Tíminn - 11.04.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.04.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn Miðvikudagur 11. apríl 1990 Nýja férjan er glæsilegur farkostur. Páll Helgason stefnir að því að opna veitingastað á floti innan fárra ára. Tímamynd Pjetur Ferðamannaiðnaðurinn í Vestmannaeyjum kominn á nýtt plan: Ný ferja til Eyja í gær afhenti Bátasmiðja Guðmundar Páli Helgasyni, ferða- málafrömuði frá Vestmannaeyjum, nýja ferju. Ferjan, sem hlot- ið hefur nafnið P H Víking, verður í kynnisferðum við Vest- mannaeyjar. Fyrsta ferðin verður farin fljótlega eftir páska. Skipið tekur um 50 farþega og kostaði fuilbúið um 18 milljónir króna. Samtak hf. sá um að smíða og breyta skrokk ferjunnar. Sigurður Karlsson, hugvitsmaður, sá um að hanna ferjuna. Bátasmiðja Guð- mundar sá síðan um að fullgera hana. Við afhendingu bátsins þakk- aði Páll Helgason Bátasmiðjunni sér- staklega fyrir gott skip. Hann sagðist hafa krafíst þess, að báturinn yrði til- búinn 10. apríl klukkan tvö eftir há- degi. „Nú er klukkan sjö mínútur yfir tvö og báturinn er tilbúinn.“ Páll íjármagnaði smíði bátsins með sölu eigna, en hann hefur verið viðr- iðinn ferðamennsku í Vestmannaeyj- um í mörg ár. Synir Páls munu sjá um að sigla bátnum. P H Víking verður einkum notaður í að sigla með ferðamenn við Vest- mannaeyjar, en húgsanlegt er, að bát- urinn verði eitthvað í förum milli lands og eyjar. Búist er við að nýi báturinn fari í sína fyrstu ferð frá Vestmannaeyjum fljótlega eftir páska. Reiknað er með hann verði í rekstri allt árið. Páll er þegar farinn að leggja drög að nýjum áfanga í ferðamannaiðnaði Vestmannaeyinga. Hann segist vona, að eftir eitt til tvö ár geti hann opnað veitingastað inn í Klettsvík í Vest- mannaeyjum. Hugmyndin er að hafa veitingastaðinn á floti. Ef af verður mun staðurinn vera opinn frá 1. maí til 30. september úti á víkinni. Yfir vetrartímann yrði veitingastaðnum komið fyrir á landi. Hann yrði því rekinn allt árið. Páll sagðist ekki vera búinn að ákveða, hvaða dag veitinga- staðurinn verður opnaður, en teikn- ingar af staðnum munu liggja fyrir mjög fljótlega. -EÓ Tugir þúsunda á ferð um páskana Miklir fólksflutningar fara fram innanlands um páskana. Flugvélar Flugleiða, Arnarflugs og annarra flugfélaga verða á ferðinni frá morgni til kvölds. Búist er við að um 5000 manns taki sér far með rútum um páskahelgina. Þá má búast við mikilli bílaumferð um þessa fyrstu „ferðahelgi" ársins. Frá Umferðarmiðstöðinni eru um 40- 60 brottfarir og komur frá kl. 8 að morgni til kl. 22:30 að kvöldi. Á skírdag verður ekið á öllum leiðum samkvæmt áætlun, en á fostudaginn langa og páskadag eru engar ferðir á lengri leiðum, en ekið á styttri leið- um samkvæmt stórhátíðaráætlun. Á annan í páskum er ekið samkvæmt sunnudagsáætlun á flestum sérleyf- um og aukaferðum gjaman bætt við. Allar nánari upplýsingar um akstur sérleyfisbifreiða um páskana veitir BSÍ-Umferðarmiðstöðin í síma 91- 22300. Uppselt er að verða í flestar ferðir hjá flugfélögunum. Flogið er á alla staði ef veður og færð leyfa. Aur- bleyta á flugvöllum hefúr sums stað- ar verið til vandræða. Hjá Amarflugi innanlands er allt að verða uppselt og búist er við að þar verði flogið með vel á annað þúsund manns um páskahelgina. Ekki liggja fyrir tölur hjá Flugleiðum um áætlaðan far- þegafjölda um páskana. Þar var í gær hægt að fá sæti til allflestra staða. Flugvélar félagsins verða á ferðinni frá morgni til kvölds. Páskar eru fyrsta „ferðahelgi" árs- ins. Umferðarráð minnir vegfarend- ur á, að þrátt fyrir að komið er ffam í miðjan apríl er enn allra veðra von og ástand vega er víða slæmt. Að ýmsu þarf að huga áður en lagt er af stað í langferðir. Skófla, keðjur, dráttartaug og nauðsynlegir vara- hlutir em meðal þess sem sjálfsagt er að hafa með. Ekki má heldur gleyma að láta vita um ferðaáætlun. Umferðarráð minnir vélsleðamenn á að fara varlega sem og aðra öku- menn. Búast má við mikilli umferð í kringum skíðasvæðin og því er betra fýrir skíðaunnendur að gefa sér næg- an tíma til að komast á milli staða. -EÓ Menntamálaráðuneytið: Nefhd skipuð um skoðanakannanir Svavar Gestsson menntamálaráð- herra hefur skipað nefnd til að kanna hvort rétt er að setja lög eða koma á reglum um skoðanakann- anir. Fyrir nærri tveimur árum síð- an samþykkti Alþingi að fela rikis- stjóminni að skipa nefnd til þessa verkefnis. Nefndin á jafnframt að kanna hvort nægilegt er að koma á sam- starfi milli þeirra sem gera skoð- anakannanir um starfs- og siðaregl- ur. Nefndinni er ætlað að ljúka störfum fyrir næstu áramót. Nefndin er þannig skipuð: Ólafúr Þ. Harðarson lektor, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Elías Héðinsson félagsfræðingur, Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri, Gunnar Maack framkvæmdastjóri, Hilmar Þór Hafsteinsson kennari, Ólafur Örn Haraldsson fram- kvæmdastjóri og Páll Skúlason prófessor. -EÓ AÐALFIINDIIR Aðalfundur Verslunarbanka íslands hf. verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu laugardaginn 28. apríl 1990 og hefst kl. 13-30. Dagskrá: j Aðalfundarstörf samkvæmt 33- grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3- Tillaga að nýjum samþykktum fyrir félagið. 4. Önnur mál löglega fram borin. Reykjavík, 3- apríl 1990. Verslunarbanki íslands hf. UéRSLUNflRBflNKINN 400 manna ráðstefna um hlutverk leikskólans í nútíð og framtíð: LEIKSKOLIVERÐI FYRIR ÖLL BÖRN Selma Dóra Þorsteinsdóttir formaður Fóstmfélags íslands stendur hér við myndir eftir böm á leikskólum, en sýning á verkum þeirra var sett upp í tengsl- um viö ráðstefnuna. Timamynd Ámi Bjama Fóstrufélag Islands gekkst fýrir op- inni ráðstefhu dagana 5. til 7. apríl sl., um uppeldi og menntun for- skólabama og hlutverk leikskólans í nútíð og framtíð. Mikið fjölmenni var á ráðstefriunni, en hana sóttu um 400 manns, en auk fóstra sendu um 40 sveitarfélög fulitrúa sína á ráðstefnuna. Selma Dóra Þorsteinsdóttir fbrmaður Fóstrufé- lags fslands sagði í samtali við Tímann, að megintilgangurinn með ráðstefnunni væri að skoða, hver væri staða leikskólans; hvar emm við stödd og hvert viljum við stefria. Selma Dóra sagðist aðspurð sjá leik- skólann íyrir sér í framtíðinni sem leikskóla fyrir öll börn, það væri grundvallaratriði. í annan stað sagði hún, að þar færi ffam starf sem gæfi bömunum tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefnaval undir hand- leiðslu fólks, sem veit hvað það er að gera. Selma Dóra sagði, að á ráðstefnunni hafi það komið mjög skýrt fram að málaflokkurinn, þ.e. leikskólinn væri menntamál. „Að mínu áliti er þá verið að tala um ffamtíðarleikskólann hér, leikskóla sem á að vera fýrir öll böm svo ffemi sem foreldrar óski þess. Við höfúm lagt áherslu á það í Fóstrufé- laginu, að það era foreldrar sem velja, en þeir verða þá að hafa möguleika til að velja. Þar af leiðandi þarf að hraða uppbyggingu, en jafnffamt að mennta fleiri fóstrar," sagði Selma Dóra. Hún sagði að andrúmsloítið á ráð- stefnunni hafi gefið það til kynna, að krafa nútímans sé sú að leikskólinn verði áfram hluti af menntakerfinu, verði fyrsti skóli bamsins og að sveit- arfélögum sé nú falið að sjá til þess að öll böm fái þennan leikskóla. „Það er langtimamarkmið og að því ætlum við að vinna saman,“ sagði Selma Dóra. Rrafan um betur menntað starfsfólk leikskóla sagði Selma Dóra að hafi komið mjög greinilega fram í fyrir- lestrunum og í ávarpi menntamálaráð- herra við setningu ráðstefúunnar. Rúmlega 1200 fóstrur hafa Iokið fóstranámi og eru útskrifaðar, en af þeim era um það bil 70% þeirra við störf. Selma Dóra sagði að til að sinna lágmarkskröfum, þ.e. ein fóstra á deild, ein yfirfóstra, einn forstöðumað- ur o.s.frv., vantaði að lágmarki 400 til 500 fóstrur. Selma Dóra sagði að það sem þyrfti að gera, væri að sveitar- stjórnir og menntamálaráðuneytið, sem fer með yfirstjóm faglegra mála, hvað leikskólanum viðkemur, taki höndum saman og marki stefnu í leik- skólamálunum. Hún sagði að sveitar- stjómir hefðu mikinn metnað gagnvart leikskólunum og vilji sýna að þeir ætli að standa sig. „Það eina sem við erum áhyggjufúll yfir er að lítil sveitarfélög hafi ekki bolmagn til að reka leik- skóla. Það þarf að finna fjármögnunar- leiðir fyrir þau. En ég held að metnað- urinn sé fyrir hendi í sveitarfélögun- um,“ sagði Selma Dóra. —ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.