Tíminn - 26.10.1989, Side 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 26. október 1989
VETRARHJOLBARÐAR
Nýir fólksbílahjólbarðar
HANKOOK frá Kóreu.
Mjög lágt verð.
STÆRÐIR: 145R12 175/70R13
155R12 185/70R13
135R13 175R14
145R13 185R14
155R13 185/70R14
165R13 195/70R14
175X13 165R15
Gerið kjarakaup
Sendum um allt land.
BARÐINN
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar 91-30501 og 84844
VÍSINDARÁÐ
auglýsirstyrki úr Vísindasjóði
árið 1990 til rannsókna í
- náttúruvísindum
- líf- og læknisfræði
- hug- og félagsvísindum
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Vísinda-
ráðs, Bárugötu 3, 101 Reykjavík og hjá
sendiráðum íslands erlendis.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1989, og
skal umsóknum skilað á skrifstofu ráðsins,
sem veitir upplýsingar daglega kl. 10-12 og
14-16 (sími 10233).
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkur til handrita-
rannsókna í
Kaupmannahöfn
Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að veita íslenskum fræðimanni styrk
til handritarannsókna við Stofnun Árna Magnússonar (Det arna-
magnæanske Institutu) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn veitist til 12
mánaða dvalar hið mesta og nemur nú um 15 þúsund dönskum
krónum á mánuði, auk ferðakostnaðar. Umsóknarfrestur er til 24.
nóvember n.k. Nánari upplýsingar um styrkinn og tilhögun umsókna
fást I menntamálaráðuneytinu, Stofnun Arna Magnússonar á fslandi
og skrifstofu heimspekideildar Háskóla fslands.
Menntamálaráðuneytlð,
20. október 1989
Frá menntamálaráðuneytinu
Skrifstofur menntamálaráðherra og ráðuneytisstjóra, háskóla- og
alþjóðadeildar og íþrótta- og æskulýðsmáladeildar hafa verið fluttar
frá Hverfisgötu 6 að Sölvhólsgötu 4.
Menntamálaráðuneytið
23. október 1989
Sumir ij UMfEHOMI A
spara sér leigubíl adrir taka enga áhættu!
Eftireinn -ei aki neinn
„Egheld
éggmgiheim"
Eftir einn -ei aki neinn
UUMFEROAR
RAD
Frá blaðamannafundi þar sem frumvarpsdrögin voru kynnt. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra og Bragi'
Guðbrandsson, félagsmálastjóri. Tímamynd: Arni BJama.
Frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga kynnt eftir 20 ára vinnslu:
Heilstæð félagsmála-
löggjöf verður til
Hjá ríkisstjórninni eru nú til umfjöllunar drög að frumvarpi
til laga um félagslega þjónustu sveitarfélaga. Lagafrumvarp
þetta hefur verið í vinnslu í hátt á annan tug ára og kemur til
með að leysa af hólmi svokallaða Framfærslulöggjöf frá 1947
sem fjallar einvörðungu um framfærslumál en ekki félags-
þjónustu almennt. Frumvarpið er því fyrsti vísir að heilstæðri
félagsmálalöggjöf hér á landi.
Helstu nýmæli sem er að finna í
frumvarpinu eru meðal annars þau
að stigin eru skref í átt til þess að á
vettvangi ríkisins verði yfirstjóm og
eftirlit með framkvæmd félagsþjón-
ustunnar sameinuð í einu ráðuneyti.
Jafnframt verði framkvæmd félags-
þjónustunnar sameinuð á vettvangi
sveitarstjóma í eina nefnd, svokall-
aða félagsmálanefnd.
Hvað einstaka málaflokka varðar,
er í frumvarpinu kveðið á um rétt
allra til félagsþjónustu og skyldur
sveitarfélaganna í því efni. Má nefna
að félagsleg heimaþjónusta, sem
hingað til hefur lögum samkvæmt
einungis náð til aldraðra, mun einnig
ná til fatlaðra. Einnig er kveðið á um
skyldur sveitarfélaganna til að bjóða
upp á dagvist þar sem hennar er þörf
og veita fólki úrlausn í húsnæðismál-
um til að leysa bráðan vanda þess.
Kveðið er á um að setja skuli
sérstakar reglur um daggæslu barna
í heimahúsum. Er þar um að ræða
skyldur dagmæðra og reglur um
aðbúnað barna sem hjá þeim dvelja.
I frumvarpinu er gert ráð fyrir
svokölluðum málskotsrétti ibúa
sveitarfélaga. Þannig að ef íbúi telur
að á hann sé hallað í ákvörðunum
sveitarfélaga þá getur hann skotið
málum sínum til úrskurðar í félags-
málanefndar sveitarfélagsins.
Félagsmálaráðherra sagði á fundi
með fréttamönnum að í stærstu
sveitarfélögunum sé haldið upp
þeirri félagsþjónustu sem frumvarp-
ið gerir ráð fyrir en í smærri sveitar-
félögunum sé mjög mismunandi
hvemig þeim málum er háttað. f
frumvarpinu væri gert ráð fyrir að
hvað varðar smærri sveitarfélög
verði lögð áhersla á samvinnu milli
tveggja eða fleiri sveitarfélaga um
ýmsa málaflokka. Einnig er gert ráð
fyrir að gefin verði út ný reglugerð
um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga þann-
ig að framlög sjóðsins taki einnig
mið af því að gera minni sveitarfé-
lögum kleift að halda upp ákveðnu
þjónustustigi.
Menntamálaráðherra
skiptir um skoðun
Félagsmálaráðherra sagði frum-
varpið vera mun merkilegra en ráða
mætti af umfjöllun fjölmiðla, þar
sem einblínt hafi verið á að í fmm-
varpinu er gert ráð fyrir að yfirstjóm
dagvistarmála færist frá mennta-
málaráðuneyti yfir til félagsmála-
ráðuneytis. Hefur menntamálaráð-
herra, Svavar Gestsson, lýst sig mót-
fallin þeirri breytingu og má geta
þess að Fóstrufélagið ásamt
kennarasamtökunum og foreldra-
samtökum hafa gert slíkt hið sama
með þeim rökum að visst samhengi
eigi að vera milli leikskólans og
grunnskólans og þessir tveir mála-
flokkar eigi því að heyra undir sama
ráðuneyti.
Aðhaldssemi landsmanna í inn-
flutningi hélt enn áfram í ágústmán-
uði miðað við síðasta ár, jafnframt
því sem útflutningur hefur aukist
verulega. Vöruskiptajöfnuðurinn
var því jákvæður um tæplega 1.780
milljónir í ágústmánuði og samtals
um nær 6.480 milljónir kr. frá ára-
mótum.
Vöruútflutningur er alls um 52
milljarðar króna frá áramótum til
ágústloka, sem er 10,4% aukning frá
sama tíma í fyrra reiknað á sama
gengi bæði árin. Útflutningur stór-
iðjufyrirtækjanna er m.a. um fjórð-
ungi meiri en á sama tíma f fyrra.
Vöruinnflutningur á sama tíma er
um 45,6 milljarðar kr., sem er 5%
minna en á sama tíma í fyrra. Þar af
Jóhanna sagði meginskýringuna á
því að mælt væri með því að yfir-
stjórn dagvistunar heyrði undir fél-
agsmálaráðuneyti væri sú dagvistar-
málin væru einn stærsti þátturinn í
félagsþjónustu sveitarfélaga og eftir
að lög um verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga komi til framkvæmda
þá verði þessi málaflokkur alfarið á
höndum sveitarfélaga, bæði hvað
varðar fjárhagslega ábyrgð og
ábyrgð hvað varðar uppeldisþáttinn
og innra starf á dagvistarstofnunum.
Ráðherrann sagði að Samband
sveitarfélaga hefði eindregið mælt
með að frumvarpi verði samþykkt í
þeirri mynd sem það nú er. Fulltrúar
stjómarflokkanna, allir nema einn,
sem höfðu málið til umfjöllunar
hefðu einnig samþykkt frumvarpið í
núverandi búningi.
Benti félagsmálaráðherra jafn-
framt á að frumvarpið hafi verið i
vinnslu þegar Svavar Gestsson var
félagsmálaráðherra og þá hafi hann
stutt það fyrirkomulag á yfirstjóm
dagvistarmála sem hann hefur mót-
mælt nú sem menntamálaráðherra.
SSH
er almennur innflutningur nú 34,2
milljarðar, sem er 16,5%, eða nær
6,8 milljónum króna minni en á
sama tíma í fyrra reiknað á sama
gengi. Annar innflutningur hefur á
hinn bóginn aukist mjög, eða úr 6,9
milljörðum kr. í fyrra í 11,3 millj-
arða nú. Mestu munar þar um 3
viðbótarmilljarða í flugvélakaup.
Innflutningur stóriðjufyrirtækjanna
er 36% meiri og olíuinnflutningur
(3.540 m.kr.) er 28% meiri en í
ágústlok 1988.
í samanburði hefur verið miðað
við að verð erlends gjaldeyris (með-
algengi á viðskiptavog) er talið vera
24,6% hærra í janúar-ágúst í ár
heldur en á sama tímabili í fyrra.
- HEI
Vöruskiptajöfnuðurinn í ágúst:
Almennur innflutn-
ingur 17% minni