Tíminn - 16.10.1990, Síða 3
Þriðjiidagur 16. öktóbér 1990
‘ Tíminn 3
Flugmaður ferst í flug
slysi við
Ægisíðu
Á laugardaginn brotlenti tveggja hreyfla flugvél í sjónum við Ægi-
síðu í Reykjavík með þeim afleiðingum að flugmaðurinn, Valur
Amþórsson, bankastjóri Landsbankans, lést
Aðdragandi slyssins var sá að klukkan
16:50 á laugardaginn hóf flugvélin
TF-ELU, sem var af gerðinni Piper
PA34 Semecka, flugtak á braut 0-2 á
Reykjavíkurflugvelli sem liggur í
stefnuna norður-suður. Skömmu eft-
ir flugtak kallaði flugmaðurinn, sem
var einn í flugvélinni, í flugtuminn
og sagðist vera að missa afl á báðum
hreyflum og muni reyna lendingu á
braut 1-4. Þá mun vélin hafa verið
stödd yfir Hljómskálagarðinum.
Klukkan 16:53 brotlenti vélin í sjón-
um skammt frá brautarenda 1-4 og
sökk á innan við einni mínútu. Björg-
unarbátur slökkviliðs flugvallarins
með lækni um borð kom á staðinn
17:06 og klukkan 17:08 var Flug-
björgunarsveitin í Reykjavík komin á
staðinn. Klukkan 17:15 kom TF-SIF,
þyrla Landhelgisgæslunnar, á staðinn
en skömmu áður höfðu bátar séð flak
vélarinnar en ekkert lífsmark. Klukk-
an 17:32 náðist flugmaðurinn í
gúmmíbjörgunarbát slökkviliðsins á
Reykjavíkurflugvelli en kafarar Slysa-
vamafélags Reykjavíkur náðu flug-
manninum upp úr flakinu. Hann var
þá látinn.
Flugvélin TF-ELU var framleidd í
Bandaríkjunum 1977 en var skráð
hér á landi 10. apríl 1989 og var í eigu
Flugtaks hf. Lofthæfiskírteini flugvél-
arinnar var í gildi til 30. apríl 1991.
Hún náðist úr sjónum aðfaranótt
sunnudags og kom þá í Ijós að annar
vængur vélarinnar hafði rifnað af
þegar hún brotlenti. Það er talin
ástæðan fyrir því hversu fljótt vélin
sökk eftir að hún brotlenti. Vélin er
talin gjörónýt
Loftferðaeftirlitið vinnur nú að
rannsókn málsins. Vélin var fyllt af
eldsneyti rétt fyrir flugtak og beinist
rannsóknin m.a. að því hvort mistök
hafi átt sér stað við áfyllingu. —SE
Valur Arnþórsson
bankastj. látinn
Þórarinn Valur Arnþórsson,
bankastjóri Landsbanka íslands,
lést af slysförum sl. laugardag.
Hann var 55 ára gamall, fæddur 1.
mars 1935 á Eskifirði. Valur var
sonur hjónanna Arnþórs Jensen,
forstjóra á Eskifirði, og Guðnýjar
Pétursdóttur Jensen.
Hann lauk Samvinnuskólaprófi
1953 og stundaði nám í verslunar-
og tryggingafræðum við Pittman’s
College og víðar í London 1953-
1956 og árið 1965 nam hann við
sænska Samvinnuháskólann í
Saltsjöbaden.
Valur starfaði hjá Samvinnu-
trygginum á árunum 1953-1965
og var deildarstjóri þar frá 1958.
Árið 1965 réðst Valur til Kaupfé-
lags Eyfirðinga, KEA, þar sem
hann var fulltrúi kaupfélagsstjóra
til 1970, aðstoðarkaupfélagsstjóri
1970-1971 og síðan kaupfélags-
stjóri. Hann tók formlega við
stöðu bankastjóra Landsbankans
1. febrúar 1989
Valur Arnþórsson hefur gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir
samvinnuhreyfinguna, setið í
stjórnum fjölmargra fyrirtækja
hennar og hann var stjórnarfor-
maður SÍS. Hann var einnig val-
inn til ábyrgðarstarfa fyrir Fram-
Valur Arþórsson bankastjóri.
sóknarflokkinn og fyrir Norðlend-
inga og Akureyringa, var m.a. í
bæjarstjórn Akureyrar frá 1970-
1978 og forseti bæjarstjórnar
1974-1978. Þá vann Valur að ýms-
um félagsstörfum á Akureyri og
víðar, t.d. á sviði söngmála.
Eftirlifandi eiginkona Vals er Sig-
ríður Ólafsdóttur og eiga þau
fimm börn.
Akureyri:
Rætt um sjavardýraeldi
í dag og á morgun stendur yfír ráð-
stefna á Hótel KEA á Akureyri um
eldi sjávardýra. Megininntak ráð-
stefnunnar er framtíðarmöguleikar
íslendinga á arðvænlegu eldi sjáv-
ardýra. Um eitt hundrað þátttak-
endur frá íslandi, Noregi og Finn-
landi sækja ráðstefnuna.
Ráðstefnan hófst með setningar-
ávarpi Halldórs Ásgrímssonar sjáv-
arútvegsráðherra. Að því búnu
verða flutt erindi bæði af íslenskum
og norskum fyrirlesurum. M.a.
verður fjallað um rannsóknir á eldi
sjávardýra, með sérstakri áherslu á
lúðueldi. Einnig verða flutt erindi
um hvert stefni í íslenskum rann-
sóknum og möguleika íslendinga á
að nýta jarðvarma til eldis á hlýsjáv-
artegundum. Þá verða flutt erindi
um sjúkdóma í eldisfiski og mark-
aðsmál. hiá-akureyri.
Flugslysanefríd og björgunarmenn ráða ráðum sínum við Ægisíðuna á
laugardag.
Bændaskólinn
á Hólum
settur
Bændaskólinn á Hólum í Hjalta-
dal var settur við hátíðlega athöfn
í Hóladómkirkju mánudaginn 8.
október síðastliðinn.
Séra Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup á Hólum, flutti hug-
vekju og kór kirkjunnar söng við
undirleik Rögnvalds Valbergsson-
ar. Sveinbjörn Eyjólfsson, deildar-
stjóri í landbúnaðarráðuneyti,
flutti kveðjur og árnaðaróskir
landbúnaðarráðherra. Viðstaddur
skólasetninguna var einnig Neil
Wood, umsjónarkennari fiskeldis
og fiskiræktar við Barony College
í Skotlandi, en þangað hefur all-
stór hópur íslenskra fiskeldis-
fræðinga sótt menntun sína.
Samtals eru skráðir í skólann 27
nýnemar, 15 stúlkur og 12 piltar.
Er það í (yrsta skipti í sögu skól-
ans að stúlkur eru í meirihluta ár-
gangs. Kennsla eldrideildunga
hófst 10 september síðastliðinn
og munu 50 nemendur stunda
nám við skólann í vetur, þar af 23
nemendur á 2. ári. Skólinn er full-
setinn og varð að vísa nokkrum
hóp umsækjenda frá vegna tak-
markaðs heimavistarrýmis. Nem-
endur í fiskeldi, fiskiræktarbraut
eru 17 og á búfræðibraut 33. Mjög
vaxandi áhugi er á hrossarækt,
reiðmennsku og tamningum.
Mun aukin verkleg þjálfun í reið-
tækni og tamningum á hrossa-
ræktarbraut vera ein af áherslu-
breytingum skólans. khg.
Þyria Landhelgisgæslunnar
sveimar yfir björgunarbátum á
slysstað.
Tímamyndir: Pjetur.
^GIEGAWoo
sipi
I BÆNDATRYGGINGU
, •
SJOVA-ALMENNRA
SAMEINAST
EINKATRYGGINGAR
FJÖLSKYLDUNNAR 0G
VÁTRYGGINGAR
SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM
LANDBÚNAÐARINS
i
SJQVADIPALMENNAR
Vinningstölur laugardaginn
13. okt. '90
VINNINGAR FJÖLDI | VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 1 2.299.118
2. 4 99.653
3. 4af5 158 4.351
4. 3af 5 4.732 339
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.989.336 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 -
LUKKULINA
991002