Tíminn - 04.11.1989, Side 6

Tíminn - 04.11.1989, Side 6
Laugardagur 4. nóvéfribér 1989 6 Tíminn____________________________________________ Titninn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélðgin í Reykjavik Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson Eggert Skúlason Auglýslngastjóri: SteingrimurGislason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sfmi: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: Mánaðaráskrift f kr. 1000,-, verð f lausasölu f 90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Þræta um reglugerð Þegar Jón Helgason, þáverandi landbúnaðarráð- herra, ákvað með reglugerð í mars 1987 að breyta reglum um fullvirðisrétt til framleiðslu sauðfjárafurða verðlagsárið 1987-88 varð af því mikill pólitískur þytur. Þótt búvörulögin frá 1986 hefðu hlotið fullnægjandi stuðning á Alþingi átti sú stefna sem lögin mörkuðu eigi að síður andstæðinga, sem létu talsvert á sér bera í umræðum um landbúnaðarmál. Andstöðu sína gegn búvörulögunum byggðu þeir á því að alltof hægt væri í sakirnar farið að breyta eldri landbúnaðarstefnu með lögum þessum auk þess sem þeir tóku að ásaka landbúnaðarráðherrann, Jón Helgason, um að hann tefði enn fyrir samdrætti í landbúnaðarframleiðslu með reglugerðarútgáfu sinni. í þessum deilum um landbúnaðarstefnu fyrir 2-3 árum og framkvæmd hennar á vegum landbúnaðarráð- herra bar ekki sérstaklega á því, að fjandmenn landbúnaðarstefnunnar og andstæðingar ráðherrans sem með málið fór, styddu mál sitt þeim rökum að reglugerðin væri andstæð lögunum. Deilunum var haldið innan almennra stjórnmálaraka um efni máls en ekki lögskýringar. Pess vegna kom það mjög flatt upp á flesta, þegar Ríkisendurskoðun, sem nú er sjálfstæð stofnun á vegum Alþingis, gerði sér hægt um hönd og úrskurðaði a.m.k. eina reglugerð Jóns Helgasonar beinlínis ólögmæta og allt sem á henni væri byggt hlyti því að vera lögbrot. Þótt þetta álit svo virtrar stofnunar sem Ríkisendurskoðunar hlyti út af fyrir sig að hafa neikvæð áhrif á málstað Jóns Helgasonar, er þó vert að vekja athygli á því að almennt varð sá skilningur ríkjandi í fjölmiðlaheiminum og meðal þeirra sem annars höfðu lýst sig andvíga landbúnaðarstefnu ráðherrans, að ekki væri unnt að byggja andstöðuna á ásökunum um að reglugerðir stæðustekki lög. Slíkt væri alltof langsótt aðferð til þess að ná sér niðri á ráðherranum og utan við umræðusvið stjórnmála- manna. Lögfræðilegar álitsgerðir sem teknar hafa verið saman um þessa djörfu ályktun Ríkisendurskoðunar benda til og kveða upp úr um að ásakanir á ráðherrann eiga ekki við rök að'styðjast. Sú skoðun er skýr í álitsgerð lögfræðinganna Tryggva Gunnarssonar og Þorgeirs Örlygssonar prófessors, þar sem þeir segja að ráðherrann hafi haft fullan formlegan rétt til að setja þær reglur sem hann gerði og að þær séu efnislega innan marka búvörulaganna. Nú liggur fyrir álitsgerð frá Lagastofnun Háskóla íslands um almenn málefni Ríkisendurskoðunar og lögbrotaásakanir hennar á hendur Jóni Helgasyni. Álitsgerð þessi er tekin saman að beiðni Alþingis. Lagastofnun vísar þar til þess að Tryggvi Gunnarsson og Þorgeir örlygsson hafi samið álitsgerð um lögbrota- kenningu Ríkisendurskoðunar. Segir Lagastofnun að í álitsgerð þeirra Tryggva og Þorgeirs komi fram „rökstutt svar“ við spurningu Alþingis sem til hennar hafi verið beint. Lagastofnun bendir á það, sem varla þarf að taka fram, að það heyri undir dómstóla að skera úr um stjórnskipulegt gildi reglugerða, en telur ekki ástæðu til að fjalla nánar um þetta atriði. Þetta mál mætti að skaðlausu verða úr sögunni. F 1 -^tnn MIKILVÆGASTI ráðherrastóll hverrar sjálfstæðr- ar og fullvalda þjóðar er embætti utanríkisráðherra. Ekki fer milli mála að sjálfstæði í utanríkis- málum ræður úrslitum um það, hvort þjóð er tekin alvarlega sem fullvalda ríki. í höndum Dana Þetta hefur íslendingum lengi verið ljóst. Þótt sjálfstæðisvið- urkenningin 1. desember 1918, þegar ísland varð sjálfstætt ríki í konungssambandi við Dan- mörku, væri einstakur atburður í sjálfstæðisbaráttunni, þá var það eins og fleinn í holdi þjóðar- innar, að Danir fóru með utan- ríkismál íslendinga, danskir sendiherrar og konsúlar um all- an heim komu fram sem fulltrú- ar íslenskra utanríkismála og handhafar íslensks ríkisvalds að þessu leyti. Þetta skerti ekki aðeins sjálfstæðismetnað íslend- inga, heldur gaf útlendingum fulla ástæðu til að halda að íslendingar væru aðeins sjálf- stæðir að nafninu til, ísland væri einhvers konar fylki í Dana- veldi. Þótt síst sé ástæða til að gera lítið úr sjálfstæði íslendinga á árunum 1918 til 1944, því að sá tími er afar merkilegur í sögu landsins, þá er tímabært að rifja það upp, að lengi framan af og fram eftir þessu tímabili, var það ekki krafan um stofnun lýðveldis sem hæst bar í umræð- um um stjómskipunar- og stjómarfarsmálefni, heldur krafan um það að íslendingar tækju utanríkismálin algerlega ( sínar hendur ásamt því að bera sjálfir uppi landhelgisgæsluna án danskrar aðstoðar. Leifar danska valdsins vom lífseigar í utanríkismálum og gætti einnig í landhelgisgæslunni framan af þessu fyrra tímabili sjálfstæðs íslensks ríkis. íslenskum þjóðfrelsismönn- um var því efst í huga að búa sig undir það að þjóðin færi sjálf með sín utanríkismál, sem í raun þýddi það að sérstakt ráðu- neyti yrði stofnað til þess að sinna þeim málum og komið yrði upp sjálfstæðri, íslenskri utanríkisþjónustu. Ekki er ann- að að sjá en að utanríkismála- umræðan hafi „skyggt á“ önnur mál, ef svo má til orða taka, í viðræðum Dana og íslendinga á fjórða áratugnum um endur- skoðun sambandslaganna og framkvæmdarinnar á þeim. Svo virðist sem hugmyndin um lýð- veldisstofnun og þar með afnám konungssambandsins, hafi ekki orðið brennandi pólitískt stefnu- mál stjómmálaflokka fyrr en síðar, þegar uppsagnartími sam- bandslagasáttmálans tók að nálgast og ástand heimsmála lagði íslendingum beinlínis upp í hendumar að skoða sambandið við Dani í nýju ljósi. Merking orða og túlkun Þessi upprifjun á 50-60 ára gamalli pólitík á íslandi segir býsna margslungna sögu, sem hægt væri að greina nánar og túlka betur en hér er kostur. I rauninni væri þess full þörf að hefja umræðu í landinu um ís- lenska stjómarskársögu og sögu íslensks stjómarfars með sér- stöku tilliti til utanríkismála og þróunar utanríkisþjónustunnar. Það myndi auðvelda mörgum að skilja hvað það er að vera sjálf- stæð og fullvalda þjóð. Mjög margt bendir til þess að íslenska þjóðin standi á tíma- mótum hvað varðar skilning á efni og inntaki sjálfstæðis- og fullveldishugtaksins. Full ástæða er til að ætla að þeim fari fjölgandi sem leggja annan skilning í þetta hugtak en gert var fyrr á þessari öld og allt fram á þennan dag. Hingað til hafa stjómmálamenn talið sig vita hvað sjálfstæði og fullveldi þjóð- arinnar er og treyst því að sá skilningur þjónaði ekki aðeins sjálfstæðismetnaðinum sem slíkum, heldur væri sjálfstæðið undirstaða efnalegrar afkomu þjóðarinnar og menningarfram- fara í landinu. Þessi skilningur, sem á rætur að rekja til Jóns Sigurðssonar forseta og samherja hans á 19. öld, er ekki einhlítur lengur. Miklu fremur virðast ýmsir áhrifamenn í þjóðfélaginu hafa tekið höndum saman um að gera þennan gamla skilning tor- tryggilegan og best geymdan í úreldingarsjóði gamalla þjóð- rembuhugmynda. Þess vegna má allt eins búast við því að á næstu ámm verði ýtt fast á eftir um að breyta viðteknum skoðunum um fullveldis- og sjálfstæðishugtakið og koma þjóðinni í skilning um að þær séu einstrengingslegar og and- stæðar þeirri alþjóðahyggju sem nú ríkir í heiminum, einkanlega í lýðræðisríkjum Evrópu, sem íslendingar em tengdir menningar- og hagsmunabönd- um. Ekki er nokkur vafi á því að fráhvarfið frá fyrri skoðun um sjálfstæðis- og fullveldismál mun vaxa á næstu ámm, ef umræður um utanríkis- og alþjóðamálefni verða í því fari sem þær hafa smám saman verið að festast í. Það sem gerst hefur er einfald- lega það að sjálfstæðis- og full- veldismál em alls ekki til um- ræðu, þegar rætt er um utanrík- is- og alþjóðamálefni þvert ofan í það sem áður var. Má til sanns vegar færa, að íslensk sjálfstæð- ismál hafi ekki verið nefnd á nafn í sambandi við utanríkis- og alþjóðamál síðan Einar Ágústsson utanríkisráðherra undirritaði samkomulag við Breta um lok þorskastríðsins og landhelgisdeilunnar árið 1976. Síðan hefur lítil þörf verið talin á því að ræða um íslenska sjálf- stæðisbaráttu eða varðveislu sjálfstæðis og fullveldis íslensku þjóðarinnar. Á fáum ámm hefur tekist að rækta þá skoðun og gera hana all útbreidda að allt þetta sjálf- stæðistal, sem fólki var innrætt í deilum við Dani og Breta, sé úrelt rómantískt húmbúkk, sem aðeins hafði tímabundið pólit- ískt markmið, en ekkert lang- tímagildi. Rómantískar hug- myndir em að vísu taldar góðar meðan þær þjóna praktískum tilgangi eins og þær gerðu í þrefi við Dani og Breta um hluti sem íslendingum var augljóst gagn að eins og það að ýta Dönum út til að rýma fyrir íslenskum at- hafnamönnum í landi sínu eða losna við ágang Breta og annarra útlendinga af fiskimiðunum við landið meðan það var. Þá var gott að geta borið fyrir sig þjóð- réttindi, sj álfstæðisyfirlýsingar og þjóðlegan metnað smáríkja í umræðum um utanríkis- og al- þjóðamál. Að dómi margra áhrifamanna nú em þetta ekki gild rök lengur. Öðm nær. Þau henta ekki þeirri umræðu sem nú á sér stað á alþjóðlegum umræðuvettvangi, segja þeir. Evrópuhreyfing Undanfarin ár hafa umræður um alþjóðamál hér á landi beinst að nýjum sviðum, þ.e.a.s þróun Evrópumálefna, í stuttu máli sagt: hugmyndum og áætlunum um sameiningu Evrópu. Þessar hugmyndir verða til fljótlega eftir lok heimsstyrjaldarinnar 1945 og hafa þróast með ýmsum hætti síðan. Framan af var rætt um „Evrópuhreyfingu“ á mjög breiðum og óafmörkuðum grundvelli og skírskotað til sam- eiginlegrar sögu- og menningar- arfleifðar Evrópu, sem gæti ver- ið grundvöllur miklu nánara samstarfs milli þjóðanna en ver- ið hafði. Stofnun Evrópuráðsins 1949 var ávöxtur þessarar menn- ingarsögulegu umræðu. Þar hef- ur ætíð verið lögð áhersla á félags- og mannúðarmál og vest- rænar þingræðishefðir og leitast við að samræma löggjöf aðildar- þjóða á þeim sviðum, stundum með nokkrum árangri. En Evrópuráðið hefur alltaf verið áhrifalítið í meiriháttar samskiptum þjóðanna og það því fremur að voldugustu ríki álfunnar ætluðu Eviópuhreyfingunni miklu meira hlutverk en að fást við hin „mjúku mál“ ein saman. Það sem fyrst og fremst vakti fyrir hinum voldugu iðnveldum Evrópu var að endurskipuleggja viðskipta- og efnahagsstarfsemi álfunnar með náinni samvinnu og samhæfingu á sviði fram- leiðslu og viðskipta. Fljótlega tók sú fyrirætlan þá stefnu að mynda sameiginlegt markaðs- svæði með frjálsu flæði fjár- magns og vinnuafls og hindrun- arlausri verslun og frjálsum við- skiptum. Efnahagsbandalag Evrópu verður til 1958 sem tolla- bandalag, en augljóst þá þegar að markið var sett miklu hærra eins og nú hefur komið á daginn. Nú kallast samtökin Evrópu- bandalag og hafa á sér það snið að verða nánast bandaríki Evr- ópu þegar fram í sækir. En hvaða merkingu hefur það orð? Bandaríki Evrópu Þótt að vísu væru til menn á

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.