Tíminn - 23.06.1990, Side 10

Tíminn - 23.06.1990, Side 10
20 HELGIN Laugardagur 23. júní 199C SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Höfuð af fallegri stúlku í plast- poka á víðavangi ORÐDEILD sýslumannsembættis Story- sýslu í lowa hafði undir höndum höfuð en engan búk. Höfuðið var af mjög laglegri stúlku með axlasítt, rauðleitt hár, hnotubrún augu og fíngerða húð. Meinafræðingar gátu fullyrt það eitt að höfuðið væri af hvítri stúlku á aldrinum 16 til 22 ára. Vinstra eyrað var með þremur götum fýrir eymalokka en það hægra tveimur. Engir eymalokkar voru þó í eyrunum þegar Ruben Deases hyiur andlit sitt fyrir Ijósmyndurum. höfúðið fannst. Einu aðrar vísbendingar voru þær að tveir jaxlar höfðu nýlega verið dregnir úr stúlkunni og að hún hafði nefbrotn- að skömmu áður en höfuðið var tekið af búknum. Líklega hafði hún látist 10 til 12 tímum áður en höfuðið fannst. Málið virtist ekki liggja ljóst fyrir því engrar stúlku var saknað á svæðinu sem lýsingin gat átt við og þótt leitað væri aðstoðar í tölvum ríkislögreglunn- ar hafði ekkert fundist. Skokkari nokkur á moldarvegi tölu- vert utan við Ames rak augun í hvítan plastpoka í vegarskurði. Hann hugsaði með sér að pokinn hefði dottið af bíl og varð forvitinn um innihaldið. Hann opnaði hann aðeins nægilega til að sjá starandi augun en sleppti honum þá snarlega, tók til fótanna heim til sín og hringdi í neyðamúmer lögreglunar. Tom Stark og hópur lögreglumanna bmgðust við. Þeir litu ofan í pokann en girtu svo svæðið af. Stark notaði tal- stöðina til að biðja símavörð sinn að kalla út morðdeild lögreglunnar í Des Moines þar sem málið var mjög sér- stakt. Meðan beðið var aðstoðarinnar var leitað meðfram veginum beggja vegna í báðar áttir ef vera kynni að búkurinn væri í grenndinni. Ekkert fannst annað en hjólför í leimum á veginum. Paul Gryle læknir fékk höfuðið til rannsóknar og fyrirmæli um að fara varlega með pokann ef á honum kynnu að vera fmgraför. - Því í ósköpunum fleygir einhver höföi í poka og fer eitthvað annað með búkinn? varð einum lögreglufulltrú- anna að orði. Hann bjóst svo sem ekki við svari. Fleiri spumingar bmnnu á mönnum, svo sem hver stúlkan væri og hvers vegna hún heföi verið myrt. Tom Ruxlow, talsmaður ríkislögreglunnar, kvaðst telja að einhver sem stúlkan þekkti heföi myrt hana af ókunnum ástæðum en það fyrsta sem þyrfti að gera væri að bera kennsl á hana og finna afganginn af líkinu. Stúlka sem hringdi oft Ríkisháskóli Iowa er í Ames og var talið líklegt að stúlkan heföi verið nemandi þar. Mánudaginn 29. maí 1989 tilkynntu skólayfirvöld að ekki væri vitað til að neinnar stúlku væri saknað úr skólanum en erfitt væri að segja um það með vissu því flestir nemendur heföu farið heim til sín í langt helgarleyfi. Málið yrði athugað nánar þegar kennsla hæfist að nýju. Stark sýslumaður fól þeim Brad And- erson og Geny Bearden að stjóma rannsókninni. Fyrsta ráðgátan sem við blasti var hvers vegna stúlkan heföi verið afhöföuð. Vissulega haföi hent áður að morðingjar afhöföuðu lík, tækju af þeim útlimi og gerðu fleira til að koma í veg fyrir að borin yrðu kennsl á fómarlambið. Tennur em allt- af ein helsta visbendingin en í þessu tilviki vom þær á sínum stað. Því gerði einhver sér það ómak að fela sjálfl lík- ið annars staðar? Lögreglunni fannst einnig undarlegt hversu erfiðlega gekk að bera kennsl á stúlkuna. Meinaftæðingur rikislög- reglunnar taldi að hún heföi látist 10 til 24 stundum áður en höfuðið fannst og að það heföi verið gróflega saigað af með hnífi. - Við vitum ekki hversu lengi það lá í skurðinum áður en mað- urinn fann það, sagði meinafræðingur- inn, - en það hefur verið nokkur tími og einnig hefur tekið hann dijúga stund að ná því af bolnum. Stúlkan hlýtur að vera héðan af svæðinu en hennar hefur ekki enn verið saknað. Skipulagðir vom leitarflokkar sem at- huguðu vegaskurði og akra á allstóm svæði. Þyrla með sjónauka og ffosk- kafarar vora fengin til að leita á vatna- svæðunum. Lögreglumenn töluðu einnig við tannlækna sem hugsanlega heföu dregið jaxlana úr stúlkunni ný- lega. Það sem virtist fyrsta vísbendingin var að afgreiðslumaður í nætursölu i Amcs hringdi. Hann kvaðst hafa lesið um höfuðið í blöðunum og taldi sig geta veitt upplýsingar í því sambandi. Þegar lögreglumenn spurðu hann, sagði hann að ung kona heföi oft á síð- ustu vikum komið i verslunina, oftast til að hringja. Hann þekkti hana ekki eða vissi hvað hún hét en taldi að hún ætti heima í einhveiju fjölbýlishús- anna í kring en flestir íbúar þeirra vom háskólanemar. Beðinn um lýsingu á stúlkunni sagði maðurinn: -Ef maður sá hana einu sinni gleymdi maður henni ekki strax. Spurður hvað það þýddi, lýsti hann stúlkunni sem einkar laglegri með axlasítt, rauðleitt hár og líkamsvöxt sem hún reyndi síður en svo að leyna. Yfirleitt væri hún aðeins klædd toppi sem varla hyldi fiijóstin og stuttu, þröngu pilsi sem leyndi nánast engu. „Eins konar“ vinkona - Veistu nokkuð hvert hún hringdi? spurði lögreglumaður en hinn hristi höfuðið. - Hún bað stundum um skiptimynt svo líklegt er að hún hafi hringt landssímtöl. í flestum íbúðahús- unum em þó peningasímar svo ég veit ekki af hveiju hún kom hingað, bætti hann við. Yfirmenn háskólans tilkynntu að engan nemanda heföi vantað eftir langa helgarleyfið. Þá vom menn sett- ir í að ganga í hús 1 leit að einhveijum sem gæti þekkt stúlkuna úr nætursöl- unni. Menn sem leituðu að búknum urðu einskis vísari og töldu víst að lík- ið væri hvergi nærri þeim stað sem höfuðið heföi fundist. Þar að kom að lögreglumenn fundu pilt sem taldi lýsinguna koma heim við stúlku sem hann haföi oft séð í húsi við Sherman Avenue en þar bjuggu mest- megnis háskólanemar. Húsvörðurinn kvaðst kannast við stúlkuna. Hún kæmi þar oft en hún væri ekki skráð til heimilis í húsinu. Hún gæti samt búið hjá einhveijum þar. Lögreglan fór í íbúðina sem hús- vörðurinn taldi að stúlkan heföi að minnsta kosti heimsótt. Þar vom fyrir tveir unglingspiltar sem sögðu að bróðir sinn, sem væri í háskólanum, heföi íbúðina á leigu og þeir byggju hjá honum. Þeir vom spurðir um stúlkuna með axlasíða, rauðleita hárið. - Það er Jennifer, sagði annar pilturinn af bragði. - Hvað í fjáranum hefur hún nú gert? Jennifer Gardner var að sögn piltanna „eins konar“ vinkona eldri bróður þeirra. Þau höföu kynnst í Boys Town í Omaha í Nebraska en það er stofnun fyrir vandræðaunglinga. Hún varð þar eftir þegar hann kom í skólann en hringdi svo og sagðist vera í vandræð- um. Hann heföi þá boðið henni að búa í íbúðinni þangað til hún greiddi úr málum sínum. Aðspurðir hvar bróðir þeirra væri sögðu þeir að hann heföi farið á laug- ardeginum í heimsókn til ættingja í Dallas í Texas. Þeir kváðust síðast hafa séð Jennifer á sunnudagsmorgun en þá ætlaði hún með áætlunarbíl til Omaha. Þeir vissu ekki erindi hennar en töldu að hún heföi ætlað að hitta karlmann. Augljóst var eldri pilturinn var ekki ýkja hrifinn af Jennifer og þegar hann var spurður nánar um það, vildi hann fyrst vita af hveiju verið væri að spyija um hana. Þegar honum var sagt að hugsanlega væri Jennifer stúlkan sem myrt heföi verið og höfuðið í pokanum væri af henni, brást hann við með því að segja: - Nú erum við í vandræðum og verð- um allir reknir út. Hann skýrði þetta þannig að Boys Town greiddi 330 dollara á mánuði fyrir íbúðina svo bróðir þeirra gæti stundað skólann. Hann heföi varað þá við að lenda í vandræðum þvi ef upp kæmist að þeir byggju hjá honum yrðu þeir að fara. Námiö skálkaskjól Með þessar upplýsingar var hringt til lögreglunnar í Omaha og spurst fyrir um Jennifer Gardner. Jafnffamt var reynt að hafa uppi á ættingjunum sem elsti bróðirinn var að heimsækja í Dallas. Þá var rætt um að fá piltana annaðhvort til að skoða mynd af höfö- inu eða koma til Des Moins og bera kennsl á það. Á miðstöð áætlunarvagnanna fengust þau svör að harla ólíklegt væri að stúlka sem klædd var eins og Jennifer var jafnan heföi keypt miða og farið með vagni án þess að nokkur myndi eftir henni. Upplýsingamar frá Boys Town vom þær að ættingi Jennifer heföi komið henni fyrir þar í ágúst 1983.1 skýrslum stóð að ættinginn teldi útilokað að um- gangast hana á heimili og ekkert réðist við hana. Hún virtist hafa tekið miklum breytingum til hins betra og settist á skólabekk. Skrár um piltinn frá Dallas hermdu að hann og þrír yngri bræður heföu verið í Boys Town og sá yngsti væri þar enn. Sá elsti heföi þótt efhileg- ur námsmaður og því greiddi stofhunin skólakostnað hans og húsnæði. Lögreglan í Omaha gat veitt allgóðar upplýsingar um Jennifer Gardner og haföi einnig uppi á tannlækni sem ný- lega dró úr henni tvo jaxla. Röntgen- myndir hans vom sendar til Des Moi- nes og að öllu samanlögðu þótti nær íhllsannað að höfuðið væri af Jennifer. Vinir Jennifer í Omaha sögðu að eftir stúdentspróf heföi hún starfað við heimilishjálp og gengið í fyrirsætu- skóla. Hún heföi sýnt baðföt og kjóla i verlsun á staðnum en hætt í heimilis- hjálpinni til að dansa á næturklúbbi. - Hún var mikið með punk-hljómsveit héma, sagði einn lögreglumanna. - Við heyrðum að hún væri villt og klæddist niðþröngum leðurfatnaði, lit- aði eldrautt á sér hárið og neytti fikni- eíha en hún var aldrei handtekin hér. Það síðasta sem Omaha-lögreglan gat komist að um Jennifer var að hún heföi tekið íbúð á leigu fyrir 195 doll- ara á mánuði en ekki staðið í skilum og verið beðin að fara. Þá var talið að hún heföi farið til Ames í Iowa til að búa hjá vini sínum. Skömmu eftir að upplýsingamar komu frá Omaha var aftur hringt til yf- irvalda í Story-sýslu. Það var ftá fíkni- efnadeildinni í Des Moines. Fréttir hennar vora í meira lagi óvæntar. Námsmaðurinn, vinur Jennifer, var sem sé ekki sá fyrirmyndamemandi sem þeir í Boys Town töldu og flkni- efnadeildin haföi fylgst með honum í þijá mánuði vegna gmns um dreifingu fíkniefha. Lík Jennifer finnst Sagt var að hann æki glæsibíl og veif- aði seðlabúntum jafhframt þvi sem hann þættist vera skólanemi og tæki við peningum frá Boys Town. Iðulega færi hann í bankann með troðfulla vasa af smáum seðlum, léti skipta þeim fyrir stærri sem hann geymdi síð- an í öryggishólfi. Hann haföi nýlega keypt sér nýjan Mercury Cougar og greitt hann út í hönd. Deildin haföi sönnun þess að hann haföi selt dulbúnum lögreglumanni únsu af kókaíni á 1.350 dollara en maðurinn var ekki handtekinn vegna þess að enn var reynt að grafast fyrir um hvaðan kókaínið kom. Dallas var talinn líklegasti staðurinn. - Hvemig líst ykkur á þetta? spurði Stark lögreglustjóri að fengnum þess- um upplýsingum. - Bræður hans sögðu að hann ætlaði að heimsækja ættingja í Dallas, svar- aði Anderson. - Við höfum ekkert heyrt ffá Dallas ennþá. - Þeir sögðu að hann heföi farið á laugardag en Jennifer á sunnudags- morgun, sagði Bearden hugsi. - Við ættum að heyra ffá Dallas bráðlega varðandi þessa ættingja.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.