Tíminn - 06.10.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 6. október 1990
HELGIN
11
vægð þeirri, er konungi var heimil-
uð í niðurlagi dómsins. Hefir hon-
um þá verið leyft að setjast að austur
í Múlaþingi. Raunar segir í Skarðs-
annálum að það hafi til borið að
engir kaupmenn hafi viljað hafa
hann utan á skipum sínum. Var
hann þar eystra síðan, það sem eftir
var ævinnar, og naut þar styrks
Brynjólfs biskups, enda helgaði
hann biskupi flest rit þau, er hann
samdi eftir þetta. Þar varð og síðan
aðstoðarprestur síra Guðmundur,
sonur hans, og síðast prestur á
Hjaltastöðum í Útmannasveit. Var
honum að því nokkur styrkur. Þar
getur Jóns bæði í Gagnstaðahjáleigu
og í Dalakoti. Mun hann hafa haldið
uppteknum hætti um lækningar og
verndarráð mönnum til handa þar
eystra. En ekki munu nú finnast rit-
gerðir frá hendi hans síðar en 1648,
enda segir Brynjólfur biskup í bréfi
til Worms 1649, er honum verður
tilrætt um rúnaþekking manna, að
Jón Guðmundsson eyði nú elliárum
sínum úti á landshorni, gagnslaus
sjálfum sér og öðrum. Hefir Jón síð-
ustu tvo áratugi ævinnar eða svo
fengið að lifa í fullkomnu næði og
andaðist hann eystra 1658, að því er
ráða má af góðri heimild.
Misjafnir dómar
Vart er við því að búast að samtíð-
armenn Jóns hafi haft góðan þokka
á honum; ólánsmönnum er sjaldan
hátt skipað í dómum manna. Raun-
ar minnast merkir samtíðarmenn
Jón Guðmundsson
lœrði þráði ákaft
að greina furður
náttúrunnar og
kynnast eðli
hlutanna. En flest
vann gegn honum -
hjátrú samtíðar-
innar og hans sjálfs,
auk þröngsýnna
og hefnigjarnra
valdsmanna
(síra Magnús Ólafsson að Laufási og
Brynjólfúr biskup) lofsamlega á
hann, fyrir sakir fróðleiks hans. En
bæði Ari, sýslumaður í Ögri, og síra
Guðmundur Einarsson á Staðastað
fara heldur ómildum orðum um
hann. í Skarðsárannálum segir ekki
annað um Jón, en að hann „þókti
mönnum langkunnugur að fjöl-
kynngi og stórum missögnum."
Höfundar næstir eftir Jón hafa tekið
öllu harðari höndum á honum, enda
mátti það eitt til bera að hann hafði
verið sakaður um fjölkynngi, sums
staðar í ritum sfnum veist að Lút-
herstrú og sýnt þá heldur yl til
sumra kaþólskra kenninga. Um
mannkosti hans geta menn lítt.
Hann virðist þó hafa verið dreng-
lundaður í framkomu sinni við
Spánverja. Vert er og að minnast
þess, að mjög er hann þakklátur
góðgerðarmönnum sínum og óspar
á lof í þeirra garð í ritum sínum.
Dregur það síst úr manngildi Jóns,
að margir hinna mætustu manna
um daga hans urðu til þess að draga
taum hans. Hins vegar hefur tor-
tryggni hans verið geysimikil og
þetta atriði afsakar það hversu harð-
hentur hann er á óvinum sínum,
enda myndi það nálega hafa verið
meira en mannlegt, ef hann hefði
lagt blessunarorð á þá menn sem
leiddu hann í þær miklu raunir sem
hann varð að þola. Verið hefir hann
og hreinskilinn; lýsti einurð hans
sér vel í viðureign hans við Ara í
Ögri.
„Alfríið" og ófrelsið
í niðurlagi ævikvæðis síns („Fjöl-
rnóðs") mælir hann þau orð, sem
naumast nokkur maður á þeim dög-
um mundi hafa dirfst að láta uppi.
Þar veitist hann bæði að frelsi og
ófrelsi. Of mikið frelsi („alfríið", sem
hann kallar það) lýsir sér í því að
menn brjóta niður og óvirða skoð-
anir og trú forfeðra sinna, enda hafi
slíkt leitt til deilna með einstakling-
um og styrjalda með heilum þjóð-
um. En ófrelsið leiðir til ofsóknar á
þeim, er fastheldnir voru á eldri
Stelngrimur Jóhann Haukur
Aöalfundur
Framsóknarfélags Kjósarsýslu
verður haldinn að Hlégarði sunnudaginn 14. október 1990 kl.
17.00.
Fundarefhi:
Venjuleg aðalfundarstörf og þar með talið kjör fulltrúa á
kjördæmisþing framsóknarmanna á Reykjanesi, sem haldið
verður i Keflavík sunnudaginn 4. nóvember nk. og flokksþing í
nóvember.
Alþingiskosningar og önnur mál.
Að aöalfundi loknum verður gert hlé til skrafs og viðræðna til kl.
19.15, en þá hefst kvöldverður.
Gestir fundarins verða:
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og frú Edda
Guðmundsdóttir, Jóhann Einvarðsson alþingismaður og frú
Guðný Gunnarsdóttir, Haukur Nielsson fv. hreppsnefndarmaður
og frú Anna Steingrimsdóttir.
Fólki sem ekki hefur tök á að mæta til aðalfundar er bent á, að
það er velkomið með gesti sína í hlé eftir aðalfund og síðan til
kvöldverðarins.
Vinsamlegast hafið samband vegna kvöldverðarins við Gylfa
vinnusími 985-20042, heimasími 666442 og við Helga I
vinnusíma 82811, 985-21719, heimasimi 666911, hið fyrsta.
SQómin.
Vítamín og heilsuefni
frá Healthlifé
Framlottt úr náttúiulogum Hfrænum hrá-
efnum. Hollsullf bygglr á áratuga reynslu
og samstarfl vlð lækna og vtslndamonn,
ásamt ströngu gaoðaefbrtltl.
Súper B-sterkt B fjöMtamfn.
B-6 vrtamln, bývax og Lecithln.
C-vitamín - Bioflu, Silica,
appelsinubragö. Dolomite-kalk
og Magnesium.
E-vftamin - Covltol
- hrelnt E- vftamfn.
EP. kvöldrósarolia - E-vftamln.
Super doya Leclthlrv-1200
Wild sea kelp-þaratöflur
m/yfir 24 steinefni, silica o.fl.
Fæst hjá: Vöruhúsl K.Á. Solf.,
Samkaupum og vorslunlnnl HomlA,
Kettavfk, FJartarkaupum og Hollsubúðlnnl,
Hafnarf., Hellsuhomlnu, Akureyrt,
Studio Dan, Isahrtl, vorsl. Ferska, Sauð-
árkr., Hellsuvall, Grænu llnunnl,
Blómavall o.lt. I Reykjavfk.
Dreffing:
BlÓ-SELEN umb Sfmi 91-76610.
21. flokksþing
MPJ Framsóknarflokksins
21. flokksþing Framsóknarfiokksins verður haldið á Hótel Sögu,
Reykjavík dagana 16.-18. nóvember 1990. Um rétt til setu á
flokksþingi segir í lögum fiokksins eftirfarandi:
7. grein.
Á flokksþingi framsóknarmanna eiga sæti kjörnir fulltrúar
flokksfélaga. Hvert flokksþing hefur rétt til að senda einn fulltrúa
á flokksþing fyrir hverja byrjaða þrjá tugi félagsmanna. Fulltrúar
skulu þó aldrei vera færri en 1 fyrir hvert sveitarfélag á
félagssvæðinu. Jafnmargir varamenn skulu kjömir.
8. grein.
Á flokksþinginu eiga einnig sæti miðstjórn, framkvæmdastjórn,
þingflokkur, formenn flokksfélaga og stjórnir LFK, SUF og
kjördæmissambanda.
Dagskrá þingsins verður auglýst siðar.
Framsóknarflokkurinn.
BÍLALEIGA
með útibú allt i kringum
landið, gerir þér mögulegt
aö leigja bil á einum staö
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bfla eríendis
interRent
Europcar
skoðanir og ekki vildu aðhyllast nýj-
ar kenningar. Jón fer ekki í felur
með það, að hér á hann við ýmislegt
í hinni nýju siðbreytni. Hafði trú-
skipanin drepið frelsi manna þá í
þann dróma, að þessi ummæli hans
eru einsdæmi.
Ekki er það að efa að Jón hefur ver-
ið mjög fjölhæfum gáfum gæddur.
Fyrst og fremst hefur hann verið
víðlesinn og minnugur, verið prýði-
lega að sér í fornum íslenskum
fræðum í flestum greinum, íslend-
ingasögum, fornaldarsögum, sög-
um heilagra manna, jafnt sem í
Eddu og Konungsskuggsjá. Hann
hefur og kynnt sér útlendar bækur,
er hann.fékk náð til á þeim tungum
er hann skildi. Hvar er hann fór og
spurði til bóka, handrita eða skjala,
reyndi hann að seðja fróðleiksþorsta
sinn, enda nefnir hann eða vitnar í
margt slíkt. Um hagleik hans er áð-
ur rætt. En einna mest er vert um
það hve ríka athygli hann veitir öllu.
Á raunaferli sínum um land allt læt-
ur hann ekki bugast, eins og flestir
mundu hafa gert. Hann hefur augun
sífellt opin til athugunar á öllum
þeim hlutum, er fyrir augun bar, og
girntist jafnan fræðslu, bæði hjá
innlendum mönnum og útlendum,
um allt það, er honum þótti nýstár-
legt.
Óseðjandi
fróðleiksfysn
Allt það sem Jón hefur ritað hefur
að vfsu ýmiss konar fróðleik að
geyma, þótt sundurleitt sé og víð-
ast mengað hjátrú. Frá honum eru
komnar margar þjóðsögur, prýði-
Iega sagðar, enda var hann flestum
samtíðarmanna sinna ritfærari.
Hann var fasttrúaður á álfa, þykist
jafnvel hafa kynnst þeim og skiptir
þeim í þrjá flokka. Hann segir sög-
ur um útilegumenn og fjallabúa.
Fjallabúa telur hann niðja þeirra
manna sem í öndverðu lögðust út
og ekki vildu hafa samneyti við
aðra menn. Lýsir Jón háttum
þeirra í ritgerð, sem hann nefnir
„Lítið ágrip um hulin pláz og yfir-
skyggða dali á íslandi" og í Áradals-
óði. Til hjátrúarrita má og nánast
telja „Tíðfordríf", og er það eins
konar syrpa, svo að öllu ægir þar
saman, um góða anda og illa og um
bústaði álfa. En margt er þar og, er
varðar náttúrufræði, steina, jurtir,
fugla o.s.frv., flest þó útlent að
uppruna; jafnvel skýringar orða og
nafna finnast þar. En oft veitir erf-
iðlega að komast að því hvað höf-
undurinn hyggst í rauninni að
segja. Venjulega er Krukkspá, hin
alkunna skopspá, eignuð Jóni, en
ekki er alls kostar víst að hún sé
eftir hann.
Um rit Jóns er nokkuð getið áður.
Mest eru þau verð, er varða eðli
landsins. Hann orti og talsvert og
er sumt eigi ómerkt.
Svo er þá í stuttu máli frásögn
um gáfaðan alþýðumann og kjör
hans, mann sem uppi var á þeirri
öld sem spillti upplagi hans og
hæfileikum.
Almennir stjómmálafundir
dagana 11.-14. október.
m
Halldór Ásgrimsson Jón Krtetjánsson
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Jón Kristjánsson
alþingismaður boða til almennra stjómmálafunda dagana 11.-14.
október, sem hér segir:
Fimmtudaginn 11. okt. á Hótel Bláfelli, Breiðdalsvík kl. 20.30.
Föstudaginn 12. okt. I Félagsmiðstöðinni, Djúpavogi kl. 20.30.
Laugardaginn 13. okt. á Hrollaugsstöðum, Suðursveit kl. 16.00.
Sunnudaginn 14. okt. ( Hamraborg, Berufjarðarströnd kl. 16.00.
Sunnudaginn 14. okt. í grunnskóianum Geithellnahreppi kl. 20.30.
JJmræðuefnið; stjómmálaviðhorfið ( upphafi þings.
Halldór Ásgrímsson
Jón Kristjánsson.
lllJ
AJexander Davfð
Aðalfundur
Framsóknarfélags Mýrasýslu verður haldinn 10. okt. kl. 21 ( húsi
félagsins, Brákarbraut 1, Borgarnesi.
Venjuleg aöalfundarstörf
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing
Á fundinn koma Alexander Stefánsson alþingismaður og Davíð
Aðalsteinsson, 1. varaþingmaður.
SQómin
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547.
Félagar eru hvattir til að l(ta inn.
K.S.F.S.
Kópavogur- Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn laugardaginn 6. október kl. 11.00 að
Hamraborg 5. Mætum öll.
Stjómin.