Tíminn - 31.07.1990, Page 15
Þriðjudagur 31. júlí 1990
Tíminn 15
Sjöunda jafnteflið
ÍR-ingar vígja
grasvöll sinn
— í kvöld er þeir fá Tindastól í heimsókn
Stór stund rennur upp í sögu knatt-
spymudeildar ÍR í kvöld, en þá leikur
2. deildarlið IR gegn Tindastól á nýj-
um grasvelli félagsins í Suður-
Mjódd.
Fyrsta grastorfan var lögð á völlinn
9. september í íyrra og var lokið við
að tyrfa völlinn á þremur vikum.
Vallarsvæðið er um 23 þúsund fer-
metrar að stærð og er það eitt stærsta
grassvæði til knattspymuiðkunar hér
á landi. í kvöld verður leikið á
110x80 metra velli.
Knattspymudeild ÍR er 20 ára á
þessu ári og nýi völlurinn er því góð
afmælisgjöf ÍR-inga til sjálffa sín.
Leikurinn í kvöld hefst kl. 20.00 á
grasvellinum í Suður-Mjódd, en á
sama tima verða einnig fjórir aðrir
leikir í 2. deild — Pepsídeildinni. A
Siglufirði leika KS-Víðir, í Grinda-
vík leika heimamenn gegn Breiða-
bliksmönnum og á Ólafsfirði leikur
Leiftur gegn Fylki.
Leik Keflvíkinga gegn Selfyssing-
um, sem vera átti i kvöld, hefúr verið
ffestað vegna bikarleiks Keflvíkinga
og KR-inga annað kvöld. Leikurinn
hefur verið settur á mánudaginn 20.
ágúst kl. 19.00. BL
Goran Micic á fullri ferð með Víkingum, sem slgla nú lygnan sjó um miðja 1. deildina. Timamynd pjetur.
Staðan í 1. deild —
Hörpudeildinni:
Valur 12 8 2 2 21-13 26
KR 12 7 2 3 18-12 23
Fram 12 7 1 4 23-11 22
ÍBV 11 5 4 2 18-19 19
Víkingur 12 3 7 2 14-13 16
FH 12 5 1 6 16-18 16
Stjaman 12 4 2 6 14-17 14
KA 12 4 1 7 14-16 13
ÍA 12 2 2 8 13-23 8
Þór 11 2 2 7 6-16 8
Staðan í 2. deild
PEPSI-deildinni:
Breiðablik 10 6 3 i 17-8 21
Fylkir 10 6 2 2 22-7 20
Víðir 10 5 4 1 14-10 19
Selfoss 10 5 1 4 20-14 16
ÍR 10 5 0 5 13-17 15
KS 10 4 1 5 13-15 13
Tindastóll 10 3 2 5 9-16 11
Keflavík 10 3 1 6 7-12 10
Grindavík 10 2 2 6 12-21 8
Leiftur 10 1 4 5 8-15 7
Úrslit leikja í 3. deildinni í
knattspyrnu um síðustu helgi:
TBA-Völsungur 2-8
Einheiji-Þróttur R. 1-4
Þróttur N.-Haukar 1-2
Reynir Á.-ÍK 2-3
Dalvík-BÍ 3-0
Staðan 1 3. deild í knattspymu
Þróttur R. u 10 0 1 33-8 30
Haukar ii 8 1 2 29-18 24
Þróttur N. u 6 2 3 32-16 17
Völsungur ii 3 4 4 19-18 13
Dalvík ii 4 1 6 17-21 13
Reynir Á. u 4 1 6 18-25 13
Einheiji n 2 3 6 18-26 9
BÍ ii 2 2 7 17-27 8
TBA ii 2 0 9 9-43 6
íslenska landsliðið í handknattleik
vann nauman sigur á Tékkum 24-23
á ffiðarleikunum í Seattle um helgina
og náði þar með fimmta sætinu á
leikunum.
Það var góður leikur okkar manna i
síðari hálfleik sem gerði gæfúmun-
inn, en fyrri hálfleikur hafði verið
slakur. í leikhléi var staðan 0-11
Tékkum í vil. Sterkur vamarleikur,
Knattspyma — 1. deild:
KA hafði betur
í botnieiknum
Islandsmeistarar KA sigruðu Skaga-
menn 2-1 í botnbaráttu 1. deildar á
Akureyri á fostudagskvöld í miklum
baráttuleik. Kjartan Einarsson skor-
aði fyrir KA fljótlega í leiknum,
Guðbjöm Tryggvason jafúaði fyrir
hlé, en Ámi Hermannsson tryggði
KA sigurinn undir lokin. BL
Friðarleikarnir í Seattle
— Körfuknattleikur:
Júgóslavar unnu
Júgóslavar tryggðu sér gull í körfú-
knattleik á friðarleikunum með því að
leggja Bandaríkin 85-79, í hálfleik
var staðan 34-31. Sigurinn var sér-
lega sætur þar sem meiðsl og villu-
vandræði hrjáðu júgóslavneska liðið í
leiknum. Zarko Paspalj snéri sig á
ökkla snemma í fyrri hálfleik og Dino
Radja gat lítið leikið með í síðari
hálfleik vegna villuvandræða.
Tony Kukoc var maðurinn á bak við
sigur Júgóslava, skoraði 17 stig og
átti 10 stoðsendingar. Jurij Zdovc átti
einnig góðan leik, hitti úr 9 af 10
skotum sínum og skoraði 21 stig.
Billy Owens var stigahæstur i
bandaríska liðinu með 23 stig og 10
ffáköst, en Alonzo Mouming skoraði
18 stig og hirti 13 ffáköst.
Sovéska liðið varð í 3. sæti eftir 109-
103 sigur á Brasilíumönnum. Stiga-
hæstur Sovétmanna var Valeri Tik-
honenko með 30 stig, en hjá Brössun-
um gerði Oscar Schmith 44 stig.
í leiknum um fimmta sætum unnu
Ástralir Puerto Rico 116-92. BL
mikil baráttu og hraði í síðari hálfleik
var meira en Tékkar réðu við og okk-
ar mönnum tókst að sigra eins og áð-
ur segir 24-23.
Markahæstur var Óskar Ármanns-
son sem átti mjög góðan leik, hann
skoraði 9 mörk. Bjarki Sigurðsson
gerði 5, Héðinn Gilsson 3, Birgir Sig-
urðsson 3, Jakob Sigurðsson 2, Guð-
jón Ámason og Júlíus Jónasson 1.
Stórsigur á Japönum
Aðfaranótt fostudags vann íslenska
liðið stóran sigur á Japönum 28-27
(12-11). Guðmundur Hrafnkelsson
markvörður átti þá ffábæran leik og
varði yfir 20 skot. Vamarleikurinn
var einnig góður, 6-0 vömin var
mjög grimm og sóknarleikurinn var
ákveðinn og ógnandi. Um 200 ís-
lenskir áhorfendur fylgdust með
leiknum.
Mörkin: Héðinn Gilsson 6, Valdi-
mar Grímsson 4, Júlíus Jónasson 4,
Jakob Sigurðsson 3, Óskar Armanns-
son 3, Geir Sveinsson 2, Birgir Sig-
urðsson 2, Konráð Olavsson 2 og
Magnús Sigurðsson 1.
BL
Knattspyma — 1. deild:
— hjá Víkingum í deildinni
Valsmenn hafa þriggja stiga forystu
í 1. deild — Hörpudeild íslandsmóts-
ins i knattspymu eftir 2-2 jafntefli
gegn Víkingum á föstudagskvöld.
Víkingar gerðu þar með sitt sjöunda
jafúteíli í deildinni, en hefðu með
smá heppni getað náð sigri í leiknum.
Fyrsta mark leiksins leit ekki dags-
ins ljós fyrr en skammt var til loka
fyrri hálfleiks. Eftir vamarmistök
Víkinga kom Þórður Bogason Vals-
mönnum yfir. Víkingar sóttu stíft í
síðari hálfleik og um miðjan hálfleik-
inn jafnaði Trausti Ómarsson metin
með skallamarki. En Adam var ekki
lengi í paradís. Valsmenn komust
strax aftur í forystu eftir mark Sævars
Jónssonar. Það var síðan Trausti sem
jafnaði á ný úr vítaspymu og liðin
deildu með sér stigunum. BL
Knattspyrna — 2. deild:
Yfirburðir
Fylkismanna
Fylkismenn eru enn í efsta 2.
deildar — Pepsídeildar íslands-
mótsins í knattspymu, en heil
umferð var leikin í deildinni á
mánudagskvöld. Breiðabliks-
menn fylgja Árbæingunum fast
eftir og margt bendir til þess að
þessi tvö lið vinni sér rétt til að
leika í 1. deild að ári.
Grindvíkingar sóttu ekki gull í
greipar Fylkis á Árbæjarvöll.
Sunnanmenn fóm með sex mörk
á bakinu heim. Guðmundur
Magnússon skoraði tvívegis í
fyrri hálfleik, en í síðari hálfleik
gerði Kristinn Tómasson tvö
mörk og þeir Gunnar Pétursson
og Hörður Valsson eitt mark
hvor.
Breiðabliksmenn gáfú Fylki
ekkert forskot í toppbaráttunni
þótt sigur þeirra væri ekki eins
stór. Þeir unnu 1-0 sigur á Tinda-
stól á Sauðárkróki með marki
Grétars Steindórssonar í fyrri
hálfleik.
Á Selfossi unnu heimamenn 1 -0
sigur á IR. Eina mark leiksins
gerði Júgóslavinn Dervic úr víta-
spymu í upphafi síðari hálfleiks.
Undir lok leiksins sóttu IR-ingar
mjög en án árangurs og heima-
menn stóðu uppi sem sigurvegar-
ar.
Leiftur og KS gerðu 1 -1 jafntefli
í sannkölluðum nágrannaslag á
Siglufirði. Bæði mörkin vom
skomð í mjög fjörugum fyrri
hálfleik. Leifhirsmenn skomðu í
upphafi leiks og var þar Hörður
Benónýsson að veki. Rétt fyrir
hlé tókst Hafþóri Kolbeinssyni
að jafna metið fyrir heimamenn.
Annar nágrannaslagur fór ffam
á Suðumesjum. Þar mættust
Keflvíkingar og Víðismenn í
Keflavík. Garðbúar unnu þar sinn
fyrsta deildarsigur á Keflvíking-
um 2-0. Grétar Einarsson skoraði
fyrri markið í fyrri hálfleik, en
Steinar Ingimundarson það síð-
ara í síðari hálfleik. BL
jy Friðarleikarnir— Handknattleikur:
Island í fimmta sæti
eftir sigur á Tékkum