Tíminn - 26.10.1989, Blaðsíða 18

Tíminn - 26.10.1989, Blaðsíða 18
18 Tíminn Fimmtudagur 26. október 1989 ÍÞRÓTTIR (slandsmótið í blaki: Stúdentar eru enn taplausir - KA-menn mörðu Þróttara á Neskaupstað ÍS vann Þrótt R. 3-2 í 1. deild karla í blaki í Hagaskóla á laugardag- inn var. Hrinur fóru þannig að fyrst vann Þróttur 15-6, ÍS jafnaði 13-15, komst yfir 9-15 en Þróttur vann fjórðu hrinu 15-12, en í oddahrin- unni unnu Stúdentar 9-15. Leikurinn var dæmigerður IS leik- ur, mjög kaflaskiptur, Þróttur náði góðri stöðu þegar í fyrstu hrinu komst í 7-0, en Stúdentar náðu að hrista af sér slenið. í oddahrinunni náðu Stúdentar góðri byrjun, eftir slaka fjórðu hrinu og tryggðu sér sigur. Bestir hjá Þrótti voru þeir Jason ívarsson, sem gerði Stúdentum lífið leitt með góðum miðjuskellum, en hjá Stúdentum voru þeir Sigurður Þráinsson og Gunnar Svanbergsson bestir. Að þessum leik loknum mættust lið Fram og HK, en hér um fyrsta deildarleik Fram að ræða í vetur. HK fór með sigur af hólmi 1-3 (9-15, 15-6, 0-15 og 3-15.) Leikurinn var mjög slakur og yfirburðir HK voru algjörir, þó svo að Framarar næðu að vinna eina hrinu. HK-liðið er að skríða saman eftir mikil meiðsl sem hrjáð hafa liðið að undanförnu. Framarar verða að gera betur til þess að ná í stig í deildin. Á laugardag mættust einnig Þrótt- ur R. og ÍS í kvennadeildinni í Hagaskóla og leik þeirri viðureign með 3-0 sigri ÍS í leik þar sem hrinutölur voru 9-15, 5-15 og 12-15. Lið Þróttar er ekki fullskipað um þessar mundir vegna meiðsla, en þær Snjólaug Bjamadóttir og Linda Jónsdóttir eru meiddar. ÍS liðið átti þokkalegan dag með þær Ursulu Unimann og Friðriku Magnúsdóttur sem sterkustu leikmenn. Á föstudagskvöld mættust Breiða- blik og HK í 1. deild kvenna í Digranesi. Þeim leik lauk með ör- uggum 3-0 sigri Breiðabliks, 15-6, 15-4 og 15-11 urðu úrslit í hrinunum. Leikurinn var lítt spennandi og lið Breiðabliks var stalli ofar en ná- grannaliðið. Breiðabliksliðið gat leift sér þann munað að hafa varalið- ið inná mest allan tímann. Athygli vakti ung stúlka í Breiðabliksliðinu, Amdís Þorvaldsdóttir en hún átti góða skelli og góðar móttökur. Sig- urborg Gunnarsdóttir átti einnig góðan leik hjá UBK. HK-liðið var mjög áhugalaust og slakt. Á Iaugardag léku á Neskaupstað heimaliðið Þróttur og KA bæði í karla og kvenna flokki. í kvenna- leiknum vann KA 0-3 sigur, 13-15, 10-15 og 13-15. Eins og tölurnar benda til var leikurinn jafn þrátt fyrir 0-3 sigur. Særún Jóhannsdóttir átti góðan leik í liði KA. Karlaleik sömu félaga lauk með 2-3 sigri KA í leik sem tók 129 mín. KA vann fyrstu hrinuna nokkuð örugglega 10-15, en síðan tóku Þróttarar við sér og unnu 15-13 og 15-13. í fjórðu hrinu jöfnuðu KA- menn 11-15 og í síðustu hrinunni, sem var jöfn framan af unnu KA- menn 13-15. Ólafur Sigurðsson og ívar Ás- geirsson stóðu sig vel í liði Þróttar sem notar mjög snöggt spil, sem norðanmenn áttu í erfiðleikum með að verjast. Staðan í 1. deild karla: ís ... 4 4 0 12-4 8 Þróttur R. . . . ... 3 2 1 8-5 4 KA ... 3 2 1 8-5 4 HK ... 2 1 1 3-4 2 Fram ... 1 0 1 1-3 0 HSK ... 2 0 2 1-6 0 Þróttur N. . . . ... 3 0 3 3-9 0 Staðan í 1. deild kvenna: ÍS ............... 3 3 0 9-2 6 Víkingur.......... 2 2 0 6-1 4 KA ................3 2 1 8-3 4 UBK .............. 1 1 0 3-0 2 Þróttur R..........3 1 2 3-7 2 Þróttur N......... 3 0 3 1-9 0 HK ............... 3 0 3 1-9 0 BL Hávöm Stúdenta kom ekki vömum við í þetta skiptið þrátt fyrir góða tilburði og skellur Þróttara þeytti knettinum í gólfið hjá ÍS. hmMMmm Ábúðarmiklar Þróttarkonur reyna að verjast skelli frá ÍS konum, en ÍS fór með sigur af hólmi í leik liðanna um síðustu helgi Timamyndir Pjetur HM í knattspyrnu: Svíar í úrslit Sænska landsliðið í knattspyrau tryggði sér í gærkvöld rétt til þess að leika í úrslitum heimsmeistara- keppninnar í knattspyrau á ftalíu í næsta ári. Svíar unnu Pólverja 0-2 í Chorzow. Það voru þeir Johnny Ekström og Peter Larsson sem gerðu mörkin. Aðeins 1 lið fer beint upp úr riðlinum í úrslit, en Englendingar sem eru í öðru sæti komast þó til Ítalíu þar sem þeir eru aðeins 1 stig minna en Svíar. Tvö lið úr riðlum eitt, tvö og fjögur komast í úrslitin. Þá unnu Tékkar Svisslendinga 3-0 í Prag í gærkvöld. BL Körfuknattleikur: Þórsarar leika gegn Grindvíkingum Aðeins einn leikur er á dagskránni í kvöld í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik. Á Akureyri mætast Þór og Grindavík kl. 19.30. Tveir aðrir leikir áttu að vera í kvöld en þeim hefur báðum verið frestað. Annars vegar var um að ræða leik Reynis og KR, en þar sem KR-ingar eru í Frakklandi að etja kappi við Orthez í Evrópukeppni félagsliða varð að fresta leiknum. Þá varð einnig að fresta leik ÍBK og Hauka, en sem kunnugt er leikur Haukamaðurinn Jonathan Bow með KR í Evrópukeppninni. Áætlað er að þessir leikir fari fram þann 19. desember n.k. BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.