Tíminn - 06.01.1990, Blaðsíða 11

Tíminn - 06.01.1990, Blaðsíða 11
Laugardagur 6. janúar 1990 Tíminn 19 lllllllllllllllllll MINNING ■ l■l■il!ilí'l■,illJiTl',u.iliiliiTl !.iJillT! 'jiliTlTN■ i.hli!l!;: ■ j:lill!IT!'!:l!lljll!rhlllljlil.l'Mll;líllll!l!l':!l|lílllllílíl.:.|!lll!|llliN Jón Eiður Guðmundsson Fæddur 21. ágúst 1964 Dáinn 1. janúar 1989 „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðadu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. “ (Spáma&urinn Kahlll Gibran) Okkur langar að minnast í örfáum orðum frænda okkar, Jóns Eiðs Guðmundssonar, sem lést á Land- spítalanum aðfaranótt nýársdags að aflokinni tíu mánaða baráttu við erfiðan sjúkdóm. Jón Eiður var fæddur á Siglufirði 21. ágúst 1964 og var yngstur þriggja barna Margrétar Jónsdóttur og Guð- mundar Jónassonar. Mikill sam- gangur var ætíð milli heimila okkar og í dag finnst okkur við vera að kveðja meira bróður en frænda. Jón Eiður var mjög traustur og ábyggilegur vinur. Honum gekk vel í skóla og hélt hann að afloknu grunnskólaprófi suður til framhalds- náms og lá leiðin í Verslunarskóla íslands og lauk hann þar verslunar- prófi vorið 1982. Hóf hann störf í Samvinnubankanum að námi loknu og vann hann þar fram í byrjun síðasta árs þegar hann var lagður helsjúkur inn á spítala. Jón Eiður hafði um nokkurra missera skeið kennt sér einhvers meins sem virtist erfitt að skilgreina hvað væri fyrr en um seinan. Enginn hafði getað áttað sig á því hvað var að gerast eða hvernig væri hægt að létta undir. Jón Eiður var ekki vanur því að bera vandamál sín á torg. En það duldist engum sem hann þekkti að ekki var allt með felldu. Jón Eiður var með afbrigðum barngóður og er hans sárt saknað af litlu frændsystkinunum. í honum fundu þau traustan vin og félaga sem ætíð var tilbúinn að bregða á leik með þeim eða setjast niður og lesa fyrir þau. Undanfarna mánuði hafa þau mikið velt fyrir sér lífinu og dauðanum og oft spurt spurninga sem erfitt hefur verið að svara. Pegar dauðinn knýr dyra spyrjum við öll eins og barnið: „Af hverju?" Því eross erfitt að dæma þann dóm, að dauðinn sé hryggðarefni, þó Ijósin slokkni og bliki blóm. - Er ei bjartara land fyrir stefni? (E.Ben.) Jón Eiður hefur loksins fengið hvíld. Hann tók því sem að höndum bar með æðruleysi og styrk. Erfiðri en hetjulegri baráttu er lokið. Söknuðurinn er sár, minningarnar hrannast upp og við stórum spurn- ingum fáum við engin svör. Undanfarnir mánuðir hafa verið gríðarlega erfiðir fyrir foreldra hans og systkini. Öll stóðu þau saman sem klettur og studdu við bakið á honum fram á hinstu stundu. Samstarfsfólk Jón Eiðs í Sam- vinnubankanum reyndist honum ólýsanlega vel. Öll þeirra hlýja og umhyggja styrkti bæði Jón Eið Og alla aðstandendur og fullvissaði alla um óaðfinnanleg störf hans í bank- anum. Starfsfólkið var óþreytandi við að létta undir, það kom reglulega í heimsókn, fór með hann út í göngutúra og jafnvel heim til sín meðan Jón Eiður var enn ferðafær. Seint mun gleymast 25 ára afmælis- dagur hans í ágúst sl. Þá buðu vinir og samstarfsmenn hans í bankanum til afmælisfagnaðar í matsal bankans. Jafnglaðan og þakklátan höfðum við ekki séð Jón Eið í langan tíma. Þessi hlýja og vinarþel sem fjölskyldunni var sýnd gaf auk- inn kraft á erfiðum tímum og verður seint þökkuð. Við viljum að leiðarlokum þakka Jóni Eiði fyrir allt það sem hann gaf okkur og börnum okkar. í vinahóp- inn er búið að höggva stórt skarð sem ekki verður upp fyllt. Daprast hugir, dauðinn kallar, drjúpa tár og væta kinn. Kæri vinur, höfði hallar heim þig leiðir frelsarinn. Elsku Magga, Guðmundur, Jónas, Anh-Dao, Addý og Gunnar. Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. Blessuð sé minning elskulegs frænda okkar, Jóns Eiðs Guðmunds- sonar. Ólöf, Helga, Ásta Jóna, Kristín, Jónas og Inga Margrét Hin langa þraut er liðin nú loksins hlaustu fríðinn og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V.Brtem) Um svipað leyti og nýja árið var að ganga í garð kvaddi vinur okkar og frændi, Jón Eiður Guðmundsson, þennan heim. Hann hafði af veikum mætti haldið sín hinstu jól heima hjá foreldrum og systkinum. Það gerðu sér allir ljóst að þetta yrðu hans síðustu stundir sem hann gat vænst þess að vera í faðmi fjölskyldunnar, þar var hann umvafinn umhyggju og ástúð, líkt og hann hafði vanist allt frá bamæsku. Jón Eiður var fæddur á Siglufirði 21. ágúst 1964. Hann var sonur hjónanna Margrétar Jónsdóttur og Guðmundar Jónassonar, fyrrver- andi útibússtjóra. Hann var yngstur þriggja systkina, en systkini hans eru Jónas, lektor við Samvinnuskólann, giftur Anh-Dao Tran kennara, og sr. Amfríður, gift sr. Gunnari Matt- híassyni, en þau em bæði við fram- haldsnám og í starfi í Bandaríkjun- um. Jón Eiður ólst upp í foreldrahús- um og á meðan hann hafði mögu- leika á stundaði hann sitt fmmnám á Siglufirði. Eins og algengt var á Siglufirði í þá daga var næga atvinnu að fá á sumrin sem hann og stundaði. Snemma kom í ljós hans trú- mennska hvort sem var við nám eða við störf. Eftir skyldunám heima hélt hann í Verslunarskóla íslands og lauk þar verslunarskólaprófi 1982. Jón Eiður átti gott með að læra og ekki er ólíklegt að hann hefði haldið áfram námi ef hans miður góða sjón hefði ekki komið í veg fyrir það. Að námi loknu réðst hann til starfa í Samvinnubankanum og þar vann hann þar til hans veikindi komu í veg fyrir áframhaldandi starf fyrir tæpu ári. Hann var lengi búinn að stríða við lasleika þrátt fyrir að hann ynni áfram, frekar af vilja en mætti. Manni virðist sem að lækna- vísindunum hafi yfirsést að greina hinn illkynja sjúkdóm þar til í óefni var komið. í febrúar á sl. ári lagðist hann inn á sjúkrahús og þá greindist sjúkdómur sá sem svo marga hefur lagt að velli og spyr hvorki um aldur né aðstæður. Frá sjúkrastofnuninni var ekki aftur snúið, þar dvaldi hann sitt síðasta ár við frábæra umönnun líknarhanda og hjartahlýju hjúkrun- arfólks. Þar var allt gert fyrir hann sem mannlegur máttur réð yfir. Jóni Eiði var þakklæti og tryggð eðlislæg. Ég dreg í efa að hann hafi talið að sér hafi enst þróttur til að þakka þeim mörgu sem reyndu að gera honum lífið bærilegra. Við viljum því leyfa okkur að bera fram fyrir hans hönd þakkir til starfsfólksins á deild 32A. Þið hefðuð ekki getað rækt starf ykkar af meiri alúð og nærgætni heldur en þið gerðuð. Það er ákaflega mikils virði að kynnast slíkri manngæsku og lipurð sem þar ríkti. í Samvinnubankanum vann Jón Eiður sér traust og vináttu samstarfs- fólksins, þaðan naut hann alveg sérstakrar vináttu eftir að heilsu hans fór að hraka, þegar hann varð tuttugu og fimm ára á sl. sumri hélt samstarfsfólk hans honum veglegt afmælishóf, þar var enginn stéttar- munur, þar voru allir jafnir. Hóf þetta bar vott um virðingu þá og vinsemd sem hann hafði áunnið sér. Þar með er ekki öll sagan sögð, samstarfsfólk hans var óþreytt að heimsækja hann á sjúkrabeðinn, taka hann inn á heimili sín og fara með hann í ökuferðir meðan kraftar hans buðu upp á slíkt. Einnig hefur þetta fólk sýnt aðstandendum hans einstaka vinsemd og hluttekningu, það er aldrei fullþakkað á stundum saknaðar og trega. Öllum öðrum vinum hans og vandamönnum eru færðar þakkir, þeir hafa reynst vinir í þraut. Við sem eftir stöndum þökkum honum samfylgdina, tryggðina og traustið. Þegar á okkur hafa brotnað og brotna brimskaflar andstreymis og sorgar, þá hefur trúin og bænin sem er heitasta og helgasta hjálpin stutt okkur, styrkt okkur og kyrrt hina þungu sjóa og boðað okkur birtu og sálarfrið. Hinsta ósk hins nákomna ættingja okkar beggja var sú að hvíla í faðmi fjallanna fyrir norðan, á æskustöðv- um sínum þar sem hann var borinn og barnfæddur, þaðan voru minning- arnar frá leik og starfi. Náttúra Siglufjarðar er sterk. í skauti hennar átti hann upphafnar stundir bæði á sumri og vetri. Við óskum þess að þar megi hann hvíla í ró. Við biðjum guð að styrkja foreldra hans og systkini sem sorgin sverfur að. Við felum hann guði okkar allra krist- inna manna. Með tryggð til máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endi í æðri stjórnar hendi er það sem heitt í hug þú barst. (Elnar Benediktsson) Guðrún og Skúli Jón Eiður Guðmundsson kom til starfa í Samvinnubanka íslands hf. strax er hann hafði lokið verslunar- skólaprófi, þá 18 ára. Hann hóf þá störf í útlánadeild bankans í Banka- stræti 7, þar sem hann vann æ síðan, uns þau veikindi sem nú hafa orðið honum að aldurtila bundu enda á starfsgetu hans. Jón Eiður vakti þegar athygli fyrir stundvísi, prúðmennsku og sam- viskusemi. Hann vildi hvers manns vanda leysa og lagði sig mjög í framkróka við að veita viðskiptavin- um bankans sem besta þjónustu. Við samstarfsfólk sitt var hann í fyrstu dulur og gat virst fáskiptinn, en við nánari kynni duldist ekki sá góði og indæli drengur sem bak við skelina leyndist. Þegar kornungur maður verður að þola langt og erfitt veikindastríð koma óneitanlega í hugann orð þjóðskáldsins sem sagði: „Til eru fræ sem fengu þann dóm að falla í jörð og verða aldrei blóm. “ En blómin hans Jóns Eiðs verða þó eftir í minningu fjölskyldu hans og samstarfsfólks og þau blóm föina aldrei. Við þökkum honum samstarfið og geymum minningu um góðan dreng. Foreldrum hans og öðrum ástvinum sendum við samúðarkveðjur. Samstarfsfólk í Sam vinnubanka íslands hf. Það er svo sárt. Það er svo sárt að , kveðja hann Jón Eið. Það er svo ljúft. Það er svo ljúft að hafa þekkt Jón Eið. Hann fæddist og ólst upp í næsta húsi. Ég þekkti hann alla tíð. Nú fer hann aftur heim í fjörðinn fagra til þess að hvíla við rætur fjallanna sem veita skjól og öryggi og veittu okkur skjól og öryggi í bernskunni, þegar fjölskyldur okkar bjuggu hlið við hlið og vinátta ríkti alla tíð. Nákvæmlega sama dag fyrir níu árum lést móðir mín, en þau Jón Eiður voru miklir vinir. Vináttu sína sýndi hann með ógleymanlegri hjálpsemi þegar hún var veik og þau voru mörg óeigingjömu sporin sem hann gekk fyrir hana. Nú ganga þau veg eilífðarinnar. - Hann Jón Eiður á ríkan sjóð, þar sem mölur og ryð fá ekki grandað. Hann háði erfiða baráttu en einhvern veginn finnst mér eins og hann hafi ekki tapað. Dauðinn er ekki sigurvegari, hann er aðeins sönnun lífsins. Allt sem hefur lifað deyr. - Jón Eiður gaf okkur með lífi sínu og baráttu og hann gaf ríkulega, hans lífsmáti var að gefa, og hann var alinn upp í því umhverfi að það væri sælla að gefa en þiggja. í slíku umhverfi stendur enginn einn. Jón Eiður stóð ekki einn þegar síðasta orustan var háð. Fjölskyldan stóð saman styrk og með ríka trú. Foreldar hans Guð- mundur Jónasson og Margrét Jóns- dóttir. Systkini hans og makar þeirra hafa sýnt að mennirnir em stórir þegar á móti blæs og styrkurinn felst í samheldni, samhygð og sannri trú. Missirinn er mikill og sár en minningarnar lifa - og það er ljúft að eiga minningar um þennan góða dreng. Elsku Margrét, Guðmundur, Jón- as og Addý. Guð styrki vkkur á þessari sorgarstund. Guð blessar minninguna um Jón Eið. Sigríður K. Stefánsdóttir REYKJKJÍKURBORG Aauirvi At&dcvi Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Starfsfólk óskast til eftirtalinna starfa: þvottahús, 100% starf og á vakt 100% starf. Upplýsingar gefur forstöðumaður milli kl. 10.00- 12.00 í síma 685377. Sjúkraþjálfari Aðstaða fyrir sjúkraþjálfara í tengslum við þjón- ustuíbúðirnar er laus til umsóknar. Upplýsingar gefur forstöðumaður milli kl. 10.00-12.00 í síma 685377. t Útför hjartkærs sonar okkar, bróður og mágs Jóns Eiðs Guðmundssonar sem lés 1. janúar s.l. verður gerð frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 6. janúar kl. 13.30. Margrét Jónsdóttir Guðmundur Jónasson JónasGuðmundsson Anh-DaoTran Arnfríður Guðmundsdóttir Gunnar Rúnar Matthíasson t Gísli Guðmundsson leiðsögumaður og kennari frá Tröð verðurjarðsunginnfráDómkirkjunni þriðjudaginn9.janúar kl. 10:30, Þeim sem vildu minnast hans er bent á Landgræðslusjóð. Anna M. Guðjónsdóttir Jón H. Gíslason BrandurGíslason GuðmundurT. Gíslason Atli Gíslason Ásmundur Gíslason Guðrún Gísladóttir Valgerður Guðmundsdóttir Margrét Sigurðardóttir Marta Hauksdóttir Jóhanna Vigfúsdóttir Unnur Jónsdóttir Rannveig Hallvarðsdóttir t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður og afa okkar Þórarins Ágústs Guðmundssonar Þórunnarstræti 124, Akureyri Sérstakar þakkir til heimilisfólks og starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð og allra annarra, er sýndu honum vináttu og hlýhug í ellinni. Guð blessi ykkur öll. Hulda Þórarinsdóttir Halldór Árnason Gyða Þ. Halldórsdóttir Ari Halldórsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.