Tíminn - 28.02.1990, Side 7
Miðvikudagur 28. febrúar 1990
Tíminn 7
Alþjóðleg umhverfismál
llllllllllllllllllllll VETTVANGUR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllSMlilillllllllllllllllllllllllflílíBilllllllllllllllllllllllllllllllllli[llllillllllllllllllllllllllllllllll9[iaK ............Illllllll...........................Illllll...........................lllllll..........................1111......................
Dr. Þór Jakobsson:
fræðimenn skyggnast um heiminn
allan eins og Oðinn forðum og
dæma um líðan jarðar - og
mannkyns.
Þá má nefna skýrslu alþjóðlegrar
nefndar á vegum Sameinuðu þjóð-
anna um umhverfi og þróun. For-
maður nefndarinnar var þáverandi
forsætisráðherra Noregs, Gro Har-
lem Brundtland, en hin merka
skýrsla sem er könnun á gangi
íslendingar og umhverfið
Við íslendingar höfum tekið
drjúgan þátt í umræðum um nátt-
úruvernd og umhverfismál. En
hætta er á því löngum að menn tali
of mikið og geri of lítið. Nær
aldarfjórðungur er síðan stofnuð
voru umhverfisráðuneyti í öðrum
löndum. Loks er komið að því hér.
Þrautalaust hefur það ekki gengið
og íhaldssemi hefur komið í veg
fyrir að ráðuneytið verði öflugt
strax í upphafi. En mjór er mikils
vísir.
En hvað sem stjórn umhverfis-
mála líður færi vel á því að við
landar veldum okkur aðlaðandi
stað í fallegri sveit og settum þar
smám saman á laggimar miðstöð
fræðaiðkana og fræðslu um um-
hverfið og víxláhrif manns og nátt-
úru: sögu lands og þjóðar, já,
jafnvel sögu mannkyns í síbreyti-
legu og margbreytilegu landslagi
jarðarinnar. Sveitin skyldi öðrum
sveitum fremur geyma stórbrotnar
minningar um manninn og höfuð-
skepnurnar og þeirra kynni í ald-
anna rás, en staðurinn frægur sögu-
staður sem fslendingar kysu að
leggja meiri rækt við en gert er.
Þegar spurt er um þróun umhverfismála í heiminum
síðustu árin, koma fyrst upp í hugann þær gífurlegu
framfarir sem orðið hafa á jörðinni. Geimöld hefur nú
staðið í aldarfjórðung og síðasta áratuginn hefur margvísleg
tækni á sviði fjarkönnunar úr gervihnöttum (tynglingum)
séð dagsins Ijós. Fjarkönnunarmyndir af yfirborði jarðar
eru orðnar daglegt brauð á mörgum sviðum, svo sem
veðurfræði, haffræði, Iandafræði, jarðfræði og einnig við
rannsókn á jöklum, gróðurfari og mörgu fleiru.
Fjarkönnun í fræðigreinunum
sem hér eru nefndar tengjast síðan
koll af kolli ýmsum hagnýtum verk-
efnum í öðrum greinum og mætti
t.d. nefna fiskileit út frá vitneskju
manna um yfirborðshita sjávar eða
skipulagningu mannvirkja sam-
kvæmt upplýsingum sem land-
fræðingar fá með fjarkönnunar-
myndum. Geimaldarbyltingin hef-
ur því síður en svo valdið vonbrigð-
um þeim sem fást við rannsóknir á
yfirborði jarðar, gróðri, vötnum,
höfum og lofthjúpi hátt og lágt.
Eins og gefur að skilja gerist
tækjabúnaður í gervihnöttum æ
flóknari, enda eru ofangreind
rannsóknaverkefni mjög fjöl-
breytileg. Þróun og smíði skynjara
og mælitækja er í verkahring fjölda
eðlisfræðinga, verkfræðinga og
tæknifræðinga, sem bætast því í
hóp annarra vísindamanna.
Af allri þessari fjölbreytni má
ráða að líf og fjör ríkir í samskipt-
um náttúruvísindamanna og
tæknimanna sem hér koma við
sögu. Ótal ráðstefnur eru haldnar
ár hvert og sömuleiðis eru gefin út
mörg tímarit sem birta í sífellu
nýjar niðurstöður.
Vísindin og jörðin
Hin mikla þekking sem þannig
fæst með háfleygum gervihnöttum
(tynglingum) bætist við niðurstöð-
ur á mörgum vígstöðvum á jörðu
niðri. Könnun á höfum og loft-
hjúpi, gróðri og dýralífi á hnettin-
um okkar er síður en svo lokið.
Leiðangrar eru gerðir út sýknt og
heilagt, fræðilegar umræður eiga
sér stað og tölvutæknin er notuð til
hins ýtrasta, t.d. við rannsóknir á
veðurfarsbreytingum af völdum
eldgosa.
Það liggur því í augum uppi að
geysimiklar framfarir eiga sér stað
í rannsóknum á jörðinni, hinu
náttúrlega umhverfi okkar manna.
Samslungin þessu umhverfi eru
mannanna verk sem þó hafa Iöng-
um verið harla léttvæg á heims-
mælikvarða og einungis okkur í
hag. Hins vegar hafa menn upp á
síðkastið haft æ meiri áhyggjur af
mengun, nýjum efnum og gróður-
eyðingu. Getur verið að græðgi og
óvitaháttur sé að koma okkur í
koll? Erum við of mörg? Sumir eru
of fátækir. Eru aðrir of ríkir? Hvað
er til ráða? Erum við um of háð
gömlum hefðum?
Yfirleitt er gerð grein fyrir vís-
indalegum rannsóknum á torlærðu
tæknimáli „stéttarbræðra" og kem-
ur fátt af því fyrir almenningssjón-
ir. Engu að síður fær mannkynið
að njóta framfaranna um síðir -
eða gjalda þegar svo ber undir. En
mikilvægt er að minnast þess sem
hér er bent á og mönnum hefur
orðið ljósara síðasta áratuginn að
vísindin eru besta náttúruverndin.
Þekkingarleitin kemur mönnum á
sporið. Því betur sem menn rann-
saka umhverfið og þekkja það,
þeim mun færri verða mistökin og
minna um hvimleið átök baráttus-
amtaka og sljórra ráðamanna.
Hvemig er umhorfs
Auk margra rita sem koma út
um tilteknar hliðar umhverfismála
í heiminum birtast öðru hverju
yfirlitsrit um ástand mála í heild.
Má þar nefna ársrit stofnunar sem
kallast „Worldwatch Institute“,
eins konar Hliðskjálf þar sem
Oddi á Rangárvöllum.
umhverfismála í öllum hornum
heims kallast á ensku „Our Comm-
on Future“: okkar sameiginlega
framtíð.
í umræðum um umhverfismál
hefur verið af nógu að taka. Blikur
eru á lofti og víða stefnir í óefni.
Hrapalleg mistök hafa átt sér stað
sem langan tíma tekur að bæta
fyrir. Álag á landi, vötnum, skóg-
um og öðrum náttúrunnar gæðum
er meira en nokkru sinni. í eftirfar-
andi upptalningu er gripið niður í
vandræðalistann.
Græðgi og glæfraskapur
Sex milljónir hektara lands
breytast árlega í eyðimerkur. Það
samsvarar landi á borð við Saudi-
Arabíu, ef svo héldi áfram í 30 ár.
Ellefu milljónir hektarar hitabeltis-
skóga eyðast árlega. Óbreytt eyð-
ing í 30 ár jafnaðist á við stærð
Indlands. Um það bil 25 þúsund
milljón tonn af gróðurmold glatast
umfram það sem við bætist. Súrt
regn hefur herjað á gróður á þurru
landi og í vötnum Evrópu og
Norður-Ameríku. Gagnleg efni
hafa reynst til óþurftar er þau hafa
sloppið í stórum stíl út í andrúms-
loftið, eða út í vötn, höf og
grunnvatn. Grunnvatn lækkar
geigvænlega vegna æ meira þétt-
býlis og ofnotkunar. Illu heilli
Grænlandi. Værum við viðbúin
afleiðingum af harkalegum árekstri
tveggja kjarnorkuknúinna kafbáta
í grennd við Jan Mayen? Yrði ekki
erfitt að selja „geislaðan" fisk?
Þá skulu taldar aðrar hættur sem
vofa yfir og mikið hafa verið til
umræðu síðasta áratuginn meðal
vísindamanna og almennings:
myndi fimbulkaldur „kjarnorku-
vetur“ fylgja í kjölfar kjarnorku-
styrjaldar og verða þannig bræðra-
bylta stríðandi herja? Eykst meðal-
hiti á jarðarkringlunni um 1,5 til
4,5 hitagráður næstu öld vegna
svonefndra gróðurhúsaáhrifa af
völdum koltvísýringsmengunar í
andrúmslofti? Mun sjávaryfirborð
hækka á svipuðum tíma um um
það bil tvo metra? Þynnist ósonlag
háloftanna af manna völdum -
hlífðarslæðan sem lífríkið hefur
þróast við frá örófi alda? Þetta eru
spurningar sem brenna á vörum
fólks. Svör vísindamanna eru ekki
einhlít, en jafnvel þótt líkur væru
litlar hafa hugsanlegar afleiðingar
þótt geigvænlegar og ástæða til að
koma í veg fyrir þær.
Auður og örbirgð
Þannig mætti lengi telja. Nú sem
fyrr verða menn fyrir barðinu á
hamförum náttúrunnar, jarð-
skjálftum, fellibyljum, þurrkum og
flóðum. Borgir hraðbreiða úr sér
eins og krabbamein með of miklu
af því góða: fólki, bílum, verk-
smiðjum og mengun. Og svo fram-
vegis. En hver er nú talin rót alls
ills í heiminum og hver er nýjasta
afstaðan til vandræðanna?
Samkvæmt þeim skýrslum sem
vitnað var til að ofan eru helstu
orsakir umhverfiskreppu heimsins
hrikalegar staðreyndir í sjálfum
sér, sem mannkynið þarf að ráða
bót á næstu áratugi: ójöfn þróun
heimshluta, fátækt og offjölgun. í
svonefndum þróunarlöndum eru
síðastnefndu atriðin tvo samtvinn-
uð og vond viðureignar. Rótgróið
misrétti kynjanna á þar mikla sök
á. Kvenréttindabarátta er
skemmra á veg komin en hér um
slóðir. Taka má svo fil orða að böl
heimsins sé þeim að kenna sem
ráða: í fyrsta lagi ríku þjóðunum,
í öðru lagi körlum allra landa. En
mesti umhverfis- og þróunarvand-
inn er ójöfnuður með heimshlut-
um.
Ný viðhorf:
mannvistfrædi
Hver er nú hin nýja afstaða í
umhverfismálum heimsins?
í fyrsta lagi telja fræðimenn ekki
lengur nóg að fjalla um umhverfis-
kreppu eina sér, þróunarkreppu
eina sér og orkukreppu eina sér.
Hagur mannkyns og náttúran eru
svo óaðskiljanlega samfléttuð að
tengja þarf miklu meira en tíðkast
hefur hagfræði og náttúrufræði
(vistfræði).
í öðru lagi þarf að leysa málin frá
víðara sjónarhorni, „hnattrænt"
eins og komist hefur verið að orði.
Vígorð Brundtland-nefndarinnar
var: “frá einni jörð til eins heims“.
Stofnun „Bandaríkja jarðar" -
með sameiginlegum lögum, dóms-
valdi og lögreglu - er gamall fram-
tíðardraumur raunsæismanna.
Bandaríki jarðarkringlunnar eru
að vísu ekki rædd í tillögum nefnd-
arinnar, enda yrði að sönnu gagn
að hógværari fyrirætlunum í
óreiðuheimi nútímans þar sem rík-
ir yfirgangur eða einangrunar-
stefna.
verður gróður- og dýraríki enn svo
fyrir barðinu á manninum að þús-
undir tegunda deyja út árlega.
Harmleikurinn um síðasta geir-
fuglinn gengur enn fyrir fullu húsi.
Mengunarslys vekja menn upp
af værum blundi. Nefna mætti hið
áþreifanlega: t.d. Bhopal í Ind-
landi og Tsjernóbil í Sovétríkjun-
um. í önnur skipti skellur hurð
nærri hælum. Kafbátaslys átti sér
stað skammt suðvestur af Bjarnar-
ey ekki alls fyrir löngu. Þar fórust
menn, en slysið minnti líka okkur
íslendinga á að við erum síður en
svo stikkfrí. Félag íslenskra eðlis-
fræðinga gegn kjamorkuvá hefur
klifað á þessu. Munið að rússneski
kafbáturinn fórst í hafstraumskvísl
sem liggur inn í Austur-Græn-
landsstrauminn. Sá straumur veitir
um síðir vatni í Austur-íslands-
strauminn á leið sinni suður með