Tíminn - 29.09.1990, Qupperneq 16
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Holnaffiusinu v Tryggvagotu.
S 28822
SAMVINNUBANKINN
í BYGGÐUM LANDSINS
JA
T.
• NORD- AUSTURLAND ,
AKTU EKKI ÚT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 91-674000
SM
m.
il
HÖGG-
DEYFAR
I Verslto hjá fagmönnum
varahlutir
Hamarshöfða I - s. 67-6744
! I íniiiin
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER1990
Verðlagsráð frestar ákvörðun um bensínhækkun:
Gasolían hækkar um 40%
og svartolían um 16,8%
Verðlagsráð samþykkti á fundi sínum í gær að hækka verð á gas-
olíu og svartolíu. Ákvörðun um bensínhækkun var hins vegar
frestað þar til á næsta fundi verðlagsráðs. Þá samþykkti Verð-
lagsráð að leyfa 6% hækkun á far- og farmgjöldum í innanlands-
flugi Flugleiða.
Að sögn Gunnars Þorsteinsson-
ar hjá Verðlagsstofnun hækkar
lítri af gasolíu úr 15 krónum í 21,
eins og olíufélögin höfðu óskað
eftir, sem er 40% hækkun. Svart-
olía hækkar um 16,8% eða úr
11.300 krónur tonnið í 13.200. Þá
lá fyrir fundinum beiðni um
hækkun á 92 oktana bensíni um
15%, eða úr 52 krónum í 60 lítr-
inn. Þeirri afgreiðslu var hins veg-
ar frestað, sem mun hafa verið
gert að ósk aðila vinnumarkaðar-
ins, í þeirri von að ríkisstjórnin
dragi eitthvað úr hækkuninni. Þá
samþykkti Verðlagsráð 6% hækk-
un á far- og farmgjöldum Flug-
leiða í innanlandsflugi. Þessar
hækkanir koma til framkvæmda á
mánudag, 1. október.
Launþegasamtök jafnt sem at-
vinnurekendur hafa lagt á það
ríka áherslu að fundnar verði leið-
ir til að draga úr olíuhækkunum
og í gær sendi Dagsbrún ríkis-
stjórninni bréf þar sem ítrekað
var að alvarlegt ástand gæti skap-
ast ef bensínhækkanir gengju
óhindrað í gegn. Þá hefur fram-
kvæmdastjórn Verkamannasam-
bands íslands sent frá sér ályktun
þar sem þeirri skoðun er lýst að
þeirri uppsveiflu í kaupmætti,
sem koma átti á síðari hluta þessa
árs, sé nú stefnt í hættu vegna
áhrifa af hækkun olíuverðs er-
lendis. Nái hún fram að ganga, sé
þjóðarsáttin í hættu með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum.
í Ijósi þessa krefst framkvæmda-
stjórnin þess, að gjöld ríkissjóðs af
olíum og bensíni verði óbreytt að
krónutölu og að tekið verði til at-
hugunar hið dýra og margfalda
dreifingarkerfi olíufélaganna.
Þessi krafa hefur einungis verið
virt hvað varðar bensínhækkun
og er sú frestun sem varð á
ákvörðun um bensínverð í Verð-
lagsráði tímabundin. Búist er við
að hækkunarbeiðnum frá fleiri
flutningaíýrirtækjum eftir helg-
ina, þegar nýtt gasolíuverð hefur
tekið gildi.
Vegna þess að u.þ.b. helmingur
ráðherranna er erlendis um þess-
ar mundir hefur ríkisstjórnin ekki
tekið ákvörðun um hvort eða
hvernig kröfum aðila vinnumark-
aðarins verður mætt, en olíu-
verðsmálið er á dagskrá ríkis-
stjórnarfundar í byrjun næstu
viku.
Á myndinni eru forsvarsmenn rafve'rtnanna og aöstandendur myndanna. Frá vinstrí Guðjón Sigurbjartsson,
Stefán Amgrímsson, Eiríkur Bríem, Þórsteinn Ragnarsson, Eiríkur Thorsteinsson og Eiríkur Þorbjömsson.
Timamynd: Pjetur
Rafveitur landsins sameinast um innheimtuátak:
Davíð Oddsson segir að langt sé síðan
ákveðið var að álver risi við Keilisnes:
Ríkisstjórnin
meö skollaleik
í ræðu Davíðs Oddssonar á lands-
þingi Sambands íslenskra sveitar-
félaga kom fram að hann væri ekki
í vafa um það og hefði reyndar fyr-
ir því óyggjandi upplýsingar, að í
mjög marga mánuði hafí ekki
annað staðið til en að álver yrði
reist suður með sjó, ef það yrði
reist á annað borð.
Davíð sagði að álmálið væri nýj-
asta dæmið um skollaleik ríkis-
valdsins gagnvart sveitarfélögun-
um. Þeim hafi þarna verið otað
saman og þrátt fyrir að stjórnvöld
vissu að álverið yrði aldrei reist
nema á Keilisnesi, hafi hinu gagn-
stæða verið haldið að fólki. Davíð
sagðist ekki hafa tekist að fá skýr-
ingu á því hvað með þeim ljóta
leik hefði átt að vinnast, nema það
eitt að skapa ró og frið fyrir þá sem
voru að vinna að samskiptum við
hina erlendu aðila og sveitarfélög-
in sem heild hljóti að fordæma
slíkan skollaleik.
—SE
Jói trassi og kötturinn
Rafveitur landsins hafa ákveðið að
fara nýja leið í innheimtu- og kynn-
ingarmálum. Gerðar hafa veríð
fjórar bráðsmellnar teiknimyndir
um trassann Jóa sem trassar að
greiða rafmagnsreikninginn.
Myndirnar eru til þess ætlaðar að
minnka vanskil og hvetja viðskipta-
vini rafveitunnar til að láta raf-
magnsreikninginn hafa forgang,
vegna þeirrar þýðingar sem raf-
magnið hefur og verið er að greiða
fyrir. Eins og áður sagði eru mynd-
irnar til þess fallnar í og með að
kitla hláturtaugarnar og segja for-
svarsmenn rafveitnanna að með
léttu gríni megi ef til vill ná betur
athygli þeirra sem trassa að greiða
rafmagnsreikninginn. Myndirnar
eru fjórar og fjalla þær allar um Jóa
sem trassar að greiða rafmagns-
reikninginn. Rafveitan lokar og
reynir Jói eftir ýmsum leiðum að
verða sér úti um rafmagn. Köttur-
inn hans Jóa er ekki sáttur við
háttalag Jóa og grípur hann loks til
sinna ráða. Teiknimyndirnar eru al-
gjörlega íslensk framleiðsla, en við
endanlega útlitshönnun voru
fengnir tveir útlendingar. Annar
þeirra er teiknarinn Ulli Meyer, en
hann hefur mikið unnið með þeim
fræga leikstjóra Steven Spieíberg
sem gerði m.a. myndirnar um
geimálfinn E.T. og fornleifafræðing-
inn Indiana Jones. Fyrsta myndin
verður frumsýnd í sjónvarpinu í
kvöld. —SE
Páll sjónvarpsstjóri?
Foráðamenn Stöðvar 2 segjast
vilja ráða nýjan sjónvarpsstjóra
að stöðinni sem fyrst. Þorvarður
Elíasson sjónvarpsstjóri hyggst
nú hverfa aftur til síns fyrra starfs
í Verslunarskólanum á þessu
skólaári, þó samningur Stöðvar-
innar við hann renni formlega
ekki út fyrr en í febrúar. Fram
hefur komið að nokkur átök eru
um stöðu sjónvarpsstjóra og m.a.
greinir Pressan frá átökum milli
Jóns Ólafssonar og Þorvarðar í
síðasta tölublaði. Tíminn hefur
heimildir fyrir því að Páli Magn-
ússyni hafi verið boðin staðan en
Jóhann J. Ólafsson vildi ekki stað-
festa það í samtali við blaðið í
gærkvöldi, þó hann teldi Pál í
sjálfu sér ekki óálitlegan valkost.
Botnsá í Súgandafirði:
700 laxar
á einni viku
Eftir að stangveiðitímabilinu Botnsá á stöng í sumar og virðist
lauk hófust netaveiðar í Botnsá í nóg hafa veríð eftir af iaxinum í
Súgandafirði. Um 700 laxar ánni er stangveiðitímabilinu
veiddust á tæpri viku en það er lauk. Birkir sagði einníg að lík-
meira en helmingi meira en legast væri eitthvað af laxinum,
veiddist í ánni á stöng allt sum- er veiddist í netin, frá einhverj-
arið. um af hafbeitarstöðvunum í
Að sögn Birkis Friðbertssonar kring. En erfitt væri að segja til
veiddist meirihlutinn af þessum um hve mikili hluti það væri og
700 löxum á einungis þrem dög- úr hvaða stöð þelr kæmu.
um. 315 laxar komu á land úr khg.