Tíminn - 11.10.1989, Síða 15
Miðvikudagur 11. október 1989
ÍÞRÓTTIR
Páll Kolbeinsson átti mjög góðan leik hjá KR-ingum í gærkvöld og hér sést hann skora í fyrri hálfleik einbeittur á svip.
Tímamynd Pjetur
Körfuknattleikur:
- Guðni Guðnason handleggsbrotnaði
KR hafði betur
í baráttuleik
KR-ingar höfðu betur í baráttunni
við Hauka í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í Hagaskóla í gærkvöld.
Leikurinn einkenndist af mikilli bar-
áttu, ekkert gefið eftir í varnarleikn-
um og hittni leikmanna var mjög
slæm. Með góðum lokakafla tryggðu
KR-ingar sér sigur 62-49.
Vesturbæjarliðið náðu þegar
undirtökunum í leiknum 6-0 og 11-2.
Þá kom góður kafli hjá Haukum sem
komust yfir 11-12, 13-16 og 19-20.
Þá tóku KR-ingar aftur við foryst-
unni og héldu henni til leiksloka. í
leikhléi höfðu KR-ingar 4 stig yfir
28-24.
Eflaust hafa margir reiknað með
því að KR-ingum yrði róðurinn
þungur í síðari hálfleik, þar sem
einn þeirra þesti maður, Guðni
Guðnason varð fyrir því óhappi að
handleggsbrotna í lok fyrri hálfleik.
Guðni fór á slysadeild og verður frá
keppni í nokkrar vikur. Hér er um
mikið áfall fyrir KR-inga, en það
kom ekki að sök í leiknum í gær.
KR-ingar náðu 8 stiga forskoti
39-31 og voru ekkert á því að gefa
eftir. Leikmenn Hauka reyndu hvað
þeir gátu til að jafna undir lok
leiksins, en allt kom fyrir ekki og
KR-ingar unnu öruggan sigur 62-49.
Páll Kolbeinsson átti mjög góðan
leik hjá KR í gær, jafnt í vörn sem
sókn. Birgir Mikaelsson lék einnig
vel og margar körfur hans voru
glæsilegar. Guðni stóð sig vel í
sókninni í fyrri hálfleik, en fékk á sig
of mörg stig í vörninni. Rússinn
Kovtoum er furðulegur leikmaður.
Ekki er hægt að neita því að hann er
góður varnarmaður og gríðarlega
sterkur í fráköstum, en í sókninni
nýtir hann hæð sína alls ekki og
tiplar í kringum teiginn eins og
köttur í kringum heitan graut. Pá
sjaldan hann þorir að skjóta á körf-
una hittir hann, en sjálfstraustið
virðist í ólagi. Maðurinn er vel á
annan meter á hæð, en leikur sókn-
arleikinn eins og hann sé 1,80 m.
Axel Nikulásson var gríðarsterkur í
þessum leik og skoraði mikilvægar
körfur. Lárus Árnason kom inná í
stað Guðna og átti mjög góðan leik.
Pá stóð Hörður Gauti Gunnarsson
vel fyrir sínu undir lokin.
Stóra spurningin með Haukaliðið
þessa dagana er hve marga Banda-
ríkjamenn liðið þurfi til þess að sigra
betri liðið í deildinni. Jonathan Bow
var yfirburðamaður hjá Haukum í
leiknum, Henning Henningsson og
Reynir Kristjánsson áttu góða
spretti og ívar Webster lék vel í
vörn. Athygli vakti hve Pálmar Sig-
urðsson var óákveðinn, en hann
virkar í lélegri æfingu um þessar
mundir.
Leikinn dæmdu þeir Kristinn Al-
bertsson og Kristján Möller. Ekki
dæmdu þeir óaðfinnanlega og mikil
var smámunasemi þeirra.
Stigin KR: Birgir 12, Páll 12,
Guðni 8, Lárus 8, Kovtoum 8, Axel
8 og Gauti 6. Haukar: Bow 20,
Henning 9, Pálmar 5, Jón Arnar 5,
ívar 4, Reynir 4 og Webster 2.
BL
ÍBK tapaði
Grindvíkingar unnu íslandsmeist-
ara Keflvíkinga 71-70 í úrvalsdeild-
inni í gærkvöld í hörkuleik. Keflavík
hafði yfir í hálfleik 33-38.
f Sandgerði unnu Valsmenn sinn
fyrsta sigur í deildinni er þeir unnu
Reyni 72-90. BL
Knattspyma:
ísland vann
íslendingar unnu Hollendinga 3-2
í EM 21 árs landsliða í Hollandi í
gærkvöld. Ólafur Þórðarson, Har-
aldur Ingólfsson og Rúnar Kristins-
son gerðu mörkin, en bæði mörk
Hollendinga voru gerð á sömu mín-
útunni um miðjan síðari hálfleik.
BL
Tíminn 15
Handknattleikur:
Valsmenn leika
gegn Ungverjum
Hann er greinilega að komast í sitt
gamla form og orðinn góður af
meiðslunum. BL
Leikið í kvöld
Keppni í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik, VÍS-keppninni,
verður fram haldið í kvöld. Fyrstu
umferð lýkur með þremur leikjum.
í Garðabæ leika Stjarnan og KA kl. -
20.30. í Laugardalshöll mætast Vík-
ingur og KR kl. 20.15 og að Hlíðar-
enda leika Valsmenn og Vestmanna-
eyingar kl. 20.00.
Af öðrum leikjum í kvöld má
nefna að í 1. deild kvenna leika
Víkingur og Fram í Laugardalshöll
kl. 19.00 og í 2. deild karla mætast í
Keflavík heimamenn og Haukar kl.
20.00. í Digranesi leika síðan
Breiðablik og Fram kl. 20.15.
íslenskar getraunir:
í gær var dregið í 2. umferð á
Evrópumótunum í handknattleik.
Valsmenn, einir íslenskra liða kom-
ust áfram í keppninni og mótherjar
þeirra í Evrópukeppni meistaraliða
verða í 2. umferð, ungversku meist-
ararnir Raba Eto Györ.
Valsmenn björguðu andlitinu í
fyrrakvöld er þcir unnu 29-14 sigur
á færeysku meisturunum Kyndli.
Fyrri leik liðanna á sunnudag lauk
með sigri færeyska liðsins 27-26.
Valsmönnum tókst að sýna yfir-
burði sína og bjarga sjálfum sér og
íslenskum handknattleik frá frekari
skömm nreð því að vinna öruggan
sigur.
Brynjar Harðarson var atkvæða-
mestur Valsmanna í báðum leikjun-
um, en hann lék áður með Olympía
í Svíþjóð. Einar Þorvarðarson mark-
vörður lék sinn fyrsta heila leik
síðan hann meiddist í úrslitaleik
B-keppninnar og varði mjög vel.
Ekkert jafntefli
en fjórar tólfur
Fjórar raðir komu fram með 12
leikjum réttum um helgina í 40.
leikviku íslenskra getrauna, þótt
skipting merkjanna á seðlinum hafí
verið mjög óvenjuleg. Merkið X
kom ekki fyrir, þar sem ekkert
jafntefli varð í leikjunum á seðlin-
um.
Ein tólfan var keypt í Þverholti í
Mosfellsbæ s.l. miðvikudag og kost-
aði seðillinn 1.080 kr. Atta raðir
með 11 réttum fylgja með í heildar
vinningsupphæðinni sem er 218.065
kr. Viðkomandi studdi Aftureld-
ingu.
Önnur tólfan var keypt á skrif-
stofu íslenskra getrauna á laugardag
og kostaði seðillinn 4.320 kr. Tíu
raðir með 11 réttum fylgja með
tólfunni og vinningshafinn fær því í
sinn hlut 222.093 kr.
Þriðja tólfan var keypt í félags-
heimili Fram á laugardag. Seðillinn
sem tilheyrði hópnum GOSARNIR
kostaði 2.560 kr. Átta raðir með 11
réttum fylgja með og vinningsupp-
hæðin er alls 218.065 kr. GOSARN-
IR styðja Fram.
Fjórða tólfan var keypt í sölu-
skálanum Þríhyrningi á Hellu á laug-
ardag. Kostaði seðillinn 720 kr. og 7
raðir með 11 réttum fylgja tólfunni.
Sá heppni fær í sinn hlut alls 216.51
kr.
Alls komu 96 raðir fram með 11
réttum og fyrir hverja röð greiðast
2.014. kr. í vinning.
Úrslit helgarinnar urðu þessi:
Blackburn-Middlesbrough fr. 1
Bradford-Brighton 2-0 1
Hull-Swindon 2-3 2
Ipswich-Newcastle 2-1 1
Oldham-Barnsley 2-0 1
Oxford-Portsmouth 2-1 1
Plymouth-Stoke 3-0 1
Port Vale-Leicester 2-1 1
Sunderland-Boumemouth 3-2 1
Watford-WBA 0-2 2
West Ham-Leeds 0-1 2
Wolves-Sheffield United 1-2 2
Leik Blackburn og Middles-
brough var frestað vegna vatnselgs á
velli Blackburn. Kastað var tening
um getraunatáknið fyrir leikinn og
kom merkið 1 upp. BL
-ek kl/-^
he^'V^ ’/fW—
Laugardagur kl.13 :55
41.LEIKV IKA- 14. o kt. 1989 1 X m
Leikur 1 Arsenal - Man. City
Leikur 2 Charlton - Tottenham
Leikur 3 Coventry - Nott. For.
Leikur 4 Derby - C. Palace
Leikur 5 Everton - Millwall
Leikur 6 Luton - AstonVilla
Leikur 7 Norwich - Chelsea
Leikur 8 Q.P.R. - Southampton
Leikur 9 Wimbledon - Liverpool
Leikur 10 Brighton - Watford
Leikur 11 Portsmouth - Blackburn
Leikur 12 Sheff. Wed. - West Ham
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULINAN S. 991002
Mi jnið h< ftpleikinn 1! ■ •