Tíminn - 06.01.1990, Síða 10

Tíminn - 06.01.1990, Síða 10
10 Tíminn Laugardagur 6. janúar 1990 AÐ UTAN Grikkland á barmi gjaldþrots Það er víðar en á íslandi sem er svart í álinn í efnahagsmálum. Grikkir sjá nú fram á það að gjaldþrot ríkisins blasi óhjákvæmilega við nema því aðeins þeir grípi snarlega til stórfelldra efnahagsaðgerða sem koma illa við pyngju hvers manns. Þeir segja margra ára óstjórn í efnahagsmálum, í forsætisráðherratíð sósíalistans og hag- fræðingsins Andreas Papandreou, nú taka tollinn sinn. Der Spiegel greinir frá ástandinu fyrir skemmstu. Tvennar þingkosningar á órfáum mánuðum og þær þriðju í vændum Marina Disi er 38 ára, fyrsti og eini þingmaðurinn sem grískum græningjum hefur tekist að koma á þing. Eftir harða og stranga kosn- ingabaráttu uppskar hún laun erf- iðisins í kosningum sem fram fóru 5. nóvember en óvíst er hversu löng þingseta hennar verður. Það var ekki liðinn nema sólar- hringur frá því hún sór hollustueið- inn þegar Grikkir stóðu frammi fyrir því að þing yrði rofið og enn einu sinni yrði að ganga til kosn- inga, í annað sinn á örfáum mánuð- um. í annað skipti síðan í sumar höfðu Grikkir greitt þannig at- kvæði að enginn einn flokkur fékk hreinan meirihluta og enginn gat myndað ríkisstjórn. 21. nóvember komu svo foringj- ar fhaldsmanna, sósíalista og kommúnista sér saman um að styðja bráðabirgðastjórn þar til kosningar fara fram að nýju, en það verður í fyrsta lagi í apríl á næsta ári. Það hefur nefnilega komið í Ijós í skoðanakönnunum að gríska þjóðin er ákaflega andvíg því að ganga strax aftur að kjör- borðinu samkvæmt kjörorðinu að halda skuli áfram að kjósa þangað til þjóðin loks kýs rétt. Dæmalaus óstjóm í mórg ár Það þolir enga bið að leysa öll þau vandamál sem hneykslisstjórn- in undir forystu sósíalistans Andre- as Papandreou hefur hrúgað upp síðustu árin. Þar að auki hefur bráðabirgðastjórn íhaldsmanna og kommúnista ekki tekist á undan- förnum mánuðum að taka til í þeim safnhaug, hún hefur fyrst og fremst verið önnum kafin við að fást við ný og ný mál. Grikkland er aðili að Evrópu- bandalaginu en efnahagur landsins er nú að hruni kominn eftir margra ára dæmalausa óstjórn. Að sögn þekkts grísks hagfræðings er nú mikil hætta á að „Grikkland sláist í hóp með löndum Rómönsku Ameríku" ef ekki verða tafarlaust gerðar róttækar umbætur í efna- hagsmálum. Og talsmenn Evrópu- bandalagsins hafa sagt að grískt efnahagsástand sé „áhyggjuefni". Ríkissjóður gaitómur Ríkið er tæpast fært um að greiða embættismönnum og lífeyr- isþegum það sem þeim ber. For- svarsmenn ríkissjóðs leita nú log- andi ljósi að 300 milljón dollara erlendu láni til að fleyta sér yfir það alnauðsynlegasta fram að ára- mótum. Ríkisskuldabréf og ný skuldabréfalán - þau fimmtu á þessu ári - áttu að hjálpa til að komast yfir bráðnauðsynlega fjármuni, áður en Ríkisbankinn verður að fara fram á „gjaldfrest fyrir ríkið“ eins og það er orðað í grísku blaði. Þar fyrir utan er landið þegar veðsett langt umfram eignir. Opin- ber ríkissjóðshalli nemur meira en 20 prósentum brúttóinnanlands- framleiðslu og er það langhæsta hlutfall sem þekkist í Evrópu- bandalagslöndum. Því sem næst 60 prósent ríkistekna eru þegar frá- tekin til greiðslu skulda. Allir verða að vinna launalaust í eitt ár ef á að takast að greiða Hagfræðingur Evrópubanda- lagsins hefur reiknað út að með 25 milljarða dollara erlendar skuldir á bakinu verði hver einasti 10 millj- óna Grikkja að vinna heilt ár án þess að fá nokkur laun og þar með að neita sér um alla neyslu til að borga af skuldunum. Astæðurnar til þessarar gífur- legu skuldasöfnunar er ekki bara að finna í óhóflegum útgjöldum til félagslegrar þjónustu og tilslakana sem Papandreou forsætisráðherra hefur árum saman beitt til að halda ríkisstarfsmönnum góðum. Þessi fyrrverandi prófessor í hagfræði hefur fyrst og fremst lagt ríkið í rúst með því að blása óendanlega út skrifræðisbáknið. Óskaplegt opinbert bákn sem þenst sífellt út Undir stjórn sósíalista stækkaði embættismannaherinn um þriðj- ung, 270.000 manns, og var þó óhemju fjölmennur fyrir. í þessari tölu eru þó ekki meðtaldir 180.000 ríkisstarfsmenn á tímakaupi. Bara á líðandi ári bauð Papandreou 96.000 umsækjendum tímabundið starf í opinberri þjónustu í örvænt- ingarfullum tilraunum sínum til að hanga við völd, þrátt fyrir öll spillingarhneykslin. Það er sama sagan hjá ríkisfyrir- tækjum með sína 167.000 starfsmenn. Þrátt fyrir miklar Nú binda Grikkir helst vonir við að Xenophon Zolotas, 85 ára fyrrver- andi Ríkishankastjóri, verði bjar- gvættur þjóðarinnar. gjaldskrárhækkanir hefur tapið á þeim þrefaldast síðan 1985, og það er fyrst og fremst vegna hinnar hóflausu fjölgunar á starfsmönn- um. Hjá ríkisjárnbrautunum er launaliðurinn einn þegar þrefalt hærri en tekjurnar sem inn koma. Á kostnað skattborgaranna er haldið lífinu í yfir 40 iðnaðarfyrir- tækjum sem skulda meira en þau standa undir. Þessi fyrirtæki hirtu sósíaiistar af eigendum sínum til að koma skikki á reksturinn - sem hefur síður en svo tekist. Þar er verðbólgan mest og framleiðnin minnst í EB Hinn útblásni opinberi geiri, sem nemur meira en helmingi alls efna- hags landsins, sogar ekki einungis til sín frá einkarekstri bráðnauð- synlegt fjármagn heldur kyndir líka með taprekstri undir verðbóig- unni. Grikkland er í efsta sæti af Evrópubandalagsríkjum í verð- bólgu með 16 prósenta verðhækk- unum, þrisvar sinnum meiri verð- bólgu en að meðaltali í Evrópu- bandalagslöndum. Verðgildi drökmunnar er nú aðeins fjórðung- ur af því sem var 1981, þegar Papandreou komst til valda. Aftur á móti eru Grikkir í neðsta sæti þegar borin er saman framleiðni, og þá er ekki bara borið saman við önnur ríki Evrópubandalagsins heldur öll OECD-löndin. Allt þetta æsir til fjármagnsflótta í stíl Suður-Ameríkuríkja. Grikkir hafa komið til varðveislu í erlend- um bönkum 7,5 milljörðum doll- ara. Varla einn einasti Grikki fjár- festir í eigin landi, fjárfestingarnar eru minni en fyrir 12 árum og iðnaðarframleiðslan er minni en 1980. Síðast en ekki síst gufa líka upp hagsbæturnar sem ráðamenn í Aþenu höfðu gert sér vonir um við inngönguna í EB og nutu líka góðs af til að byrja með. Vegna þess að þeir eiga ekki menn í æðstu stöðum í bandalaginu og vegna tíðra stjórnarskipta og slælegrar efna- hagsstjórnunar geta Grikkir ekki gert tilkall til þeirrar aðstoðar sem þar er fyrir hendi til að kosta svæðisþróunar- og Miðjarðarhafs- verkefnisín. Nú er það þjóðin sem borgar ffyrir svallið Eftir tveggja vikna árangurs- lausa leit að fjármagni til láns komu bráðabirgðastjórnarflokk- arnir sér saman um að mynda sérfræðingastjórn undir forsæti fjármálasérfræðingsins Xenophon Zolotas, 85 ára gamals fyrrum yfirbankastjóra Ríkisbankans, til að komast hjá yfirvofandi ríkis- gjaldþroti. Hvort öldungurinn getur sigrast á hættunni er dregið í efa. En þar sem hann þarf ekki að biðla til kjósenda um atkvæði hefur hann fyrirskipað löndum sínum, sem vanist hafa dekri í formi kosninga- gjafa, að bergja beiskan bikar. Geysilegur niðurskurður út- gjalda á að brúa ríkishallann. Sett hefur verið bann á mannaráðning- ar í opinberri þjónustu. Á tekju- skatt 1989 verður lagt sérstakt 5% gjald. Skattahækkanir hæka verð á bensíni og olíu til húsahitunar, sígarettum og áfengi. Bændur, sem hafa efnast að undanförnu sökum niðurgreiðslna frá Evrópubanda- laginu og hafa verið undir verndar- hendi Papandreous, eru nú í fyrsta sinn skattskyldir. Þá hækka póst- og símagjöld, rafmagns-, vatns- og umferðargjöld um 15 til 40%. „Nú er það þjóðin sem borgar fyrir svallið,“ segir í gríska blaðinu „Ethnos". Blað sósíalista, „Niki“, spyr hvort Grikkir, sem svo lengi hafa vanist dekri, þurfi nú kannski allir á sálfræðiþjónustu að halda. Ástralía er óvarið meginland: Rándýr og tímafrek heræf ing reyndist algerlega misheppnuð I mestu heræfingum til þessa hafa Ástralir komist að raun um að ekki er gerlegt að verja risastóm eyjuna þeirra Astralskur hermaður á heræfingunni sem mistókst svo herfilega. Peter Gration hershöfðingi varð að viðurkenna sig sigraðan. Fjandsamlegar skyndiárásarsveitir höfðu skotið niður æðsta herforingja Astralíu og auk þess marga háttsetta starfsbræður hans. Ljósmyndir sanna þessa smán. Óvinirnir, úrvalsbardaga- menn í „Special Air Service“, höfðu skotið með myndavél- um og aðdráttarlinsum í stað skotvopna. Útrýming æðstu herforingjanna Þar °g óbardagahæft vegna var samt sem áður ekki mesti skaðinn sem hinir velvopnuðu verj- endur áströlsku heimsálfunnar urðu fyrir af hendi nokkurra hundruða árásarmanna. Stærsta heræfing Ástralíu á friðartímum, Kengúra 89, stóð í tvo mánuði og kostaði 225 milljónir ástralska doll- ara, en var algerlega misheppnuð. Að vísu heppnaðist - og hvern undrar það? - að gera óvininn óvirkan, „niðurrifsöflin frá Kamar- íu“ eins og Ástralíumenn eru vanir að kalla æfingaandstæðinga sína, og var það samkvæmt fyrirfram- gerðri áætlun. En herinn, sem taldi 25.000 ástralska og meira en 2000 bandaríska verjendur, varð að þola skelfilegt tap. Eyðimerkurhiti og hitabeltis- sjúkdómar Tilraunin til að verja mikilvægar efnahags- og hernaðarstofnanir á norðurströndinni gegn skyndiárás- um strandhöggsmanna mistókst. Varaliðið, sem flutt var í norður- hluta landsins var óvant loftslaginu eyðimerkurhita og hitabeltissjúk- dóma. Afleiðingin af því var hernaðar- leg mistök. Þau alvarlegustu áttu sér stað í bækistöð flughersins þar sem velvopnaðir innrásarmenn á jeppum mættu um miðja nótt og „eyðilögðu" nýtískulegustu bar- dagaflugvélar Ástrala, árásarflug- vélar af gerðinni F-18 sem fengnar voru frá Bandaríkjunum. Skýrslan sem Gration hershöfð- ingi gaf eftir æfinguna var hin dapurlegasta. Niðurstaða hans var sú að „gegn minni háttar ógnunum getum við varið Ástralíu með þeim útbúnaði sem við höfum nú“. En ef vel ætti að vera þyrfti a.m.k. 150.000 manns, 50% fleiri menn undir vopnum en ástralska stjórnin hefur nú yfir að ráða og er þá varaliðið meðreiknað, til að verja 7000 km langa norðurströndina. Varnarkenning Ástrala, sem endurskipulögð var 1987 og hljóm- ar upp á að landið skuli varið með eigin hermönnum meðfram útjöðr- um ríkisins, reyndist algerlega ónothæf. Ástralir haf a verið iðnir við að taka þátt í styrjöldum annarra Allt frá því Bretar settust að í Ástralíu 1788 hafa Ástralíumenn ekki gefið neinum öðrum eftir í baráttugleði og hafa verið óþreyt- andi að úthella blóði sínu fyrir bresku krúnuna. Á síðustu öld börðust ástralskir sjálfboðaliðar á vígvöllum allt frá Nýja Sjálandi til Suður-Afríku. í báðum heimsstyrjöldunum veitti áströlsk „Imperial Force“ aðstoð sína við að vinna sigur á Þjóðverj- um og bandamönnum þeirra. Af 400.000 áströlskum sjálf- boðaliðum sem tóku þátt í fyrri heimsstyrjöld voru 60.000 drepnir og 215.000 særðir. Fimmta heims- álfan lagði af mörkum 700.000 stríðsmenn til baráttunnar gegn möndulveldunum Berlín-Tókýó, en það var næstum því 10% allrar áströlsku þjóðarinnar. Eftir 1945 börðust Ástralíumenn í Kóreu, Malasíu og Norður- Borneó. Yfirvöld í Canberra héldu sig við kenninguna um að sókn sé besta vörnin. Ef hætta steðjaði að hagsmunum Ástrala skyldu þeir bægja henni frá eins langt frá heimahögunum og helst var mögu- legt, og í bandalagi við banda- menn. I Víetnam börðust Ástralir samkvæmt þessari kenningu í fyrsta sinn án Breta - og töpuðu við hlið Bandaríkjamanna. Breytt heimsmynd neyddi Ástrali til að breyta um varnarstefnu Tvenns konar heimspólitísk þróun neyddi Ástrali til að endur- skoða þessa kenningu sína. Víet- nam-áfallið dró úr vilja yfirvalda í Washington til að láta draga sig inn í fleiri svipuð ævintýri í þriðja heiminum. Þar að auki dró batn- andi sambúð austurs og vesturs á þessum áratug úr líkunum á því að ágreiningur í Suður-Kyrrahafi, sem vissulega er hernaðarlega mikilvægt, leiddi til afskipta risa- veldanna og færði Ástralíu undir beina hernaðarvernd Bandaríkj- anna. Samhliða því að fyrrum forkólf- ar andstæðra fylkinga í heiminum drógu sig í hlé greiddi það fyrir myndun nýrra valdamiðstöðva á afmörkuðum svæðum heims. Kína, Japan, Indland og nágranna- ríkið Indónesía (sem er stöðugur miðpunktur ástralskra öryggis- áhyggju og í rauninni æfingaóvin- urinn Kamaría), hafa komið sér upp möguleikum á smíði kjam- orkuvopna. Byltingar á Fidji-eyj- . um, órói á frönsku Nýju Kaledóníu og hin ótrygga framtíð bandarískra bækistöðva á Filippseyjum sýna fram á, að áliti yfirvalda í Can- berra, að uppspretta átaka færist alltaf nær þessu meginlandi sem fyrr var svo fjarri umheiminum. Til að verjast mögulegum árásar- öflum verður að kaupa vopn og hátæknibúnað að virði sem svarar yfir 25 milljörðum ástralskra doll- ara fyrir ástralska herinn, sam- kvæmt tíu ára áætlun. Á innkaupalistanum eru raf- eindanjósnatæki, m.a. þrjú ofur- ratsjártæki sem „sjá“ yfir sjón- deildarhringinn, og kosta þau samtals 500 milljónir ástralskra dollara. Jafnmikið á hver hinna átta nýju freigáta að kosta og alls fjóra milljarða dollara kosta 6 kafbátar sem pantaðir hafa verið frá Svíþjóð. Ástralir vilja ekki kjarnorkuvígbúast Hin lélega útkoma af heræf- ingunum fær hin áætluðu risavöxnu vopnakaup til að líta út sem rán- dýra stuðningsaðgerð fyrir vopna- iðnaðinn heimafyrir, sem er ætlað að kaupa mest af útbúnaðinum skv. einkaleyfi. Gagnrýnendur halda því fram að hægt sé að þjóna vamarhagsmunum Suður-Kyrra- hafsins með notuðum hergögnum. Þeirri athugasemd að „land á stærð við Bandaríkin en einungis með svipaðan íbúafjölda og New York ríki“ geti ekki varið sig án hátæknivopna er svarað á þann hátt að ríki sem nær yfir heilt meginland sé aðeins hægt að sigra í kjarnorkustríði. En Ástralir vilja ekki væðast fyrir kjarnorkustríð.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.