Tíminn - 30.09.1989, Síða 17
Laugardagur 30. september 1989
GLETTUR
- Þetta er líka asnalegur staður að standa á,
... á miðjum gatnamótum!
- Nú ættum við aö losna við bannsettan köttinn úr
húsinu...
- Vá, þetta kalla ég almennilegan móttöku-
stjóra!
- Sestu niður, pabbi. Presturinn átti ekki við
þig, þegar hann óskaði eftir að „hinn
lukkulegi" segði npkkur orð...
- Heyrðu Sæmundur, þykir þér óþægilegt
að vinna við gluggann..?
-Tfminn 29
Hjónin leika bæði í „Á fertugsaldri“
- en fá þó ekki aö leika hjón
Þessi glæsilega unga leikkona heitir Courtnev Gebhart, og hún leikur
barnapíu í þáttunum „Á fertugsaldri“. Ætli einhver
verði ekki afbrýðisamur út af barnapíunni?
Leikarahjónin Ken Olin
og Patricia Wettig eyða
vinnudögum sínum í að
kyssa og kjassa maka ann-
arra, - en ekki sinn eigin, þó
að þau leiki bæði í hinum
svokölluðu hjónaþáttum
„thirtysomething", eða „Á
fertugsaldri" eins og sjón-
varpsþættirnir eru kallaðir
hér á landi.
Þau Ken Olin og Patricia
Wettig kynntust fyrir sjö
árum þegar þau léku saman
á sviði í New Hampshire.
Pað var ást við fyrstu sýn hjá
þeim og þau giftu sig nokkru
síðar. Patricia var vel þekkt
leikkona í leikhúsum New
York borgar, en Ken var að
byrja að vinna sig upp. Hann
viðurkennir, að það hafi ver-
ið erfitt fyrir sig að finna
hversu hún var miklu meira
metin en hann, en Pat hafi
alltaf verið mjög skilnings-
góð og tekið því vel, þegar
hann var óánægður. Hún
taldi í hann kjark og sagði
honum að hans frægðartími
kæmi fljótlega.
Patricia fékk nú Emmy-
verðlaun fyrir bestan leik í
aukahlutverki í þáttunum
„Á fertugsaldri“, en Ken var
ekki einu sinni tilnefndur til
verðlauna. Ken Olin hefur
þó orðið mjög vinsæll í þátt-
unum. Hann leikur á móti
Mel Harris, en þau eru ein
hjónin í þáttunum.
En leikarinn, sem Patricia
leikur á móti í þessum
þáttum, er Timothy Bus-
field.
Þau hjónin Ken og Patri-
cia segjast hafa orðið mjög
ánægð þegar þau fengu bæði
hlutverk í sömu sjónvarps-
þáttum og hlökkuðu til að
geta unnið saman. Þá gætu
þau verið saman bæði í
vinnutímanum og frítíman-
um. Það kom þó annað á
daginn. Þau hafa mjög sjald-
an unnið að sama atriði
saman, aðeins leikið saman í
einni „senu“. Þau segjast þó
reyna af alefli að fá einhvern
tíma saman, þó ekki sé nema
sameiginlegan kaffitíma í
húsvagninum sem þau hafa
til eigin nota á upptökusvæð-
inu.
- Jú, afbrýðissemin hefur
skotið upp kollinum, segja
þau bæði. „Ég gat alls ekki
horft á upptöku með Ken og
Mel Harris, „sjónvarpskon-
unni“ hans“, segir Patricia í
blaðaviðtali. Og Ken segist
hafa haft miklar áhyggjur af
hvað Patricia hafi verið inni-
leg við mótleikara sinn, Tim-
othy Busfield, en þau hjónin
hafi nú reynt að tala út um
þetta vandamál sín á milli.
Hjónakornin Patricia Wettig og Ken Olin fá ekki að leika
saman í sjónvarpsþáttunum „Á fertugsaldri“, en hér eru þau
í kaffitímanum sínum.
■■ í í