Tíminn - 07.04.1990, Side 7
Laugardagur 7. apríl 1990
HELGIN
15
Þeir kalla
ekki allt
ömmu sína
Lethal Weapon 2:
Stjömugjöf:###1/2
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny
Glover, Joe Pesci, Joss ackland,
Derrick O'cnnor og Patsy Kensit
Leikstjóri: Richard Donner.
Þeir eru mættir aftur félagarnir
Riggs og Murtaugh, í þessari há-
spennumynd, sem lætur engan
ósvikinn, er á annað borð hefur
gaman af hröðum spennumyndum.
Þeim félögum er falið að gæta lyk-
ilvitnis sem er skotmark útsendara
eiturlyfjahrings, er vitnið hefur haft
fé af. Þeim félögum finnst sem þeir
séu að vinna verk sem er neðan
þeirra virðingar og vandalítið, en
annað kemur á daginn. Inn í þessa
atburðarás fléttast að félagarnir
Riggs og Murtaugh eiga að uppræta
eiturlyíjasamtök sem stjómað er af
vægðarlausum suður-afrískum
stjórnarerindreka er nýtir sér frið-
helgi sendiráðsmannsins til að hvít-
þvo illa fengið fé. Tvíeykið kallar
hins vegar ekki allt ömmu sína og
lætur til skara skríða.
Eins og áður sagði eru félagamir
Riggs og Murtaugh mættir hér í
sinni annarri mynd, er ber sama
heiti. Mynd númer tvö gefur hinni
fyrri ekkert eftir, enda tekst þeim fé-
lögum vel upp i hlutverkum sínum á
rólyndum heimilisfóður og rótlaus-
um einbúa, sem saman koma vondu
mönnunum bak við lás og slá. Láttu
þetta myndband ekki fram hjá þér
fara, ef þú á annað borð hefur dálæti
á spennu. —ABÓ
Notaðu AKEA
með öðru úrvals hráefni....
ogútkoman verður frábær!
Súkkulaðiterta með rommkremi
Léttþeytið 70 g AKRA smjörlíki, 90 g sykur,
90 g púðursykur og 3 egg.
Hrærið saman við 150 g hveiti, V2 tsk.
natron, 2 tsk. salt, 25 g kakó og 150 g mjólk.
Bakið við 190°C í 20 mínútur.
Rommkrem
Hrærið saman 50 g kakó, 500 g flórsykur og
350 g AKRA smjörlíki og bætið í
rommdropum eftir smekk. Skreytið kökuna.
Verði ykkur að góðu!
SMJÖRLÍKISGERÐ
Akureyri
Hjartahlý vinnukona
og ráðvilltur drengur
Clara’s heart:
Stjömugjöf =###
Aðalhlutverk: Whoopi Goldberg, Niel
Patrick Harrís, Micael Ontkean, Kat-
hleen Quinlan,, Spalding Gray, Be-
veriy Todd.
Leikstjórí: Robet Mulligan
Hér er á ferðinni ágætis fjölskyldu-
mynd, sem er hvort tveggja í senn
hugljúf og ágætlega spennandi.
Sagan segir frá ungum dreng og
fjölskyldu hans og hefst myndi á
því að lítil systir drengsins deyr
vöggudauða sem hefur i for með sér
ýmis tilfinningaleg vandamál fyrir
móðurina og hefur áhrif á hjóna-
band foreldranna.
Upp úr því kemur ný bamfóstra
eða vinnukona inn á heimilið, en
hér er á ferðinni vel stætt fólk, og á
sú barnfóstra eftir að marka djúp
spor í líf hins unga drengs. Vinnu-
konan, Clara Mayfield, sem leikin
er listavel af Whoopi Goldberg,
kemur frá Jamaica á sér mjög dular-
fulla fortíð og þrátt fyrir ótrúlega
afskiptasemi á heimilinu binst hún
móðurinni og drengnum sterkum
böndum.
Síðan greinir myndin einkum frá
samskiptum drengsins og vinnu-
konunnar, en þau verða brátt mjög
þýðingarmikil fyrir þau bæði, ekki
síst vegna þess að foreldramir virð-
ast nokkuð upptekin af sínum eigin
persónulegu vandamálum.
Allur leikur í myndinni er mjög
góður og spaugilegum köflum flétt-
að inn í atburðarásina. Whoopi
Goldberg er orðin heimsþekkt fyrir
leik sinn í myndinni Colour Purple
og því óþarfi að íjölyrða um leik-
hæfileika hennar, en Niel Patrik
Harris, sem leikur drenginn er ef-
laust upprennandi bamastjama, því
hann kemst mjög vel frá sinu.
Myndin i heild er góð og óhætt að
mæla með henni þó í einstaka atrið-
um sé farið yfir mörkin og væmnin
geri vart við sig.
WVRNER
stars in hermosl
compassionate
pcrlórmance since
‘The Color Purple