Tíminn - 30.09.1989, Side 18
30 Tíminn
Laugardagur 30. september 1989
ÍÞRÓTTIR
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
STÓRLEIKUR STRAX í DAG
- þegar Haukar fá Njarðvíkinga í heimsókn í Fjörðinn
íslandsmótið í körfu-
knattlelk hefst í dag með
leik Hauka og Njarðvík-
inga í íþróttahúsinu við
Strandgötu kl. 14.00. Á
sama tíma mætast
Svona leit karfan á Seltjarnarnesi út eftir að bandaríski leikmaðurinn
Darin Schubring braut hana í leik KR gegn enska liðinu Hemel
Hempstead á fimmtudagskvöld. Starfsmenn hússins skoða vegsum-
merki, ekki var nóg með að spjaldið brotnaði, heldur kengbognuðu
járnlistar sem spjaldið er fest við. Körfur af þeirri gerð sem á
Seltjarnarnesi eru, eru greinilega ekki boðlegar í meistaraflokks-
keppni, hvað þá í Evrópukcppni, en vera kann að þær standist álagið
í leikfimitímum ■ barnaskóla.
1 1 ÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A /ALDA ÞÉR SKAÐA!
Allir fylgihlutir og
dælur fyrir potta
og sundlaugar
Verð frá kr. 74.300,-
K. AUDUNSSON GRENSASVEGl 8
O. OO / /.-J Ot Oö UU oo
NOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
AKRÍL
NUDDPOTTAR
UMFB og Snæfell í Bol-
ungarvík.
Hart barist
Óhætt er að segja að keppni í
úrvalsdeildinni hefjist með sann-
kölluðum stórleik. Lið Hauka og
Njarðvíkur koma örugglega til með
að berjast um eitt af tveimur efstu
sætunum í sínum riðli deildarinnar,
ásamt KR og Tindastól. Þórsarar
eru einnig í riðlinum, en lið þeirra
stendur hinum nokkuð að baki. Lið
Þórs gæti þó hæglega komið á óvart
á heimavelli.
f hinum riðlinum leika íslands-
meistarar ÍBK. Þeir munu áreiðan-
lega eigna sér annað af efstu sætum
riðilsins og sæti í úrslitakeppninni í
vor, en um hitt sætið verður hart
barist. Lið ÍR, Grindavíkur og Vals
ætla sér öll það sæti, en hætt er við
að Reynismenn úr Sandgerði vermi
botnsætið.
Leikið á sunnudag
Á morgun sunnudag verða síðan
3 leikir í úrvalsdeildinni. Á Akureyri
mætast Þórsarar og KR-ingar og að
Hlíðarenda leika Valsmenn og
Grindvíkingar. Báðir þessir leikir
hefjast kl. 20.00. Um miðjan daginn,
eða kl. 16.00 mætast Reynismenn og
Keflvíkingar í Sandgerði.
f R-ingar leika á þriðjudag
Á þriðjudag verður keppni í úr-
valsdeildinni haldið áfram með leikj-
um ÍR og Reynis í Seljaskóla kl.
20.00 og á sama tíma mætast Tinda-
stóll og Þór á Sauðárkróki.
Fastir leikdagar
í vetur verður sami háttur hafður
á og í fyrra. Leikið verður á föstum
leikdögum. Þriðjudögum, fimmtu-
dögum og sunnudögum. Margir
leikjanna á sunnudögum verða
leiknir kl. 16.00.
BL
í dag mætast Haukar og Njarðvíkingar í íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 14.00. Úr leik liðanna fyrir nokkrum árum,
en þá sem í dag munu þeir Helgi Rafnsson UMFN og ívar Webster Haukum berjast undir körfunum.