Tíminn - 23.11.1989, Blaðsíða 19

Tíminn - 23.11.1989, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 23. nóvember 1989 Tíminn 19 íslandsmótið í blaki: Yfirburðir KA-manna gegn Þrótturum nyrðra Um síðustu helgi fóru fram 6 leikir í 1. deild karla og kvenna í blaki. Lítið var um óvænt úrsiit en þó vöktu athygli yfirburðir KA-manna gegn Þrótti Reykjavík en hinir síðar- nefndu voru teknir í kennslustund af norðanmönnum fyrir norðan. Ævintýraferð HK til Neskaupstaðar Bæði HK liðin sóttu Þrótt Nes- kaupstað heim á laugardag en sú ferð gekk ekki alveg áfallalaust fyrir sig. Þegar lenda átti á Egilsstöðum fór nefhjól flugvélarinnar ekki niður þannig að fljúga þurfti aftur suður og lenda í Reykjavík eftir að tekist hafði að koma hjólinu niður. Aftur var lagt af stað og gekk ferðin þá betur en áður. Karlaleikurinn fór 3-2 fyrir heima- menn 9/15, 15/12, 12/15, 15/13 og 15/8. Þetta var mikill baráttuleikur og stóð hann í 93 mín. HK menn höfðu alla möguleika á að gera út um leikinn í 4. hrinu eftir að vera komnir í 12/8. Þá skipti Ólafur þjálfari Þróttara hinni gömlu kempu Grími Magnússyni inná sem sagði hingað og ekki lengra þannig að hrinuna sigruðu heimamenn eins og áður sagði en einnig 5. hrinu og þar með leikinn. Bestir í annars jöfnu liði Þróttara voru þeir ívar Sæmundsson og Ólaf- foringi Sigurðsson en Vignir Hlöðversson stóð sig best hjá HK mönnum en hann og Karl Sigurðsson fóru oft illa með heimamenn með erfiðum uppgjöfum. Kvennaleikur þessara liða var ekki eins jafn. Sigruðu Þróttarar 3-1 15/9, 15/1, 3/15 og 15/12 í mjög sveiflukenndum leik eins og tölumar gefa til kynna. Þróttarar byrjuðu mjög vel og sigmðu tvær fyrstu hrinumar en töpuðu síðan stórt í þeirri þriðju. Þær tóku sig síðan saman í andlitinu í fjórðu hrinu, unnu þar með leikinn og hlutu sín fyrstu stig í deildinni. Elva Rut Helgadóttir HK átti oft ágæta skelti en hjá Þrótti stóð sig best Petrún Jónsdóttir. Sama dag fóm lið Þróttar Reykja- vík í heimsókn til KA á Akureyri. Karlaleikurinn var alger einstefna heimamanna sem sigmðu 3-0 15/12, 15/4 og 15/9. í fyrstu hrinu komst Þróttur í 8/0 en þá hristi KA af sér taugaveiklunina og jöfnuðu 10/10. Þróttur komst yfir 12/11 en fékk ekki stig eftir það. Það sem eftir var af leiknum var síðan létt æfing fyrir KA. Þróttarar fóm aðeins 7 norður en á leiðinni veiktist Jason ívarsson, þannig að Gunnlaugur Jóhannsson spilaði allan leikinn en hann hefur lítið æft. Það er þó engin afsökun fyrir Þróttara og greinilegt er að KA íþróttahús fatlaðra: menn em að taka sig á. Arngrímur Amgrímsson átti góða hávörn og stóð sig best í liði KA sem átti þægilegan dag. Ekki þarf að hafa mörg orð um Þrótt. Kvennalið þessara sömu félaga léku st'ðan á eftir og lauk honum einnig með sigri KA 3-0 15/9, 15/5 og 15/10. Fyrstu tvær hrinumar vom auðveldar fyurir KA stúlkur og tók önnun hrinan aðeins 9 mínútur. f þriðju hrinu náðu Þróttarar forystu 9/4 en KA náði yfirhöndinni, sigraði hrinuna og leikinn. Særún Jóhanns- dóttir og Hrefna Brynjólfsdóttir vom besta í annars jöfnu liði KA en Þróttarstúlkur vom daprar. Á sunnudag kepptu ÍS og Fram í 1. deild karla. ÍS vann 3-015/7,15/12 og 15/9. Þessi leikur var ákaflega leiðinlegur á að horfa og munaði minnstu að ÍS menn töpuðu annarri hrinunni en Fram komst þá í 7/0. Hjá Fram vakti ungur leikmaður Egill Guðnason athygli fyrir góða skelli og hjá ÍS Kári Valur Hjörvars- son en hann hefur lítið fengið að spreyta sig. Strax á eftir léku ÍS og Víkingur. Víkingur sigraði 3-115/14,3/15,15/7 og 15/10. IS komst í 13/9 í fýrstu hrinu en Víkingar unnu upp þann mun og sigmðu þá hrinu en áttu aldrei möguleika í annarri. í þriðju hrinu skipti þjálfari Víkings loks Jónu Lind Sævarsdóttur inná. Með henni kom barátta í Víkingsliðið og eftir það var leikurinn þeirra. Best í liði ÍS var Ingibjörg Arnarsdóttir. 1. deild karia ; ís . . . 6 6 0 18- 4 12 KA . . 4 3 í 11- 5 6 Þróttur R 4 2 2 8- 8 4 Þróttur N 6 2 4 10-14 4 HSK . 3 1 2 4- 7 2 HK . . 4 1 3 5-10 2 Fram 3 0 3 1- 9 0 1 L. deild kvenna: Víkingur 4 0 12- 3 8 IS . . . 4 1 13- 6 8 UBK 3 3 0 9- 0 6 KA . . 4 3 1 11- 3 6 Þróttur R 5 1 4 3-13 2 Þróttur N 6 1 5 5-16 2 HK . . 5 0 5 3-15 0 Draumurinn mun senn verða að veruleika - Framkvæmdir við íþróttahús fatl- aðra hafa gengið mjög vel - ÍFR gefur út happdrættis-gjafabréf til þess að grynnka á skuldum félagsins vegna byggingarinnar Bygging íþróttahússins hófst árið 1983 og var þá lokið við að steypa söklda hússins, eftir það lágu fram- kvæmdir að mestu niðri þar til á þessu ári. í framhaldi af mjög góðum árangri fatlaðra íþróttamanna á Ol- ympíuleikunum í Seoul á s.I. ári fékk þessi framkvæmd óvæntan byr í seglin með fjárgjöfum og styrkjum frá einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum og m.a. annars stóð Rás 2 fyrir fjársöfnun við heim- komu Ólympíufaranna. Þegar fyrir lá hvert framkvæmdafé myndi verða, var farið að huga að gerð kostnaðaráætlunar fram- kvæmda við 2. áfanga íþróttahúss- ins, sem var að steypa húsið upp og Nr VVfðkr. VtXKl. íþróitahús Iþróttaíélags íatlaóra í Reykjavik gera tilbúið undir málningu. Verkið var síðan boðið út og samningar undirritaðir við Ártak s. f., í mars s. 1. Verkinu hefur miðað vel og eru verklok áætluð í desember n.k. Heildarbyggingarkostnaður á þessu ári er nálægt kr. 44.512.122,00. Á næsta ári er áætlað að Ijúka félagsmiðstöðvarálmu íþróttahúss- ins svo félagið geti flutt alla félags- starfsemi sína í íþróttahúsið á því ári. Áætlaður kostnaður við það er um 7 milljónir. Vonast er síðan til að hægt verði að klára íþróttasalinn, böð og búningsherbergi á árinu 1991 svo að félagið geti flutt alla starfsemi sína í íþróttahúsið á því ári. Áætlað- ur kostnaður við það er um 25 milljónir. Til að grynna örlítið á skuldum er félagið nú að fara út í Skyndi-happ- drætti í formi gjafahappdrættis- bréfa. Útgefnir miðar eru aðeins 1.500 og verð hvers miða er kr. 5.000,00. Vinningar eru Citroen Ax 1989 sportbifreið að andvirði kr. 924.500,00 og 7 ferðavinningar að andvirði um kr. 350.000,00. Dregið verður 16. desember n.k. Þeim sem áhuga hafa á að kaupa happdrættis-gj afabréf eða leggja fé- laginu lið á einhvern annan máta er góðfúslega bent á síma 25655 milli kl. 10.00 og 15.00 virka daga. Evrópumótin í knattspyrnu: Sigurmark á elleftu stundu Nýsjálendingurinn Wynton Rufer var hetja Werder Brem- en gegn Napólí í UEFA- keppninni í gærkvöld, er hann gérði sigurmarkið á síðustu mínútu leiksins eftir mikinn einleik. Werder Bremen náði tveggja marka forystu í leikn- um með mörkum þeirra Frank Neubarth og Karlheinz Riedle, en Brasilíumennirnir í liði Napólí, Alemao og Careca náðu að jafna í síðari hálfleik. Rufer gerði síðan vonir Napólí að engu rétt áður en flautað var til leiksloka. Diego Maradona sturtaði t sig verkjapillum fyrir leikinn, þar sem bakverkir gerðu hinum erfitt um vik. Maradona náði ekki að beita sér í leiknum. Úrslitin í leikjunum í UEFA-keppninni í gærkvöld, urðu annars þessi, en þeir voru fyrri leikir 8 liða úrslita keppn- innar. Napólí-Werder Bremen ... 2-3 Juventus-Karl-Marx-Stadt . . 2-1 Fiorentina-Dynamo Kiev . . 1-0 Hamburg-Porto..........1-0 Rapid Vín-FC Liege ....1-0 Red Star-Belgrad-Köln .... 2-0 Olympiakos-Áuxerre.....1-1 í fyrrakvöld vann Antwerp- en 1-0 sigur á Stuttgart. BL $ Uw-cít r* Vmningar I Citmm AX SPO«l ?. f.»"«6ill lyn’f z IU Flonda i. Fj: x'NII fynr 2 td Lootljíi 4. l»rs«AiU fyrir 2 tii k.i.ifiwr S faríttNII iyrir 2 til Cíasgow t F-»rwðiHfyrir2ti| Pöídwfrw. 7. I*rseðífifv:l« 2 til ítpiiuuft* *. Farscðili :y-ir 2 t»l Akoreyrar 239.953 »yrs:a (ériwvwfW 4>-oruhm (yrir iotlaða i rwhuriönJum. Mfckun* sluöoi'rit im SUC'iti fiapprlrantismiöi i ftktndi. Vin.iirtga her att vitja imwn árs. UppUgl.iOO. Diegift 16. örs. 39 t;pf«ý-*.ingar um vinnmty sirrw 256.35 :ra kl. 10-15 H.ituni 12 RtrykUv.k alU virlj dag*. Skatifrjálsir vmninpar. __ 'WjGhbum FLUGLEtDIR fB* Happdrættis-gjafabréf þau sem ÍFR er að hefja sölu á til vegna fram- kvæmda við húsið. Auglýsendur JÓLAHANDBÓK Tímans kemur út 6. desember og verður dreift í 44.000 eintökum í Reykjavík, auk þess til allra áskrifenda Tímans utan Reykjavíkur. Þeir auglýsendur sem vilja koma auglýsingu í Hand- bókina hafi samband við auglýsingadeild sem fyrst. Sími 680001 og 686300. Körfuknattleikur-NBA: Detroit tapar I fyrrakvöld voru nokkrir leikir í NBA-deildinni í körfuknattleik. At- hygli vekur að meistararnir Detroit Pistons töpuðu fyrir Atlanta Hawks og Indiana Pacers vann Boston Celt- ics en Indiana hafði tapað síðust 3 leikjum sínum þar á undan. Þá kemur á óvart að San Antonio Spurs skuli vinna Phoenix Suns. Washington Bull.-CIeveland C. . . 100- 92 Miami Heat-Charlotte Homets... 98- 87 Atlanta Hawks-Detroit Pistons . . . 103- 96 Indiana Pacers-Boston Celtics ... 119-111 N.Y.Knicks-Houston Rockets . . . 114-106 Utah Jazz-Minnesota Timberw. . . 103-101 S.A.Spurs-Phoenix Suns....107- 98 Denver Nuggets-Dallas Maveric. . 111-95 Seattle Supersonics-N.J.Nets .... 114- 84 Orlando Magic-Sacramento K. . . . 115-113 Portland Trail Bl.-Chicago B. ... 121-110 BL M i ==}==-L LESTUNARAfEILUN Skip Sambandsins munu ferma til fslands á næstunni sem hér segir: Árhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla miðvikudaga Varberg: Alla fimmtudaga Moss: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell.......30/11 Gloucester/Boston: Alla þriðjudaga New York: Alla föstudaga Portsmouth/Norfolk: Alla sunnudaga Lestunarhafnir innanlands: Reykjavík: Alla miðvikudaga Vestmannaeyjar: Alla föstudaga Húsavík: Alla sunnudaga Akureyri: Alla mánudaga ísafjörður: Alla þriðjudaga SKIMDE/LD r*kSAMEANDSJHS Sambandshúsinu, Kirkjusandi 105, Reykjavík, sími 698300 AAAAAl AA IAKN TRAtJSlRA HUrÁIINCVA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.