Tíminn - 26.04.1990, Qupperneq 3
Fimmtudagur 26. apríl 1990
Tíminn 3
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar.
-r v SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
VELAR
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
JJöt unn tiC Ciðs við þig
Áhugaverð ferð í byrjun júní:
Bændaferð til
Skotlands
Flugferðir, Sólarflug gengst fyrir
bændaferð til Skotlands og Orkneyja
í júní í samvinnu við ferðaþjónustu
bænda í Skotlandi. Gist verður
nokkrar nætur hjá skoskum
bændum, sem reka fjölbreytta ferða-
þjónustu af ýmsu tagi.
Ekið verður um hin fögru vatna-
héruð Skotlands. Leiðin liggur um
blómleg landbúnaðarhéruð og heim-
sóttir ýmsir sögufrægir skoskir bæir
og þorp. Farið verður til Inverness,
þar sem bændur reka umfangsmikla
ferðaþjónustu, en þar er einnig mikil
silungs og laxveiði. Síðan liggur
leiðin til Norður-Skotlands, en frá
Katanesi er farið yfir sundið til
Orkneyja. Gist verður í Kirkwall og
eyjarnar skoðaðar, m.a. fomminjar
frá dögum sögualdar en á þeim tíma
komu Orkneyjar mikið við sögu
íslands. Ferðalok verða í Edinborg.
Það er ferðaþjónusta bænda í
Skotlandi sem hefur veg og vanda af
ferðinni og skipuleggur fjölbreytta
kynningu á lífi og störfum bænda.
Heimsótt verða bændabýli sem
rækta holdanaut af sama stofni og
ræktuð eru í Hrísey. Farið verður á
uppboðsmarkað húsdýra og heim-
sótt verða áburðarverksmiðja,
bændaskóli, tilraunabú og whisky-
verksmiðja en sú afurð telst til
landbúnaðarafurða.
Ferðalöngum gefst tækifæri til að
kynnast af eigi raun umfangsmikilli
ræktun eldisfiska í vötnum og fjörð-
um og markaðssetningu þeirra.
Nánari upplýsingar um ferðina
fást í síma 91-15331. -EÓ
fjilawrap rúllupökkunarvélar
Arnarflug stendur enn frammi
fyrir þrengingum því að hafi félagið
ekki staðið skila á flugvallarskatti
fyrir næstu mánaðamót verður rekst-
ur félagsins stöðvaður. Um 3,2 millj-
ónir króna mun vera að ræða.
„Ég bað lögregluna að loka hjá
þeim vegna þess að þeir innheimta
þennan skatt fyrir ríkissjóð og hafa
ekki heimild til að ráðstafa honum
sjálfir. Það varð að sammæli milli
mín og lögreglustjóra að félagið
hefði frest til 30. apríl. Verði þeir
ekki búnir að gera að fullu upp þá,
verður rekstur þess stöðvaður,"
sagði flugmálastjóri.
Svipuðu máli gegnir með flugvall-
arskatt og söluskatt. Flugfélögin inn-
heimta skattinn við sölu farmiða og
eiga að standa skila á honum fyrir
15. hvers mánaðar eftir flugið til
embættis flugmálastjóra.
Flugmálastjóri sagði í samtali við
Tímann að Arnarflug væri ekki farið
að greiða neitt af skattinum ennþá.
Ekki væri hægt að semja um greiðslu
hans frekar og ekki yrði um að ræða
að greiða hann með víxlum eða
skuldabréfum af nokkru tagi - að-
eins í reiðufé.
Tíminn fékk ekki uppgefið hve-
nær Arnarflug mun gera upp skuld
sína en fjármálastjóri fyrirtækisins
sagði að það yrði gert fyrir mánaðar-
lok, annað kæmi blaðamanni ekki
við. -sá
Útigangsgeml ingar
Eins og við greindum frá á komnirgemlingarnirvoruoghefðu
dögunum fundurst þrír útigengnir einhvemtíma þótt vel fram gengnir
gemlingar fyrir ofan bæinn Hrúts- af húsi, ull farin að losna frá hálsi
holt í Eyjahreppi á annan dag ogtalsvert hornahlaup. Hérmásjá
páska. Gemlingana á Halldór bræðurna Magnús og Helga Guð-
hreppstjóri Jónsson á Þverá. Það jónssyni,bænduríHrútsholti,með
þótti tíðindum sæta hversu vel á sig gemlingana.
Tfmamynd Árni BJarna
Myndlistarsýning
í Búnaðarbanka
Um helgina var opnuð myndlist- tækifæri flutti Guðni Ágústsson,
arsýning á vegum Búnaðarbanka alþingismaður og formaður banka-
íslands að Kjarvalsstöðum í tilefni ráðs Búnaðarbankans, stutt ávarp.
af 60 ára afmæli bankans. Við það Sýningineropinkl. 11-18til 6. maí.
frá UNDERHAUG
Á aðeins örfáum árum hefur SILAWRAP
rúllu-
pökkun-
arvélin
valdið
byltingu í
pökkun
þurrheys
og vot-
heys og
eru nú í
notkun
yfir 9000
vélar víða
um heim
og fer stöðugt f jölgandi, enda er hún ein eftirsóttasta
pökkunarvélin á markaðnum.
ffilawrap
er langmest selda pökkunarvélin á íslandi.
SHawrap Viðurkennd hágæða vara.
Reynd á Hvanneyri og mörgum öðrum slíkum
stofnunum víða um heim.
Vélarnar eru tengdar á þrítengi eða dregnar.
Fást í ýmsum útfærslum.
Greiði Arnarflug ekki vangreiddan flugvallarskatt verður
reksturinn stöðvaður 30. apríl:
Verða 3,2 millj.
kr. banabitinn?