Tíminn - 16.10.1990, Page 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 16. október 1990
LEKUR ER HEDDIÐ
BLOKKIN? SPRUNGIÐ?
Viögerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar geröir bifreiða.
Viöhald og viögerðir á iönaöarvélum — járnsmíöi.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borgar-
verkfræðings, óskar eftir tilboðum i skrifstofuhúsgögn fyrir
heilsugæslustöðina að Vesturgötu 7.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 17. október nk. gegn kr.
5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 30. október 1990
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
ARCOS-hnífar fyrir:
Kjötiðnaöinn, veitingahús
og möluneyti.
Sterkir og vandaöir hnffar
______fyrirfagmennlna.___
Fyrtr heimilið
MeÖ sterkum og bitmikium
hntfum getur þú vertö þinn eigln
fagmaöur. Viö bjóöum þér 4
valda fagmannshnffa og brýni á
aöeins kr. 3.750,-
Kjötöxi 1/2 kg á kr. 1.700,-
Hnrfakaupin gerast ekki betri.
Sendum í póstkröfu.
Skrifið eða hríngið.
ARCOS-hnífaumboðið
Pósthólf 10154,130 Reykjavík.
Sfmi 91-76610.
BÍLALEIGA
með útibú allt f kringum
landið, gerir þér mögulegt
að leigja bfl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bfla eriendis
interRent
Europcar
IFPPA-
HJÓLBARÐAR
Hágæða hjólbarðar
HANKOOKfrá Kóreu
235/75 R15 kr. 6.950,-
30/9,9 R15 kr. 6.950,-
31/10,5 R15 kr. 7.950,-
33/12,5 R15 kr. 9.950,-
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogl 2, Reykjavfk
Símar: 91-30501 og 84844
- ^
KÆLIBILL
Annast dreifingu
á matvörum
og hvers konar
kælivöru um land
allt. Er með
frystigeymslu
fyrir lager.
KÆLIBÍLL
Sími 985-24597
Heima 91-42873
V J
DAGBÓK
Kammermúsikklúbburinn
Aðrir tónlcikar á starfsárinu 1990- 1991
verða haldnir miðvikudaginn 17. októbcr
kl. 20.30 í Bústaðakirkju.
Kvenfélag Kópavogs
Spilað verður í kvöld ki. 20.30 í Félags-
heimili Kópavogs. Allir velkomnir.
Nýjar bækur
Bókaútgáfan Bjartur mun gefa út tvær
þýddar bækur í haust. Sigurður A. Magn-
ússon hefur nú lokið við þýðingu sína á
bók enska skáldsins Kazuo Ishiguro
Dreggjar dagsins. (The Remains of the
Day.) Kazuo Ishiguro fæddist í Nagasaki í
Japan um það bil fimm árum eftir að
Sprengjan féll á borgina. Sex ára fluttist
hann til Englands og hefúr búið þar síðan.
Þetta er þriðja bók skáldsins sem er ungur
að árum og heimspekingur að mennt.
Bækur hans bæði hvað varðar stíl og efh-
istök þykja bera vott um uppruna höfund-
ar. Hann er einn af þeim ungu bresku höf-
undum sem hafa gengið í gegnum ritlist-
amám Malcolms Bradbury. Kazuo Ishig-
uro heíur hlotið mikla athygli og
viðurkenningu fýrir skrif sín. Á síðasta ári
hlaut bókin Dreggjar dagsins bresku bók-
menntaverðlaunin Booker. Áður hafði Is-
higuro hlotið Whitbread verðlaunin 1987
fyrir aðra bók sína The Artist of the Float-
ing Worid og fyrir fýrstu bók sina A Pale
View og Hills fékk hann The Royal Liter-
ature verðlaunin. Hvað sem öllum verð-
launum líður er Drcggjar dagsins vel
skrifúð bók og fær vonandi verðskuldaða
athygli á íslenska bókamarkaðinum.
Bjartur ætlar einnig að gefa út bamabók
eflir þýska höfúndinn Janosch sem ber
heitið Komum, finnum fjársjóð. Janosch
er þekktur hér á landi fýrir bamabókina
Leitin að Panama. Komum, finnum fjár-
sjóð fjallar um sömu persónur og Leitin
að Panama; litla tígrisdýrið og litla bjöm-
inn. í þessari sögu leita þeir að hamingju
hcimsins sem þeir telja að sé fólgin í jörðu
í formi fjársjóðs. Þeir leggja land undir fót
og fara víða. Þeir finna loks gullið sem
verður þeim þó fjötur um fót og þeim til
bölvunar. í lok sögunnar, þeim til léttis,
tapa þeir guilinu í hcndur ræningja og
komast þá að því að hamingjan er ekki
fólgin í ríkidæmi heldur í vináttu þeirra
tvcggja. Sagan er bæði sögð í máli og
myndum.
ITC deildin Ösp á Akranesi
heldur kynningarfúnd i kvöld kl. 20.30 á
vcitingahúsinu Ströndinni á Akranesi.
Fundarstcf „Þitt tækifæri er komið, það er
í dag“. Fundurinn er öllum opinn. Upp-
lýsingar vcita Sigríður í síma 93-12360,
Björg í síma 33-11667 og Guðrún í síma
91- 672806.
Pétur Tryggvi sýnir í Epal
Fimmtudaginn 18. október verður opnuð
sýning á skartgripum Péturs Tryggva
versluninni Epal, Faxafeni 17. Sýningin
verður opin til 9. nóvember, virka daga kl.
9-18, laugardaga og sunnudaga frá kl. 10-
14.
Sagt frá ferö til Sakhalin-eyjar
Nk. miðvikudagskvöld 17. október kl.
20.30 verða þau Bergþóra Einarsdóttir
blaðamaður og Eyjólfúr Friðgeirsson
fiskifræðingur gestir í húsakynnum MÍR,
Menningartengsla íslands og Ráðstjóm-
arríkjanna, Vatnsstíg 10, og fjalla um ferð
sem þau fóru í júlímánuði í sumar til Sak-
halineyjar undan Kyrrahafsströnd Sovét-
ríkjanna. Segja þau ffá ýmsu sem fyrir
augu og eyru bar í ferðinni og sýna mynd-
ir. Aðgangur er öllum heimill.
Vera — ný vefnaöarvöruverslun í Mosfellsbæ
Sl. laugardag var opnuð ný og glæsileg vefnaðarvömverslun í Mosfellsbæ. Hún nefnist
Vera og stendur við Urðarholt 4.
Eigendur Vem eru þær Anna Steinsdóttir og Agla Björk Einarsdóttir.
Þær Agla og Anna, sem báðar hafa langa reynslu af starfi í vefnaðar- og fataverslun-
um, munu kappkosta að veita viðskiptavinum sínum sem besta þjónustu, aðstoða við að
taka upp snið og jafnvel að koma þeim af stað við saumaskapinn.
Verslunin Vera er 96 fm að flatarmáli og áhersla hefúr verið lögð á vandaðar innrétt-
ingar.
: TÓNLIST
Sigurður Steinþórsson:
Flaggskipið ýtir úr vör
Sinfóníuhljómsveit íslands hóf
vetrardagskrá sína með tónleikum
í Háskólabíói 11. október. Petri
Sakari stjórnaði en finnska sópr-
ansöngkonan Soile Isokoski söng.
Á efnisskrá voru fjögur lítil hljóm-
sveitarverk, eftir Mendelssohn,
Sallinen, Árna Björnsson og Síbel-
íus og 4. sinfónía Brahms.
Tónleikaskráin segir að Árni
Björnsson telji „Litla svítu fyrir
strokhljómsveit", sem hann samdi
1940 og þarna var flutt, meðal
sinna bestu verka. Hvað sem um
það má segja er þetta afar
skemmtilegt og hugþekkt verk
—lystilegur er 2. kaflinn, Scherz-
ettino, sem allur er í pizzicato
(plokkaðir strengir), en aðrir kafl-
ar þóttu minna á ensk tónskáld
eins og Vaughan Williams. Og var
þó Árni ósigldur til Bretlands
1940. Petri Sakari lagði sig greini-
lega mikið fram við að koma þessu
verki Árna -sem og öðrum verkum
þarna -sem best til skila og er sú
framganga hans til mikillar fyrir-
myndar, því stundum hefur manni
þótt við brenna að hljómsveitar-
stjórar köstuðu höndum til „ís-
lenskra skylduverka" og létu þau
damla. Slíkt leyfa sér hins vegar
ekki sannir atvinnumenn, þeirra
köllun er að gera ævinlega sitt
besta og einum betur.
Vert er að reyna að leggja á minn-
ið nafn söngkonunnar Isokoski
sem þarna söng Fjóra draum-
söngva eftir Sallinen og Luonnot-
ar eftir Síbelíus. Tónleikaskráin
segir stjörnu Isokoski á hraðri leið
upp himininn; hún hefur þétta og
mikla sópranrödd og flutti þessi
níðerfiðu verk af miklum gíæsi-
brag. Ýmsum þykir að vísu sem Sí-
Ámi Bjömsson tónskáld.
belíusartrúboðið gangi nú einum
of langt, og aldrei friður fyrir hin-
um finnska jöfri í íslenskum tón-
leikasal, en aðrir benda á að nær
væri að læra af þessu fordæmi og
pakka Jóni Leifs inn fyrir sölu-
meðferð á heimsmarkaði. Sem
minnir á það að í væntanlegri tón-
leikaför Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar til Norðurlanda (Helsinki,
Turku, Stokkhólmur, Kaup-
mannahöfn) er Jón ekki á efnis-
skrá, heldur nafni hans Nordal og
Þorkell Sigurbjörnsson -mætir
menn að vísu en minni sanda og
sæva en Jón Leifs.
Sinfóníuhljómsveit íslands hefur
aldrei verið betri en þessi árin, og
ber sjálfsagt margt til; Petri Sakari
á vafalaust sinn þátt í þessu, því
hann er frábær stjórnandi, en
einnig sá grimmilegi háttur að láta
samkeppnispróf ráða vali hljóð-
færaleikara, óháð, aldri, þjóðerni
eða fyrri störfum. Enda er tæplega
þriðjungur hljóðfæraleikaranna af
erlendu bergi brotinn (23 af 79 á
þessum tónleikum), allmargir
þeirra reyndar orðnir íslenskir rík-
isborgarar. Þannig hefur það lengi
verið í tónlistarmálum vorum að
mikill hluti kunnáttunnar og
dugnaðarins hefur komið að utan.
Þar lögðu Mið- Evrópumenn
þyngst lóð á vogarskálar, eins og
Urbancic og Abraham, svo dæmi
séu tekin úr allstórum hópi
manna.
Síðust og mest á efnisskránni var
4. sinfónía Brahms. Þótt ég telji
mig ekki minni brahmsista en
hvern annan hlýt ég að viður-
kenna að Brahms er jafndrepleið-
inlegur þegar hann er dauflega
spilaður og hann er frábær þegar
vel tekst til. Sem tókst núna -og
ætti raunar alltaf að takast þegar í
hendur haldast stjórnandi eins og
Petri Sakari og hljómsveit jafn-
prýðiieg og S.í. er um þessar
mundir. Vafalaust munar þar
mest um strengina, því blásararn-
ir hafa yfirleitt verið heldur góðir.
Vert er að geta þess, því nú lifum
við mikla byltingar- og framfara-
tíma, að í strengjunum er kona í
hverju leiðtogasæti nema hjá
kontrabössunum: Guðný Guð-
mundsdóttir konsertmeistari í 1.
fiðlu, Helga Hauksdóttir í 2. fiðlu,
Helga Þórarinsdóttir leiðir lágf-
iðlurnar en Bryndís Gylfadóttir
knéfiðlurnar-nýliði hjá Sinfóníu-
hljómsveitinni sem við bjóðum
velkomna.
Prófarkalestri í hljómleikaskrá
var áfatt og ber að leiðrétta það.