Tíminn - 19.10.1990, Síða 10
10 Tíminn
Föstudagur 19. október 1990
VALUR ARNÞORSSON
Valur Arnþórsson á aöalfundi Kaupfélags Eyfirðinga.
til hans fyrir hönd Starfsmannafé-
lags KEA og hann studdi við bakið á
því á ýmsa lund í gegnum árin.
Vinnuþreki og dugnaði Vals var
löngum við brugðið, en hann kunni
líka að skemmta sér og gleðjast með
öðrum. Það kom glöggt fram á árs-
hátíðum og öðrum samkomum
starfsmanna. Þar var Sigríður Ólafs-
dóttir, kona hans, jafnan einnig virk-
ur þátttakandi og vann sér almenna
hylli.
Fyrir hönd starfsmanna KEA sendi
ég Sigríði, börnum hennar og öðr-
um aðstandendum innilegar samúð-
arkveðjur á sárri sorgarstundu. Hlýr
hugur og góðar óskir leita ykkar
héðan að norðan.
Stefán Vilhjálmsson
formaður
Starfsmannafélags KEA
Það réð því áreiðanlega engin til-
viljun hvar Valur Arnþórsson kaus
að hasla sér völl í lífinu. Ævistarf
hans var unnið á vettvangi sem gaf
honum tækifæri til að láta félags-
mál, í víðustum skilningi, til sín
taka. Valur var sá gæfumaður að geta
sameinað störf og þjóðmálaáhuga
sinn. Á báðum sviðum, í daglegum
störfum og á vettvangi félagsmála og
stjórnmála, var hann að vinna að
framgangi hugsjóna sem ristu dýpra
en ætla mátti við fyrstu viðkynn-
ingu.
Kynni okkar Vals voru fyrst og
fremst á hinum félagslega vettvangi
samvinnuhreyfingarinnar og í
Framsóknarflokknum, en á báðum
stöðum var hann valinn til helstu
trúnaðarstarfa. Þar lét hann sér fátt,
sem til framfara horfði, óviðkomandi
og mælti fyrir málum af þeirri rök-
festu sem honum einum var lagin.
En málefnum vann hann ekki síður
fylgis með viðmóti sínu og fram-
göngu sem laðaði að. í mínum huga
var hann hinn síungi hugsjónamað-
ur sem missti ekki sjónar á því til
hvers hin félagslega barátta er háð.
Hann var einlægur jafnaðar- og sam-
vinnumaður og vildi heilshugar
vinna að því að hreyfingar þessara
afla störfuðu saman, sem kjölfesta
íslenskra stjórnmála, um ókomna
tíð.
Lengst af var það samvinnuhreyf-
ingin sem naut starfskrafta Vals en
auk daglegra starfa fyrir hana lét
hann sér annt um, að þær hugsjónir
sem sú hreyfing byggir á, yrðu ekki
útundan í veraldarvafstrinu. Því var
hann óþreytandi að hlúa að þeim
veika gróðri hugsjónastarfa sem,
þegar öllu er á botninn hvolft, er hin
eina uppspretta framfara.
Valur var gæddur þeim hæfileika að
skoða hluti og þróun mála til lengri
tíma litið og dæma síðan málefnin
eftir því. Slíkt ber vott um víðan
sjóndeildarhring og það að menn láti
vandamál hversdagsins ekki yfir-
gnæfa annan tilgang og mikilvægari.
Við sem eftir lifum verðum að sætta
okkur við að fá aldrei oftar að heyra
hina hlýju rödd, né njóta þeirra frjóu
hugmynda og uppörvunarorða sem
Valur miðlaði óspart. Þrátt fyrir öfl-
ugt lífsstarf átti hann eftir að vinna
að framfaramálum enn um langa
hríð og vorum við mörg sem vonuð-
umst til að fá að njóta krafta hans í
frekara starfi. Aðstandendum Vals
votta ég mína innilegustu samúð.
Blessuð veri minning Vals Arnþórs-
sonar.
Bolli Héðinsson
Þær voru daprar hádegisfréttirnar
sunnudaginn 14. okt. sl. Þær boð-
uðu m.a. að Valur Arnþórsson
bankastjóri hefði farist daginn áður í
flugslysi. Okkur hjónin setti hljóð.
Var þetta virkilega svona? Um það
var ekki að villast. Maðurinn með
Ijáinn hafði komið þarna við og um
það þýddi ekki að fást.
Á haustdögum árið 1952 settist ég á
skólabekk í Samvinnuskólanum
ásamt hópi annarra ungmenna. í
þessum hópi voru meðal annarra
Valur Arnþórsson og Sigríður Ólafs-
dóttir. Þau felldu hugi saman og hafa
verið iífsförunautar síðan. Þá hófust
kynni mín af Vali, sem í dag er kvadd-
ur af samferðamönnum sínum.
Voriö 1953 lauk Valur prófi frá Sam-
vinnuskólanum. Jafnframt fram-
haldsnámi hóf hann strax störf hjá
Samvinnutryggingum. Á þessum
haustdögum árið 1952, helgar Valur
sig Samvinnuhreyfingunni og hófst
þar glæsilegur ferill, sem stóð sam-
fleytt í rúman aldarþriðjung.
Það duldist engum, sem þekkti
hann, að þar fór maður sem var til
foringja fallinn, fór þar saman í senn
djörf og fáguð framkoma og frábær
ræðusnilld á mannfundum. Sam-
vinnumenn kvöddu Val fljótlega í
forystusveit, einnig á öðrum sviðum
þjóðlífsins voru honum falin mikils-
verð trúnaðarstörf. Allt þetta axlaði
Valur af fádæma atorku.
Eins og títt er um þá sem til forystu
veljast var Valur umdeildur. Hjá því
komast baráttumennirnir ekki. Víst
er um það að hann tók af okkur sem
aftar vorum í fylkingunni marga
skvettu. Það breytir því hins vegar
ekki að hann var óumdeildur foringi
samvinnumanna um árabil og á
stórum stundum í sögu samvinnu-
hreyfingarinnar verður hann mér
ógleymanleggur, fyrir glæsilega
framkomu. Þegar íslenskir sam-
vinnumenn héldu upp á aldarafmæli
hreyfingarinnar var haldinn sérstak-
ur hátíðafundur á Laugum í Þingeyj-
arsýslu. Sá fundur verður mér og
vafalaust fleirum ógleymanlegur,
ekki hvað síst fyrir glæsilega fundar-
stjórn stjórnarformanns Sambands
íslenskra samvinnufélaga, Vals Arn-
þórssonar. Ég minnist líka hátíða-
halda á Akureyri í sambandi við ald-
arafmæli Kaupfélags Eyfirðinga, þar
var glæsileg framkoma Vals eftir-
minnileg. Lengur mætti telja í þeim
dúr. Að því kom svo að Valur hvarf
frá störfum hjá Samvinnuhreyfing-
unni, og gerðist bankastjóri Lands-
bankans í ársbyrjun 1989. Þessi
ákvörðun var honum örugglega erfið
og þarf engan að undra eftir svo fjöl-
þættan starfsferil. Ég mun ekki rekja
hér frekar starfsferil Vals, það mun
víða verða gert. Við unnum ekki
saman að úrlausn mála í eiginlegum
skilningi, við vorum þó lengi saman
á báti. Ég átti símtal við Val síðasta
daginn sem hann sat við stjórnvöl
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, ég heyrði
glöggt að hann saknaði margs af því
sem hann var að hverfa frá. Hann
sagðist samt ekki kvíða nýju starfi.
Við ræddum aðeins um þau um-
skipti sem voru í stétt kaupfélags-
stjóra, þar sem margir gamalreyndir
kaupfélagsstjórar voru um það bil að
hverfa frá störfum. Ég lét þau orð
falla að mér væri kannski innan-
brjósts eins og manni sem stæði á
ströndinni og horfði á eftir skipinu
sigla burt. Að sjálfsögðu grunaði mig
ekki þá, að svo skammt væri þess að
bíða að hann yrði kallaður með svo
sviplegum hætti og við hin stæðum
ráðþrota á ströndinni.
Afi Vals, Vilhelm Jensen, var um
nokkurra ára skeið á Kúvíkum við
Reykjarfjörð ásamt bróður sínum
Carl. Af þeim sökum var Árneshrepp-
ur Val dálítið hugleikinn. Það var
fastmælum bundið milli okkar að
hann kæmi einhvem tíma hingað og
við fæmm saman á þennan forna
verslunarstað. Af þessu verðir ekki,
því „Mennirnir álykta en Guð ræð-
ur“. Þrátt fyrir fádæma dugnað var
Valur ekki bara þræll starfsins. Þegar
létt var af sér oki dagsins var hann
hrókur alls fagnaðar. Sérstaklega
minnist ég samveru með þeim hjón-
um í mörgum sumarferðum kaupfé-
lagsstjóra og þeirra fjölskyldna, í
byggðum og óbyggðum, þær stundir
eru geymdar í sjóði minninganna.
Valur stóð ekki einn í lífsbarátt-
unni. Eiginkona hans, Sigríður Ól-
afsdóttir, var hans dyggi lífsföru-
nautur. Þau bjuggu sér fagurt heim-
ili og þar var Ijúft að vera gestur.
íslenskir kaupfélagsstjórar hafa
löngum haft með sér félagsskap,
sem hefur kannski ekki alltaf staðið
föstum fótum, en lifir þó. Þar eins
og annars staðar var Valur dyggur
félagsmaður. Hann var ávallt
ótrauður að telja kjark í menn, þótt
á móti blési. Honum var umhugað
um að í landinu gætu starfað bæði
stór og lítil kaupfélög. Þannig taldi
hann að Samvinnuhreyfingin yrði
sterkust.
Að leiðarlokum vil ég, fyrir hönd
Kaupfélagsstjórafélagsins, þakka
honum vegferðina. Islenskir kaupfé-
lagsstjórar drúpa höfði í virðingu
fyrir látnum félaga og votta eftirlif-
andi eiginkonu, börnum og öldruð-
um föður dýpstu samúð.
Sigríður mín, við hjónin hugsum
til þín barnanna og Amþórs á þess-
um myrku haustdögum, megi Guð
veita ykkur styrk í sorginni.
Gunnsteinn Gíslason
Norðurfirði
Það tilheyrir sextugsaldrinum að
vera farinn að venjast því að vinir^
hverfi fyrirvaralítið yfir móðuna
miklu vegna bráðra sjúkdóma. Mað-
ur veit, að samkvæmt lögmálinu
hendir þetta ákveðinn hluta okkar
og fyrir því beygir maður sig því al-
valdur ræður. En þegar mikill hæfi-
leikamaður á besta aldri er hrifinn á
brott á lítt skiljanlegan hátt eins og
Valur Arnþórsson, kemur upp sterk
löngun til að mótmæla. íslenska
þjóðin þurfti á honum að halda
miklu lengur því Valur hafði sér-
stæða og mikilvæga hæfileika, sem
nýttust honum afar vel í hinu nýja
starfi sem bankastjóri Landsbanka
íslands, eins og þeir nýttust honum í
fyrri störfum. í bankanum vann
hann að því að leysa vandamál sem
eru brýn úrlausnar og sem varða
okkur 611. Sæti Vals er vandfyllt og
tjón fámennrar þjóðar er mikið. Enn
þyngra er þó áfall fjölskyldunnar
sem fékk hina óvæntu helfregn þeg-
ar enginn átti sér ills von. Árin fram-
undan, sem áttu að verða svo góð,
þegar uppskomir yrðu ávextir far-
sællar starfsævi og fjölskyldulífs,
virðast allt í einu myrk og kvíðvæn-
leg. Besti vinurinn, eiginmaður, fað-
ir, afi, sonur og bróðir, er horfinn og
allt verður að hugsa upp á nýtt.
Leiðir okkar hjóna og Vals og Siggu
lágu snemma saman. Ég man fyrst
eftir þeim á fundum í FUF fyrir
meira en 30 árum. Kynni konu
minnar og þeirra voru þá nánari því
hún lenti í vinahópi ungs fólks, þar
sem þau voru meðal vinanna. AJltaf
vissum við hvert af öðru en allt í einu
lágu leiðirnar þétt saman norður á
Akureyri. Valur fór til starfa hjá KEA
og var þar að búa sig undir að taka
við starfi kaupfélagsstjóra þegar ég
fór þangað norður sem bæjarstjóri.
Valur og Sigga tóku okkur opnum
örmum og mikið var auðveldara að
nema land á nýjum stað með þá
hauka í horni. Síðan fluttu Lárus
Jónsson og Rúna í bæinn og við,
þessi brenn hjón, héldum oft hóp-
inn. Á þessum árum kynntust við
mannkostum þeirra Vals og Siggu.
Minnisstæð var hugulsemin, það að
muna eftir manni og gera svolítið
meira fyrir mann en maður átti von
á. Aldrei gleymum við því, þegar við
vorum fjögur að koma heim úr jóla-
ferð til ættingja syðra með fimmta
fjölskyldumeðliminn rétt ófæddann.
Það var kalsaleg tilhugsun að fara
ferðalúinn beint í dimma íbúðina á
jólunum og fara síðan að undirbúa
kvöldverð og sinna börnum. En Val-
ur beið í flugstöðinni, að því við töld-
um til að keyra okkur heim, og það
var góður greiði. En hann ók ekki
heim til okkar heldur heim til sín
þar sem Sigga beið með dásamlega
máltíð, og þar hvarf ferðalúinn og
jólaskapið tók við. Þetta er eitt af
gullkornum minninganna og þeir
sem slíkum komum dreifa yfir líf
annarra safna sjóðum þar sem vert
er að eiga sjóði.
Valur Arnþórsson tók störf sín mjög
alvarlega og einnig hafði hann mik-
inn áhuga á málefnum bæjarins,
landsbyggðarinnar og landsins alls.
Oft vom þessi mál tekin til umræðu
í tveggja eða þriggja manna hópi. Ég
tók fljótt eftir því hve Valur hlustaði
vel á það sem aðrir sögðu, hve auð-
velt hann átti með að greina aðalat-
riðin frá aukaatriðunum og hve fljót-
ur hann var að átta sig á flóknu máli.
Þetta eru grundvallareiginleikar
þess sem ráða á miklu. Við þetta
bættist svo fjölhæfnin og þessi gífur-
lega starfsorka, sem ég sáröfundaði
hann af. Mér og öðrum á Akureyri
varð því fljótt Ijóst, að þar fór maður
sem ná mundi langt og sem skila
mundi miklu og góðu ævistarfi. Og
fyrir norðan kom hann víða við, ekki
bara hjá KEA og fyrirtækjum þess og
Sambandsins, heldur einnig hjá
bænum, þar sem hann varð afbragðs
bæjarfúlltrúi, einstaklega farsæll
nefiidarmaður og aðsópsmikill og
ákveðinn forseti bæjarstjórnar, sem
umgengist gat hvaða tiginmenni
sem að garði bar á einfaldan, látlaus-
an en virðulegan hátt.
Valur var gæfumaður í starfi og í
einkalífi. Þau Sigríður lögðu
snemma hugi saman og hófu búskap
og eignuðust bam þegar aðrir voru
að leika sér. Oft er sagt að hjónabönd
sem stofnað er til snemma endist
skammt. En þarna varð raunin önn-
ur. Samstæðari hjón hef ég ekki
þekkt, og víst er það ein skýringin á
því hve Val vegnaði vel í starfi og á
hinni endalausu starfsorku hans,
hve gott heimili Sigríður bjó honum
og hve dyggilega hún studdi hann.
Valur unni fjölskyldu sinni og heim-
ili, það var hans heilaga vé. Bömin
urðu fimm á um tuttugu árum. í
þeim öllum koma hæfileikar foreldr-
anna fram, ekki síst fjölhæfnin, því
þeim er margt til lista lagt.
Það er eðlilegt að staldrað sé við,
íhugað og spurt hver tilgangurinn sé
með því að taka slíkan mann sem Val
Arnþórsson frá okkur, einmitt þegar
við þurfum umfram allt á hæfileika-
mönnum eins og honum að halda.
Störf hans voru einstaklega upp-
byggileg og í þeim tilgangi unnin að
bæta lífið í landinu. Slík störf eru
unnin í guðs þágu og í guðs nafni
enda virti Valur guð af einlægni, var
sáttur við hann og efaði ekki hjálp-
ræði hans. Því er, samkvæmt mann-
legum skilningi, rökrétt, að honum
hefði verið tryggð sem lengst starfs-
ævi. En okkur tjáir ekki að deila við
hinn mikla dómara, hann hlýtur að
hafa þurft á Val að halda til enn mik-
ilvægari verka.
Við, sem söknum vinar, góðs drengs
og mikilhæfs manns, höfum rétt til
að harma. En sárari er söknuður eig-
inkonu og barna, aldraðs föður og
annarra ástvina. Tjón þeirra verður
aldrei bætt þótt ná verði sáttum við
þann sem þessu réði. Við hjónin og
börnin okkar vottum ykkur öllum
dýpstu samúð og við biðjum guð að
styrkja ykkur. Minningu Vals skulum
við öll bera í hjörtum okkar þar til
við hittum hann aftur.
Bjami Einarsson
Slys gera ekki boð á undan sér. Svo
er einnig um brotthvarf bestu
manna í blóma lífsins.
Við Valur sáumst síðast í Borgarnesi
8. október sl., en þar var hann á
fundi Byggðanefndar forsætisráð-
herra til að hlýða á 37 framsögu-
menn leggja í pott byggðanefndar-
manna úrræði til lausnar byggða-
vandans. Hann var ekki í hópi þeirra
sem opinberuðu sig á þessum fundi,
en auðséð var að hann fylgdist með
af eftirvæntingu því sem fram fór á
fundinum. Þetta tók af öll tvímæli
um að þrátt fyrir að hann hefði valið
sér nýjan vettvang í Landsbankanum
var hann enn sem áður sami lands-
byggðarmaðurinn og þegar hann var
á meðal okkar hér fyrir norðan.
Ég tel mig ekki hafa tök á að rekja
feril Vals Arnþórssonar svo marg-
þættur var hann. Hvflíkt starf sem
liggur eftir hann á miðjum aldri. Það
er meira að umfangi en ég tel mér
fært að rekja hér í stuttri minningar-
grein.
Sá rithagi maður Helgi Sæmunds-
son sagði í minningargrein um
Hauk Snorrason ritstjóra, sem lést á
sviplegan hátt á besta aldri, að hann
hefði lokið slíku ævistarfi, sem taki
aðra langa ævi og dugir ekki til. Svo
var um Val Arnþórsson. Hann lauk
ævistarfi á við marga ágætismenn
fyrir miðjan aldur.
Kynni okkar Vals eru gömul, allt frá
þeim dögum þegar við vorum
áhugasamir liðsmenn samtaka
ungra framsóknarmanna. Hann var
einn þeirra manna sem lyfti félagi
ungra framsóknarmanna í Reykjavík
úr því að halda fundi sína í herbergi í
fundarsal og á þann veg að eftir var
tekið.
Hlutskipti okkar beggja var að flytja
norður í land til ólíkra verkefna.
Báðir að framkvæma hugsjónir sínar
og takast á við komandi veruleika.
Á Húsavíkurárum mínum hratt ég
af stað umræðu um stóriðju og stór-
virkjanir á Norðurlandi.
Ljóst var að ekki voru möguleikar
til að staðsetja stóriðju í nágrenni
Húsavíkur. Skilyrðin voru best við
Eyjafjörð. Það var ekki fyrr en á
fyrstu árum Vals Arnþórssonar fyrir
norðan og í samstarfi við þáverandi
bæjarstjóra, Bjarna Einarsson og
Lárus Jónsson, sem þá vann að norð-
urlandsáætlun á vegum Efnahags-
stofnunar, að Eyfirðingar fóru að
gefa þessu gaum.
Þrátt fyrir að margir Eyfirðingar
voru þungir í taumi og að þeir skildu
ekki sinn vitjunartíma um að verða
öfugt mótvægi á móti höfuðborg-
inni, hélt Valur þessu máli vakandi
og það í óþökk margra.
Ég tel mér óhætt að fullyrða að ef
ekki hefði notið atfylgis Vals í stór-
iðjumálum hefði Eyjafjörður aldrei í
alvöru verið á borðunum varðandi
staðarval fyrir stóriðju. Svo kunnug-
ur þykist sá vera, sem þessar línur
ritar, innviðum þeirra aðila, sem
mestu hafa ráðið og ráða enn um
stórvirkjunarröð og staðarval stór-
iðju á íslandi, að þetta er fullyrt hér.
Nú er skarð fyrir skildi. Fallinn er
frá sá maður sem gjörþekkti innviði
þessara mála og gat veitt forystu til
gagnsóknar.
I starfi mínu sem framkvæmda-
stjóri Fjórðungssambands Norð-
lendinga, átti ég mjög góð samskipti
við Val og mat mikils stuðning hans.
Hann mun hafa setið tvö fjórðungs-
þing, þegar fjallað var um orkumál
og Norðurlandsvirkjun.
Eg er einn þeirra manna, sem hefur
notið mikils í kynnum við Val Arn-
þórsson.
Ég harma þau grimmu örlög að
brottkalla frá okkur afburðamann í
miðju ævistarfi.
Svo fjölhæfur var Valur að hann
hefði sómt sér vel í fremstu röð
stjórnmálaforingja þjóðarinnar.
Éf til vill beið þetta hans, hefðu ævi-
dagarnir orðið fleiri.
Áskell Einarsson