Tíminn - 06.01.1990, Qupperneq 4

Tíminn - 06.01.1990, Qupperneq 4
4 Tíminn Laugardagur 6. janúar 1990' FRETTAYFIRLIT MOSKVA -MikhaílGorbat- sjof forseti Sovétríkjanna mun halda til Litháens í næstu viku til að ræða við leiðtoga komm- únistaflokksins þar sem hefur sagt skilið við kommúnistaflokk Sovétríkjanna. Hefur Gorbat- sjof hætt við alla fundi með erlendum stjórnmálamönnum vegna ástandsins heima fyrir. AUSTUR-BERLÍN Stjórnarandstaðan í Austur- Þýskalandi sakaði kommúnist- aflokkin um að notfæra sér nasistagrýluna til að endur- reisa hina illræmdu öryggislög- reglu. __ SOFÍA - Allsherjarverkfall Búlgara sem berjast gegn lög- um um trúfrelsi tyrkneska minnihlutanum til handa lam- aði fjölda verksmiðja og versl- anir voru víðast hvar lokaðar. Þá lögðust almenningssam- göngur af í nokkrum borgum á meðan verkfallinu stóð. BÚKAREST - Fólk er enn að látast af sárum sínum eftir hina hörðu bardaga sem fylgdu byltingunni í Rúmeníu um jolin. SUKKUR - Pakistanskar björgunarsveitir hafa náð síð- ustu líkunum úr braki farþega- lestar sem rakst á vöruflutn- ingalest í fyrradag. Alls létust 284 í þessu versta lestarslysi í sögu Pakistan. PRAG - Hin nýja ríkisstjórn Tékkóslóvakíu hefur hvatt Tékka og Slóvaka sem yfirgef- ið hafa landið um að flytja heim á ný og taka þátt i endurreisn landsins eftir fall kommúnism- ans. SEOUL - Roh Tae-woo fors- eti Suður-Kóreu hefur ráðist til atlögu við spillingu innan eigin flokks til að svara kröfum al- mennings um umbætur í suðurkóreskum stjórnmálum. DOHOUBA - Herinn í Lí- beríu sem nú reynir að brjóta á bak aftur byltingartilraun gegn Samuel Doe forseta, kveiktu í húsum í þorpum er liggja að landamærunum að Fílabeinsströndinni og hafa hrakið íbúana á skóggang. BRUSSEL - Árið í fyrra var væaast sagt blóðugt fyrir blaðamenn og hafa aldrei fleiri blaða- og fréttamenn verið drepnir, eða alls fimmtíu og átta. Flestir hafa veriö drepnir í Kólumbíu, en einnig hafa fréttamenn fallið í átökunum í Panama. El Salvador, Burma og Rúmeníu. Hefur Alþjóða blaðamannasambandið nú gefið út handbók til þeirra frétt- amanna sem eru ao störfum á hættuslóðum. lllllllllllll ÚTLÖND llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Kína: Gamlar konur njósna fyrir öldunga Dengs í öngstrætum Xinyuan-hverfis í noröausturhluta Peking er Wang Shuqing amma allra. Hún leysir deilur, leggur blessun sína yfir barneignir og sér til þess að allir séu hreinir og snyrtilegir. Nú hefur hún fengið eitt verk- efnið í viðbót, það að vera augu og eyru hinna öldnu harðlínum- anna sem öllu stjórna í Kína. í raun og veru hefur Stóri bróðir leitað aðstoðar hjá stóru systur. En spurningin er hvort hún sýnir of mikla linkind. Fylgja fyrirmælum stjórnvalda Eftir að lýðræðishreyfingin var brotin á bak aftur af fullri hörku í júnímánuði síðastliðnum hafa hverfanefndir aldinna kvenna fengið þau fyrirmæli frá stjórnvöldum að fylgjast grannt með grönnum sínum, hvort þeir sýni merki um pólitísk frávik. f öngstrætunum, sem eru heim- kynni mikils meirihluta Pekingbúa, rölta sveitir þessara gömlu kvenna frá einni lítilli íbúðinni til annarrar og spyrja: „Hvað varst þú að gera meðan uppreisnin stóð yfir? Hvað var nágranni þinn að gera? Þekkirðu einhvern sem hafði samúð með and- byltingarmönnum? Eru nokkrir and- byltingarmenn í felum hér?“ Wang, gráhærð kona sem helst minnir á strangan skólastjóra í heim- avistarskóla stúlkna, er formaður nefndarinnar í Xinyuan. Sú nefnd hefur umsjón með 700 heimilum sem hvert um sig er merkt inn á kort í snyrtilegu skrifstofunni hjá Wang. Fyrirmælunum samviskusamlega framfylgt Það er vafamál að nokkur tor- tryggileg manneskja kæmist inn í hverfi Wangs án hennar vitneskju. Sjálflroðaliðar með rauð bönd um upphandlegg eru á eftirlitsferðum um hverfið sólarhringinn á enda og gefa samviskusamlega skýrslur um það sem fram fer. Það væri algerlega útilokað fyrir flóttamann sem aðhyll- ist lýðræði að felast á umráðasvæði Wangs einhvern tíma. Upplýsingar eru skráðar í smáatr- iðum á veggspjöld, sem hanga til hliðar við önnur veggspjöld þar sem almenningur er hvattur til að „elska herinn“ og virða Kommúnistaflokk- inn. Upplýsingunum er s'íðan komið til Wang Bingkun, feitlagins, rúm- lega fimmtugs manns, sem er yfir- maður 54 slíkra nefnda sem í starfa 90.000 manns. Gömlu konurnar vilja íbúum hverfisins síns vel En þó að halda mætti að Wang og hinar fjórar rosknu konurnar sem vinna með henni hafi illt eitt í hyggju eru þær ekki alger skrímsli. Wang vill íbúum hverfisins síns vel og lítur greinilega á þá sem undir sínum verndarvæng. Hún stendur á því fastar en fótunum að aðeins einn maður á hennar svæði hafi verið með í götumótmælunum í júní, sem er heldur ótrúlegt þar sem helmingur Pekingbúa hélt til á götum úti meðan óeirðirnar stóðu. „í mínu hverfi er fólkið gott. Það gerði ekkert, fólkið í mínu hverfi. Það var bara einn maður eftirlýstur og hann játaði ótilneyddur," segir hún. En varkárt augnaráð hennar gefur til kynna að henni hafi verið kunnugt um heilmargt fleira en hún lætur uppi. Jafnvel embættis- mennirnir trúa ekki áródri stjórnvalda Að nokkru leyti endurspeglar hún greinilegan skort á sannfæringu sem allt kínverska skrifræðiskerfið þegar um er að ræða áróðursherferð stjórnvalda. Þetta viðhorf kemur jafnvel greinilega fram hjá þeim sem falið var að vera í fararbroddi í áróðrinum. Sem dæmi má nefna að yfirmaður Wangs viðurkennir að þó að „megin- verkefni okkar eins og er sé að segja almenningi sannleikann um óróann ... gera erlendir fjölmiðlar mér það einkar erfitt að vinna mitt verk. Þeir halda því fram að svona margt fólk hafi látið lífið, þetta hafi gerst og hitt, og almenningur trúir þeim.“ Hann er ekki sannfærandi þegar hann heldur því fram að „þegar við segjum fólki sannleikann breytir það mjög fljótt um skoðun.“ Skemmtilegra að stjórna heimilishaldi nágrannanna Wang kýs margfalt heldur hina hliðina á hlutverki sínu, þá að vera með nefið niðri í hvers manns koppi. Á hverjum degi fer hún og hinar fjórar gömlu konurnar í óvæntar heimsóknir til hátt á annan tug fjölskyldna. Þarganga þærúrskugga um hvort heimilishaldið er snyrtilegt og í góðum skorðum. Þær kynna sér hvort um ósamlyndi geti verið að ræða í fjölskyldunni. Þær spyrjast fyrir um heimilisað- stæður nágrannanna. Þær fylgjast með lífi granna sinna í þvílíkum smáatriðum að jafnvel tíðahringur kvennanna er undir smásjá hjá þeim til að tryggja að enginn sé að bera sig til við að brjóta lögin um aðeins eitt barn í fjölskyldu. Á ári hverju úthluta yfirvöld þeim vissum fjölda barna sem mega fæðast í hverfinu. Síðan ákveða gömlu konurnar hvaða hjón mega eignast barn og verði einhver óverðug kona barnshafandi telja þær hana á að fá fóstureyðingu. Ef ósamlyndi er innan fjölskyldu - t.d. ef móðir og faðir eru ekki á einu máli um hvaða skólanám barn þeirra skuli stunda - fellir götu- nefndin úrskurð í málinu og þeim dómi verður ekki áfrýjað. Nefndinni er uppálagt að útskýra stefnu stjórnvalda fyrir íbúunum í hverfinu, fylgjast með siðferðisstyrk þeirra og sjá til þess að fyrir hendi séu þægindi svo sem reiðhjólastæði. Misjafnt gengi götunefndanna Götunefndirnar hafa verið óað- skiljanlegur hluti af borgarhverfa- skipulagi í Kína allt frá því kommún- istar komust til valda fyrir 40 árum. Á dögum Maós urðu þær valdamikl- ar þar sem þeim var beitt sem verkfærum flokksins til að framfyl- gja stefnu hans. Síðustu 10 árin, á tímum efnahagslegra umbóta og opnunar gagnvart umheiminum, hefur dregið úr mikilvægi gömlu- kvennasveitanna. En núverandi ell- iforysta við völd í Kína hefur snúið aftur til gamallar hugmyndafræði, gamalla siða - og gamalla kvenna - til að halda völdunum. J jöldai morð í Súdan Að minnsta kosti sexhundruð manns, þar af fjöldi kvenna og barna, hafa verið drepnir í átökum stríðandi ættbálka í miðhluta Súdan. Átökin eru milli súdanskra múslíma af arabakyni og blökkumanna sem ekki játa íslamska trú, en borgara- styrjöldin í Súdan hefur einmitt staðið milli stjórnarhersins í Kharto- um sem stjórnar er af múslímum og skæruliðum í suðurhluta landsins. Erlendir erindrekar og starfsmenn hjálparstofnanna sem starfa í þess- um slóðum skýrðu frá þessum átök- um. Súdanskir skæruliðar segja að í þessum átökum hafi sveitir herlög- reglu múslíma myrt rúmlega tvöþús- und manns sem ekki játa íslam, í bænum el-Gebelein. Að sögn erlendra sendimanna í Súdan voru flestir hinna föllnu af ættbálki Nilotik Shilok, sem er ásamt Nuir þjóðinni og Dinka ættbálkun- um, helstu ættbálkarnir í suðurhluta Súdan. Indverjar að krókna Vegna óvenju mikilla kulda á Indlandi hafa á annað hundrað Indverja króknað úr kulda. Þá munu rúmlega hundrað manns sofnað svefninum langa í Bangla- desh vegna kuldakastsins. Gert er ráð fyrir að mun fleiri eigi eftir að deyja í kuldakastinu. þvf spáð er að hitastigið verði áfram rétt yfir frostmarki og köld þoka muni liggja yfir norðurhluta Indlands og Banglahdesh. Þokan hefur raskað mjög öllum samgöngum, hvort sem um er að ræða flugsamgöngur, iestarsam- göngur eða rútubílasamgöngur. Noriega hafnar lögsðgu Banda- rísks dómstóls Manuel Noriega fyrrum leið- togi Panama sem Bandaríkja- menn tóku höndum í Panama fyrir tveimur dögum og fluttu til Bandaríkjanna þar sem hann er sakaður m eiturlyfjasmygl, segir að bandarískir dómstólar hafi ekki lögsögu til að dæma í hans málum. Noriega segist þar á ofan saklaus af öllum ákærum og segjir að innrás Bandaríkjamanna í Pa- nama ólöglega með öllu. Þetta kom fram þegar Noriega var leiddur fyrir dómstól í Miami. Ungverskt Watergate hneyksli? Tvenn samtök ungverskra stjórn- arandstæðinga segja að ungverskt Watergate hneyksli sé í uppsiglingu og hafa krafist þess að innanríkisráð- herra landsins segi af sér. Leiðtogar Bandalags demókrata og ungliðasamtökin Fidesz lögðu fram skjöl á blaðamannafundi sem þeir segja sanna að innanríkisráðu- neytið hafi stundað njósnir til að fylgjast með stjórnarandstæðingum, allt frá því umbótahreyfingin fór af stað í Ungverjalandi fyrir rúmu ári. Bardagar í Eþíópíu Skæruliðar í vesturhluta Eþíópíu segjast hafa drepið um það bil þús- und stjórnarhermenn í hörðum bar- dögum á fimmtudaginn. Ný útvarps- stöð tiltölulega óþekktra skæruliðas- amtaka, Þjóðfrelsisfylkingu Oromo, skýrði frá því að skæruliðar hefði tekið rúmlega hundrað hermenn höndum og dært tvöhundruð í átökunum sem áttu sér stað við bæinn Asosa nærri landamærunum að Súdan. Skæruliðar Þjóðfrelsishreyfingar Oromo hefur barist gegn stjórnar- hernum í Eþíópíu frá árinu 1973 og segjast ætla að binda endi á ánauð Oromo ættbálksins í vestur og suður- hluta Eþíópíu. Þá áttu skæruliðar Þjóðfrelsisfylk- ingar Tíger í átökum við stjórnarher- inn við bæinn Jihut í Shoa héraði í norðurhluta Eþíópíu á sunnudaginn og felldi skæruliðar rúmlega tvö- hundruð manns. Ekki er vitað um mannfall skæru- liða.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.