Tíminn - 21.09.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 21.09.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 21, september 1990 Tímínrl 5 Fjárhagsstaða og valkostir Byggingarsjóða ríkisins og verkamanna óglæsilegir: Lánastöðvun, vaxtahækkun, eða 400.000 m. kr. halli Hætti byggingarsjóðir Húsnæðisstofnunar (ríkisins og verkamanna) strax ölium útlánum, jafnframt því sem ríkisframiög féllu niður, yrði eigi að síður yfir 20 milljarða kr. eigið fé þeirra upp urið eftir rúman áratug. Og áríð 2028, þ.e. um það leyti sem sjóðimir hefðu féngið núverandi út- lán sín greidd til baka, vantaði um 62 milljarða kr. upp á að þær greiðsl- ur mundu duga fyrir skuldum sjóðanna, þannig að ríkið yrði að leggja þá 62 milljarða, fram svo sjóðimir gætu gert upp við lánardrottna sína — væntanlega fyrst og fremst Irfeyrissjóðina. Haldi sjóðimir hins vegar áfiam veit- ingu íbúðalána með sama hætti og nú og á sömu vöxtum og fái sömuleiðis áfram núverandi fiamlög úr ríkissjóði (50 m.kr. og 500 m.kr.) verður eigið fé þeirra upp urið árin 1998 og 2000. Og árið 2028 mundi sjóðina vanta 400 milljarða króna til jsess að geta gert upp við lánardrottna sína. Benda má á að þessi upphæð (400 milljarðar króna) jafngildir rúmlega fjórföldum fjárlögum ríkisins á þessu ári, eða meira en 1,5 milljónum kr. á hvert mannsbam í land- inu). Allar þessar upphæðir em miðaðar við verðlag á miðju ári 1990 og mundu því hækka í takt við verðbólgu á næstu árum og áratugum. Hækkun vaxta í 5% á öllum lánum... Þessar ógnvænlegu ffamtíðarhorfur Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingar- sjóðs verkamanna em í stuttu máli nið- urstaðan af úttekt Ríkisendurskoðunar á fjárhagsstöðu sjóðanna. Þessi gífurlega skuldasöfnun (tap) sjóðanna felst fyrst og ffemst í því, að þeir taka peninga að láni gegn 5-9% vöxtum (aðallega frá líf- eyrissjóðunum) og lána það síðan aftur til íbúðarkaupenda á 1% til 4,5% vöxt- um. Eigiaðkomaívegfyrirrýmuneig- in fjár sjóðanna, án aukinna fjárffam- laga úr ríkissjóði, reiknar Ríkisendur- skoðun með að vextir af öllum lánum beggja sjóðanna, sem veitt hafa verið ffá 1984, þurfi að hækka í 5% að minnsta kosti. ... eöa 4.400 m.kr. ríkisframlag á árí Verði hins vegar vextir ekki hækkaðir þarf ríldssjóður næstu áratugi að leggja sjóðunum til um 835 m.kr. á ári, miðað við að öll ffekari útlán þeirra verði stöðvuð. Haldi útlán sjóðanna hins veg- ar áffam með núverandi hætti, þarf ríkið að leggja sjóðunum til um 4.400 millj- ónir króna ár hvert að meðaltali næstu áratugina. Ríkisendurskoðun reiknaði út stöðu hvors sjóðs fyrir sig. í fyrsta lagi vom dæmin reiknuð út ffá þeirri forsendu að útlániun sjóðanna yrði hastt (eftir að nú- verandi lánslofoiðahafar ffá BR hafa verið afgreiddir 1991). Og í öðm lagi var gengið út ffá þeirri forsendu að sjóð- Bændur úr hreppunum hafa lent í erfiðleikum í eftirleitum vegna slæms veðurs á hálendinu. Loftur Þorsteinsson, oddviti í Hrunamannahreppi: Algjörlega vitlaust veður á fjallaleiðum Gananamenn úr hreppunum hafa lent í erfiðleikum við eftirieitir. sökum afleits veður sem verið hefur á leitarsvæðum. Genaið hefur á með snjó- komu og víða sá ekki út úr auaum sökum bess. auk bess sem skefur mikið. Hafa leitarmenn vmist haldið hóoinn eða látið fvrirberast í skálum þar til veðri hefur slotað. Gangnamenn úr Biskupstungum lentu í slæmu veðri á Kili í gær er þeir vom á leið ffá Svartárbotnum til Hvftámess. Mikil ófærð var þar og þurftu þeir að fá gröfii á móti sér til aðstoðar við trússbíl- inn, sem er vömbíll og fylgir gangna- mönnunum sex. Þegar Tíminn hafði samband við Guðmund Grétarsson, bíl- stjóra á vömbílnum, um klukkan níu i gæikvöldi, var skaffenningur og miðaði þeim seint áffam. „En við erum nú að komast að ffemri Skútanum, þannig að við sjáum alveg fyrir endann á þessu.“ Að gefnu tilefni I ffétt í blaðinu í gær, þar sem sagt var frá erindi dr. Jónasar Har- alz, bankastjóra Alþjóðabankans, um stofnun sína, stóð að erindi dr. Jónasar hefði verið haldið að ffumkvæði Félags ísl. banka- manna. Það er ekki rétt. Erindið var flutt að ffumkvæði Banka- mannaskólans og skólastjóra hans, Páls H. Hannessonar. —Fréttastjóri. Guðmundur sagði, að þeir hefðu lagt af stað ffá Svartárbotnum í gærmoigun í ágætis veðri og meiningin var að hann hitti félaga sína síðar um daginn í Hvítár- nesi. Um klukkan 11 í gærmorgun var veður orðið ffekar slæmt Guðmundur sagðist ekkert vita hvort félagar hans þyrftu á aðstoð að halda, en sagðist vona það besta. Þeir áttu hins vegar ekki mjög langa dagleið fyrir höndum. Sjálfir áttu Guðmundur og ökumaður gröflmnar eft- ir um þriggja til fjögurra tima akstur í Hvitámes. Ekki gekk allt að vonum, því þeir áttu orðið í erfiðleikum með vöm- bílinn þar sem hann fór ekki í gang og þurftu þeir því að draga hann með gröf- unni. Þá lentu átta leitarmenn í Gnúpveija- hreppi í erfiðleikum og Ólafiir Jónsson, sem fylgdi þeim eftir á dráttarvél, festi vélina. Hann varð að láta fyrirberast í henni eina nótt þar til aðstoð barst. Þegar Tíminn hafði samband við Ólaf í gær, var hann kominn til byggða. Hann sagði að gengið hafi á með skaffenningi í gær, en menn væm almennt vel á sig komnir. Ólafttr sagðist hafa fest sig þegar þeir vom að fara úr Bjamalækjabotnum yfir í Gljúfiirlæk. Félagar hans vom þá famir um hálftíma áður, en gátu ekki sökum veðurs fylgst með Ólafi. Ólafiir reyndi að moka dráttarvélina lausa, en það bar engan árangur þar sem fennti strax í aft- ur. Hann sá sér því þann kostinn vænstan að bíða eftir aðstoð og sagðist nú feginn því að vera kominn til byggða. Atta leitarmenn úr Hrunamannahreppi lentu einnig í basli og hafa ekki getað smalað mikið sökum veðurs. í gasr- kvöldi vom þeir komnir í Leppistungur, og að sögn Lofts Þorsteinssonar, oddvita og bónda á Haukholtum í Hrunamanna- hreppi, áttu þeir þá eftir tvær dagleiðir til byggða. Loftur sagði, að í gær hefðu leit- armenn getað gert litið annað en komið sér frá kofanum f Ásgaiði í Leppistungur og hjálpa trússtraktomum við að komast áfram. „Það er algjörlega búið að vera vitlaust veður hjá þeim og þeir hafa ekki séð út úr augum allan daginn,“ sagði Loftur. „Sá sem var á dráttarvélinni sagði mér að hann hafi aldrei séð fremsta manninn sem reið á undan. En sem betur fer fóm þeir allir saman." Þeir hafa fund- ið um 50 kindur, sem hafa verið settar í hús. Lofhir sagðist vona að þeir kæmust áfiam í dag, þvi annars væri hætta á að þeir myndu fijósa inni með traktorinn og ámar stöðva þá af. Loftur sagðist ekki muna eftir eins veðri á þessum árstíma, þvi ef litið væri til baka, þá var þetta sá tími sem almennt var gengið. „Það er alveg greinilegt, að ef þetta hefði skeð um það leyti sem væri venjuleg fjallferð, þá hefði þurft að fresta hér réttum.“ I Mývatnssveit átti að leita í gær, en þar gekk á með dimmum éljum og því var ákveðið að fresta leitum þar til i dag, ef veður gengur riiður. Hinrik Ámi Bóas- son vélstjóri sagði að þar væri hvit jörð að heita og hefði svo verið í tvo daga. imir héldu áfram svipuðum útlánum og í ár, á núgildandi vöxtum og með sama ríkisframlagi og á þessu ári. Það er nú 50 m.kr. til Byggingarsjóðs ríkisins og 500 m.kr. til Byggingarsjóðs verka- manna. Vaxtanióurgreiósla BR 8- 14 milljarðar næsta áratug Að gefhum þessum forsendum líta dæmin um Byggingarsjóð ríkisins þannig út í grófiim dráttum: Hætti sjóðurinn öllum lánveitingum eftir afgreiðslu þegar útgefinna lánslof- orða á næsta ári, verður vaxtaniður- greiðsla sjóðsins til ársins 1999 samtals 7.900 m.kr. Þar við bætist árlegur rekstr- arkostnaður sjóðsins. Núverandi 13.500 m.kr. eigið fé sjóðsins yrði þá upp urið árið 2005. Árið 2028 yrðu skuldir sjóðs- ins komnar í 23.100 m.kr. Ætti að koma í veg fyrir rýmun á eigin fé sjóðsins þyrfti hann um 460 m.kr. ríkisframlag á ári næstu fjóra áratugi. Haldi sjóðurinn hins vegar áfram að lána (4.500 íbúðakaupendurrFbyggj- endum á ári) með 4,5% vöxtum, næmi niðuigreiðsla á vöxtum 14.300 m.kr. til ársins 1999. Eigið fé yrði þá meira en upp urið. Til að halda eigin fé sjóðsins óbreyttu þyrfti 2.020 m.kr. ríkisframlag á ári hveiju að meðaltali (frá 1.000 kr. næstu árin upp í 2.500 m.kr.). Án þess yiði halli sjóðsins kominn í 230 millj- arða innan fjögurra áratuga (eða hátt í milljón á hvem Islending, miðað við nú- verandi íbúafjölda). Gjaldþrot áriö 2000 Dsemin um Byggingarsjóð verka- manna líta ekki betur út. Miðað við stöðvun útlána mundi 7.100 m.kr. eigið fé hans hverfa í vaxtaniðurgreiðslur og rekstrarkostnað á næstu 11 árum og sjóðurinn þurfa nær 40.000 m.kr. fram- lag til að eiga fyrir skuldum árið 2028. Til að viðhalda eigin fé sjóðsins þyrfti rúmlega 370 m.kr. framlag ár hvert næstu fjóra áratugi. Haldi sjóðurinn hins vegar áfram að lána fyrir 600 félagslegum íbúðum á ári á óbreyttum vaxtakjörum kostar það 10.000 m.kr. vaxtaniðurgreiðslu til árs- ins 1999. Eigið fe sjóðsins mundi klárast árið 2000 og síðan mundi hann safna upp nær 180.000 m.kr. skuldum til árs- ins 2028. Til að viðhalda eigin fé sinu, miðað við óbreytt útlán og vexti, þyrfh Byggingarsjóður verkamanna að fá um 2.400 m.kr. framlag að meðaltali ár hvert (hæst um 3.000 m.kr. árið 2016). Um 3.700 m.kr. „gjafirí1 í ár Ríkisendurskoðun reiknaði einnig út aðstoð ríkissjóðs við þá sem keyptu sér eða byggðu sér íbúðir/hús á árunum frá 1986: Annars vegar í formi niður- greiddra vaxta og hins vegar í gegnum skattkerfið. Þótt maigir beri sig illa undan vöxtun- um, kemst Rfldsendurskoðun að þeini niðurstöðu að árleg aðstoð rfldssjóðs í formi niðuigreiðslu á vöxtum og skatta- ívilnana hafi Ijórfaldast á þessu tímabili: Hækkað úr 860 m.kr. árið 1986 upp í 3.700 m.kr. árið 1990 (þ.e. yfir 20 þús.kr.á hvem skattgreiðanda á þessu ári). Niðurgreiðsla vaxta ein og sér er talin um 1.840 m.kr. á árunum 1986- 1989. -HEI Gerö 1854U - 1100vattamótor - 165/170 mm sagarblað - hraði 4200 sn./mín. - örygcjisrofi - karbitsagarblað fylgir Gerð 1865U - 1200 vatta mótor - 184/190 mm sagarbiað - hraði 4200 sn./mín. - örygcjisrofi - karbitsagarblað fylgir EIGUM AVALLT FJÖLBREYTT URVAL SKIL RAFMAGNS- HANDVERKFÆRA OG FYLGIHLUTA JAFNT TIL IÐNAÐAR- SEM HEIMILISNOTA ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA Þekking Reynsla Þjónusta r FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 r -J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.