Tíminn - 26.04.1990, Page 7
Fimmtudagur 26. apríl 1990
Tíminn 7
Einar Hermannsson:
MAKALAUS SKRIF
Tilefiii bréfs þessa er að mótmæla
þeim skrifum sem blaðamaður yðar
O.Ó. lét ffá sér fara í dálkinum „Vítt
og breitt“ í blaði yðar 12. april sl. Þar
notar blaðamaðurinn hið hörmulega
slys í farþegafeijunni „Scandinavian
Star“ til að koma á ffamfæri skoðun-
um sínum á alþjóðlegri kaupskipaút-
gerð og á óbeinan hátt vænir íslensk-
ar kaupskipaútgerðir um að
undirbúa rekstur skipa sinna á óá-
byrgan hátt undir öðrum þjóðfánum.
Skrif O.Ó. bera vott um algjört
kunnáttuleysi á málefhum kaup-
skipaútgerðarinnar og eru jafhvel
einfoldustu málsatriði viðvíkjandi
slysinu í „Scandinavian Star“ rang-
færð, þótt þorra almennings séu þau
ljós í kjölfar mikillar umíjöllunar í
öðrum fjölmiðlum.
Það hefur verið skoðun íslensku
kaupskipaútgerðarinnar sem og
flestra landsmanna að sú skylda hvíli
á blaðamönnum að flytja sem sann-
astar fféttir og draga ekki ályktanir
af þeim nema þeir hafi til þess kunn-
áttu eða leiti eftir áliti ffóðra aðila
um málefhið. Umrædd ffétt virðist
hins vegar samin að geðþótta við-
komandi, án þess að hirða um stað-
reyndimar og í þeim tilgangi einum
að koma á framfæri skoðunum sem
ekki eiga við rök að styðjast.
Hvað viðvíkur einföldustu stað-
reyndunum um slysið í „Scandin-
avian Star“, þá hefur það alls staðar
komið fram að skipið var í eigu
danskra aðila, en ekki norskra og
einnig það að það var yfirvélstjóri
skipsins en ekki skipstjórinn sem
taldi störf sænsku slökkviliðsmann-
anna hafa magnað eldinn ffemur en
dregið úr honum. Ahöfh skipsins
var að hluta Filipseyingar en ekki
„malajar".
Fullyrðingar blaðamannsins um að
skip skráð undir Bahama-, Líberíu-
og Panamafánum séu undanþegin
ákvæðum um lágmarksöryggi og
mannréttindi áhafnar eru byggðar á
fullkominni vankunnáttu hans á
málefhinu. Hið rétta er að öll þessi
lönd eru aðilar að öllum helstu al-
þjóðasamþykktum um byggingu
skipa, búnað þeirra og siglingar.
Þannig ber skipum þessara þjóða að
uppfylla þau sömu skilyrði og kröf-
ur og gerðar eru til skipa hérlendis
og í nágrannalöndunum. Eftirlit
með öryggiskröfum skipa hefur á
síðustu árum færst í æ rikari mæli í
hendur sn. flokkunarfélaga í umboði
viðkomandi skráningarrikja og er
því eftirlitið orðið í flestum tilfellum
það sama, án tillits til skráningar-
fána. Viðvíkjandi „Scandinavian
Star“ er sjálfsagt að upplýsa við-
komandi blaðamann um að skipið
hét til skamms tíma „Stena Baltica“
og sigldi undir sænskum fána og var
í eigu eins stærsta feijufélags Norð-
urlandanna, Stena Line A/B í Sví-
þjóð.
Hvað viðvíkur áhöfn skipsins þá er
það ekki síður algengt á skipum
undir norskum og dönskum fánum
að skipveijar séu ffá Suður-Evrópu
og öðrum löndum þriðja heimsins.
Þótt laun slíkra farmanna séu sam-
bærileg við laun þau sem þeir fengju
heima fyrir þá búa þeir við sömu
„mannréttindi“ og aðrir farmenn.
Sjómenn ffá þessum löndum hafa
endurtekið sýnt sig vera ágætis far-
menn og sýnir blaðamaðurinn ógeð-
felldan þjóðarrembing með því að
telja þá óæðri verur en Norðurlönd
og heimalönd þeirra „skripalönd".
Hvað viðvíkur slysinu í „Scandin-
avian Star“ hefur helst komið ffam,
að slepptum órökstuddum getgát-
um, að ekki hafði verið haldin
björgunaræfíng með áhöfninni, eins
og alþjóðareglur gera kröfur um,
sem og mögulega hafi einhverjir
þættir eldvamarbúnaðarins verið
óvirkir. Vissulega er hér um vítavert
ffamtaksleysi að ræða, en það verð-
ur að skrifa á reikning norræna yfir-
manna skipsins og eigenda sem ber
að halda slíkar æfingar en ekki á
undirmennina ffá Portúgal og Fi-
lipseyjum. Hvað viðvíkur eftirliti og
effirlitsskyldum siglingamálayfir-
valda þeirra Norðurlanda sem skip-
ið sigldi til þá hafa þau ekki aðeins
skýlausan rétt samkvæmt alþjóða-
samþykktum til að ffamkvæma bún-
aðarskoðanir á erlendum skipum
sem taka höfn hjá þeim, heldur eru
þau skyldug til að framkvæma slík-
ar skoðanir á a.m.k. 25% allra er-
lendra skipa sem koma til hafnar
þeirra. Síðastnefhda staðreyndin
vekur upp spumingar um hvers
vegna siglingamálastofhanir Noregs
og Danmerkur höfðu ekki ffam-
kvæmt slíkar skoðanir áður en slys-
ið varð.
Þótt lengi mætti rekja áffam dæmi
um þekkingarleysi og sleggjudóma
umrædds blaðamanns í fyrmefhdri
grein, þá telja íslensku kaupskipa-
útgerðimar að ofangreint sýni á
ótvíræðan hátt að hér er á ferðinni
fféttamennska sem á sér helst hlið-
stæður í ábyrgðarlausum æsiffétta-
blöðum úti í hinum stóra heimi.
Að lokum treysta íslensku kaup-
skipaútgerðimar að ritstjóm blaðs
yðar sjái til þess að jafnóvönduð
umfjöllun um málefhi kaupskipaút-
gerðarinnar, eins og hér er til um-
fjöllunar, birtist ekki affur á síðum
Tímans.
F.h. Sambands íslenskra kaupskipaútgerða
Einar Hermannsson
cc. Ómar Jóhannsson, form.
Pálmi Jóhannsson, varaform.
Þórður Sverrisson, Eimskip
Scandinavian Star varð að bálfararstofnun vegna hörmulega lélegs öryggisbúnaðar og vanhæfni skipshafnar til að
bregðast við aöstæðum.
FÁFRÆÐI
HVERRA?
í þessa þulu kaupskipaútgerða um
fáffæði, hleypidóma, kunnáttuleysi,
rangfærslur, geðþótta, ógeðfelldan
þjóðarrembing, stóryrtar, órök-
studdar getgátur, þekkingarleysi,
sleggudóma og óvandaða umfjöll-
um um málefni kaupskipaútgerðar
vantar ekki annað en það að aldrei
hafi kviknað í margumræddu skipi.
Mennimir sem vita og kunna og
búa yfir þekkingunni á útgerð far-
skipa staðhæfa að ffásagnir af bmn-
anum og yfirheyrslum skipverja sé
eitthvað sem hægt er að afgreiða
sem ábyrgðarlausa æsifrétta-
mennsku.
Hvað em þessir menn eiginlega að
veija?
Ekki ætti að þurfa að endursegja
alla þá miklu umræðu sem verið
hefur á Norðurlöndum um öryggis-
mál farþegaskipa vegna þessa slyss.
Ögyggismál skipsins vom i megn-
asta ólestri og öllum skoðunum
mjög ábótavant. Skipshöfnin hafði
enga þjálfun í einfoldustu björgun-
araðgerðum og skildi ekki yfir-
mennina, skrifaðar leiðbeiningar og
gat ekki komið skiljanlegum skila-
boðum sín á milli. Hún var óhæf til
að takast á við þær aðstæður sem
upp komu.
Umræðan um hentugleikaskrán-
ingar í fátæktarríkjum hefur bland-
ast mjög inn í öryggismál dauða-
gildmnnar sem bar heitið
Scandinavian Star. Útgerðarmenn
kaupskipa geta kallað þær ógeð-
felldan þjóðarrembing og æsiffétta-
mennsku og miklast yfir lítillæti
sínu og mannkærleika.
Hins vegar gefa þeir aldrei neinar
ffambærilegar skýringar á með
hvaða hætti þeir hagnast á að skrá
skip sín í rikjum þar sem ekki er
spurt um haffæmi skipa né mann-
réttindi skipshafna.
Það væri að æra óstöðugan að fara
að elta ólar við allar þær rangsnúnu
staðhæfingar sem útgerðarmenn
kaupaskipa koma fyrir á annars
heldur knappt orðuðum pappír sín-
um. Þó skal ein setning áréttuð:
„Þótt laun slíkra farmanna séu
sambærileg við laun þau sem þeir
fengju hcima fyrir, á búa þeir við
sömu „mannréttindi" og aðrir far-
menn.“
Þetta er skilningur Sambands ís-
lenskra kaupskipaútgerða á mann-
réttindum sjómanna og sýnir mæta
vel virðingu þá sem borin er fyrir
samtökum þeirra. Athugasemda um
þetta atriði er ekki þörf.
Sem vænta má er mannffæðiþekk-
ing á kontórum skipaútgerða á álíka
háu stigi og annar vísdómur á þeim
slóðum. Ein af staðhæfingunum
sem þaðan flýtur út er að Filippsey-
ingar séu ekki malajar (gæsalöpp-
um sleppt hér).
Þótt útgerðarmenn hafi enga hug-
mynd um af hvaða kynþáttum
skipshafnir þeirra eru þeir væntan-
lega vel meðvitaðir um þau laun
sem þeir fá heima fyrir. Það er taxt-
inn sem þeir borga eftir.
Ef enginn sérstök gróðavon eða
spamaður er af því að skrá skip í
hengugleikaríkjum og ráða ósam-
stæðar og fákunnandi skipshafnir
úr fátækralöndum, hvers vegna í
ósköpunum em kaupskipaútgerðir
þá að því. Hvers vegna em skipin
ekki einfaldlega skráð í þeim lönd-
um sem þau em sannarlega gerð út
ffá?
Tíminn mun að sjálfsögðu birta
svör við spumingunum en biður út-
gerðarmenn, sjálffa sín vegna, að
spara sér fúkyrðin og vægast sagt
kjánalegar staðhæfmgar um van-
þekkingu annarra á því sem fram
fer utan íslenska brimgarðsins.
Oddur Ólafsson,
aöstoðarritstjóri.
Márkl-kvartettinn
Sagan segir að Immanuel Kant
heimspekingur hafi verið svo reglu-
samur á daglegum gönguferðum sín-
um að íbúar Heidelberg gátu stillt
klukkur sínar eftir honum. En dag
nokkum árið 1789 birtist Kant ekki á
réttum tíma og menn vissu að ein-
hver stórmerki hefðu orðið. Sem stóð
heima: Kant hafði borist ffegn af
ffönsku byltingunni og falli Bastill-
unnar.
Þannig er allt i heiminum hverfult,
eins og Zaraþustra segir, og þetta á
jafnvel við um óbilgjömustu menn-
ingarstofnun landsins, Kammermús-
íkklúbbinn. Fyrir þremur ámm urðu
þau stórmerki að 20. aldar verk var
flutt á hans vegum í fyrsta sinn,
strengjakvartett effir Wilhelm
Kempff píanóleikara og tónskáld. Og
nú var enn brotið blað: laugardaginn
14. apríl hélt Kammermúsíkklúbbur-
inn fimmtu tónlcika vetrarins, en
hingað til hafa tónleikamir ævinlega
verið femir.
Eins og vænta mátti vom þessir
fimmtu tónleikar ekki haldnir að
ástæðulausu: góðkunningjar klúbbs-
ins, félagar Márkl- kvartettsins ffá
Köln vom á leið vestur um haf í tón-
leikaferð og buðust til að koma hér
við. Þetta var í fimmta skipti á 14 ár-
um sem kvartett þessi spilar fyrir
Kammermúsíkklúbbinn. Á þeim
tíma hafa orðið talsverð mannaskipti
í kvartettinum og hinn eini sem alltaf
hefur verið með er Josef Márkl sjálf-
ur, fyrsta fiðla og leiðtogi kvartetts-
ins. Nú vom með honum Key-
Thomas Márkl 2. fiðla, Ríidiger De-
bus lágfiðla og Guido Schiefen knéf-
iðla. Einkum hinn síðastnefndi þótti
mönnum tilþrifamikill í spila-
mennsku sinni, en annars er Márkl-
kvartettinn mjög gott og fágað
hljómeyki, hugsanlega mætti Ieikur
þeirra þó vera átakameiri á köflum.
Þijú verk vom á efnisskránni, kvar-
tett I g-moll op. 74,3 eftir Haydn, i
Es-dúr op. 45,2 eftir eftir Wilhelm
Kempff og í F-dúr op. 59,1 eftir Be-
ethoven. Þessi síðari kvartett Wil-
helms Kempff, sem tileinkaður er
Alffed Cortot, er í fjórum þáttum; þar
af var Scherzo- þátturinn skemmti-
legastur, en hinn síðasti, sem er til-
brigði við lagið „Au clair de la lune“,
alveg sérlega „banal“, líkastur skóla-
æfingu. Kannski lagið henti ekki fyr-
ir svona tilbrigði, en sú hugsun var
viðmð í hléinu að skemmtileg til-
breyting hefði verið að því að spilar-
amir hefðu sungið með.
Hinir kvartettamir tveir, eftir Haydn
og Beethoven, em alkunn öndvegis-
verk og ckki annað rnn þau að segja
að sinni en það að Márkl- kvartettinn
flutti þau mjög vel.
Sig.St.