Tíminn - 22.09.1990, Page 7

Tíminn - 22.09.1990, Page 7
Föstudagur21. september 1990 HELGIN 15 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Michael Wayne Jackson, skegglaus á yngrí árum og eins og hann lert út meðan hann hélt heilu þorpi í helgreipum óttans í 11 daga. ólögleg lyf. — Hann situr stundum og flissar lengi og maður sér það á augunum í honum. Seinna sagði þessi sami ættingi við fféttamann að hann skildi ekki hvem- ig það gæti gengið að sleppa manni eins og Jackson lausum innan um saklaust fólk hvað eftir annað, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir. Hann hefði verið lifandi dauður árum saman. Skilorðseftirlitsmaðurinn Thomas Gahl hafði farið heim til Jacskons til að fá hjá honum þvagsýni sem gæti sannað að hann tæki lyfin sín ... eða hvort hann tæki þau ekki og neytti ólöglegra lyfja eins og haldið var ffam. Þetta var ósköp venjuleg skylduheimsókn, en Gahl týndi lífinu fyrir. Stórhættulegur morðingi hans gekk laus. Skotárás viö kirkju Lögregla í tíu umdæmum á svæðinu var beðin að hafa augun opin ef Jack- son skyldi birtast. Síðast sást hann aka drapplitum Mercury, árgerð 1982, sem hann tók við hjólhýsa- svæðið í Clinton. Hann var sagður vopnaður og mjög hættulegur. Næst sást til hans f O’Fallon í Missouri, 70 km norðan við St. Lou- is. Þar er yfirleitt rólegt, en lögregl- unni var tilkynnt að maður með skegg hefði stolið að minnsta kosti þemur bílum þar og ráðist á tvær konur. Síðan sást hann aka f átt til Wright City á Cadillac Seville. Roland Clemonds, lögreglumaður í Wright City, átti ffí á mánudags- kvöldið en honum leiddist að sitja einn heima svo hann fór í bæinn og sat f hjá Burgess lögreglustjóra sem ók eftirlitsferð um bæinn. I Wright City búa aðeins um 1.200 manns. Á venjulegu mánudagskvöldi var varla annað að gera en stugga við hópum unglinga sem oft voru með háreysti umhverfis bensínstöðina og skyndi- bitastaðinn. Um níuleytið fengu þeir félagamir tilkynningu um Cadillac-bílinn sem stolið hafði verið í O’Fallon og gæti verið á leið til Wright City. Þeir óku upp að kirkjunni, lögðu bflnum og horfðu út á þjóðveginn. Lögreglu- stjórinn taldi ekki miklar líkur á að bfllinn kæmi en það sakaði ekki að vera öruggur. Þeir voru varla búnir að slökkva ljósin á lögreglubílnum er þeir sáu logagylltan Cadillac koma á ofsa- hraða inn í þorpið og trúðu vart sín- um eigin augum. Sá gyllti stansaði snögglega í u.þ.b. fimm metra fjarlægð ffá lögreglu- bílnum, þannig að bílstjórinn var gegnt farþegahurðinni. Clemonds fór út úr bílnum, lyfti byssunni og kynnti sig. Ökumaðiu- þess gyllta svaraði með því að miða á hann haglabyssu. — Beygðu þig, kallaði Clemonds til lögreglustjórans. — Hann skýtur. Fyrsta skotið skall á bílnum og nokkur högl hrukku í höfuð Clem- onds sem féll við. Áður en hann datt náði hann að skjóta á móti og hitti bílhurðina. Jackson gaf þá vel i og það rauk undan hjólbörðum gyllta bílsins þegar hann hvarf inn í þorpið. Burgess lögreglustjóri skaut fjórum skotum á eftir flóttabílnum en hugði svo að félaga sínum. — Ég er heill á húfi, sagði Clemonds. — Náðu hon- um. Burgess ók af stað og skildi Clem- onds eftir. Það voru unglingar sem fylgst höfðu með atburðum sem komu að og hjálpuðu honum undir læknishendur. Þegar búið var að gera að smásárum á enni Clemonds var hann jafngóður og fór til skyldu- starfa. Gufaöur upp Á meðan elti Burgess Cadillac-bíl- inn og fleiri lögreglumenn bættust í hópinn þegar þeir fféttu hvað var að gerast. Þeir fundu bflinn 4 km norðan við þorpið þar sem Jackson hafði reynt að aka gegn um netgirðingu til að komast út á þjóðveginn. í skottinu var 26 ára gamall maður ffá O’Fall- on. Hann kvaðst hafa verið að bóna bílinn við hús sitt þegar skeggjaður maður stakk haglabyssu undir höku hans og skipaði honum að aka út á þjóðveginn. Hann sagðist hafa orðið svo hræddur að hann fór ranga leið en þá brast þolinmæði þess skeggj- aða svo hann sagðist taka við, hinn skyldi fara f skottið. Farið var með manninn á sjúkrahús þar sem gert var að skrámum sem hann hlaut í árekstr- inum við girðinguna. Öllu óheppnari var Earl Dallas Finn, 47 ára bílstjóri, sem fannst látinn í bíl sínum klukkan 6.48 f St. Peter f Missouri, rétt austur af O’Fallon. í fyrstu var talið að hann hefði látist í umferðarslysi, en svo kom í ljós að hann hafði verið skotinn með hagla- byssu. Talið var að ástæðan væri sú að bíll hans var ekki ósvipaður ómerktum lögreglubíl útlits. Leitað var í skóglendi á stóru svæði umhverfís Cadillac-bílinn en hvergi fannst Jackson. Skotgat var á bíl- hurðinni og blóðblettir í sætinu. Það benti til að Jackson væri sár, annað- hvort eftir skotið eða áreksturinn við girðinguna sem var allharður. Jackson var enn vopnaður því byss- an var ekki í bílnum eða nokkur önn- ur vopn. Særður, geðveikur morðingi gekk laus i þorpinu og hafði engu að tapa. Lögreglumenn gátu ekki hugs- að sér neitt uggvænlegra. Auk þess naut hann skjóls veðurguðanna, því rigning og þoka grúfði yfir og skyggni var nánast ekkert. Akveðið var að biða dögunar með að leita ffekar. Ibúar Wright City nánast vígbjugg- ust og lögreglumenn litu ffemur út fyrir að vera í víkingasveit f undir- heimum stórborgar en við löggæslu í smáþorpi. — Þetta er eflaust öruggasta samfé- lag í Bandarikjunum, varð Burgess að orði þegar hann sá félaga sína sem ætluðu að veija staðinn eins og virki. Leitað var í útihúsum í suðuijaðri þorpsins, i næstu íbúðarhúsum og kjarrinu allt um kring, en hvergi fúndust nein merki um Jackson. Gáð var í flutningalestar sem stönsuðu til að taka kom og fylgst var með veg- um ffá þorpinu en ekkert gerðist. Fréttamenn streymdu á staðinn og einhver hafði á orði að þetta væri að verða líkast uppskeruhátíð. 11 daga skelfingarástand Lítið var að gera f verslunum og á veitingastöðum, því fólk þorði naum- ast út. Póstburður féll niður og meira en 65% skólanema héldu sig heima. Lögreglunni varð ekki mikið ágengt. Sporhundar komu á svæðið en úrfell- ið virtist hafa skolað burt allri lykt. Leit úr þyrlum bar engan árangur og á jörðu niðri óðu menn aur og polla án þess að verða neins vfsari. Alls kyns kviksögur komust á kreik. Ein hermdi að Jackson hefði fundist dmkknaður í skurði, önnur að hann hefðist við hjá ættingjum í suður- hverfmu. Þar bjó fjölskylda með sama ættamafn, en var alls óskyld þessum Jackson. Þá heyrðist að Jack- son hefði sjálfviljugur látið leggja sig inn á geðsjúkrahús f Dallas. Leitin að Jackson stóð ffam undir helgina og ekki bætti úr skák að eftir úrfellið tók við hitasvækja ffá 30 til 35 stig upp á hvem einasta dag. Á laugardeginum var 15 mönnum úr sérsveit umferðarlögreglu ríkisins gefið ffí, en þeir þóttu svo að niður- lotum komnir að þeir gætu hæglega orðið óvarir um sig og gert skyssur. Aðrir tóku við af þeim, en allt sat við hið sama. Mannauð hús og útihús vom athuguð reglulega en ekkert fannst. Um helgina komu þrír sérþjálfaðir hundar ffá Kansas. Einn rakti gamlar slóðir, annar nýjar og sá þriðji leitaði uppi lík. Þeir þefuðu og snusuðu f all- ar áttir en það eina sem þeir höfðu upp úr krafsinu vora óþolandi flær. Þjálfari þeirra sagði að rigningin og hitinn hefðu eyðilagt allar slóðir og spillt aðstæðum. Þá gerðist það síðdegis á sunnudeg- inum að lögreglunni var tilkynnt um innbrot í húsvagn sem stóð 5 km utan við þorpið og innan við 1.500 metra ffá þeim stað sem siðast hafði sést til Jacksons. í húsvagninum fannst opin súpudós, hálf brauðsneið, nokkrar einnota rakvélar og brotinn spegill. Hárin á rakvélunum gátu allt eins verið af Jackson og öðram eftir lit og lengd að dæma. Svo virtist sem flóttamaðurinn hefði brotist inn til að seðja hungur sitt og þrifa sig. Jim Lee þjá þjóðvegalögreglu Missouri tilkynnti aðalstöðvunum um innbrotið í húsvagninn og þegar f stað vora sendir sporhundar á vett- vang og þeir látnir þefa af hlutum úr Cadillac-bílnum. Himdamir tóku þegar vel við sér og geystust f átt til þorpsins. Nokkra eftir miðnætti stað- næmdust þeir við hús við North East Second Street, spölkom ffá ráðhús- inu. Lögreglan íhugaði að ráðast þar inn, en hætti við vegna myrkurs og beið dögunar. Umsátur um hlööu Það hefði engu máli skipt. Húsið var tómt. Lögreglan komst að þvi þegar raðist var inn klukkan rúmlega sex um morguninn. Nú hafði leitin í þorpinu staðið á aðra viku og margir fbúanna voru orðnir óþolinmóðir og höfðu sitthvað misjafht að segja um ffammistöðu lögreglunnar. Samt vildi enginn að lögregluliðið færi. — Þetta er undarlegt, sagði einn íbú- anna. — Við þoram ekki út og læsum að okkur. Það mætti halda að heill her ógnaði okkur en ekki bara einn maður. Lögreglumenn vora sannfærðir um að Jackson hefði ekki sloppið, því ekki hafði verið tilkynnt um bílþjófn- að. Hins vegar var ómögulegt að vita hvort hann var enn á lífi eða látinn af sáram sfnum. Leitin hélt áffam ffam á fimmtudag. Klukkan hálfsjö leitaði lögreglan enn einu sinni á bóndabæ u.þ.b. hálfan fjórða km sunnan við þjóðveginn þar sem Jacskon skildi við bílinn á girð- ingunni níu dögum fyrr. Tvisvar áður hafði verið leitað þama án árangurs en í þetta sinn fannst blár regnffakki eins og sá sem Jackson hafði sfðast sést f. Strax var farið með jakkann til aðal- stöðvanna og síðan haldið áffam að leita í útihúsunum. Örskömmu síðar heyrðust skothvellir. Yfir 100 manns lögreglu- og þjóðvarðliða þustu að, flóðljós vora kveikt og þyrla sveim- aði yfir. Bæjarbúum var haldið álengdar og hótað handtöku ef þeir færa yfir þjóðveginn neðan við býlið. Fréttin um að Jackson væri í gildra á býlinu barst eins og eldur í sinu um svæðið. Um það bil 200 manns þustu út í bfla sína og settust að við vega- tálmana með útvarpið í gangi og bjór og snarl við höndina meðan þeir biðu þess að sjá Jackson gefast upp fyrir lögreglunni. — Komdu, Mike, þramaði lög- regluforingi í hátalara. — Við viljum ekki gera þér neitt. Ég veit að þú ert svangur og vilt líka binda enda á þetta. Þú getur hjálpað okkur öllum. Eftir hálftíma köll og alls kyns við- varanir án þess að nokkurt svar bær- ist, vora opnaðir átta brúsar af tára- gasi og fleygt inn í hlöðuna á hálffar mínútu ffesti. Engin viðbrögð feng- ust að heldur. Lögreglan virtist samt ekkert vera að flýta sér. — Við höfum verið héma í 11 daga, er haft eftir lögreglumanni. — Ég sé enga ástæðu til að fara að æsa sig núna. Klukkustundu síðar, eftir ftrekaðar hvatningar til Jacksons um að gefa sig ffam, réðst lögreglan inn f hlöð- una. Vígbúnir lögreglumenn spörk- uðu upp hurðinni, tilbúnir að tæma byssumar á manninn sem haldið hafði umhverfinu í helgreipum óttans undanfama daga. Off seint Það sem við blasti var hins vegar lfk Michaels Wayne Jackson á miðju gólfi tómrar hlöðunnar. Helming höf- uðsins vantaði. Hann hafði skotið sjálfan sig upp undir hökuna. — Við eram fegnir að geta fært íbú- um Wright City ffiðinn aftur, til- kynnti Hal Helterhoff, yfirmaður FBI í St. Louis. — Það er alltaf ánægju- legt að handsama glæpamenn sem ógna samfélaginu. Jackson var enn skeggjaður og í sömu fötum og þegar síðast sást til hans, en berfættur og augljóslega að reyna að þurrka skó sína eftir göngu- ferð í bleytu. — Hann hafði alls ekki verið í þess- ari hlöðu allan tímann síðan rigndi, sagði einn leitarmanna. — Við vor- um búnir að Hta þama inn mörgum sinnum. Hann gat aldrei verið lengi á sama stað, því alltaf var verið að leita og bílar vora stöðugt á ferðinni. Þannig var sem sé saga Michaels Wayne Jackson, viðkvæma sveita- drengsins sem ekkert mátti aumt sjá og var einstakur dýravinur. Hann breyttist í miskunnarlausan ofbeldis- segg sem sfðar varð morðingi og fyr- irfór sér að lokum. VELBOÐI HF. AUGLYSIR Miöflóttaaflsdæludreifarar - Snekkjudæludreifarar Vegna fénginnar reynslu undanfarinna ára í sölu á mykjutækjum, höfum við hjá Vélboða hf. lagt mikla áherslu á að framleiða mykjudreifara sem hannað- ur er sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Samfara þessu hefur okkur tekist að stórlækka verð tækjanna og stytta af- greiðslufrest Nánari upplýsingar hjá sölumönnum okkar í síma 91-651800. Ath. nýtt heimilisfang Helluhraun 16-18. HF 220 Hafnarflörður Sími 91-651800

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.