Tíminn - 06.01.1990, Blaðsíða 13

Tíminn - 06.01.1990, Blaðsíða 13
■ *y Laugardagur 6. janúar 1990 I kemur hann kannski út úr grafhýs- inu með þá fullnægðu tilfinningu að þetta sé „ansi ósvikið, rétt eins og lifandi‘\ svipað og hann hefði líklega sagt þegar hann kæmi út úr vaxmyndasafni Madame Tussaud, þ.e. án þess að hafa orðið fyrir vonbrigðum en líka án þess að finna hið minnsta til lotningar? Auðveldara að skapa sér guð en að steypa honum af stalli Ef sú er raunin sýndi það loks útleið úr gildrunni sent við spennt- um okkur með því að reisa grafhýs- ið. Það er óendanlega miklu auð- veldara að skapa sér guð en að steypa honum af stalli. Á þeim tíma sem við höfum notað til að leggja vísvitandi í auðn menningu okkar er grafhýsið sjálft orðið að skuldbindandi miðpunkti trúar- legrar afstöðu borgaranna. Tilfinn- ingalaus upptekt helgigripsins, grafhýsisins, gæti haft ófyrirsjáan- legar afleiðingar, nákvæmlega sambærilegar við þær sem á sinni tíð fylgdu byggingu þess. Það má ekkert eyðileggja í menningunni, síst af öllu það sem mönnum er heilagt. Við megum alls ekki fylgja hér fordæmi bolsé- vikanna sem hentu út helgigripum úr rétttrúnaðarkirkjunum af grimmdarlegri einbeitni til að tryggja einokun hins fornlega goðahofs. Míkhaíl Gorbatsjov hefur látið í ljós þá skoðun sína „að það sem lífið snýst um hjá okkur er að verða siðmenntað fólk“. En sá sem vill eiga aðgang að siðmenntuðu samfélagi verður að ráðast hrein- skilnislega og opinberlega gegn eðli grafhýsafyrirbærisins, sent var orðið tákn sovésku manngerðar hins nýja heims. Innsti eðliskjarni þess er dauðinn sem er hafður til sýnis hverjum sem er vegna þess að hann þykist vera lífinu til upp- fræðslu. Þessi blekking er uppspretta allra síðari lygavefa. í alræðisþjóð- félagi eru manngildi frá fyrri tíð máð út, jafnvel þó að maðurinn lifi áfram líffræðilega séð. Líf harð- stjórans er laust við alla mannlega eiginleika og hefur þess vegna þurrkað út mörkin milli þess að vera og ekki vera svo að til fyrir- myndar er. I skáldsögu Orwells „1984“ vita ekki einu sinni hæst settu meðlimir „innri flokksins“ hvort Stóri bróðir er dauður eða lifir ennþá, hvort maðurinn lifir eða er jafnvel bara tákn: Helgidómarnir sem voru fótum troðnir Það skiptir heldur engu máli gagnvart fjöldagröfum milljóna nafnlausra fórnarlamba byltingar- innar. Aðra vogarskálina þyngir grafhýsið, á hinni liggja hinir ótelj- andi dauðu í Kolyma, á Solowezki- eyjum, í Workuta og Kasakstan. Það eru helgidómarnir sem voru fótum troðnir. Björgun þjóðar og fyrirgefning synda hennar er háð því að hún finni leiðina að þessum helgidómum. Hvað á að verða um grafhýsið? Það er hluti sögu okkar, minnis- merki um tíma sem við segjum nú skilið við. Það er svipmikið og sýnilegt þar sem það endurspeglar pólitískan raunveruleika; alger söfnun valdsins samsvarar sam- safni helgisiða í óhugnanlegum hápunkti dauðadýrkunarinnar. Eyðilegging grafhýsisins væri nú tilgangslítil, en það væri glæpsam- legt að halda byggingunni við í gervihlutverki sem gerir trúarlegt tilkall. Fyrst um sinn væri nægilegt að ganga í takt við skilning almenn- ings þar sem þegar hefur lengi verið að eiga sér stað frelsun úr fjötrum töfranna. Það er mikilvægt að láta ekki fram hjá sér fara augnablikið þegar gerlegt verður að breyta starfsem- inni á þá leið að hún standi undir sér sjálf fjárhagslega, án þess að misþyrma tilfinningum þeirra sem heimsækja þetta minnismerki. Þá má selja aðgangseyri með góðri samvisku rétt eins og gert er á vaxmyndasafni Madame Tussaud, jiii' með ágóða. Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð ÖLDUNGADEILD Menntaskólans við Hamrahlíð var stofnuð 1972. Þúsundir manna og kvenna hafa stundað þar nám og nokkur hundruð lokið stúd- entsprófi. Þarft þú að rifja upp, bæta við eða hefja nýtt nám? í öldungadeildinni er boðið upp á nám til stúdents- prófs á 6 brautum. Kennsla vel menntaðra og þjálf- aðra kennara tryggir nemendum góðan árangur. Brautirnar eru: málabraut, félagsfræðabraut, nátt- úrufræðabraut, eðlisfræðibraut og tónlistarbraut (í samvinnu við tónlistarskóla). Vakin er athygli á að hægt er að stunda nám í einstökum greinum án þess að stefna að lokaprófi. Eins er algengt að stúdentar bæti við sig einstökum námsáföngum. Kennd eru m.a. mörg erlend tungumál: danska, enska, þýska, franska, spænska, og ítalska. Einnig eru í boði áfangar í íslensku, stærðfræði, raungreinum og félagsfræði- greinum og námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í notkun á PC-tölvum. Innritun nýnema og val eldri nema fyrir vorönn 1990 fer fram 16.-18. janúar kl. 16.00-19.00. Nemendur velja námsgreinar og fá afhenta stundatöflu vorannar gegn greiðslu skólagjalda. Námsráðgjafar, deildarstjórar og matsnefnd verða til viðtals. Brýnt er að allir sem hyggjast stunda nám á vorönn 1990 innritist á þessum tíma. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 22. janúar. Lok haustannar í öldungadeild: Afhending einkunna og prófsýning fer fram mánu- daginn 15. janúarkl. 17.00-18.00. Útskrift stúdenta verður laugardaginn 20. janúar kl. 14.00. DAGSKÓLI: Lok haustannar: Afhending einkunna og prófsýning verður 12. janúar og staðfesting vals 13. janúar. Nánar auglýst í skólanum. Útskrift stúdenta verður laugardaginn 20. janúar kl. 14.00. Vorönn 1990: Nýnemar koma í skólann mánudaginn 15. janúar kl. 10.00. Afhending stundataflna auglýst í skólanum og kennsla hefst mánudaginn 22. janúar. STÖÐUPRÓF: Stöðupróf verða haldin dagana 15.-18. janúar sem hér segir: Enskaogvélritun mánud. 16. janúarkl. 18.00 danska, norska, sænskaog þýska: þriðjud. 16. janúarkl. 18.00 spænskaogþýska, miðv.d. 17. janúarkl. 18.00 stærðfr. og tölvufr. fimmtud. 18. janúarkl. 18.00 Stöðuprófin eru einungis ætluð þeim sem hafa aflað sér kunnáttu umfram grunnskólapróf. Þátttöku í prófunum skal tilkynna á skrifstofu skólans á skrifstofutíma, sími 685140 og 685155. Rektor Tíminn .21 '%J|^VATRYGGINGAFELAG ^clsr íslandshf Útboð Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Mazda E 2000 pic up árgerð 1989 Peugeot 205 XL árgerð 1989 Subaru Justy GL árgerð 1989 Subaru GL Turbo árgerð 1987 Toyota Corolla 1300 árgerð 1987 Toyota Carmy 2000 XL árgerð 1987 Lada 1200 árgerð 1987 Subaru Justy árgerð 1985 Peugeot 205 árgerð 1985 Datsun Cherry árgerð 1984 Lada árgerð 1984 Citroen GSA Pallas árgerð 1982 BMW318 i árgerð 1982 BMW315 árgerð 1982 Isuzu Tropper árgerð 1982 Mazda 323 árgerð 1981 AMC Concord Wagon árgerð 1981 Honda 650 CB bifhjól árgerð 1980 Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, Reykjavík, Mánudaginn 8. janúar 1990, kl. 12-17. Á SAMA TÍMA: í BORGARNESI Mazda 323 árgerð 1988 Tilboðum sé skilað til Vátryggingafélags íslands h.f., Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl. 17.00 sama dag. Framboðs- frestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðar- mannaráðs og endurskoðenda í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1990. Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félagsins, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 12.00 á hadegi. Kjörstjórnin MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Auglýsing um styrki til leiklistarstarfsemi í fjárlögum fyrir árið 1990 er gert ráð fyrir sérstakri fjárveitingu, sem ætluð er til styrktar leiklistarstarfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu í fjárlögum. Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af þessari fjárveitingu. Umsóknareyðublöð fást I ráðuneytinu. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 25. janúar næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 29. desember 1989 FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR ijf Félagsráðgjafa vantar til afleysinga nú þegar við vinnslu forsjár- mála. Hlutastarf kemurtil greina. Upplýsingargefa yfirmaður fjölskyldudeildar, eða félagsráðgjafar forsjárdeildar í síma 25500.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.