Tíminn - 21.04.1990, Blaðsíða 12
24 Tíminn
Laugardagur 21. apríl 1990
ri.ví\r\iKi i Hnr
Létt spjall á laugardegi
Framtíð Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi
Sigrún Magnúsdóttir og Alfreð Þorsteinsson, efstu menn á B-listanum
ræða málefni Áburðarverksmiðjunnar á fundi sem haldinn verður í
dag kl. 10.30 að Grensásvegi 44, (áður húsnæði Taflfélags Reykjavík-
ur).
Lögreglustjórinn í Reykjavík Böðvar Bragason mætir og svarar
fyrirspurnum um almannavarnir.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Alfreð
Þorsteinsson
Böðvar
Bragason
Sigrún
Magnúsdóttir
Konur - sveitarstjórnarkosningar
Magnúsdóttir Brynjólfsdóttir Kjartansdóttir Friðleifsdóitir
Komið í súpu og grænmeti að Grensásvegi 44 mánudaginn 23. apríl
kl. 12.00 til að spjalla um stöðu mála.
Meðal þeirra sem koma eru Sigrún Magnúsdóttir, Áslaug Brynjólfs-
dóttir, Inga Þyri Kjartansdóttir og Siv Friðleifsdóttir.
LFK.
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð sunnudaginn
22. apríl kl. 14.00 í Danshöllinni (Þórscafé).
Þrenn verðlaun karla og kvenna.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt
ávarp í kaffihléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Sigrún Magnúsd.
Alexander Stefansson Davíð Aðalsteinsson EgillHeiðar
Framsóknarfélag Borgarness
Aðalfundur
Fundurinn verður haldinn í Framsóknarhúsinu, Brákarbraut 1,
miðvikudaginn 25. apríl og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ávörp gesta.
3. Umræður.
Á fundinn mæta þingmaður og varaþingmaður kjördæmisins og
erindreki Framsóknarflokksins.
Framsóknarfélag Borgarness
Keflavík
Almennnur fundur um kosningastarfið verður haldinn í Félagsheimil-
inu, Hafnargötu 62, laugardaginn 21. apríl kl. 11.00.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Miðstjórnarfundur S.U.F.
Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald-
inn að Grensásvegi 44 Reykjavík föstudaginn 27. apríl 1990 og hefst
kl. 17.30.
Miðstjórnarmenn S.U.F. og frambjóðendur á S.U.F. aldri eru hvattir
til að mæta.
Framkvæmdastjórn S.U.F.
MINNING ....................................................................................Illllllll.........III
Andrés Kristjánsson
Andrés á ristjórastóli Tímans. Tímamynd: G.E.
Þó að ég væri nokkru elstur okkar
sem vorum samtímis blaðamenn
Tímans fyrir 40 árum hlýt ég að sjá
þeim á bak hverjum af öðrum. Sá er
jafnan hlutur þeirra sem háum aldri
ná. Söknuður og eftirsjá fylgir þeim
örlögum.
Óhætt mun að segja að þeir And-
rés Kristjánsson og Jón Helgason
hafi haft þau tök á íslensku máli að
ekki hafi aðrir í blaðamannastétt
gert betur um þeirra daga eða síðan.
Þeirri íþrótt fylgdu svo mannkostir
sem gott var að njóta. Og svo eru
málin samofin að þegar ég kveð
Andrésermér Jón Helgason íhuga.
Síðar áttum við Andrés samleið
þegar við vorum um átta ára skeið
fulltrúar Framsóknarflokksins í út-
hlutunarnefnd listamannalauna. það
er ekki sérstakur vegur til vinsælda
að gegna slíkri þjónustu. Listamönn-
um mörgum finnst að seint verði
þeim sýndur sómi umfram það sem
maklegt er og lítil ástæða til að
þakka það sem var sjálfsagt. í slt'kri
stöðu verður því mest um vert að
komast hjá „ósátt við sinn innri
mann“.
Mér fannst Andrés ágætur sam-
starfsmaður í úthlutunarnefnd. Við
höfðum yfirleitt áþekkan smekk og
lögðum okkur hvor að öðrum þegar
gera varð upp á milli manna sem
okkur fannst standa nokkuð jafnfæt-
is. Oft fannst okkur að við fengjum
fáu að ráða þar sem til átaka kom.
Þó vildum við ekki eiga hlut að
föstum meirihluta í nefndinni þannig
að minnihlutamenn kæmu engu fram
nema meirihlutinn leyfði. Þetta
nefni ég hér því að ég virti það
hollustu við grundvöll lýðræðis að
Andrés vildi ekki eiga hlut að slíkum
vinnubrögðum. Sú var lífsskoðun
hans og hann var jafnan trúr lífs-
skoðun sinni.
í pólitískum sviptingum hefur mér
stundum fundist að einstakir tnenn
reyndu að mikla fyrir sér og öðrum
málefnalegan ágreining vegna þess
að þeir sætta sig ekki við þau metorð
og völd sem jseim eru ætluð. Það
náði ekki til Andrésar. Þegar hann
vék frá stuðningi við flokk sinn var
það vegna þess að honum þótti
flokkurinn sætta sig við of lítinn hlut
fyrir hina pólitísku lífsskoðun og
stefnu sem til grundvallar lá. Stjórn-
málaafskipti hans lutu lífsskoðun og
voru þjónusta hugsjónamanns.
Vegna samstarfs okkar í úthlutun-
arnefnd, auk annars kunningsskap-
ar, átti ég stundum leið heim til hans
á Digranesveg 107 þar sem var gott
og skemmtilegt heimili hans og Þor-
gerðar Kolbeinsdóttur og fjölskyldu
þeirra. Leyndist ekki þeim er þar
kom að Andrés var mikill heimilis-
j-j" TÖLVUNOTENDUR -
Víð í Prentsmiðjunní Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur Linda Jónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavík Guðríður Waage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Ingvi Jón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
fsafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavík ElisabetPálsdóttir Borgarbrautá 95-3132
Hvammstangi FriðbjörnNíelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311
Siglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hliðarveig46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg 18 96-24275
skrifstofa Skipagata 13 (austan) 96-27890
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Sveinbjörn Lund Brúargerði 14 96-41037
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aðalbraut60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Viglundsdóttir Kolbeinsgötu44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi7 97-21136
Neskaupstaður BirkirStefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Djúpivogur Jón Biörnsson Borgarlandi21 97-88962
Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut16A 97-81796
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Jón Ólafur Kjartansson Eyjaseli 2 98-31293
Laugarvatn Halldór Benjam i nsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur JónínaogÁrnýJóna Króktún 17 98-78335
Vík Ingi MárBjörnsson Ránarbraut9 98-71122
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
faðir - trúr lífsstefnu sinni þar sem
annars staðar.
Vinir og samferðamenn kveðja
Andrés Kristjánsson með söknuði.
Víst er tómlegra að vita hann ekki
lengur á sínum stað og mikill er
missir fjölskyldunnar. En á skilnað-
arstundinni mun sumum þó vera í
huga að gott sé að fá að kveðja
þennan heim án þess að hafa misst
ráð og rænu eða þolað langvinna
kröm, þó að nú hafi of snemma verið
kallað.
H.Kr.
BÆKUR
Reiðilestur: Alnæmi
í algleymi
Randy Shilts:
And the Band Played On, 630 bls.,
Penguin Books, 8,95 pund.
Um hættuna á alnæmi greinir
menn á. Annars vegar er alnæmi líkt
við sýfilis áður en lyf gegn honum
fannst. Hins vegar er alnæmi líkt við
svarta dauða. Lítur höfundur þessar-
ar bókar alnæmi dökkum augum og
er ekki myrkur í máli.
„Það er beiskur sannleikur að
alnæmi gróf ekki aðeins um sig í
Bandaríkjunum - ýmsar stofnanir,
sem allar leiddu hjá sér að rækja
tilskilin störf sín við heilsugæslu,
létu það grafa um sig. Af þeirri
vanrækslu „kerfisins" hlutust eftir-
köst sem Vesturlönd munu gjalda
um áratugi. En frá 1980, j)egar
samkynhneigt fólk fór að taka ók-
ennilega og framandi kvilla, liðu 5 ár
þangað til allar þessar stofnanir -
læknar, heilsugæsla, rannsóknastof-
ur ríkis og einkafyrirtækja, fjölmiðl-
ar og forystumenn samtaka samkyn-
hneigðra - brugðust við eins og þeim
bar gagnvart hættu. Saga alnæmis í
Bandaríkjunum þau 5 ár er saga
óviðhlítandi landsviðbragða and-
spænis fáeinum óþörfum dauðsföll-
Akranes
Fundur hjá fulltrúaráði framsóknarfélaganna Akranesi verður haldinn
laugardaginn 21. apríl kl. 10.30 í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut.
Fulltrúar mætið tímanlega.
Stjórn fulltrúaráðsins.
um.“
Randy Shilts er blaðamaður. í
viðtölum við hundruð manna víðs
vegar um Bandaríkin leitaðist hann
við að rekja alnæmi þarlendis til
„upptaka" sinna. Bók hans er afrek
í blaðamennsku, hvað sem öðru
líður, og er bráðlæsileg.
Rýnir