Tíminn - 23.06.1990, Page 4

Tíminn - 23.06.1990, Page 4
14 HELGIN Laugardagur 23. júní 1990 Eldflauga stööin í PEENEMUNDE ALMENNINGSGARÐUR A-Þjóðverjar leyfa nú loks aðgang að þessum forvitnilegu minjum Austur-Þjóðverjar hafa nú aflétt margra ára- tuga gamalli leynd, sem hvílt hefur yfir balt- nesku eyjunni, þar sem V-2 eldflaugamar voru smíðaðar, en þær voru boðberi eld- flaugahernaðar og geimaldar. Vísindamenn á borð við Wemer von Braun lögðu gmndvöllinn að tilraunastöðinni í Pe- enemunde árið 1936 og skutu fýrstu flaug- inni eftir sex ára ákafan undirbúning. Að stríðinu loknu fluttust þeir til Bandaríkjanna og aðstoðuðu Bandaríkjamenn við eld- flaugasmíði, sendingar gervitungla út í geiminn, gerð geimskutla og fleira. Sovét- mönnum hjálpuðu menn úr þeirra hópi við smíði langdrægra eldflauga. En stöðin í Pe- enemunde, þaðan sem skotið var eldflaug- um sem færðu með sér dauða og eyðilegg- ingu í Bretlandi og ætlunin var að einn dag- inn næðu strönd Bandaríkjanna, var sprengd í loft upp af Rússum í stríðslok. ö Pústkerfið færðu hjá okkur jj 0 0 0 0 0 0 0 Sendum í póstkröfu! Gott verð ■ Gæðaþjónusta v —b 0 0 0 0 0 0 0 ATH. Verslið hjá fagmanninum BílaYprubúðin FJOÐRIN Skeifunni 2 82944 Eftir stríðiö var efnt til eldflauga- sýningar í London. Þar gat að líta V-1 flugskeyti, sem voru undanfarí V-2 skeytanna. Æfingabúðir og flotastöð Æ síðan hefur aðgangur að staðnum verið bannaður, en þar hefur farið ffam þjálfun a-þýskra orrustuflug- manna og þar var jafnframt höffi Fyrsta-flota A- Þjóðveija. Nú hafa birki, furutré og burkni sprottið upp úr sundruðum, steinsteyptum undirstöð- um skotpallanna. Er fféttamenn fengu að heimsækja staðinn fyrir skömmu, leiðbeindu þeir Bemd Fischer, höfuðsmaður í a- þýska flotanum, og Joachim Saathof, majór í flughemum, gestunum um svæðið og sönnuðu um hve feiknaleg- an útbúnað var hér að ræða. Leifamar em þó aðeins jámabrak og moluð steypa. Leiðin lá m.a. um verksmiðju er ífamleiddi fljótandi súrefhi, sem var notað til eldsneytis, og yfir svæði þar sem líta má það sem eflir er af jámbrautarteinum, sem skotvagnamir runnu eftir. Á staðnum er mikið um neðanjarðargöng og loftvamarbyrgi og risastór burðarvirki eldflaugaverk- smiðju, sem ekki hefur tekist að tor- tíma. Upphaf geimaldar í skógarrjóðri, sem mjög örðugt er að komast að, má sjá skotpall númer 7. V-2 flaugunum var skotið á Ant- werpen, eftir að Bandamenn höfðu hertekið borgina. Er þýsku heririnir hörfuðu eyðilögðu þeir skotpallana og sést hér einn þeirra. Flann er eins og sundlaug og er nú fullur af vatni. Fiér má segja að geim- öldin hafi byijað, en það var hinn 3. október 1942, þegar fyrsta V-2 eld- flaugin þaut í glæsilegum boga 190 km leið og steyptist niður í Eystrasalt. Yfirmaður stöðvarinnar í Peene- munde, Walter Domberger, sem síðar starfaði að geimvísindum, ritaði sögu stöðvarinnar og V-2 flauganna. Þama gerðist það í fyrsta skipti að vopn gert af manna höndum skall á jörðinni með þunga fimmtíu 100 tonna eimvagna, sem óku á 100 km hraða. Tilraunaflugið 1942 varhátind- ur tíu ára þrotlauss starfs þeirra Dom- bergers, von Braun og samverka- manna þeirra. I byrjun var hópurinn 100 manns, en er yfir lauk var risin þama byggð með 17000 íbúum. Símaverðimir voru eðlisfræðingar, bílstjóramir verkffæðingar og eldhús- starfsmennimir sérfræðingar í loftafl- fræði. Byggingamar vom hins vegar reistar af fóngum í nauðungarvinnu. Of seint á ferö V-1 flaugunum tók að rigna yfir London og Suður-England í júní 1944, en ári áöur höfðu foringjar nas- ista verið viðstaddir pmfuskot og sannfærst um mikinn eyðingarmátt þessa nýja vopns. Þar með komst ffamleiðslan í forgangsröð. I septem- ber 1944 var byijað að aka hinni 13 metra löngu V-2 flaug að skotpöllun- um á ströndinni við Ermasund. Skotið var 500 flaugum á mánuði. 1500 eld- flaugum var skotið á Bretland, þar sem ekki sást til þeirra fyrr en nokkr- um sekúndum áður en þær steyptust til jarðar sem rauðglóandi hnettir. 2100 var skotið á belgísku borgina Antverpen. Þá var um 1000 beitt á austurvígstöðvunum. En Domberger var ljóst að þetta vopn var of seint á ferð til þess að geta valdið straum- hvörfum í stríðinu. Hin mikilvægu ár, 1939 — 1942 höfðu glatast, því Hitler neitaði að gefa þessu verkefni forgang og hin stóra Ameríku- eldflaug (V-9) var aldrei smíðuð. Gamlir íbúar þorpsins í grennd stöðvarinnar, sem er fjögurra klukku- stunda akstur norður frá A- Berlín, nærri pólsku landamærunum, muna eftir drununum frá eldflaugunum og undarlegan, kaldan bjarmann sem birtist á himni, eftir að skotunum fór að fjölga. Þeir muna líka nóttina í ág- úst 1943 þegar mörg hundmð breskar sprengjuflugvélar létu sprengjunum rigna yfir stöðina og 2200 manns fór- ust. Einnig árás Bandaríkjamanna ári síðar, sem upprætti þessa „perlu“ alls

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.