Tíminn - 30.03.1990, Side 13
Föstudagur 30. mars 1990
Tíminn 13
-_j w**
nr
Félagsmálaskóli
Framsóknarflokksins
Jón Kristjánss.
Sigrún
Magnúsdóttir
Dagskrá:
Sunnudagur 1. apríl
Kl. 14.00 Skoðunarferð um Alþingi
starf þess og uppbygging
Jón Krístjánsson, alþingismaður
Kl. 16.00 Stjórnmál framtíðarinnar
Ísland framtíðarinnar
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra
Kl. 18.00 Afhending skírteina - skólaslit
Skráning þátttakenda fer fram í síma 91-24480 hjá
Agli Heiðari eða Pórunni Guðmundsdóttur.
Námskeiðsstaður: Nóatún 21, Reykjavík
Framsóknarvist
verður spiluð sunnudaginn 1. apríl n.k. í
Danshöllinni (Þórscafé) kl. 14.00.
Þrenn verðlaun karla og kvenna. Guðmundur
Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra flytur stutt ávarp í kaffihléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Kópavogur - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið er í fullum gangi.
Opið hús alla virka daga frá kl. 13.00-19.00 laugardaga frá kl.
10.00-13.00. Sími 41590.
Framsóknarfélögin í Kópavogi
REYKJANES
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17-19, sími 43222.
KFR.
Norðurland eystra
Skrifstofa Framsóknarflokksins Hafnarstræti 90, Akureyri er opin alla
virka daga frá kl. 16-19, sími 96-21180.
Framsóknarmenn í Borgarfirði
Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjaðarsýslu verður haldinn á
Hvanneyri (Nýja skóla) sunnudaginn 1. apríl kl. 15.00.
Á fundin mæta formaður og varaformaður kjördæmasambandsins.
Stjórnin
Framkvæmdastjórn LFK
Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna heldurfund
miðvikudaginn 4. apríl n.k. kl. 17.30 í Nóatúni 21, þar sem konur í
efstu sætum á framboðslista til sveitastjórna eru hvattar til þess að
koma og ræða málin.
LFK
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Steingrímur
Hermannsson
Guömundur
Bjarnason
■ ■
Ommu-nektarmyndir í Playboy!
Mömmur jDeirra Cher og Sly Stallone vilja vera
fyrirsætur fyrir Playboy- tímaritið
Sly Stallone og Cher eru bæði bál-
reið og hissa yfir mæðrum sínum og
nýjustu uppátækjum þeirra. Þessar
„klassapíur", 62 og 66 ára, hafa
báðar samþykkt að sitja fyrir naktar
og leyfa Playboy-ritinu að birta
myndimar!
Pær Georgia Holt, 62ja ára móðir
Cher og Jackie Stallone, hin 66 ára
móðir Sly Stallone, eru miklar vin-
konur og hafa brallað margt um æv-
ina.
Talsmaður Playboy, Bill Farley,
staðfesti það í blaðaviðtali, að verið
væri að semja við þær Jackie og Ge-
orgiu. Hann segir blaðið oft hafa
birt myndir af fáklæddum konum
yfir fimmtugt, og hafi myndimar
þótt stórgóðar.
Georgia segist hafa viðhaldið lík-
ama sínum vel og hún sé viss um að
þetta tiltæki geti orðið til þess að
konur yfir sextugt átti sig á því að
þær hafi sinn „sjarma" og eigi að
hafa áhuga á að líta vel út. Hún
bætti því reyndar við, að Cher dóttir
sín hafi fyrst rokið upp þegar hún
heyrði um fyrirhugaðar myndatök-
ur, en farið að hugsa málið og þá
sagt: „Ég get ekkert gert til að
stoppa þig, mamma - frekar en þú
hefur fengið mig til að hætta við það
sem ég hef ætlað mér í gegnum árin.
Ef þú treystir þér í þetta, þá er það í
lagi. Þetta er á þína ábyrgð."
En Jackie Stallone sagði, að þó að
Sly hafi orðið öskuillur, þá hafi son-
arsonur sinn, Sage, staðið með sér.
Hann sagði: „Amma, flestar ömmur
sem ég þekki sitja og drekka te á
daginn, eða pijóna og horfa á sjón-
varpið, - en þú ert alltaf að gera eitt-
hvað skemmtilcgt!"
Paul Bloch, blaðafulltrúi Sly Stall-
one, var spurður hvað væri hæft í
því að Jackie, móðir leikarans, ætl-
aði að sitja fyrir á nektarmyndum
fyrir Playboy. Hann svaraði: „Við
segjum ekkert um málið. Spyrjið
mig um allt annað en þetta!“
Það er víst aðeins eitt sem erfiðlega
gengur að semja um, - og það eru
pcningagreiðslur til fyrirsætanna
sextugu (og rúmlega það). Sagt er
að Playboy hafi boðið 50.000 doll-
ara, en Georgia heimtar 100.000
dollara. Jackie fer fram á 400.000
dollara. „Ég er þó alltaf móðir Ram-
bós!“ segir hún.
Stallone er reiður
Jackie Stallone hefur gert margt í
lífinu. Hún hefur t.d. unnið fyrir
sér með stjörnuspám og verið um-
boðsmaður fyrir fjölbragöa-
glímukappa! Henni finnst það
ekkert mál að sitja fyrir fáklædd,
en segir að myndirnar verði að
vera smekklegar og hún vilji hafa
falleg ökklabönd úr gulli eða með
rínarsteinum. Jackie er þegar far-
in að þjálfa sig fyrir myndatök-
urnar og er hér í æfingum með
sippuband
Georgia Holt og dóttir hennar,
Cher, sem er í uppnámi yfir uppá-
tæki móður sinnar