Tíminn - 28.02.1990, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 28. febrúar 1990
Tíminn 5
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ávarpaði þing Norðurlandaráðs:
Markmiðið verði alþjóð-
legur umhverfissánmáli
Steíngrímur Hermannsson forsætísráðherra kom víða við í
ávarpi sínu á þingi Norðurlandaráðs í gærmorgun, en
umhverfismálin voru hans megin umræðuefni. Steingrímur
ræddi þær breytingar sem átt hafa sér stað í Austur-Evrópu
að undanförnu og þá miklu megnun sem í þessum Iöndum er.
Sagði hann að öllum bæri að leggjast á eitt til að lagfæra það
ástand sem þar ríkir í mengunarmálum. Hann sagði að
Norðurlöndin ættu að beita sér af krafti fyrír alþjóðlegum
aðgerðum á sviði umhverfísmála og ætti markmiðið að vera
alþjóðlegur umhverfissáttmáli.
Þá ræddi forsætisráðherra einnig
minnkandi hernaðarumsvif í Evr-
ópu, en sagði það valda íslendingum
vonbrigðum að ekki væri enn hafin
fækkun kjarnorkuvopna í höfunum.
Um afvopnunarmál á landi sagði
hann að nú deili menn ekki lengur
um það hvort fækka eigi kjarnorku-
vopnum, heldur spyrji hve hratt er
það unnt. Ekki sé heldur lengur um
það deilt að draga eigi úr hefðbundn-
um herafla í Evrópu, heldur keppist
stórveldin við að gera tillögur um
samdrátt.
f ræðu sinni sagði forsætisráðherra
að hin hraða þróun mála í Austur-
Evrópu hafi vakið upp gífurleg við-
fangsefni sem Norðurlöndin gætu
ekki leitt hjá sér. Þau geti og ættu að
leggja sitt af mörkum til að þróun
mála í löndum A-Evrópu geti orðið
farsæl. í þessu sambandi kom hann
inn á hversu mengun væri stórt
vandamál í löndunum. „Það hefur
komið í ljós að mengun í löndum
A-Evrópu er langtum alvarlegri en
áður var talið. Slíkt ástand virðir
engin landamæri og eykur stórlega
hættu á eyðingu umhverfisins, sem
víða blasir við. Af þessu stafar mikil
hætta fyrir Norðurlöndin sjálf. Jafn-
vel þó svo væri ekki, hljóta Norður-
lönd að leggja fram þá þekkingu,
sem þau ráða yfir á sviði mengunar-
varna,“ sagði forsætisráðherra.
Hvað þetta varðar sagði hann að
íslendingar teldu sig geta lagt nokk-
uð af mörkum og benti á að íslenskir
vísindamenn hafi aflað sér miklar
þekkingar á beislun vatnsafla og
jarðvarma og í nokkrum löndum
A-Evrópu væri jarðvarmi sem nýta
megi til upphitunar, m.a. í stað
brúnkola, sem mikil mengun hlýst
af. Minnti Steingrímur á að þegar
væri hafið samstarf íslenskra
tæknimanna við nokkrar þjóðir A-
Evrópu um nýtingu jarðvarma, m.a.
til upphitunar og til undirbúnings og
framkvæmda hafi þegar verið heitið
fjármagni úrsameiginlegum norræn-
um sjóðum.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi.
Alfreð Þorsteinsson, forstjóri.
Hallur Magnússon, blaðamaður.
Áslaug Brynjólfsdóttir, fræðslu-
stjóri.
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Reykjavík:
GENGIÐ FRA
LISTA í GÆR
Á fundi Fulltrúaráðs framsókn-
arfélaganna í Reykjavík, sem hald-
inn var á Hótel Lind í gærkvöld,
var samþykktur framboðslisti
flokksins fyrir komandi borgar-
stjómarkosningar. Röðun í 15
efstu sæti listans verður sem hér
segir:
1. Sigrún Magnúsdóttir.
2. Alfreð Þorsteinsson.
3. Hallur Magnússon.
4. Áslaug Brynjólfsdóttir.
5. Ósk Aradóttir.
6. Sigurður Ingólfsson.
7. Margeir Daníelsson.
8. Arnþrúður Karlsdóttir.
9. Anna Kristinsdóttir.
10. Þorsteinn Kári Bjarnason.
11. Hafdís Harðardóttir.
12. Þór Jakobsson.
13. Edda Kjartansdóttir.
14. Sveinn Grétar Jónsson.
15. Höskuldur B. Erlingsson.
-ÁG
Einar Tjörvi Elíasson hjá Orku-
stofnun sagði í samtali við Tímann
að þessa dagana væri Virkir-Orkint
sem er sameignarfyrirtæki Orku-
stofnunar og fjölmargra íslenskra
verkfræðistofa, að leggja síðustu
hönd á hagkvæmnisathugun á um-
bótum á fjarvarmaveitum, sem
brenna brúnkolum, gasi og olíu í sjö
borgum í Ungverjalandi. Istaðþess-
ara orkugjafa kæmi jarðhiti einn og
sér eða með, sem hefði mjög góð
umhverfisáhrif og minnkaði alla
mengun, og þá loftmengun sérstak-
lega. í framhaldi verður þessi hag-
kvæmnisathugun sem ljúka á nú í
byrjun mars, lögð fyrir Norræna
fjárfestingarbankann, sem meta
mun hvort lánað verður til þessa
verkefnis. Þá er fyrirhugað að gera
sams konar hagkvæmnisathuganir
fyrir sjö aðrar borgir í Ungverja-
landi.
Fleiri lönd í A-Evrópu hafa sýnt
þessu áhuga og er Ukraína eitt
þeirra og er ekki talið ólíklegt að í
framhaldi gæti áhugi breiðst út um
Sovétríkin öll. í Úkraínu er svipuð
nýting fyrirhuguð og í Ungverja-
landi, þ.e. notkun jarðvarma til
upphitunar. Þá hefur verið rætt um
samvinnu við Tékka, sem sýnt hafa
málinu mikinn áhuga, en málin ekki
komin eins langt á veg og í Ungverja-
landi og Úkraínu. Þá hafa komið
fyrirspurnir frá Póllandi og vitað er
um áhuga Búlgara og Rúmena, en
þar er jarðvarmi til staðar.
Einar sagði að mikill áhugi væri
hjá Norðurlöndunum til að minnka
mengun. Samkvæmt athugunum
sem unnar hafa verið í Finnlandi og
Noregi er talið að um 75% allrar
mengunar á Norðurlöndum stafi af
mengun frá öðrum löndum og þar af
komi um 30 til 40% mengunar frá
A-Evrópu. Því er líklegra að minnka
megi mengun með því að aðstoða
þau lönd þar sem mengun er mikil
til að vinna bug á henni. Einar sagði
að þó megnun væri mikil við upphit-
un húsa í þessum löndum, þó væri
sú mengun ekki nema lítill hluti af
heildarmenguninni sem stafar af
þungaiðnaði og orkuframleiðslu.
„Við erum með þessu bara að að-
stoða við að ráðast á einn hluta
vandamálsins," sagði Einar. -ABÓ
Spá okkur 6.-8. sæti
SSP, veðmálafyrirtækið, sem tek-
ur við veðmálum víðsvegar í Evrópu
setur telur líkurnar á að íslendingar
verði heimsmeistarar í handknatt-
leik vera 1: 20.
Áke Johansson, handknattleiks-
sérfræðingur SSP sagði í samtali við
Tímann í gærkvöldi að Sovétmenn
væru taldir lang- líklegastir, væru
með hlutfallið 1:5.
Annars er listinn þessi:
Sovétríkin 1 : 5
Júgóslavía 1 : 8
A-Þýskaland 1 : 10
S-Kórea 1 : 15
Rúmenía 1 : 16
ísland 1 : 20
Tékkóslóvakía 1 : 20
Ungverjaland 1 : 20
Svíþjóð 1: : 25
Spánn 1: : 40
Pólland 1 : 50
Sviss 1: : 100
Frakkland 1 : 100
Alsír 1 : 300
Kúba 1 : : 300
Japan 1 : : 400
Þessi spá er byggð upp á veðmál-
um þeim er borist hafa SSP bankan-
um. Stærstu viðskiptavinirnir hvað
varðar heimsmeistaramótið í Tékkó-
slóvakíu eru frá Þýskalandi, Sviss og
Norðurlöndunum.
Hlutfallið í leiknum ísland - Spánn
er 1.5 að ísland vinni, 7.5 að jafntefli
verði og 3.4 að Spánn vinni. Sem
þýðir það að sterklega er veðjað á
sigur okkar manna. Sem dæmi má
nefna að í leiknum Sovétríkin -
Pólland er líkurnar á að Sovétríkin
vinni 1.1 en 11.0 að verði jafntefli
eða pólskur sigur.
Þegar blaðamaður Tímans vildi fá
að veðja á leik íslands og Kúbu sagði
Áke Johansson að hann það væri
ekki ekkert vit í slíku veðmáli, þar
sem líkur á íslenskum sigri væru
yfirgnæfandi. Hann hafði ekki fært
þann leik upp á töfluna og var það
svipað og með suma leik Rússanna.
-ES
Snjóflóð féll í
Norðfirði í gær
Snjóflóð féll í gær skammt frá
bænum Þrastalundi í Norðfirði,
sem er ekki langt fyrir innan Nes-
kaupstað. Snjóflóðið sleit í sundur
rafstreng til bæjarins, en keyrt
verður á varastöð þar til að viðgerð
hefur verið lokið. Þá varð jafn-
framt símasambandslaust við
Neskaupstað á tímabili ( gær,
vegna álags.
Allt athafnasvæði innst í Norð-
firði hefur verið rýmt vegna snjó-
flóðahættu, og er það á sama svæði
og féllu á snjóflóð árið 1974. í
gærkveldi var sendur út flokkur
manna til þess að taka sýni í
snjóalögum á þeim svæðum sem
talin er hætta á að snjóflóð geti
fallið ofan við hina eiginlegu
byggð. Niðurstöður úr þeim mæl-
ingum áttu að liggja fyrir seint í
gærkveldi, en út frá þeim átti að
taka ákvörðun um hvort íbúðarhús
vrAn rvmH á flp.iri stníSum. i
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í2.FL.B1985
Hinn 10. mars 1990 er níundi fasti gjaiddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 9 verður frá og með 10. mars nk. greitt sem hér segir:
__________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 3.787,40_
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabiiið
10. september 1989 til 10. mars 1990 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985
til 2844 hinn 1. mars 1990.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 9 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. mars 1990.
Reykjavík, febrúar 1990
SEÐLABANKIÍSLANDS