Tíminn - 30.09.1989, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 30. september 1989
Verða íslendingar með
í „alþjóðlegu lottói"
í tengslum við stefnumörkun í umhverfismálum og þátttöku
Islendinga í alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefur komið
fram áhugaverð hugmynd um „alþjóðlegt lottó“. Þetta
kemur m.a. fram í skýrslu sérstakrar ráðgjafarnefndar ríkis
og einkaaðila, sem Steingrímur Hermannsson, forsætisráð-
herra skipaði til að undirbúa sérstakt kynningarátak á íslandi
erlendis. Hugmyndir um ísland sem fríverslunarsvæði með
fjármagn og að við getum tekið forystu í umhverfismálum eru
einnig kynntar í sömu skýrslu.
Aðstandendur lottófyrirtækja í
ýmsum fylkjum Bandaríkjanna hafa
rætt um samtengingu lottókerfa inn-
an Bandaríkjanna með gervihnatta-
sendingum og símalínum. Sem
kunnugt er notumst við við símalín-
ur hér á landi. í sömu viðræðum hafa
hugmyndir um tengingu milli landa
einnig verið til athugunar. Hug-
myndin um „alþjóðlegt lottó“ hefur
verið rædd m.a. í samvinnu við
umhverfisverndarstofnanir og gæti
því slík hugmynd tengst hugmynd-
inni um alþjóðleg umhverfisverð-
laun og fjármögnun slíkrar hug-
Nokkuð stapp varð í anddyri
Þjóðleikhússins skömmu fyrir sýn-
ingu á söngleiknum Oliver! í gær-
kvöldi þegar 7 verkfallsverðir frá
Rafiðnaðarsambandinu vildu kom-
ast inn í húsið, en var meinaður
aðgangur. Á endanum keyptu verk-
fallsverðirnir sér miða, sem hægt var
að fá vegna ósóttra pantana, og
komust þannig inn í húsið. Tilgangur
rafiðnaðarmannanna var að afhenda
Gísla Alfreðssyni, þjóðleikhús-
stjóra, yfirlýsingu um að hann værí
að brjóta lög með því að ganga í störf
þeirra rafiðnaðarmanna sem nú eru
í verkfalli.
Gísli var hins vegar læstur inni í
herbergi því þar sem sviðsljósum er
stjórnað en kom fram og tók við
yfirlýsingu verkfallsmannanna. Að
svo loknu fór hann aftur inn í
herbergið og læsti á eftir sér. Sýningu
mun hafa seinkað um nokkrar mí-
nútur vegna þessa uppistands.
{ yfirlýsingu rafiðnaðarmannanna
segir m.a.: „Það er okkar skoðun að
með þessu framferði þjóðleikhús-
stjóra sé hann að brjóta gegn
ákvörðun laga um stéttarfélög og
vinnudeilur. Auk þess teljum við að
um sé að ræða brot á lögvernduðum
réttindum iðnaðarmanna. Með vís-
un til framangreindra atriða, áskilj-
um við okkur allan rétt til að kæra
þetta fyrir réttum yfirvöldum.“
Magnús Geirsson formaður Raf-
iðnaðarsambandins sagði í samtali
við Tímann síðdegis í gær að ákvörð-
un þjóðleikhússtjóra væri skýlaust
verkfallsbrot þar sem um lögvernd-
uð störf væri að ræða samkvæmt
iðnlöggjöfinni.
Þegar ljóst var að þjóðleikhús-
stjóri hygðist ganga í störf tækni-
mannanna hafði Tíminn samband
við Snævar Guðmundsson fram-
kvæmdastjóra Þjóðleikhússins og
innti hann eftir því hvaða rök lægju
að baki þessari ákvörðun. „í fyrsta
lagi teljum við að verkfallið sé
ólöglega boðað samkvæmt greinar-
gerð frá ríkislögmanni. Þessvegna
teljum við að það vanti ákveðna
menn til starfa hérna. Af þeim
sökum munum við keyra þessa sýn-
myndar, sem frekar verður gerð
grein fyrir hér á eftir. Hugmyndir
þessar eru á frumstigi erlendis og því
möguleiki fyrir íslendinga að verða
virkir þátttakendur strax í upphafi. ■
í skýrslunni kemur fram að er-
lendar bankastofnanir hafi takmark-
aðan áhuga á að fjárfesta á íslandi
vegna smæðar markaðarins, vaxta-
stefnu innanlands og almennrar
efnahagsþróunar í landinu. Hins
vegar gæti komið til greina að gera
ísland að fríverslunarsvæði með
fjármagn. Þetta væri hægt að gera
utan við fjármálakerfi landsins án
ingu í kvöld. Það hafa margir ófag-
lærðir menn stýrt ljósaborðinu í
gegnum tíðina, þar á meðal þjóð-
leikhússtjóri. Hann hefur sem yfir-
maður stofnunarinnar örugglega
heimild til að sinna því starfi eins og
öllum öðrum hér innanhúss.“
Snævar sagði að þjóðleikhússtjóri
myndi sjá um ljósaborðið en hljóðið
yrði í breyttri mynd. Stefnt væri að
því að það kæmi ekki niður á gæðum
sýningarinnar, þó vissulega yrði um
breytingar að ræða en þær væru
gerðar í samvinnu við leikstjóra
sýningarinnar.
Snævar bætti því við að ljóst væri
að uppselt yrði á allar sýningar á
Oliver! en sýningum lýkur í lok
október þar sem þá verður að skila
leikmyndinni sem er leigð erlendis
frá. Þess má geta að andvirði að-
göngumiða á hverja sýningu er tæpar
þess að það hafi bein áhrif á það.
Fríverslunarsvæðið væri bundið
tölvuviðskiptum en þar eru engin
landamæri, segir í skýrslunni. Mögu-
leikar íslands á þessu sviði eru taldir
nokkrir m.a. vegna legu landsins
mitt á milli Evrópu og N-Ameríku.
fslendingar geta tekið frumkvæði
í umhverfismálum og nýtt sér árang-
ur skipulegra kynningarherferða og
markaðsaðgerða. Hugmyndir um
umhverfisverðlaun á heimsmæli-
kvarða hafa komið fram og er jafnvel
talið auðveldara að koma umhverf-
isverðlaunum á framfæri á alþjóða-
vettvangi en Nóbelsverðlaunum.
í skýrslunni segir að frumkvæði
íslands á sviði umhverfismála geti
virkað mjög jákvætt fyrir sérstöðu
okkar á sviði útflutnings á sjávaraf-
urðum í samkeppni við vörur sem
koma annars staðar frá í heiminum.
Á sama hátt er jákvæð umfjöllun um
fsland í tengslum við umhverfismál
æskileg forsenda til að auka og efla
áhuga erlendra aðila á að heimsækja
tvær milljónir króna.
Sem kunnugt er hafnaði verkfalls-
nefnd rafiðnaðarmanna undanþágu-
beiðni Þjóðleikhússins með þeim
rökum að þar væri ekki um öryggi
fólks að ræða. Gísli Alfreðsson sagði
þessa ákvörðun rothögg fyrir Þjóð-
leikhúsið og ákvað að ganga í fyrr-
nefnd störf við leiksýninguna. Var
stefnt að því að leikhúsgestir gætu
notið sýningarinnar til fulls þrátt
fyrir fjarveru tæknimannanna sem
meðal annars sjá um ljós og hljóð.
Sjö starfsmenn sýningarinnar eru
meðlimir Rafiðnaðarsambandsins
en þeir vinna á vöktum og því ekki
allir starfandi við hverja sýningu.
Ríkissáttasemjari hefur enn ekki
boðað samningafund og hefur staða
mála ekkert breyst frá því að slitnaði
upp úr samningaviðræðum á mið-
vikudagskvöldið. Fundur rafiðnað-
landið.
Um hugmyndina um umhverf-
isverðlaunin sem nefnd var hér að
framan, segir í skýrslunni að hana
verði að undirbúa og útfæra mjög
vel, þar sem ekki er ljóst hverjir
verðlaunahafarnir yrðu, hvort sem
um er að ræða einstaklinga, fyrirtæki
eða jafnvel lönd. í greinargerð sem
fylgir skýrslunni er gerð tillaga um
að koma á fót umhverfismálastofnun
á íslandi, stofnun sem mundi reyna
að ná alþjóðlegri stöðu og viður-
kenningu með því að veita ár hvert
áðurnefnd umhverfisverðlaun.
Síðar í skýrslunni segir að ljóst sé
að til þess að hægt verði að ræða af
alvöru um framkvæmd stefnu-
mörkunar um forystu íslands á sviði
umhverfismála og öfluga kynningar-
starfsemi því samfara, þurfi að
tryggja fjármuni til frambúðar. Ein
þeirra hugmynda sem fram komu í
nefndinni um fjármögnun á slíkri
starfsemi, ásamt rekstri Útflutnings-
og ferðamálaráðs gæti verið hagnað-
armanna samþykkti á fundi í gær
áskorun til verkfallsnefndarinnar um
að veita ekki fleiri undanþágur nema
í þeim tilvikum þar sem ótvírætt
væri um öryggi og heilsu fólks að
ræða. Einnig að þær undanþágur
sem þegar hafa verið veittar verði
endurskoðaðar á mánudaginn hafi
ekkert gerst í samningamálunum.
íslensk getspá sótti um undanþágu
frá verkfallinu vegna útsendingar í
sjónvarpi frá útdrætti í Lottóinu.
Rafiðnarsambandið tók ekki afstöðu
til beiðninnar með þeim rökum að
hún kæmi ekki frá Sjónvarpinu sem
væri vinnuveitandi þeirra tækni-
manna sem sæju um útsendinguna.
Það væri því Sjónvarpsins að leggja
fram beiðni af þessu tagi en það
hefði ekki verið gert. SSH
urinn af rekstri fríhafnarinnar á
Keflavíkurflugvelli, sem áætlaður er
um 218 milljónir króna á árinu 1989.
Ráðgjafarnefndin telur mjög
mikilvægt að aukin áhersla verði
lögð á kynningu á fslandi og íslensk-
um afurðum. Sameining Útflutn-
ingsráðs íslands og Ferðamálaráðs
íslands var reifuð af nefndarmönn-
um og komust þeir að þeirri niður-
stöðu að kostir slíkrar sameiningar
væru margir, m.a. yrði fastur kostn-
aður við rekstur skrifstofu á íslandi
minni. í öðru iagi myndu fjármunir
sem notaðir eru við skrifstofur er-
lendis nýtast betur, þar sem skrif-
stofur yrðu sameinaðar og svigrúm
opnaðist til að opna skrifstofur á
fleiri stöðum. í þriðja lagi myndu
ferðaþjónusta og vöruútflytjendur
fá aukinn gagnkvæman stuðning af
kynningarstarfsemi hvor annars og í
fjórða lagi yrði kynningarstarf ís-
lenskra aðila betur samhæft en áður
og fjármagn myndi nýtast betur.
-ABÓ
Nýtt skip á ísafjörö eftir mánuð:
Skip flutt
ME lilli
landsf lorna
Síldarvinnslan hf. í Neskaup-
stað hefur keypt Júlíus Geir-
mundsson fS 270 frá Gunnvör hf.
á ísafirði og gengur Barði NK
120, sem var í eigu Síldarvinnsl-
unnar upp í kaupverðið. Gengið
var frá samningi um kaupin á
miðvikudag, með fyrirvara um
samþykki sjávarútvegsráðuneyt-
isins og Fiskveiðasjóðs. Ekki hef-
ur fengist uppgefið á hvaða verði
skipin eru seld. Með þessum
kaupum verða fimm skip og bátar
úreltir, þ.e. Barði og fjórir aðrir
minni bátar, tveir frá Suðurnesj-
um, einn frá Grenivík og einn frá
Borgarfirði eystri.
Finnbogi Jónsson fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar
hf. sagði í samtali við Tímann að
með þessum skiptum fái þeir
engan kvóta. „Við erum bara að
fá nýrra skip í staðinn fyrir
Barða,“ sagði Finnbogi.
Gamli Júlíus Geirmundsson er
tæpir 2300 rúmmetrar að stærð,
en Barði tæplega 1900. Þá vantar
um 400 rúmmetra upp á. „Við
fylltum upp í þessa rúmmetra
með ýmsum bátum sem verða
úreltir um leið og nýi Júlíus
kemur til ísfirðinganna," sagði
Finnbogi.
Útgerðarfélagið sem átti Júlíus
Geirmundsson er að fá nýjan
Júlíus. Þegar að því kemur þarf
að úrelda jafn stórt skip og gamli
Júlíus er. Barði sem ísfírðingarn-
ir fá er minni en gamli Júlíus og
því þarf að úrelda eða selja úr
landi meira en Barða. Því verða
fjórir minni bátar með Barða
úreltir um leið, til að ná sama
rúmmetrafjölda og mæta þannig
kröfum sjávarútvegsráðuneytis-
ins um að sama rúmmál fari úr
landi eða verði úrelt, eins og
gamli Júlíus Geirmundsson er.
Þessir fjórir bátar sem með fylgja
eru frá Grenivík, tveir frá Suður-
nesjum og einn lítill frá Borgar-
firði eystri. - ABÓ
Þjóðleikhússtjóri gekk í störf verkfallsmanna á sýningu á Oliver! í gærkvöldi:
Stapp í anddyri leikhúss
er verkfallsverðir komu
Hér má sjá þegar Magnús Geirsson (t.v) ásamt félögum sínum úr Rafiðnaðarsambandinu afhenti þjóðleikhússtjóra
yfirlýsingu sína í gærkvöldi. Timamynd: Áml Bjarna