Tíminn - 19.10.1990, Page 16
—
AUGLVSiNGASIMAR: 680001 — ^
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnorhusinu v Tryggvagotu.
S 28822
I SAMVINNUBANKINN
Li BYGGÐUM LANDSINS
NI55AN
Réttur bíll á
réttum stað.
Ingvar
Helgason hf.
Sævartiöföa 2
Sími 91-674000
[BÆNDATRYGGING
Wf’
SJQVÁbgfALMENNAR
Frumvarp um að breyta Síldarverksmiðjum ríkisins í
hlutafélag lagtfram í ríkisstjórn. Halldór Ásgrímsson:
Rekstrarform SR er
einfaldlega úrelt
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- þingi frumvarp sem felur í sér að hlutaféiag. Hann kynnti frumvarpið í
herra hefur ákveðið að leggja fyrír Al- breyta Sfldarverksmiðjum ríkisins í ríkisstjórninni í gær.
„Lögin um Síldarverksmiðjur ríkis-
ins eru orðin mjög gömui og í þeim
ákvæði sem eru ekki í neinu sam-
ræmi við nútíma stjórnunarhætti,"
sagði Halldór í samtali við Tímann.
Rétt sé því að láta Alþingi fjalla um
málið.
Hann benti á að Síldarverkmiðjur
ríkisins væru mikilvægt fyrirtæki og
því væri nauðsynlegt fyrir það að
geta þróað starfsemi sína með þeim
hætti sem gengur og gerist í samfé-
Iaginu í dag. „Ég tel það eðlilegt
form fyrir slíkt félag, að það sé
hlutafélag. Síldarverksmiðjurnar
þyrftu að geta tekið upp samstarf við
aðra aðila, eins og t.d. eigendur
loðnuskipa, og jafnframt verið opn-
ar fyrir því að nýir aðilar komi inn í
reksturinn með áhættufé."
Fyrir rúmlega ári síðan skilaði
nefnd, sem fjaliaði um málefni Sfld-
arverksmiðja ríkisins, nefndaráliti
og var þar lagt til að lögunum yrði
breytt. í framhaldi af því var samið
frumvarp, m.a. þess efnis að breyta
fyrirtækinu í hlutafélag, þó það hafi
ekki verið lagt fyrir þingið. „Það hef-
ur mætt nokkurri andstöðu, meðal
annars innan stjórnar Síldarverk-
smiðjanna, sem telja þetta form hafa
gefist vel. Þannig að málið var aldrei
lagt fyrir Alþingi á síðasta vetri. Ég
tel hins vegar eðlilegt að Alþingi fái
málið til umfjöllunar og ef menn
vilja breyta þessum lögum með ein-
hverjum öðrum hætti, en þarna er
lagt til, þá verður það að koma í Ijós
hver vilji þingsins er.“ Hann sagði
þetta frumvarp vera lítið breytt frá
því í fyrra.
Halldór sagði lögin vera einfald-
lega úrelt.
„Hlutafélagsformið er ekkert ann-
að en form sem almennt er notað í
Hafnarfjörður:
Brotist inn í
Sandafell HF 82
Brotist var inn í Sandafell HF 82
þegar það lá við Óseyrarbryggju í
Hafnarfirði einhvemtímann á tíma-
bilinu frá sunnudagskvöldi til há-
degis á mánudag.
Brotist var inn í vistarverur skip-
verja og þaðan stolið tveimur sjón-
varpstækjum, myndbandstæki og
magnara fyrir myndbandstæki.
Einnig hafði verið rótað í skipinu og
átt hafði verið við lyfjakassa skips-
ins. Málið er nú í höndum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. —SE
atvinnurekstri. Það er eðlilegt að
ríkið geri það líka, í þeim fáu tilvik-
um sem það er í atvinnurekstri. Það
er nú hins vegar svo, að það er ekki á
stefnuskrá stjórnmálaflokka, að rík-
ið sé í atvinnurekstri nema í algjör-
um undatekningatilvikum. Ég tel að
rfkið eigi almennt að forðast slíkt,
því það eru hlutir sem einstakling-
arnir í samfélaginu eiga að takast á
við.“
-hs.
Franskur orgelsnillingur kominn til landsins:
Blindur og fatlaður.
Samt einn sá besti
Hingað er kominn til lands á veg-
um söngmálastjóra Þjóðkirkjunn-
ar franski orgelsnillingurinn Lou-
is Thiry. Thiry hefur mikla sér-
stöðu meðal orgelleikara vegna
þeirrar fötlunar sem hann hlaut í
slysi sem bam. Hann er bæði
blindur og ennfremur vantar
framan á fingur vinstri handar.
Fyrstu tónleikar Louis Thiiy
verða laugardaginn 20. október
kl. 17.00 á Akureyri en á þriðju-
daginn 23. október kl. 21.00
heldur hann tónleika í Fríkirkj-
unni í Heykjavík. Þriðju tónleíkar
Thiry verða síðan í Dómkirkjunni
f Reykjavík á iostudagskvöldið kl.
21.00 og verða þá á efnisskránni
m.a. fantasíur í f-moll eftir Moz-
art.
Louis Thiry missti bæði sjón og
framan af þrem fingrum vinstri
handar þegar sprengja, sem hann
var að leika sér að, sprakk í hönd-
um hans. Þrátt fyrir slysið var
Thiry staðráðinn í að komast í
tónlistamám og aðeins sjö ára
gamall óskaði hann eftir að kom-
ast f tíma til píanókennara f
heimaborg sinni. Kennarinn vís-
aði Thiry frá vegna fotlunar hans.
Thiry þrjóskaðist þó við og tók að
æfa sig á píanóið á eigin spýtur.
Ári síðar fór Thiry heim til sama
kennara og haföi vfsað honum frá
og spilaði fyrir hann. Er kennar-
inn hafði heyrt Thiiy leika féllst
hann á að kenna honum.
Seinna fór Thiiy í blindraskól-
ann í París og komst þá að hjá
þekktum orgelkennara, André
Marchal, sem var einn upphafs-
manna þess að endurvekja orgel-
tónlist í Frakklandi. Thiry stund-
aöi einnig nám við tóniistarskól-
ann í París hjá Rolande Fakinelli,
þar sem hann fékk fyrstu verð-
Iaun í orgelleik.
Störf Thiry eru mjög fjöiþætt;
hann kennir, heldur tónleika, ger-
ir útvarpsþætti og leíkur Ínn á
hljómplötur í Frakklandi og Öðr-
um löndum. Hann hefur tekið
þátt f fjölda tónlistarhátfða víða
um Evrópu og tekur virkan þátt í
flutningi kammertónlistar, bæði
með hljóðfæraleikurum og söngv-
urum. Einnig er hann heiðurs-
organleikari við la Chapelle du
Centre Hospitalier Universitairie
Charles Nicolle í Rouen.
öryrkjabandalag fslands og
Landssamtökin Þroskahjálp
veittu sérstaklega ijárhagslegan
stuðning vegna komu Thiiy. Auk
þess sfyrkti Hótel Holt sérstak-
lega komu hans.
—khg.
Tíminn
'FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER1990
sflug Víglundar Þorsteinssonar
varð undir. Tímamynd: Pjetur
Áætlunarflug til Amster-
dam og Hamborgar
komið á hreint:
Flugleiðir
fengu leiðir
Arnarflugs
Samgönguráðherra, Steingrímur J.
Sigfússon, veitti í gær Flugleiðum
hf. heimild til að haida uppi reglu-
bundnu áætlunarflugi með farþega,
vörur og póst á flugleiðum til Amst-
erdam og Hamborgar. Þar með er
stór hluti áætlunarflugs til og frá
íslandi í hendi Flugleiða.
Jafnframt þessu hefur ráðherra
ákveðið að öllum íslenskum flugfé-
lögum verði heimilað að stunda
leiguflug með farþega á öllum flug-
leiðum frá 1. maí til 30. september ár
hvert, en utan þess tíma er leiguflug
óheimilt. Leiguflug með vörur til og
frá íslandi verður hins vegar óháð
sérstökum leyfisveitingum stjórn-
valda.
Samgönguráðherra sagði á blaða-
mannafundi í gær að verulega vant-
aði upp á að fjárhagslegur grundvöll-
ur ísflugs væri með þeim hætti að til
greina hefði komið að veita félaginu
áætlunarflugrekstrarleyfi. Umsókn
ísflugs um flugleiðirnar til Amster-
dam og Hamborgar kom því ekki til
greina.
Víglundur Þorsteinsson, forsvars-
maður ísflugs, lýsti því yfir í gær að
búið væri leggja áætlunarflug á fs-
landi undir einokun með ákvörðun
samgönguráðherra. Að mati Víg-
lundar hefðu gögn þau, er ísflug
lagði fram um fjárhagsstöðu féiags-
ins, verið fullnægjandi til að veita fé-
laginu flugrekstrarleyfi. Þá var Víg-
lundur mjög óhress með vinnu-
brögð Flugráðs, sem fjallaði um
beiðni ísflugs um flugrekstrarleyf-ið.
Víglundur sagði í því sambandi að
Flugráð væri vanhæft til að fjalla um
málið, þar sem formaður þess, Leifur
Magnússon, væri einnig fram-
kvæmdastjóri Flugleiða, samkeppn-
isaðila ísflugs um umbeðnar flug-
leiðir. Kvaðst Víglundur vera tilbú-
inn til að leggja það fyrir dómstóla til
að þeir skæru úr um hvort Flugráð
væri vanhæft eða ekki, enda þótt
sýnt væri að það myndi í engu breyta
ákvörðun samgönguráðherra.
Að sögn Víglundar ætlar ísflug að
reyna að fá enn frekari rýmkun á því
tímabili sem leiguflug með farþega
er gefið frjálst. Sagði Víglundur að
alls ekki væri nóg að gefa leiguflugið
frjálst í aðeins þrjá mánuði. Níu til
tíu mánuðir væru lágmark, ef ein-
hver rekstrargrundvöllur ætti að
vera undir rekstri leiguflugs. khg.