Tíminn - 28.10.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 28. október 1989
1 IfJ | Reykjavík P | P *a» I €£> ' l æ
Aðalfundur Steingrfmur
Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna
verður haldinn að Hótel Lind miðvikudaginn 1. nóvember nk. kl. 17.30.
DAGSKRÁ
Kl. 17:30 Setning
Kl. 17.35 Kosning starfsmannafundarins a) fundarstjóra b) fundarritara
Kl. 17.40 Skýrslastjórnar a) formanns b) gjaldkera
kl. 18:00 Umræður um skýrslu stjórnar
Kl. 18.30 Lagabreytingar
Kl. 19:00 Kvöldverðarhlé
Kl. 19:30 Tillaga um leið á vali frambjóðenda á lista framsóknar- mannafyrir borgarstjórnarkosningar 1990
Kl. 20:15 Kosningar
Kl. 21:00 Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra, formaður Framsóknarflokksins
Kl. 22:30 Önnurmál
Félagar (fulltrúaráðinu eru hvattir til að mæta.
Framsóknarvist
Fyrsta Framsóknarvist vetrarins verður í
Danshöllinni Brautarholti 20 (Þórscafé) í
Norðurljósasalnum, sunnudaginn 29. október
n.k. kl. 14.00.
Finnur Ingólfsson aðst.m. heilbrigðisráðherra
flytur stutt ávarp í kaffihléi.
Aðgangseyrir kr. 400.-, kaffiveitingar inni-
faldar.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Finnur Ingólfsson
Steingrímur
Hermannsson
Kópavogur
RagnarSnorri
Magnússon
Aðalfundur Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna verður haldinn mánu-
daginn 30. október kl. 20.30 að Hamraborg 5.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lögð fram tilla um hvernig staðið verður að vali á framboðslista í
komandi bæjarstjórnarkosningum.
Gestur fundarins verður Stelngrfmur Hermannsson, forsætls-
ráðherra.
Fundarstjóri: Ragnar Snorri Magnússon.
Framsóknarfélögin
Steingrimur Steinunn Alexander StefánJ.
30. kjördæmisþing
framsóknarmanna á Vesturlandi
verður haldið á Hótel Borgarnesi dagana 3. og 4. nóvember nk.
Dagskrá:
Föstudagur 3. nóvember
Kl. 17.00 Þingsetning: Kosning starfsmanna og nefnda; skýrslur og
reikningar.
Umræður og afgreiðsla.
Kl. 18.00 Sveitarstjórnarkosningar 1990.
- framsögur (Steinunn Sigurðardóttir, Akranesi og
Stefán Jóh. Sigurðsson, Ólafsvík), umræður.
Kl. 19.30 Þinghlé.
Ki. 20.30 Haustfagnaður framsóknarmanna á Vesturlandi f
Hótel Borgarnesi.
Laugardagur 4. nóvember
Kl. 9.30 Stjórnmálaviðhorfið. SteingrímurHermannsson, forsæt-
isráðherra.
Kl. 10.40 Ávörpgesta.
Kl. 11.00 Málefni kjördæmisins. Alexander Stefánsson, alþingis-
maður.
Kl. 11.30 Almennar umræður.
Kl. 12.30 Hádegisverður.
Kl. 13.30 Framhaldumræðna. Afgreiðslamála, kosningar.önnurmál.
Kl. 16.00 Þingslit.
Stjórn K.S.F.V.
SPEGILL
Ron Toomer stendur
við einn vagninn í
„rússibana“ sem hann
hefur hannað. Sætin eru
meðöllum mögulegum
öryggisbeltum líkt og
þau væru í geimflaug.
T.h. er myndaf „Öskur-
vélinni" að fara af stað með
farþega
Höfundur „Öskurvélarinnar“:
„Færialdreiupp
íslík tæki!“
Það fer ekki milli mála að hann
Ron Toomer er ókrýndur konung-
ur „rússíbananna", eða renni-
brauta skemmtigarða víða um
heim. Hann fenginn til að teikna
og sjá um byggingu á þessum
skemmtitækjum þegar stórir
skemmtigarðar taka til starfa.
Ron Toomer er 59 ára verk-
fræðingur og tæknilegur hönnuður,
sem hefur aðaliega snúið sér að
hönnun skemmtitækja, svo sem
hringekja og „rússíbana“. Hann
segir að vinsældir og „gæði“
skemmtitækjanna séu mæld með
hávaðamælum, þ.e. því hærri ösk-
ur og skrækir sem farþegar renni-
brautanna reka upp, því betur
hefur tækið heppnast hjá hönnu-
ðinum.
Toomer var spurður um af hvaða
tæki hann sjálfur væri hrifnastur.
„Ég færi aldrei í lífinu upp í svona
„apparöt". Ég veit allt um öryggið
og það er fyrsta flokks. Þetta á ekki
að vera hættulegt ef farþegar fara
eftir settum reglum, - en ég yrði
bara fárveikur, ég sem er m.a.s.
bílveikur!" sagði uppfinningamað-
urinn.
Ron Toomer hannaði og aðstoð-
aði við byggingu á mörgum
skemmtitækjum í Disneylandi, þar
á meðal hina sívinsælu Sjóræn-
ingia-rennibraut.
Á þessu ári hefur Toomer unnið
við að koma upp „Sex flagga
ævintýrabrautinni" í Jackson í New
Jersey, en þar eru 7 stórir hringir,
sem rennibrautin fer um og fólkið
í henni stendur á haus í beygjun-
um!.
Hæsta rennibraut sem Toomer
hefur gert er í skemmtigarði í
Sandusky, Ohio, en hún er yfir 60
metrar á hæð og fer með feikna-
hraða. Hún kemur vel út við há-
vaðamælingar og er þar með sönn-
uð sem vinsælt skemmtitæki, þar
sem allir öskra hástöfum, enda er
gælunafnið á rennibrautinni
„Öskurvélin"
Toomer var spurður hvort ekki
væru einhver takmörk fyrir þessum
skemmtitækjum. Hvort nú væri
ekki kominn toppurinn í þessari
hönnun. Hann svaraði því til, að
það væru kannski fjármálaleg
takmörk, því að það væru ekki
byggð slík tæki nema að þau borg-
uðu sig, - en tæknilega væri hægt
að gera margt fleira og enn stór-
kostlegra, bætti hann við, uppfinn-
ingamaðurinn sem helst ekki fer
upp í barnahringekju því að þá
svimar hann!
En hver fær þá grísinn ?
Hann Charlie Sheen (úr Sheen-
leikara-fjölskyldunni) hefur beðið
sér konu - og fengið j áyrði. Charlie
er þekktur fyrir leik sinn í mörgum
kvikmyndum, svo sem eins og
Platoon, „Young Guns“ o.fl. Hann
og vinkona hans, Kelly Preston,
eru sögð ætla að ganga bráðlega í
hjónaband.
En Kelly var áður gift leikaran-
um George Clooney, - og þau eiga
í miklu stríði um forræði eða
yfirráð - ekki yfir barni, heldur er
það grísinn Max sem þau berjast
um! Þegar þau Kelly og George
skildu varð grísinn eftir hjá
George. Nú vili hún endilega fá
grísinn sinn aftur, og þau eru
komin í hart út af Max.
Kelly er 25 ára og þykir mjög
efnileg leikkona. Hún gengur nú
með dýrmætan demantshring frá
Charlie og hann hefur sömuleiðis
heitið því að styðja hana í barátt-
unni um gæludýrið hennar.
Og þrátt fyrir það, að Charlie sé
með ofnæmi fyrir ýmsum dýrum,
þ.á. m. svínum, þá vill hann að
Kelly fái að hafa Max hjá sér í nýja
húsinu sem þau eru að byggja fyrir
norðan Los Angeles.
Grísinn Max hefur verið alinn
upp eins og hundur, segja vinir
þeirra. Það er farið með Max í
gönguferðir í bandi, hann eltir
bolta og vill helst sofa til fóta í
rúminu hjá eiganda sínum. Líklega
fær hann þó ekki að vera í svefn-
herbergi hjónanna þegar þar að
kemur vegna ofnæmis Charlies.
„Svo er Max mjög þrifinn, og
gengur að sínum matardalli og
sandkassa eins og þrifinn heimilis-
köttur," segir Kelly.
Charlie Sheen og Kelly Preston ætla að fara að gifta sig, — en hver kemur
til með að fá grísinn Max?