mjög harður og greinilegt
var að leikurinn frá því í fyrrakvöld,
þegar íslendingar sigruðu V-Þjóð-
verja, sat í strákunum. Jón sagði að
spænska liðið væri mjög sterkt og
skemmtilegt lið og það hefði verið
vel stutt af áhorfendum, enda á
heimavelli. Leiknum var sjónvarpað
um allan Spán og íslensku leik-
mennirnir léku með „Bacalo Is-
landia" saltfiskauglýsingu á brjóst-
inu.
Á morgun sunnudag mæta ís-
lendingar Tékkum í síðasta leik
sínum í riðlakeppninni, en keppt
verður í milliriðlum í næstu viku.
Mörkin: Héðinn Gilsson 6, Kon-
ráð Olavson 4, Halldór Ingólfsson 3,
Ámi Friðleifsson 2, Sigurður Sveins-
son 2 og Þorsteinn Guðjónsson 1.
BL
Knattspyrna - Landsliðið:
Olafur Gottskálksson
valinn í landsliðið
Pétur Pétursson og Þorvaldur Örlygsson komnir í hópinn á ný
Guðni Kjartansson landsliðsþjálf-
ari mun stjóma íslenska landsliðinu
gegn Tyrkjum á miðvikudag, þegar
Island leikur síðasta leik sinn í
undankeppni HM.
í gær var tilkynnt hvaða 16 leik-
menn Guðni hefur valið til þátttöku
í leiknum.
Pétur Pétursson KR og Þorvaldur
Örlygsson KA eru nú á ný komnir í
landsliðshópinn. Pétur eftir langt
hlé, en Þorvaldur var ekki með gegn
Austurríkismönnum og A-Þjóðverj-
um. Báðir eiga þeir það sameiginlegt
að hafa ekki gefið kost á sér í
ákveðna landsleiki. Þeir hafa því
greinilega fengið uppreisn æru.
Einn nýliði er í landsliðshópnum,
Ólafur Gottskálksson markvörður
Skagamanna og 21 árs landsliðsins.
Hann hefur staðið sig frábærlega að
Ólafur Gottskálksson
undanfömu og verðskuldar fyllilega
sæti í liðinu.
Sigurður Jónsson, sem ekki gaf
kost á sér í leikinn gegn A-Þjóðverj-
um og Ólafur Þórðarson, sem var í
leikbanni, em á ný komnir í lands-
liðshópinn.
Töluverðar breytingar em því á
hópnum. Þeir leikmenn sem falla út
úr hópnum em þeir Friðrik Friðriks-
son, Guðmundur Hreiðarsson,
Ómar Torfason og Gunnar
Oddsson. Sævar Jónsson og Guð-
mundur Torfason verða í leikbanni
gegn Tyrkjum.
Þeir Ásgeir Sigurvinsson og Amór
Guðjónsen mæta báðir í leikinn en
landsliðshópurinn er annars skipað-
ur eftirtöldum leikmönnum:
Pétur Pétursson
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson Val
Ólafur Gottskálksson ÍA
Aðrir leikmenn:
Amór Guðjónsen Anderlecht
Ágúst Már Jónsson Hácken
Ásgeir Sigurvinsson Stuttgart
Guðni Bergsson Tottenham
Gunnar Gíslason Hácken
Ólafur Þórðarson Brann
Pétur Arnþórsson Fram
Pétur Pétursson KR
Ragnar Margeirsson Fram
Rúnar Kristinsson KR
Sigurður Grétarsson Luzern
Sigurður Jónsson Arsenal
Viðar Þorkelsson Fram
Þorvaldur Örlygsson KA
Leikurinn fer fram á Laugardals-
velli á miðvikudaginn kemur kl.
17.30. BL
flilími
os
- rTrmirtn ■ 31
/ /
VATRYGGINGAFELAG N XMfr
ÍSLANDS HF VEár
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum:
Skoda 120 L árgerð 1989
Toyota Corolla XL sedan árgerð 1988
Toyota Corolla 1600 GTI árgerð 1988
MMC Galant 2000 GLS árgerð 1987
Skoda 105 S árgerð 1986
Skoda 105 S árgerð 1986
Lada Samara 1300 árgerð 1986
Subaru E-10 árgerð 1986
Pontiac Firebird árgerð 1986
Honda Civic árgerð 1982
Volvo 244 árgerð 1982
Ford Fiesta árgerð 1982
BMW518 árgerð 1981
Toyota Corolla DL árgerð 198Ó
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 18. september 1989, kl.
12-17.
Tilboðum sé skilað til Vátryggingafélags íslands,
Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl.
17, mánudaginn 18. septernber 1989.
Vátryggingafélag íslands h.f.
- ökutækjatryggingar -
Fundurá ísafirði
iLandbúnaður- Menning - Samgöngur- Menntun
Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og sam-
gönguráðherra og Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra halda opinn fund á Hótel ísafirði mánu-
dagskvöld 18. september n.k. kl. 20.30.
Menntamálaráðuneytið, Landbúnaðarráðu-
neytið og Samgönguráðuneytið.
Steingrfmur
J. Sigfússon
Svavar
Gestsson
Laugardagur kl.13:55
37. LÉlkVlKA- 16. sept 1989 | l"ÍX 12
Leikur 1 Valur
K.R.
Leikur 2 Keflavík
- K.A.
Leikur 3 F.H.
Fylkir
Leikur 4 Fram
Víkingur
Leikur 5 Þór
Akranes
Leikur 6 Chartton
- Everton
Leikur 7 Coventry
Luton
Leikur 8 Man. Utd. - Millwall
Leikur 9 Nott. For.
Arsenal
Leikur 10 Q.P.R.
- Derby
Leikur 11 Sheff. Wed. - Aston Villa
Leikur 12 Tottenham - Chelsea
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN s. 991002