Tíminn - 28.10.1989, Síða 19
Laugardagur 28. október 1989
Tíminn 31
Lögfræðingar andskotast í gamla fólkinu á elliheimilunum því bankarnir neyða menn til að:
Veðsetja pabba og mömmu
Mynd, sem enginn hestamaöur ætti aö vera án!
Loks koma á markaðinn myndir, sem fjalla á hlutlausan og faglegan hátt um
tamningu íslenska hestsins. Erfitt er að gera svo viðamiklu viðfangsefni skil í
stuttum myndum, en vonandi hafa áhugamenn um íslenska hestinn bæði gagn
og gaman af. Rætt er við marga fremstu hestamenn landsins og þeir miðla af
reynslu sinni. Auk þess kemur fram margvíslegur fróðleikur um hestamennsku
almennt. Góða skemmtun.
Dreifing
f) ..
/jfsmz
póstverslun
Pöntunarsími 64 22 30
„Það er vægast sagt hræðilegt hvað margir eru enn
andvaralausir varðandi það að ganga í ábyrgð á lánum fyrir
aðra - virðast nánast líta á það eins og að gefa rithandarsýn- ,
ishorn. Að mínu mati er það eitt stærsta verkefni okkur að
vara fólk við ábyrgð á lánum fyrir aðra og síðan ef okkur
tækist að hemja bankana eitthvað í að þvinga fólk út í þetta
helv... Okkur finnst það t.d. hrikalegt, að ef fólk fer í
rekstur- sem alltaf fylgir nokkur áhætta - þá skuli það þurfa
að veðsetja pabba sinn og mömmu. Síðan ef illa fer eru þessir
blessaðir lögmenn að andskotast á gamla fólkinu inni á
elliheimilunum“, sagði Grétar Kristjánsson hjá G-samtökun-
um.
Á hausinn vegna
skulda annarra
Hann telur það geta látið nærri að
ábyrgðir á lánum fyrir vini og vanda-
menn sé höfuðorsökin fyrir gjald-
þroti um helmings þeirra sem leitað
hafa til samtakanna. Gjaldþrot
vegna bankalána virðist mest áber-
andi. Enda píni bankarnir fólk nán-
ast til að fara út í þetta. „Þegar þeir
veita lán spyrja þeir aldrei hvort
lántakandi geti borgað skuldina
sjálfur, bara hvaða ábyrgðarmenn
hann hefur. M.a.s. fólk í alveg
vonlausri greiðslustöðu getur farið í
banka og fengið framlengingu - þ.e.
ef þeim tekst að ná í ábyrgðarmenn
sem bankinn tekur gilda. Svo breyt-
ist bara ekkert annað hjá skuldaran-
um og þá er gengið að ábyrgðar-
mönnunum", segir Grétar.
Djöflast á
ábyrgðarmönnum en...
Það grátlega varðandi ábyrgðirnar
segir hann einnig það, að innheimtu-
lögfræðingarnir djöflist f ábygðar-
manni, ef þeir telja hann auðveldari
viðureignar, en sleppi kannski alveg
að eltast við þann sem hann gekk í
ábyrgð fyrir, þ.e. láti hinn raunveru-
lega skuldara alveg í friði. „Þeir
hreinlega segja: „Við erum eins og
vatnið, förum bara auðveldustu leið-
ina“.
„Mann undrar líka að þessir inn-
heimtulögfræðingar virðast ekki
hafa nokkurt fjármálavit. Ég hef séð
mörg dæmi um það að fólk hefur
boðið upp á skynsamlegar lausnir
sem leitt gætu til að allir fengju sitt,
en það þarf bara tíma til þess. En
lögfræðingarnir hafna þessu - vilja
bara gjaldþrot þótt enginn fái þá
neitt út úr því. Þetta er alveg merki-
legt fyrirbæri.
Þetta eru þeir sem við köllum
háskólamenntuðu rukkarana. Það
er ákveðinn hópur sem ekkert kann
í lögfræði. Kunna aðeins að rukka
inn reikninga, níðast á gamalmenn-
um og sjúklingum og banka upp á
hjá einstæðum mæðrum í Breiðholti
og hóta þeim og síðan selja ofan af
þeim þakið. Á sama tíma segja mér
fróðir menn að skortur sé á góðum
málflytjendum".
Milljón í útborgun
ekki sama og í afborgun
af nýju húsnæði
Grétar sagði þeim líka fjölgandi
sem farið hafa flatt út af húsnæðis-
málum. Það hafi kannski lent í því
að selja íbúð og kaupa aðra, en
síðan staðið á greiðslum frá kaup-
endum. Þetta gerðist t.d. oft í sam-
bandi við skipti.
Aðrir hafi selt á algengum
kjörum, þar sem útborgun dreifist á
heilt ár eða meir og er alltaf vaxta-
laus. En kaupi svo kannski á móti
nýtt húsnæði (í byggingu) í staðinn,
þar sem allt er rígbundið í vísitölur
frá fyrsta degi. Eftir því sem líður á
útborgunarárið eykst svo munurinn
á vaxtalausu afborgununum sem
fólkið fær og verðtryggðu afborgun-
unum sem það á að greiða í nýju
íbúðinni. Þessi getur skipt hundruð-
um þúsunda áður en líkur.
Vitlausasta kynslóð
á íslandi
Grétar var spurður hvort gamli
„þetta reddast einhvernveginn"
hugsunarhátturinn ætti ekki sinn
þátt í gjaldþrotum einhverra, sem
kannski lengi framan af æfi vöndust
því að lán gátu gufað upp á nokkrum
árum.
„Jú, ég vil alls ekki draga úr því,
að vitanlega er hluti af þessu svona
allskonar óvitaskapur og vitleysa.
Mín kynslóð - þessi stríðsárafram-
leiðsla - er vitanlega vitlausasta
kynslóð sem lifað hefur á íslandi.
Þessvegna erum við nú m.a. farnir
að gangast fyrir námskeiðum fyrir
þetta fólk. Námskeið til að kenna
okkur að reka fyrirtækið „heimili" á
faglegan hátt. Þar er okkur t.d. sýnd
skýr dæmi um það að ekki þarf
meira en óundirbúin kaup á litlum
bíl geta rústað fjárhag fjölskyldunn-
ar“.
Skjóta bankarnir
saman í tölvu?
Varðandi G-samtökin vill Grétar
leiðrétta misskilning sem hann hefur
orðið var við; þann að samtökin séu
einskonar stéttarfélag gjaldþrota
fólks. Þvert á móti sé markmið
þeirra að reyna að forða öðrum frá
því að lenda í gjaldþrotum og vand-
ræðum, þ.e. að reyna aðstoða fólk
áður en aðstæður eru orðnar von-
lausar.
Fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum sé
t.d. mikilvægt að vita hvert fólk
getur snúið sér og hvernig vænlegast
er að skýra vandræði sín fyrir þeim
sem hugsanlcga geta veitt aðstoð.
Mikilvægt atriði sé að hafa yfirsýn
yfir málin og geta lagt þau fram
skipulega t.d. fyrir bankastjóra, en
á það vilji vanta þegar fólk er við það
að brotna niður.
„Vegna þessa hef ég skrifað öllum
bankastjórnum bréf þar sem ég mæl-
ist til að bankarnir slái saman í tölvu
fyrir samtökin. Við gætum þá tekið
gögn hjá þessu fólki og sett þau
skipulega upp. Ég hef þá trú að þessi
tölva gæti orðið bönkunum góð
fjárfesting", sagði Grétar. -HEI
HJA ALÞYÐUBANKANUM
hinn 2. nóvember næstkomandi.
Frá og með þeim degi verður hætt að hafa opið
á milli kl. 17:00 og 18:00 á fimmtudögum.
Afgreiðslutími Alþýðubankans verður því frá
klukkan 9:15 til 16:00, mánudaga til föstudaga.
Alþýðubankínn hf
Islenski
hesturinn