Tíminn - 30.11.1989, Blaðsíða 17

Tíminn - 30.11.1989, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 30. nóvember 1989 Tíminn 17 Ritsnilld Út er komin hjá Máli og menningu bókin íslensk ritsnilld sem Guðmundur Andri Thorsson hefur ritstýrt. Bókin, sem sver sig í ætt við hina vinsælu íslensk orðsnilld, hefur að geyma fleyga kafla úr íslenskum bókmenntum að fomu og nýju eftir marga ástsælustu höfunda þjóðarinnar. Hún skiptist í kaflana Ástin, Bernskan, Dauðinn, ísland, Mannlífið, Mannlýsingar og Skáldskapurinn. íslensk ritsnilld er 263 bls., prentuð í Odda hf. Bjartur: Dúfan Patrick Súskind fjallar í bók sinni Dúfunni á sinn einstæða hátt um líf hins sérstæða Jonathans sem er vaktmaður i París. Jonathan ólst upp undir ógnum seinni heimsstyrjaldar. 1 uppvextinum lendir hann i margvíslegum þrengingum og kemst snemma að því að mönnunum er i engu treystandi. Hann einsetur sér þvi að lifa fábreyttu lífi. í þvi skyni kemur hann sér fyrir í risherbergi í París sem er hans örugga eyland í ótryggum heimi. En þrengingum Jonathans er ekki lokið. Patrick Suskind er um þessar mundir einn athyglisverðasti rithöfundur Evrópu. Ilmurinn eftir Patrick Suskind, sem kom út íislenskriþýðingu árið 1987, vakti fyrst heimsathygli á höfundi sínum, enda er hann gæddur einstakri frásagnargáfu og hugmyndaauðgi og hefur skapað ógleymanlegar persónur í verkum sínum. Patrick Súskind fékk mikið lof gagnrýnenda fyrir Dúfuna og þótti þar með staðfesta að hann er rithöfundur í fremstu röð. Auk Ilmsins hefur leikritið Kontrabassinn eftir Patrick Súskind komið út i íslenskri þýðingu. Leikhúsið Frú Emilia sýndi það árið 1988. Hafliði Árngrímsson þýddi. Ljóð Þorgeirs í einni bók Út er komin heildarútgáfa af ljóðumÞorgeirs Þorgeirssonar, 70 kvæði (1958-1988). Þar eru samankomin ljóð sem birst hafa á víð og dreif í tímaritum. ljóðaheftum og blöðum ásamt nokkrum óbirtum kvæðum. Bókin er 110 blaðsíður að stærð og inniheldur 70 kvæði eins og titiil hennar ber með sér. Bókina má panta beint frá útgefanda sem er Bókaútgáfan Leshús, pósthólf 7121, 127 Reykjavík, ogkostarhúnkr. 1250,- með sendingarkostnaði. Að gera jörðina mennska Silo (Mario Luis Rodriguez Cobos) 1 þeim þrem ritum sem er að finna í þessu verki bregður Silo út af þeim stíl sem einkennt hefur fyrri ritverk hans og setur fram ljóðrænan prósa. Innri sýn kynnir draumkenndan heim, fullan af líkingasögum og innra umróti mannsins. Innra landslag birtir ákveðin viðhorf til raunveruleikans sem mótaður er af náttúrulegum og félagslegum heimi. 1 Landslag mannsins er síðan að finna ýmsar skilgreiningar og mat á viðhorfum um grundvallaratriði, svo sem meimtunina, söguna, ýmsa hugmyndafræði, ofbeldið, lögin, svo og rflrið og trúarbrögðin. TIL SÖLU Toyota Corolla 1600 Gti 1988 ekinn 32.000 km □ Rafmagn í rúðum □ Raflæsingar □ Sóllúga □ □ Vökvastýri □ Vetrar- og sumardekk. □ Skipti möguleg. Verðhugmynd 1.050.000.- Upplýsingar í síma 686300 frá kl. 9.00 til 14.30 og 675603 eftir kl. 18.00. Illllllllllllllllllllllllll! SPEGÍLL llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ Tískuvikan í London - Díana prinsessa úthlutar verðlaunum til hönnuða Hrifningaralda fór um salinn þegar Díana prinsessa birtist við opnun Tískuvikunnar í London (London Fashion Week) í Albert Hall, þar sem hún afhenti aðal- verðlaun til „Tískuhönnuða ársins 1989“. Díana var í hvítum perlu- saumuðum kjól, alveg sléttum með háum uppstandandi kraga, og var ekki síður glæsileg en módelin á sýningunni. Fyrirsætan Yasmin Le Bon kom úr barnsburðar- fríi sínu og sló í gegn Sú sýningarstúlka sem mesta at- hygli vakti var Yasmin Le Bon, eiginkona Simon Le Bon hljómlist- armanns úr Duran Duran-hljóm- sveitinni, sem vann sér mikla frægð fyrir nokkrum árum. Simon Le Bon er enn í músíkinni og er að gefa út plötu í London um þessar mundir. Yasmin Le Bon og Simon eign- uðust litla dóttur, sem þau nefndu Amber Rose, 25. ágúst sl. Yasmin sagði blaðamanni sem talaði við þau hjón þegar litla dóttirin var þriggja daga gömul, - að ef allt gengi vel, þá ætlaði hún að fara fljótlega aftur að vinna við tískus- ýningar. Hún hefur svo sannarlega staðið við það, því að Yasmin var aðalsýningardaman á Tískuviku Lundúna sem haldin var í október sl. Yasmin fékk mikið lófaklapp og hrós þegar hún sýndi þennan svarta, silfursaumaða kvöldkjól. Hin hamingjusama Le Bon fjöl- skylda: Yasmin, Simon og Amber Rose, sem er þama þriggja daga gömul. „Skólabúningur“ í tískuútgáfu. Breiða leðurbeltið undirstrikar að Yasmin hefur endurheimt mjóa mittið eftir barnsburðinn. Ungir tískukóngar sem fengu verð- laun og titilinn „Tískuhönnuðir ársins“, Graham Fraserog Richard Nott. Díana prinsessa vakti ekki síður athygli en sýningarstúlkurnar í hvíta perlusaumaða kjólnum, sem hannaður var af Catherine Walker.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.