Tíminn - 20.10.1990, Síða 5
Laugardagur 20. október 1990
Tíminn 5
FFSÍ og LÍÚ skrifuðu undir kjarasamning í gær. Benedikt Valsson, hagfræðingur FFSÍ:
Verkfallsboðun stendur
uns félagar samþykkja
í gær var skrifað undir kjarasamning milli Farmanna- og fiski-
mannasambandsins og Landsambands íslenskra útvegsmanna.
Samningurinn er hliðstæður samn-
ingi milli útgerðarmanna á Vest-
fjörðum og Alþýðusambands Vest-
fjarða og í raun sami samningurinn
og hefur legið fyrir frá því í vor.
Aðspurður um það, hvers vegna
ekki hefði verið skrifað undir, þar
sem þessi samningur hefði legið á
borðinu frá því í vor, sagði Benedikt
Valsson, hagfræðingur Farmanna-
og fiskimannasambandsins, að þetta
tilboð, sem kynnt hafi verið í vor,
hafi ekki gengið nærri því nógu
langt, að mati aðildarfélaga FFSÍ,
sérstaklega hvað varðaði olíukostn-
aðar-hlutdeildina. Olíuverðshækk-
unin hafi skert laun flestra sjó-
manna um 8% og það hafi fyllt mæl-
inn. „Þá var hugsuð sú leið að segja
við LÍÚ að boðað yrði verkfall, en við
myndum samt sem áður skrifa und-
ir þann samning sem væri í boði frá
þeim. Hann yrði sendur til allra fé-
laga og þeir myndu greiða atkvæði
um hann. Þá kæmi það í Ijós, hvort
menn höfnuðu þessum samningi
eða samþykktu hann. Ef að menn
samþykktu þennan samning mynd-
um við blása af þessa verkfallsboðun
og telja að þar með væri málið leyst.
En LÍÚ sagði að þeir vildu ekki skrifa
undir við þessar kringumstæður, og
vildu ekki skrifa undir þegar búið
væri að boða verkfall. Þess vegna var
ekki skrifað undir samninginn þá,
ekki vegna þess að við vorum ekki
tilbúnir, heldur vegna þess að LÍÚ
neitaði og í raun má segja að þeir
hafi neitað að skrifa undir þau
samningstilboð sem þeir upphaflega
réttu okkur," sagði Benedikt.
Benedikt sagði að þó svo væri skrif-
að undir, væri að þeirra mati ekki
komið nægilega til móts við þær
kröfur, sem þeir hafi upphaflega
gert um leiðréttingu á þessari svo-
kölluðu olíukostnaðarhlutdeild. „En
þetta er það sem við teljum að við
komumst lengst í núverandi stöðu."
Benedikt sagði að næsta skrefið væri
að leggja þennan samning fyrir
þeirra félagsmenn og það verði að
koma í ljós hvort þeir muni sam-
þykkja hann. „Ég þori engu að spá
um úrslit, en verkfallsboðunin
stendur þar til samningurinn hefur
verið samþykktur af félagsmönn-
um,“ sagði Benedikt. —SE
Námskeið fyrir kennara sex, sjö og átta ára barna um listsköpun og hvernig hægt sé að
tengja hana almennri kennslu. Matthildur Guðmundsdóttir kennslufulltrúi:
Skemmtilegri, betri skóli
Um 70 konur hafa undanfama þrjá
þriðjudaga verið á námskeiðum á
vegum Fræðsluskrifstofu Reykja-
víkur, kennaraháskólans og
menntamálaráðuneytisins. Nám-
skeiðin hafa gengið út á það hvem-
ig hægt væri að tengja ýmiss konar
listsköpun og hreyfingu við hina
hefðbundnu kennslu. Konumar
em allt kennarar í sex, sjö og átta
ára bekkjum gmnnskóla í Reykja-
vík.
Matthildur Guðmundsdóttir,
kennslufulltrúi á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur, sagði að konurnar
væm þarna fyrst og fremst af áhuga,
þar sem þetta væri utan vinnutíma.
Hún sagði að svona námskeið skil-
uðu sér beint inn í kennsluna og það
stuðlaði að því að gera skólana sem kennslan væri fjölbreyttari Á námskeiðunum hefur verið farið skeiðinu og prófa sig áfram til að
skemmtilegri og fjölbreyttari, þar væm meiri líkur á því að allir fyndu í myndlist, tónlist og hreyfingu og geta leiðbeint nemendum sínum á
sem færri biðu skipbrot. Eftir því eitthvað við sitt hæfi. taka kennaramir virkan þátt í nám- sem bestan hátt. —SE
Kennaramlr vom mjög áhugasamir, þegar Ijósmyndari Tímans leit Inn á námskeiðið, og höföu engan tíma til
að líta upp og brosa framan í myndavélina.myndavélina. Tlmamynd: pjetur
„Nú á tímum kreppu og hmns,
þegar gamli ijórflokkurinn
treystir sér og íslendingum ekki
til aðgerða, en býður erlendum
aöilum sérkjör, þá er brýnt að
stofna nýtt sfjómmálaafi,
Heimastjómarsamtökin.“ Þetta
segir meðal annars í fréttatil-
kynningu frá framkvæmdanefnd
hinna nýstofnuðu Heima-
stjóraarsamtaka.
Að sögn Stefáns ValgeirSsonar
náðist ekki samkomulag, á síö-
asta aðalfundi Þjóðarflokksins,
um stefnuskrá flokksins sem
fulltrúar flokksins og fulltrú-
ar Heimasfiómarsamtakanna
höfðu unnið að í samelningu.
Ákveðið var því að koma á fót
nýju stjómmálaafii, Heima-
stjórnarsamtökum. Ætlunin er
aö samtökin bjóði fram í öllum
kjördæmum landsins í næstu al-
þingiskosningum.
Framkvæmdanefnd hinna nýju
samtaka skipa þeir Tómas Gunn-
arsson hrl., Hilmar Haraldsson
og Jón Hjálmar Sveinsson. Ráð-
gerir nefndin að vinna að kynn-
ingu á áhersluatriðum Heima-
stjómarsamtakanna á fundum í
öllum kjördæmum á næstu vik-
umog mánuðum og jafhíramt að
vinna að formlegri stofnun sjálf-
stæðra heimastjómarsamtaka í
hverju kjördæmi. Þegar þau, þ.e
kjördæmasamtökin, hafa tekið
til starfa, er ráðgert að efna til
landsfundar, sem tekur ákvörðun
um heildarstefnu.
í fréttatilkynnlngu fram-
kvæmdanefndarinnar segir að
miðað verði að lýðræðislegri af-
greiðslu mála innan samtakanna
og lögð áhersla á valddreifingu
og jöfnuð manna. Heimastjóm-
arsamtök hvers kjördæmis eiga
að vera sem sjálfstæðust, en þau
skuldbinda sig þó til að halda sig
stefnuskráa landsfunda og fylgi
þeim aðferðum við afgreiðslu
mála sem samþykktar verða á
tanusiunuuni. «*»&*
Við erum að opna nýjan bamavörumarkað að Strandgötu 3,
ídag laugardaginn
Gott úrval af vönduðum
bamafatnaði svo og
bamaleikföngum
Leitið ekki langt
yfir skammt -