Tíminn - 23.06.1990, Side 9

Tíminn - 23.06.1990, Side 9
Laugardagur 23. júní 1990 HELGIN 19 Deila leyst meö glæsibrag Nýlega leysti borgarstjórinn í bænum Graye í Frakklandi, sem telur 600 íbúa, úr deilu við grann- bæinn Courseulles með glæsibrag. Borgarstjórinn, Michel Grimeux, hafði deilt við grannana um það hvar Charles de Gaulle hefði stigið á land þann 14. júní 1944, er hann sneri úrútlegðinni í Englandi. Eft- ir mánaðalangt málþóf gerði Grimeux sér lítið íyrir og afsalaði grönnum sínum nokkurri landspildu. Þar með gat hann reist minnismerki um þennan atburð, 18 metra háan Lothringenkross, á nýjum landa- merkjum bæjarfélaganna. Krossinn var vígður þann 16. júní sl. og ber hann áletrunina: „14. júní 1944, Charles de Gaulle." Þótt ekki hafi deilan með þessu verið sagnvísindalega til lykta leidd er Grimeux viss í sinni sök: „Ég bjó i Graye i júní 1944 og var þá þrettán ára gamall. Ég man nákvæmlega eftir þessum atburðum." Og hann bætir við: „Þá var bæjarstjórinn í Courseulles ná- kvæmlega fjögurra daga gamall." Grímeux borgarstjóri með minnismerkið í baksýn. Samtíö & fortíð Litla ísöldin Jean M. Grove, The Little lce Age, Methuen, 498 pp, £ 85. Litla ísöld mun ná frá 13. öld til 19. aldar (?). Á Bretlandi er nú út komið yfirlitsrit yfir hana, og um það segir í ritdómi í ágústhefti Geographical Journal 1989: „....þorri manna þekkir naumast heitið Litla ísöld. Margir sagn- fræðingar virðast ekki þekkja það eða gera lítið úr henni, þrátt fýrir átakanleg ummerki hennar í lands- lagi og margs konar áhrif hennar á mannlíf. - Þetta er stór bók, fagur- lega prentuð, búin hinum ágætustu myndum af breytingum á landslagi í fjalllendi og á jöklum, einkum í Sviss og Austurríki, Noregi og Nýja- Sjálandi sem og í Norður-Ameríku, Asíu og Chile. Veitir hún sérlega gott sögulegt, landfræðilegt yfirlit yfir framgang og upptöku kalda verðurfarsins með dæmum frá flest- um heimshlutum." „Eftir útlistun á heitinu „Litla ísöld“ og uppruna þess í inngangi ásamt lauslegu yfirliti yfir aldurs- greiningu (lífrænna efna einkum að kolefnisaðferð og „lichenometry") eru kapítular um ísland, Skandina- víu, Mont Blanc-fjallamassann, Ötztal og Austur-Alpa, Sviss, Norð- ur-Ameríku og Grænland og um jökla á suðurhveli jarðar. Þá er kapítuli um Litlu ísöld og sambæri- leg tímaskeið frá lokum (síðustu) ísaldar og hugsanlegar orsakir þeirra. Að lokum er kapftuli sem nefndur er Afleiðingar loftslags- breytinga á Litlu ísöld, sem tekur til breytinga á hæð sjávarborðs, snæl- ínu, sjóalaga, uppblásturs lands o.s.frv." Rýnir. HEYVINNUVELAR " ð CINNS PZ sláttuþyrlur Vinnslubr. 1,35 -1,65-1,85 m. Verðfrá kr. 138.000.- CLAAS rúllubindivél Best búna og öflugasta heybindivélin á markaðnum. Sérstakt afsláttarverð kr. 716.000.- PZ tromlumúgavél Vinnslubr. 3,30 — 4,50 m. Verð frá kr. 153.500,- PZ stjömumúgavél Vinnslubr. 3,30 — 3,70 m. PZ FANEX heyþyrla. Öflug og afkastamikil, vinnur vel, rakarfrá skurðbökkum og girðingum.Dragtengd, lyftutengd og með vökvalyftingu í flutningsstöðu. Verð frá kr. 205.000.- Flestar vélanna eru til sýnis og sölu hjá eftirtöldum aðilum: Kf. Rang., Hvolsvelli — Bílasm. K.Á., Selfossi. B.T.B., Borgarnesi — Vélsm. Húnv., Blönduósi Þórshamri, Akureyri — Kf. Þing., Húsavík Kf. Skagf., Sauðárkróki — Kf. Hrútf., Borðeyri. Nýtið ykkur afsláttarverðið á CLAAS og KVERNELAND - UNDERHAUG SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFELAGA JXsSityXRDÍílD HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 Mlásoiífq SILAGRIP vinsælasta baggagreypin Fæst í margs konar útfærslum. Nú fáanleg með breiðfilmubúnaði sem eykur afköstin og sparar plastið. -UNDERHAUG rúllupökkunarvélin góðkunna. Margreynd við okkar aðstæður. Verðfrá kr. 319.000.- KVERNELAND

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.