Tíminn - 28.10.1989, Qupperneq 17
Laugardagur 28. október 1989
Tíminn 29
llllllliiiillllllllllllllll ÍÞRÓTTIR
Körfuknattleikur:
Hörkuleikir
um helgina
Fimm hörkuleikir eru á dagskrá í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik um
helgina. Búast má við spennandi
keppni í öllum þessum leikjum, þar
sem lið af svipuðum styrkleika leiða
saman hesta sína.
Grindavík-Tindastóll:
Grindvíkingar eru sterkir á heima-
velli, en norðanmenn eru í mikilli
sókn um þessar mundir. Leikurinn
hefst kl. 16.00 á sunnudag.
Njarðvík-Keflavík:
Tvímælalaust stórleikur helgarinn-
ar. Tapa Njarðvíkingar sýnum fyrsta
leik í vetur, eða heldur liðið sigur-
göngu sinni áfram. Leikur Suður-
nesjarisanna hefst kl. 16.00 sunnu-
dag.
Reynir-Þór:
Fallbaráttuleikur helgarinnar.
Reynismenn hafa verið í sókn, sér í
lagi á heimavelli sínum og Þórsarar
hafa unnið síðustu tvo leiki sína,
gegn ÍR og Grindavík nyrðra. Þessi
leikur hefst í Sandgerði kl. 20.00.
KR-Valur:
Stórslagur Reykjavíkurliðanna fer
að þessu sinni fram á Seltjarnarnesi
og hefst kl. 20.00. KR-ingar eru
nýkomnir til landsins úr Frakklands-
ferð og gætu þess vegna verið lúnir,
en Valsmenn eru í sókn og hafa
tapað leikjum sínum naumlega uppá
síðkastið.
Haukar-ÍR:
Lið Hauka hefur náð að sýna góða
leiki, en þess á milli dottið niður.
ÍR-ingar hafa tapað síðustu 4 leikj-
um st'num og verða að rífa sig upp í
þessum leik sem hefst kl. 20.00 í
Firðinum.
1. deild karla:
í 1. deild karla eru tveir leikir á
dagskrá um helgina. Kl. 13.00 í dag
mætast í Hagaskóla Léttir og Bolvík-
ingar, en kl. 14.00 hefst viðureign
UIA og Borgnesinga á Egilsstöðum.
í gærkvöld léku ÍA og Snæfell og
hins vegar Breiðablik og Bolungar-
vík. Úrslit hafa ekki borist.
1. deild kvenna:
Þrír leikir eru á dagskrá í 1. deild
kvenna um helgina, allir á sunnudag.
f Grindavík mætast heimadömur og
Stúdínur kl. 20.00. í Hagaskóla
leika KR og fBK kl. 14.00 og í
Njarðvík fær heimaliðið Hauka í
heimsókn kl. 20.00.
Lávarðadeild:
í Lávarðadeild leika körfuknatt-
leiksmenn sem náð hafa 30 ára aldri.
í þeirri deild eru tveir leikir á
dagskrá í dag. Fram og Njarðvík
leika kl. 16.30 í Hagaskóla og á
Laugarvatni mætast heimamenn og
KRkl. 14.00. BL
Björn Steffensen og félagar í ÍR
mæta Haukum á sunnudagskvöld
kl. 20.00 í íþróttahúsinu við Strand-
götu. Á myndinni af ofan er Ingimar
Jónsson til varnar fyrir Hauka.
Fimm spennandi leikir eru á dag-
skránni í úrvalsdeildinni um helgina.
Handknattleikur:
Tapa Valsmenn afturáNesinu
Fjórða umferð 1. deildar karla í
handknattleik fer fram um helgina.
Spennandi leikir eru á dagskrá og
hart verður áreiðanlega barist í þeim
öllum. Fjórir leikir eru í dag kl.
16.30, en umferðinni líkur annað
kvöld í Laugardalshöll.
KA-FH:
Heimamenn hafa verið að tapa með
litlum mun á heimavelli sínum og
þeir mæta eflaust grimmir til leiks í
dag gegn Hafnarfjarðarliðinu sem
verður án Héðins Gilssonar, sem er
í leikbanni.
Stjarnan-Víkingur:
Sennilega toppleikur umferðarinnar
í Garðabæ í dag. Stjarnan er eina
liðið í deildinni sem ekki hefur tapað
stig til þessa. Víkingar hafa verið
óheppnir í leikjum sínum það sem af
er og gætu allt eins verið með 6 stig
í staðin fyrir 3 stig.
ÍR-ÍBV:
Mjög mikilvægur leikur í fallbarátt-
unni. ÍR-ingar eru erfiðir í Selja-
skóla og eini leikur þeirra til þessa á
heimavelli í deildinni vannst nokkuð
létt. Eyjamenn eru þó til alls líklegir.
Grótta-Valur:
Valsmenn muna eflaust eftir leikn-
um á Nesinu í fyrra, en það var eini
tapleikur Vals á íslandsmótinu þá.
Skildu Gróttumenn endurtaka leik-
inn, eða hafa Valsmenn lært af
reynslunni.
KR-HK:
Fjórðu umferð líkur með leik KR og
HK í Laugardalshöll kl. 20.30 á
sunnudagskvöld. Eftir góða byrjum
ættu KR-ingar af hafa sigur, en
HK-menn unnu síðasta leik sinn og
eru því komnir á bragðið.
1. deild kvenna:
Fjórir leikir eru á dagskrá í 1.
deild kvenna um helgina. I Garðabæ
mætast Stjarnan og Víkingur kl.
15.00 og á sama tíma leik á Seltjarn-
arnesi Grótta og Fram. Á morgunn
leika síðan Haukar og Valur kl.
14.00 í Firðinum og kl. 19.99 leika
KR og FH í Höllinni.
2. deild karla:
Aðeins tveir leikir eru á dagskrá í
deildinni um helgina og verða þeir
báðir á morgunn. Þá mætast FH b
og Fram í Firðinum kl. 15.15 og kl.
Haukur Magnússon valinn
leikmaður Þróttar 1989
Haukur Magnússon var valinn
knattspyrnumaður Þróttar árið
1989. Kjörinu var lýst á fjölmennri
uppskeruhátíð knattspyrnudeildar
sem haldin var í Danshúsinu Glæsi-
bæ fyrir skömmu.
Val knattspyrnumanns ársins hjá
Þrótti á sér langa sögu en valið
stendur á milli þeirra leikmanna sem
þykja skara fram úr í einstökum
flokkum. Eftirtaldir voru kjörnir
leikmenn flokkanna:
Erlendur Sigurðsson í 6. flokki,
Fjalar Þorgeirsson í 5. flokki, Jón
Ottósson í 4. flokki, Reynir Ólafsson
í 3. flokki og Haukur Magnússon í
meistaraflokki. Auk þess voru veitt-
ar viðurkenningar fyrir æfingasókn
og framfarir. í 6. flokki var Bergþór
Morthens með besta æfingasókn en
framfaraverðlaunin fengu Björgólf-
Haukur Magnússon knattspyrnu-
maður Þróttar 1989. Tímamynd Þorgeir
14.00 mætast Selfyssingar og Haukar
á Selfossi.
2. deild kvenna:
Eini leikur helgarinnar er viður-
eign ÍR og Aftureldingar í Seljaskóla
kl. 15.00 í dag.
3. deild karla:
Þrír leikir eru á dagskrá í 3.
deildinni um helgina. { dag kl. 13.30
eru tveir leikir á dagskrá. f Garðabæ
leika Stjarnan b og ÍS og í Seljaskóla
leika ÍR b og Haukar b. Á morgunn
mætast síðan í íþróttahúsinu við
StrandgötuÍHogGróttabkl. 16.30.
BL
Um helgina:
Fimleikar blak
og badminton
Norðurlandamótið í nútímafim-
leikum hefst í dag kl. 14.00
Laugardalshöll, en keppendur eru
um 40 talsins. Athyglisverð keppni
sem ástæða er að mæla með.
Badminton
TBR gengst í dag fyrir einliða-
leiksmóti karla og kvenna í húsi
sínu við Gnoðarvog. Keppni hefst
kl. 10.00.
Blak
Keppni í deildunum liggur niðri
vegna 2. og 3. flokks móts á
Akureyri. BL
ur Ólafsson, Hallur Hallsson og
Garðar Jóhannsson. í 5. flokki var
Óskar Þór Ingólfsson með besta
mætingu og Öm Gunnarsson fékk
framfaraverðlaunin. í 4. flokki var
það leikmaður flokksins, Jón Ottós-
son, sem var með besta mætingu en
Njörður Ludwig þótti sýna mestar
framfarir. í 3. flokki voru fjórir
piltar, Vignir Arason, Guðni M.
Ingvason, Björgvin Guðbrandsson
og Tómas Eggertsson með besta
æfingasókn en mestar framfarir
sýndi Þór Curtis.
Þá var valinn Þróttardómari ársins
og fyrir valinu varð Óli Ólsen sem
innti af hendi rúmlega 40 störf fyrir
Þrótt í knattspyrninnu á þessu tíma-
bili. Fékk Óli veglegan bikar, sem
gefinn er af Helga Þorvaldssyni, til
varðveislu næsta árið.
Laugardagur kl.13:55
43. LEIKVIKA- 28. okt. 1989
inn
Leikur 1 Arsenal
- Derby
Leikur 2 Aston Villa
C. Palace
Leikur 3 Charlton - Coventry
Leikur 4 Chelsea
- Man. City
Leikur 5 Man. Utd. - Southampton
Leikur 6 Millwall
- Luton
Leikur 7 Norwich
- Everton
Leikur 8 Nott. For.
- Q.P.R.
Leikur 9 Sheff. Wed. - Wimbledon
Leikur 10 Bradford - Leeds
Leikur 11 Middlesbro - W.B.A.
Leikur 12 Watford
Sheff. Utd.
Símsvarl hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN s. 991002
Tvöfaldur pottur II!