Tíminn - 16.02.1990, Qupperneq 15
Föstudagur 16. febrúar 1990
Tíminn 15
iiiiiiiiiihhiíiiiiiii (prúttir !1!I ..i.iJiiiiiiiFi'''' ....................................................................................................................................................................... .Niiiiiiiiiimr1 ':H!iiiniiiii!i!i:i: :ii!|iiiiiiiiiih!I|ii!1 ........................................................................................................................................................................................ iiiiniiiiiiiirni iiJiIiiiiiiiiiiiiii^ ..................................................................................................................................................................................................................... ..........................................
Island-Sviss:
Rólegt jafntefli
Svisslendingar náðu jafntefli
gegn íslendingum í handknattleiks-
landslcik í Laugardalshöll í gær-
kvöldi 22-22. Leikurinn var mjög
jafn en Sviss var einu marki yfír í
leikhléi 13-14.
Sviss gerði fyrsta markið en
ísland komst yfir 3-1, jafnt var 4-4
og áfram í öUum tölum út hálfleik-
inn. ísland komst í 16-14 í upphafi
síðari hálfleiks er Svisslendingar
skoruðu ekki í tæpar 10 mín. Jafnt
var á næstu tölum þar til ísland
komst í 21-19. island var 2 mörkum
yfir 22-20 þegar nokkrar mín. voru
til leiksloka en Svisslendingar náðu
að jafna áður en yfir lauk 22-22.
Islenska liðið virkaði mjög
þreytt í þessum leik og leiðinleg en
jafnframt árangursrík leikaðferð
Svisslendinga svæfði íslenska liðið.
Frumkvæði vantaði í sóknarleik-
inn, en vonandi tekst okkar mönn-
um betur upp í kvöld, er liðin
mætast öðru í Laugardalshöll kl.
20.00.
Markahæstur í gær var Júlíus
Jónasson með 5 mörk, öll úr vítum,
en Alfreð Gíslason gerði 4 mörk.
Hjá Svisslendingum var Jens
Meyer markahæstur með 11 mörk,
en markvörður þeirra, Hurliman
varði eins og berserkur, hátt í 20
skot þar af 10 í síðari hálfleik. BL
íslenskar getraunir:
Keppni fjögurra
haröra tippara
fram til 19. maí
Tíminn hefur í samvinnu við Is-
lenskar getraunir fengið Ijóra vana
tippara til að etja kappi einu sinni í
viku á íþróttasíðunni. AUtaf mun
sama fólkið tippa og er óhætt að
fullyrða að lesendur Tímans sem
áhuga hafa á getraunum fá liðsauka
þar sem þessi fjögur opinbera sitt
álit á úrslitum leikja.
íslenskar getraunir veita þeim ein-
staklingi vegleg verðlaun, sem stend-
ur uppi með flest rétt stig þegar
leiknum lýkur 19. maí. Verðlaunin
verða ferð á knattspyrnuleik að
eigin vali í London eða Frankfurt
næsta haust.
Þau sem tippa eru Stefán Stefáns-
son, matreiðslumaður og stórtipp-
ari, Einar Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Fylkis, Gróa Steinsdóttir hús-
móðir og Sigurður Svavarsson, yfir-
umsj ónarmaður getraunasölu Fram.
Hver tippari fær 64 raðir til um-
ráða einu sinni í viku. Það þýðir að
setja má aukamerki við sex leiki.
Sem sagt: Sex eru tvítryggðir.
Seðill þessarar viku er erfiður, en
hér að neðan er spá fjórmenning-
anna. Vegna erfiðleika við prentun
blaðsins er að þessu sinni ekki hægt
að færa leikina og spá spekinganna
inná seðlana að neðan, en framvegis
verður það að sjálfsögðu gert. Þess
í stað birtast spárnar fyrir neðan
myndirnar af getspekingunum.
íslenskar getraunir:
Teningur á 5. leik
Leik WBA og Aston Villa sem er
númer 5 á getraunaseðlinum um
helgina, hefur veríð flýtt fram til kl.
12.30 að ósk lögreglunnar í Birming-
ham, en þaðan eru bæði liðin.
Samkvæmt reglugerð um íslensk-
ar Getraunir mun eftirlitsmaður
dómsmálaráðuneytisins varpa hlut-
kesti um úrslit leiksins. Verður það
gert í leikhléi í beinni útsendingu
Ríkissjónvarpsins frá leik Oldham
og Everton, en sá leikur er númer 4
á seðlinum.
Á stöðublaði fyrir 8. leikviku
misritaðist nafn liðsins sem leikur
gegn Crystal Palace, á blaðinu stend-
ur að mótherji Palace sé Rotherham
en hið rétta er að það er Rochdale
sem mætir Palace í jjessum bikarleik.
B.P. leiðir hópleikinn með 63 stig,
TVB16 er í öðru sæti með 62 stig og
ÖSS kemur næst með 61 stig.
Stöð 2 er efst í fjölmiðlaleiknum
með 40 stig, Bylgjan hefur 36, Al-
þýðublaðið 35, Dagur 34, Morgun-
blaðið, Þjóðviljinn og Lukkulína
hafa 32, DV 31, RÚV 30 og Tíminn
27.
Leikirnir á seðlinum eru úr 5.
umferð bikarkeppninnar, og 1. og 2.
deild. Sölukerfið lokar kl. 14.55.
BL
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR17. FEB. ’90 J ffl 5 > Q TÍMINN Z z —3 > s ~3 n. DAGUR RÍKISÚTVARPIÐ BYLGJAN Z GOIS ALÞÝÐUBLAÐIÐ LUKKULÍNA SAMTALS
1 X 2
Bristol City - Cambridge 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
C. Palace - Rochdale 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
Liverpool - Southampton X 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 1 0
Oldham - Everton 2 2 2 2 X 1 1 2 2 1 3 1 6
W.B.A. - Aston Villa 2 2 X 2 2 X 2 1 X X 1 4 5
Coventry - Millwall 1 1 X 1 1 1 1 1 1 1 9 1 0
Nott. For. - Chelsea 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X 9 1 0
Sheff. Wed. - Arsenal X 2 X 2 2 X X 2 2 2 0 4 6
Blackburn - Port Vale 1 1 1 1 1 1 1 X 1 1 9 1 0
Hull - Portsmouth X X X X 2 X X 1 1 X 2 7 1
Ipswich - Leeds 2 X 2 2 2 2 2 1 X 2 1 2 7
Watford - Sunderland 1 X 2 X 1 X 1 X 2 1 4 4 2
Körfuknattleikur-Bikarkeppnin:
Létt hjá KR
og Njarðvík
gegn ÍR og Grindavík í gærkvöld
Frá Margréti Sanders Iþróttafréttaritari Tím-
ans á Suðurnesjum:
Njarðvíkingar sigruðu Grindvík-
inga í fyrrí leik liðanna í 8-liða
úrslitum bikarkeppninnar í körfu-
knattleik 100-81 í Njarðvík í gær-
kvöldi. Staðan í hálfleik 45-35.
Njarðvíkingar höfðu yfirhöndina
í byrjun 7-0 en um miðjan hálfleik-
inn komust Grindvíkingar yfir 18-19
og var það í eina skiptið í leiknum
sem Grindvíkingar voru yfir. Njarð-
víkingar juku muninn jafnt og þétt
og skildu 10 stig liðin að í hálfleik.
Njarðvíkingar héldu uppteknum
hætti í síðari hálfleik og gekk allt
upp hjá þeim. Grindvtkingar voru
eins og byrjendur í höndum Njarð-
víkinga, sem stálu knettinum hvað
eftir annað. Patrick Releford fór á
kostum í síðari hálfleik og skoraði
19 stig í fyrri hluta þess hálfleiks. Þá
voru Njarðvíkingar komnir með 22
stiga forystu 75-53. Grindvíkingar
börðust vel í lokin og náðu Njarðvík-
ingar ekki að auka þennan mun.
Bestur hjá Njarðvíkingum var
Patrick Releford, auk þess að skora
41 stig, þar af 27 í síðari hálfleik átti
hann 20 fráköst í leiknum, 14 af
þeim voru sóknarfráköst. Teitur Ör-
lygsson var góður og var það ósjald-
an sem hann náði knettinum af
Grindvíkingum. Einnig stóð Helgi
Rafnsson sig vel.
Hjá Grindavík var Guðmundur
Bragason góður og sá eini sem sýndi
sitt rétta andlit. Þetta var greinilega
ekki dagur Grindvíkinga.
Dómarar voru Kristinn Alberts-
son og Leifur Garðarsson.
KR vann með 23 stiga mun
KR-ingar unnu fremur auðveldan
sigur á ÍR-ingum í Seljaskóla 67-90
og var leikurinn mjög slakur. Sér-
staklega voru KR-ingar lélegir, en
ÍR- ingar börðust af krafti þótt við
ofurefli væri að etja.
Dómarar voru þeir Guðmundur
Stefán Maríasson og Bergur Stein-
grímsson. BL
Ert þú að hugsa um að
byggja t.d. iðnaðarhúsnæði,
verkstæði,
áhaldahús, gripahús,
bílskúr eða eitthvað annað?
Þá eigum við efnið fyrir þig.
Uppistöður, þakbitar og lang-
bönd eru valsaðir stálbitar og
allt boltað saman á byggingar-
stað. Engin suðuvinna, ekkert
timbur. Allt efni í málmgrind
galvaniserað.
BÍLALEIGA
með útibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bil á einum stað
og skila honum á öðrum
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bíla erlendis
Upplýsingai gefa:
MÁLMIÐJAN HF.
SALAN HF.
Sími 91-680640
interRent
Europcar