Tíminn - 28.02.1990, Page 13
Miðvikudagur 28. febrúar 1990
Tíminn 21
rhVIMYðð i
A
nr
Austur-Barðstrendingar
athugið
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á
Reykhólum föstudaginn 2. mars kl. 14.00.
Guðmundur G. Þórarinsson og Ólafur Þ.
Þórðarson hafa framsögu.
Allir velkomnir.
Guðmundur G.
Strandamenn athugið
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á
Hólmavík laugardaginn 3. mars kl. 14.00.
Guðmundur G. Þórarinsson og Ólafur Þ.
Þórðarson hafa framsögu.
Allir velkomnir.
Siglfirðingar
Þorarinsson
Ólafur Þ.
Þórðarson
Munið hádegisverðarfundinn á Hótel Höfn föstudaginn 2. mars.
Framsóknarmenn Siglufirði.
Framsóknarfólk Sauðárkróki
Almennur fundur að Suðurgötu 3, fimmtudaginn 1. mars n.k. kl. 20.30.
Dagskrá: Fjárhagsáætlun Sauðárkróksbæjar fyrir árið 1990.
Önnur mál.
Framsóknarfélag Sauðárkróks.
Framsóknarmenn Siglufirði
Fundur verður í nýjum fundarsal að Suðurgötu 4 í kvöld miðvikudag-
inn 28. febrúar kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Framboðsmál.
2. Fjárhagsáætlun Siglufjarðarkaupstaðar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Sovétríkin, perestrojka
og breytingarnar
í Austur-Evrópu
Fimmtudaginn 1. mars, kl. 20:30, mun Vadim
V. Vasiliev, siðameistari sendiráðs Sovétríkj-
anna, flytja erindi á íslensku um þróun og
framtíð perestrojkunnar í Sovétríkjunum.
Einnig mun hann svara fyrirspurnum.
Kristján H. Kristjánsson mun sýna litskyggn-
ur sem hann hefur tekið í Sovétríkjunum.
Fundurinn verður haldinn á efri hæð veitinga-
hússins Punktur og Pasta að Amtmannsstíg
1, Reykjavfk.
Allir velkomnir.
Félag ungra framsóknarmanna
Vadim V. Vasiliev í Reykjavík (FUF)
Viðtalstími L.F.K.
Guðrún Jóhannsdóttir, varaformaður
Landssambands Framsóknarkvenna,
verður til viðtals á skrifstofu
Framsóknarflokksins að Nóatúni 21,
þriðjudaginn 6. mars n.k. kl. 15.17.
Allir velkomnir.
L.F.K.
Guðrún Jóh.
Kópavogur - Opið hús
Opið hús alla miðvikudaga að Hamraborg 5, kl. 17-19.
Alltaf heítt á könnunni.
Framsóknarfélögin.
Laugarvatn
Árlegur stjórnmálafundur og viðtalstími þingmanna Framsóknar-
flokksins verður í kvöld miðvikudaginn 28. febr. í barnaskólanum kl.
21.00.
Vestur-Skaftafellssýsla
Árlegur stjórnmálafundur og viðtalstími þingmanna Framsóknar-
flokksins verður á eftirtöldum stöðum:
1. Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarhreppi, fimmtud. 1. mars kl. 21.00.
2. í Brydebúð, Vík, föstud. 2. mars kl. 21.00.
Jón Helgason
Guðni Ágústsson
Unnur Stefánsdóttir
Illllllllllll! SPEGILL lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllll^
Harry Hamlin vill halda í „Draumahúsið“ sitt, þó
hann skipti um konu
Skilnaðarmál kvikmyndaleikara
þykja svo sem ekki neinar stórfrétt-
ir, til þess eru þau of algeng. En
þcgar eitthvað sérstakt fylgir í
kjölfarið fara fréttamenn á kreik
og gera sér mat úr því á síður
slúðurdálka.
Eitt af mest áberandi skilnaðar-
málum í Hollywood um þessar
mundir er mál Harry Hamlins, úr
Lagakrókum, eða „L.A. Law“, og
konu hans, Lauru Johnson, sem
leikur í „Falcon Crest“.
Harry, sem ávallt hefur verið hið
mesta kvennagull, varð yfir sig
ástfanginn af Nicollette Sheredan
(úr sjónvarpsþáttunum „Knots
Landing"), en þau léku saman sl.
vor í mynd sem heitir Svikin (Dec-
eptions), og segir Laura, eiginkona
Harrys, að það nafn sé vel við hæfi.
Harry og Nicollette voru öllum
stundum saman á upptökustað og
engurn blandaðist hugur um að
þau voru ástfangin. Nicollette hætti
að vera með vini sínum, Scott
Baio, og sneri sér algjörlega að
Harry. Eftir upptöku myndarinnar
héldu þau áfram að hittast. Þá
komst eiginkonan að sambandi
þeirra og hótaði Harry að hún
myndi sækja um skilnað og lög-
sækja hann og hafa af honum
mestallar eigur hans. Vinir þeirra
segja, að henni hafi ekki verið
alvara með skilnaðinn, en hún hafi
ætlað að láta hann átta sig á
álvörunni í þessu máli.
En Harry sagðist samþykkja
skilnað, - ef hún flytti út úr húsinu
þeirra. Þá væri hann til viðtals um
aðra samninga vegna skilnaðarins.
Hann óskaði eindregið eftir því
að eiginkona færi úr „Draumahús-
inu“, eins og þau kölluðu stórhýsið
sem þau keyptu fyrir rúmu ári
síðan, en þau hafa verið gift í
fjögur ár.
Laura segir, að þegar þau fluttu
inn í húsið hafi þau látið sig
dreyma um að búa alla ævi í þessu
húsi og ala þar upp börn sín. Þeim
Lauru og Harry hafði ekki enn
orðið barna auðið. Harry á samt 9
ára son, sem hann og ástkona hans
fyrrv., Ursula Andress, eignuðust
þegar þau voru í sambúð.
„Ég flyt ekki út,“ segir Lára,
„nema að dómur falli í því máli. Ég
get ekki hugsað mér að eiginmaður
minn flytji hér inn með aðra konu,-
inn í mitt „Draumahús“ og mitt
svefnherbergi!
En Harry Hamlin er fastheldinn
á „Draumahúsið“. Hann segist
hafa látið breyta þar öllu eftir
sínum smekk og hann ætli sér að
búa í því.
Eins og er býr hann einungis í
gestaherbergi hússins síns, og held-
ur þó mest til hjá Nicollette sinni.
Nicoilette Sheridan er
yfirniáta ástfangin af
Harry og vill búa með
honum hvar sem er, -
en auðvitað helst í
„Draumahúsinu“
Eiginkonan, Laura
Johnson, situr sem
fastast í „Draumahús-
inu“ og segist alls ekki
flytja út
Rifist um „Draumahúsið“