Tíminn - 26.04.1990, Qupperneq 19
Fimmtudagur 26. apríl 1990
Tíminn 19
Brynjar sendi Gróttu-
menn niður í 2. deild
- Stórsigur Stjörnunnar á Gróttu 27- 20 - ÍR lagði HK 23-19 og KR-ingar unnu
óvæntan sigur á Valsmönnum 25- 22 - Leik FH gegn ÍBV var frestað
Gróttumenn geta sjálfum sér um
kennt, að lið þeirra féll i 2. deild, þeir
fóru illa með færin, meðal annars
misnotuðu þeir 4 vítaköst. Þar að
auki fór fjöldi dauðafæra forgörðum.
Brynjar Kvaran var þeim erfiður ljár
í þúfu, varði hátt í 20 skot, þar af 3
víti. Leiknum lauk með sigri Stjöm-
unnar 27-20, eftir að staðan i leikhléi
var 9-8.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn. Bæði
lið börðust af krafti, en Stjaman var
lengst af með yfirhöndina. Þegar líða
tók á síðari hálfleik, gerði Stjaman út
um leikinn, breyttu stöðunni úr 12-11
(talska knattspyman:
Juventus
bikarmeistari
Juventus varð í gær ítalskur
bikarmeistari í knattspymu
eftir 1- 0 sigur á AC Mflan í
siðari úrslitaleik liðanna, en
fyrri leiknum lauk með
markalausu jafntefli.
Frank Rijkaard lék með í
ieiknum, en hann hefur nú
verið dæmdur í 5 leikja bann
eftir upphlaupið, sem varð á
sunnudaginn gegn Verona.
Marco Van Basten og Aless-
andro Costacurta fengu 1
leik í bann og leika því ekki
gegn Bari á sunnudaginn i
iokaumferð defldarkeppn-
innar. Þjálfari AC fékk háar
sektir.
Vináttulandsleikir:
írar unnu
Sovétmenn
Steve Staunton gerði sigur-
mark Ira í vináttulandsleik
gegn Sovétmönnum i Dublin
i gær, en leiknum lauk 1- 0.
Þá unnu Rúmenar 4-1 sigur
á ísraelsmönnum í Haifa á
gær.
Á Wembley unnu Englend-
ingar sigur á Tékkum 4-2.
A-Þjóðverjar unnu Skota 1-
0 í gærkvöld i Skotiandi.
Grannar þeirra, V-Þjóð-
verjar gerðu jafntefli gegn
Uruguay 3-3, en ðil mörkin
voru gerð i síðari hálfleik.
Svíar unnu Wales 4-2.
Körfuknattleikun
Pétur meö gegn
Englendingum
íslenska landsliðið í körfu-
knattleik fer utan um helg-
ina og mætir Englendingum
í tveimur leikjum. Lands-
liðshópurinn er skipaöur eft-
irtöldum leikmönnum:
Guðjón Skúlason ÍBK
Falur Ifarðarson ÍBK
Siguröur Ingimundarson
ÍBK
Nökkvi Már Jónsson ÍBK
Teitur Örlygsson UMFN
Guðmundur Bragason UMFG
ívar Ásgrímsson Haukum
Páll Kolbeinsson KR
Guðni Guðnason KR
______________________/
í 17-11 og síðar 21-13. Þótt Grótta
næði að minnka muninn aðeins undir
lokin, átti liðið ekki möguleika á að
jafha. Lokatölur voru því 27-20.
Þrátt fyrir góða baráttu vantaði mik-
ið uppá, að Grótta ynni leikinn.
Vömin var gloppótt og í sókninni
fóru þeir illa með góð færi, eins og
áður sagði. Páll Bjömsson línumaður
átti einna bestan leik þeirra Seltim-
inga, en Halldór Ingólfsson var einn-
ig sterkur. Willum Þórsson barðist af
krafti, en misnotaði 3 vítaköst.
Hjá Stjömunni var Brynjar Kvaran
langbestur, átti stjömuleik, en þeir
Sigurður Bjamason og Gylfí Birgis-
son vom einnig góðir. Axel Bjöms-
son var góður í hominu og Skúli var
virkur á línunni. Hilmar Hjaltason
stjómaði spilinu af öryggi.
Leikinn dæmdu þeir Gísli Jóhanns-
son og Hafsteinn Ingibergsson.
Ovæntur sigur KR
KR vann óvæntan sigur á Vals-
mönnum á Hlíðarenda í gær 25-22.
Páll Ólafsson og Stefán Kristjánsson
vom markahæstir hjá með 6 mörk
hvor, en Jakob Sigurðsson skoraði
flest mörk Valsmanna 9.
ÍRvannHK
I Digranesi Vann ÍR ömggan sigur á
HK 23-19, eftir að hafa náð afgerandi
forystu þegar í upphafi leiksins.
Magnús Ólafsson gerði 7 mörk fyrir
ÍR og Frosti Guðlaugsson 6, en
Magnús Ólafsson skoraði 9 mörk
fyrir HK. Róbert Haraldsson og Ól-
aftir Pétursson gerðu 4 mörk hver.
FH fékk ekki bikarinn
Leik FH og ÍBV var frestað þar sem
ekki var flogið frá Eyjum. FH-ingar
fengu því ekki íslandsbikarinn, þeir
verða að bíða enn um sinn, en leikið
verður við fyrsta tækifæri.
BL
Staðan í 1. deildinni
í handknattleik
FH...... 17 15 1 1 447-376+81 31
Valur. 18 13 1 4 473-408 +65 27
Stjaman...l8 12 2 4 422-391 +31 26
KR...... 18 9 3 6404-386+18 21
KA...... 18 7 1 10 387-423 -26 15
ÍR...... 18 6 2 10 386-401 -15 14
ÍBV..... 17 5 3 9 395-403 -8 13
Víkingur...l8 5 3 10 403-421 -18 13
Grótta.. 18 5 1 12 392-444-52 11
HK...... 18 2 3 13 372-436-64 7
Halldór Ingólfsson skoraði skemmtileg mörk gegn Stjömunni í gærkvöldi. Á myndinni hér að ofan reynir Halldór að komast framhjá Gylfa Birgissyni
Stjömumanni í leik liðanna fyrr í vetur. Tfmamynd Pjetur