Tíminn - 30.11.1989, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.11.1989, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 30. nóvember 1989 Tíminn 3 Um 14.700 kr. útvarps/sjónvarps afnotagjalds komiö í 41.500 kr. hjá lögfræðingnum: Fá Iðgf ræðingar 100 m.kr. af innheimtu afnotagjalda? Afrit af viðskiptum innheimtulögfræðings í borginni við einn borgarbúa er glöggur vitnisburður um það hvernig lítil vanskilaskuld getur margfaldast á skömmum tíma í hönd- um lögfræðinga. I þessu tilfelli er um að ræða um vanskil á afnotagjaldi útvarps/sjónvarps fyrir árið 1988. Þótt eigandi tækisins hafi þegar borgað hátt í tvöfalt upphaflega afnotagjaldið (25.000 kr.) skuldar hann samt meira en í upphafi. I kringum tíundi hluti sjónvarpseigenda lendir með afnotagjöldin í lögfræðiinnheimtu. Miðað við þann kostnað sem hér er lýst gæti það svarað tU um 100 milljóna kr. í lögfræðikostnað og um 60 milljónir í dráttarvexti á ári. Um 14.700 kr. afnotagjald það kostnaður og söluskattur", segir undir bréfinu. Um 10% í lögfræðiinnheimtu „t>að er því miður allt of mikið um að afnotagjöldin fari í inn- heimtu til lögfræðinga, þrátt fyrir að reynt sé til hins ýtrasta að fylgja þessu eftir hér og spara mönnum þann mikla kostnað sem lögfræði- innheimtu fylgir," sagði Hörður Vilhjálmsson fjármálastjóri Ríkis- útvarpsins. Hann áætlar að í kring- um 10% afnotagjaldanna færi til innheimtu með þessum hætti, eða í kringum 6.000 til 7.000 ár hvert. Að sögn Harðar er það venjulega sama fólkið sem lendir í þessum vanskilum æ ofan í æ. í því felst þá, að þetta fólk er ár eftir ár að borga tvöfalt til fjórfalt hærri upphæðir til innheimtulögfræðinga heldur en þeir sem greiða afnotagjaldið á gjalddaga. sem hér um ræðir er þegar komið í um 41.500 kr. Sú tala á þó eflaust eftir að hækka áður en lokauppgjör fer fram - sem allt eins virðist geta orðið með þeim hætti að lögfræð- ingurinn taki tækið til viðbótar þeim 25.000 kr. sem eigandinn hefur þegar greitt. A.m.k. hefur hann þegar verið skuldfærður um hátt í 10 þús.kr. kostað vegna vörslusviftingar og uppboðs. í grófum dráttum skiptist þegar áfallinn kostnaður þannig, sam- kvæmt kvittun vegna innborgunar Afnotagjald 1988 14.740 kr. Dráttarvextir 8.556 kr. Lögfræðikostnaður 16.845 kr. Söluskattur 1.355 kr. Samtals 41.497 kr. Innborganir 25.000 kr. Eftirstöðvar 16.497 kr. „ Við eftirstöðvar bætist áfallandi (INNBORGUN) C'ANN I7.11.B9 STAÐA INNHEIMTUMWLS NR Eigandl s RiK»suw-r Tegund krö-fu: Reikningur Afnotagjöld RUV aí Otvarpi/sjúnvarpl Tímabil: 1988 Litat«ki teg. Phxlips Kröfulysing Höf u4-stól 1 Dráttarvextir Innheimtuþóknun Vörslusviftingarbex^nx Ritun uppboisbeií-ni Uppboiskostnaiur fóget. Vorslusviftingarkostna. Ann^r Viostnaiur Söluskattur *iur greil Greitt nú Eftirstoivar >rtsson Hallandi (-n^tnaíur og söluskattur Hörður segir Ríkisútvarpið ganga eins langt og unnt sé til þess að fá fólk til að gera upp skuldimar áður en þær eru sendar til inn- heimtu. Mikið hafi t.d. verið reynt til þess að fá fólk til að taka þetta inn á boðgreiðslur með greiðslu- kortum. Þetta hafi gengið nokkuð þokkalega. E.t.v. sé það þó kannski fyrst og fremst skilafólkið sem létti sér sporin með þvi að velja þann kost. Þeim sem komnir eru í vanskil hafi sömuleiðis verið boðið upp á raðgreiðslur, þannig að skuldin sé dregin af greiðsiukortareikningn- um þeirra yfir nokkurra mánaða tímabil, t.d. hálft ár. Sömuleiðis sé mönnum boðið að koma og semja um skuldir sínar á einhvern hátt. Að lokum endi tilraunir RUV með aðvörunarbréfi um að skuldin verði send í innheimtu sýni við- komandi engin viðbrögð innan vissra tímamarka. „Við reynum að bjóða upp á alla mögulega kosti áður en þetta fer í lögfræðiinnheimtu, einmitt vegna þess hvað hún er okkar viðskipta- vinum dýr. Samt sem áður trassa menn þetta einhvemveginn og það fer að lokum þessa dým leið,“ sagði Hörður. Hvað varðar „teygjanleika" í innheimtu stofnunarinnar sjálfrar áætlaði Hörður að vanskil sem urðu fram á mitt síðasta ár verði komin til lögfræðings nú fyrir þessi áramót. - HEI Vöruskiptajöfnuður 6,8 milljörðum hagstæðari en í fyrra: Innflutningur 100.000kr. minni á meðalfjölskyldu Verðmæti bæði útflutnings og innflutnings í september s.l. var svipað að krónutölu og í sama mán- uði í fyrra, sem í raun þýðir um fjórðungs samdrátt þegar tillit er tekið til þess að verð erlends gjald- eyris hefur hækkað um 25% á tíma- bilinu. Almennur innflutningur var nú 7.275 m.kr. minni (16%) frá áramótum til septemberloka heldur en á sama tímabili í fyrra, reiknað á sama gengi. Það svarar t.d. til um 100.000 kr. minni innflutnings á hverja meðalfjölskyldu í landinu. Vegna þessa var vöruskiptajöfn- uðurinn hagstæður um 6.840 m.kr., þrátt fyrir stóraukinn innflutning sérstakra fjárfestingarvara (62%), stóriðju (38%) og olíu (18%). Alls voru fluttar út vörur fyrir um 57.930 m.kr. fyrstu níu mánuði ársins, sem er rúmlega 5% (2.850 m.kr.) meira en í fyrra reiknað á samagengi. Þar afvoru 41.285 m.kr. fyrir sjávarafurðir. Á sama tíma voru fluttar inn vörur fyrir um 51.090 m.kr., sem er rúmlega 7% (3.910 m.kr.) minna heldur en í fyrra. Innflutningur; flugvéla, skipa, Landsvirkjunar, til stóriðju og olíuinnflutningur er nú samtals um 12.110 m.kr., sem er 38% (3.360 m.kr.) aukning milli ára, reiknað á sama gengi. Almenn- ur innflutningur er aftur á móti 38.980 m.kr., sem er nær 16% (7.275 m.kr.) samdráttur milli ára reiknað á sama gengi. Þessi sam- dráttur mundi t.d. svara til 29 þús.kr. minni innflutnings á hvert manns- barn i landinu, eða yfir 100.000 kr. á „vísitölufjölskylduna" okkar margfrægu, sem fyrr segir. - HEI emar f ræðast um f isk Síðustu daga hefur nemendum í níunda bekk í nokkrum skólum í Reykjavík verið boðið upp á fræðslu um liskveiðar og fiskvinnslu í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi. Það er starfsfólk Ríkismats sjávarafurða sem sér um kennslu og hefur útbúið námsefni. Þetta námskeið er eitt þriggja sem nemendur geta valið um. Hin tvö eru um réttindi og skyldur á vinnustað sem Menningar og fræðslustofnun alþýðu hefur útbúið og um framleiðni sem Iðntæknistofnun sér um. Þessar stofnanir sjá um framkvæmd og kostnað við námskeiðin í samvinnu við skóla og menntamálaráðuneyt- ið. Námskeiðin hafa mælst vel fyrir hjá nemendum. Ýmis fyrirtæki og stofnanir hafa sýnt áhuga á því að koma að sambærilegri fræðslu um sín mál. Ljóst er að framhald verður á þessari kennslu. Á myndinni er Einar Jóhannsson hjá Ríkismati sjávarafurða að sýna nemendum úr Hvassaleitisskóla hvernig ýmis veiðarfæri VÍrka. -EÓ/límamynd Pjelur Öllu slátrað hjá Pólarpelsi Nú stendur yfir slátrun minka hjá þrotabúi Pólarpels h.f.á Böggvis- stöðum við Dalvík. Öllum minka- stofninum, um 25 þús. dýrum verður slátrað. Aðrar eignir þrotabúsins verða svo boðnar upp í desember. Að sögn Árna Pálssonar bústjóra þrotabúsins hefur öllum tilboðum í eignir þrotabúsins verið hafnað á þeim forsendum að tilboðin hafa verið of lág miðað við þau veð sem á eignunum hvíla. Þó er undanskilin kartöflugeymsla , sem seld var á um 5 milljónir króna. Tilboðum frá öðrum loðdýraræktendum í hluta minkastofnsins var einnig flestum hafnað, og sagði Árni að örfá dýr hefðu verið seld. Helst var leitað eftir svonefndum villimink sem til- búinn er til slátrunar, um önnur afbrigði var vart spurt. Árni sagði að öll nýtanleg skinn yrðu verkuð og send á uppboð, og síðan ræður heimsmarkaðsverð hversu mikið fæst fyrir skinnin. -HIÁ Ekki arkitekt! Þau leiðu mistök urðu í forsíðufrétt Tímans í gær að talað var um starfsmann byggingafulltrúa sem hannaði 13 einbýlishús í hjáverk- um sem arkitekt. Athygli blaðsins hefur verið vakin á því að umrædd- ur starfsmaður er ekki arkitekt. Starfsheitið „arkitekt" er lögvemd- að, og aðeins einn arkitekt starfar hjá embætti byggingafulltrúa. Það er því rangt að „arkitekt" hjá byggingafulltrúa hafi hannað húsin þrettán, og er arkitektinn beðinn afsökunar á þessu. Hins vegar hanna byggingatæknifræðingar og tæknifræðingar einnig hús og eru þaðan runnin mistök blaðsins. -fréttastj.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.